Alþýðublaðið - 26.03.1947, Síða 5

Alþýðublaðið - 26.03.1947, Síða 5
Miðvikudagur, 26. marz 1947 NÚVERANDi ÁSTAND í Sovétríkjunum er í raun og veru í mótsögn við staðhæf- ingar Sovétstjórnarinnar sjálfrar. Sú mótsögn hefur samt ekki komið fram á sama hátt og pólitísk met- orðagirnd hjá einhverri ó- ánægðri stétt. Þrátt fyrir að lítið hefur heyrzt um hers- höfðingjana rússnesku nú eftir stríðið, þá er ekkert. sem bendir á, að átt hafi sér stað neinn klofningur milli borgara- og herráðsins, eins og sumir ætluðu, að hlyti að verða eftir stríðið því síður hefur komið fram nokkur ein beitt stjórnmálaskoðun hjá almúganum. Hann hyggur ekki á neina gagnbyltingu en það eru áhöld um það, að hve miklu leyti sú stétt, er nú hefur ráðin, getur bætt úir ýmislegum skorti, sem herj- ar á landið, á grundvelli hug sjóna sinna og áætlana. Hin geysilegu efnahags- legu vandamál, sem stjórnin hefur átt við að stríða eftir styi’jöldina, hafa reynzt þungleyst. Mönnum hættir nefnilega til að gleyma því, að Sovétríkin urðu fyrir langtum meira tjóni, en nokkur hinna bandamann- anna. Þetta er ákaflega erf- itt úrlausnar, hvaða hagkerfi eða stjórnarfyrirkomulag, sem verið hefði til staðar. Það er býzna fróðlegt, en gagnslaust að hugsa um það, hvernig ástandið hefði orð- ið, ef Sovétríkin hefðu notið stuðnings innflutnings á er- lendum vörum og samvinnu við Vesturvefdin, sem hag- fræðilega séð, standa Rúss- um framar. Ef þetta hefði gerzt, myndi alvarlegt strik hafa komið í reikniginn við 4, fimm-ára áætlunina, sem birt var vorið 1946. Sú á- ætlun gaf það til kynna, að víðtækar ákvarðanir væru teknar. Endurreismn yrði framkvæmd með sósialistisk- um aðferðum og einnig sem minnst breytt út af þeim siða reglum, er lúta ekki beint hinn póiitísku íhlutun ráð- stjórnarinnar. Þessi áætlun geriir það að verkum, að ráð- stjórnin verður að beita þeim aðferðum í endurreisn inni, er vekja tortryggni auð valdsríkjanna. Hún eykur ekki á vinsemdina í sambúð- inni. Handhægasta ráðið til að bæta úr tilfinnanlegasta skoftinum, var að-færa sér sem bezt í nyt þau landsvæði, sem lágu undiir pólitískri stjórn ráðstjórnarinnar í A.- Evrópu og- Asíu. En Vestur- veldin óttast, að einmitt öll þessi lönd verði héðan í frá útilokuð £rá Öllum viðskipt- um við umheiminn. En ráðstjórnin varð að beita öllum brögðum til að stappa stálinu í þjóðina, sern var við að * örmagn- ast af hörmungum styrjald- arinnar. Það var samt ekki nóg að afbera hörmungarnar. Þjóðim varð að vinna. Pravda segir 21. sept 1946: „Enduirbót á lífskjörum þjóð arinnar er óhugsanleg án þess að hröð aukning .verði á iðn- aðár- og landbúnaðarfram- leikslunni.“ Það er greinilegt., að end- Rússneskar íþróttakonur. Þessar rússnesku íþróttakonur tóku þátt í Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum, sem háð var í Osló í sumar. Vöktu þær mikla athygli á mótinu fyrir keppnishæfni sína og framgöngu. Myndin var tekin, þegar rússnesku íþróttakonurnar gengu fylktu liði inn gli*!, ' á leikvanginn. urreisnartímabilið leiðir af sér launahækkun vegna af- kastanna, á sama hátt og aukin laun og betri kjör eru notuð til að ýta undir, að meiri starfskraftur berist þeim hlutum landsins, þar sem veðrátta er óblíðari. Landbúnaðurinn er aðal- vandamál allra efnahagsá- ætlana. Hin fasta tilhögun á samyrkjubúunum fór úr skorðum við eyðileggingu stríðsins. Undirstaða þessa kerfis voru miðstöðvar land- búnaðarvélanna, en 3 þús. þessara stöðva eyðilögðust. Hversu ástandið er alvarlegtj, verður bezt séð af því, að j þeim héruðum í vestri, er Rússar hafa á sínu valdi, og þar sem samyrkjubúakerfið ekki ríkt, hafa engar áætlan ir verið gerðair í þá átt að af- nema eignarétt bændanna. í grein, sem birtist í Pravda 8. ágúst, er sagt, að forustu- menn bænda á þessum svæð um, enda þótt þeir hafi eigna réttinn óskertan, fái inn- göngu í Kommúnistaílokk- inn. En í þeim héruð- um, þar sem samyrkjubú- hafa verið, getur stjórnin ekki komið með neina mála- miðlun. Stjórniir samyrkjubúanna hver um sig hafa verið gerð- GREIN þessi, um Rúss- land, sem þýdd er úr norska tímaritinu ,1 Dag‘, er eftir lektor við háskól- ann í Manchester í Eng- landi. ur ábyrgar fyrir þeim skorti, sem er á ýmsum verkfærum, sem ekki er talinn stafa af vanrækslu þeirra, heldur skoirti á hæfileikum þeirra til að stjórna betur en „skrif stofustjórn“. Yfir því er stöð- ugt kvártað, hvað viðvíkur iðnaðinum, að: - flokkurinn megni. ekki að taka fyrir alls konar skriffinsku og sofanda hátt, sem þar ríkir. Annars virðist erfitt að dæma um, hvort beri að kenna það, sem aflagá fer, skipulaginu, eða stjórnum einstakra atvinnu- greina. Á fyrstu styrjaldarárunum hafði flokkurinn sig minna frammi en nokkru sinni áð- ur. Það var heppilegra að máttur vopnanna hefði mest að segja, og það var betra að treysta á þann styrk, sem enn fólst í hin- um þjóðlegu og sögulegu erfðavenjum Rússanna. Auk þess var minna fengizt urn, hverjir væru meðlimir flokks Beiðnir um möit á múrvinnu skulu vera skrif- legar og sendas’t itil Sveinlasambands byggingarmanna, Kirkjuhvoli.— Sé skrifstofan lokuð, má leggjá þær í bréfakassann við dyr skrifstofunnair. r NEFNDIN ms, einkum, ef um var að ræða hermennina á vígvöll- unum og verkamenn í her- gagnaframleiðslunii. Það skipti ekki svo miklu máli, hvaða pólitískar hugsjónir væru að brjótast um innra með þeim. Sömuleiðis gerði samvinnan við bandamenn það að verkum, að nánara andlegt samband varð að hafa við þá. Það var hægt að koma hinum sósía- lístiska hugsunarhætti á, að stríðinu loknu. Þegar sigur- inn var vís, tóku sovétleið- togarnir þegar að blása bylt ingarandanum. og hinum sósíalistísku meginireglum í flokldnn og endurskapa hjá honum hugsjónir Marx og Lenins. Á sumrinu 1946 fékk þessi endursköpun drjúgan styrk. í grein, sem Pravda birti 8. ágúst, var lögð áherzla á nauðsyn þess að hafa strang- ara eftirlit með inntöku nýrra félaga í flokkinn, sem samgnstóð þá af 6 milljónum meðlima, er voru aðeins 1600 000 árið 1939. Ef val meðlimanna er rétt, segir þar ennfremur, væri unnt að byggja á réttum og íullkomn um pólitískum grundvelli. Það ber ekki aðeins að óttast veikleika, heldur að allra handa annarlegum og ó- þægilegum hugsjónum skjóti upp. Ennfremur segiir svo, að sósíalistiskt þjóðfélag bari alltaf keim af fortíðinni og leifar frá kapitalismanum leynist í undirvitundinni, þannig' veikíeikakenndir, brot á meginreglum, þjóð- ernishugsjónir o. fl. hindri á vallt vöxt og viðgang þjóð- félagsins. Landið er ekki að skilið frá auðvaldsheiminum með neinum járnmúr. Övin- samlegar hugmyndir geta brotizt fram, einkum hjá.Iítt þroskuðu fólki. Vitsmunamenn Rússa háfa af tveimu/r ástæðum verið á- litnir grunsamlegri. Að því er Zhdanov heldur fram, eru þeir grunsamlegir vegna þess dálætis, er þeir hafa á borg- aralegri menningu annarra landa. Því næst hefur þess orðið vart, að þeiir sjálf- ir álítu, sig hafa rétt á að leiða hjá sér alla pólitík. Hin sovétíska hugsjón þolir ekki, að þeir varpi frá sér póli- tíkinni, stendur í Pravda 19. september. Frá bókmenntun um hefur þessi tilhneiging breiðst út til leiklistarinnar, kvikmyndalistarinnar, já yf- irleitt til alls andlegs fífs. Það verður jafn vel að hafa taumhald á kímninni. Það er eftirtektarverðast,. hvernig þróunin hefvur orð- ið í uppeldismálum. Nafn Stalíns var í nánum tengs'l- um við allar skólaumbætur á 4. tug aldarinnar, sem tóku fyrir, að fengist yrði við nokkur stjórnmálaleg og þjóðfélagsleg viðfangsefni. Nú eir þetta breytt. í leiðara, sem birtist í blaðinu Isvestia við byrjun skólaársins, var brýnt fyrir skólunum að inn ræta nemendum sóíalistískar meginreglur. í leiðara sínum sagði Pravda, að þessi fræðsla skyldi ekki takmarkast við skólana. ,,Hin kommúnist- iska hugsjón á að fylgja ung- lingunum inn á heimili þerra, félög ungkommúnista og foreldrarnir skulu vísa þeim veginn“. Olympíuleikanna. ISLENZKA OLYMPÍU- NEFNDIN hefur nýlega feng ið skýrslu frá framkvæmda- nefnd Olympíuleikanna, um ýmiss konar undirbúning og skipulagningu leikanna. Eins og áður hefur verið getið, verða Olympíuleikarnir háð- ir í London á „Empire“- leikvanginum dagana 29. júlí til 14. ágúst næsta ár, en vptrar-Olympíuleikarnir hefjast 30. janúar í St. Moritz í Sviss. Keppnisgreinarnar á Ol- ympiuleikunum verða m. a. þessar: Frjálsar iþróttir, fim- leikar, sund, knattspyrna, hjólreiðar, grísk glíma, sigl- ingarlist. róður, skylmingar, skotfimi, lyftingar, körfu- knattleikur, valilar-„hockey“, hnefáleikar og nútíma fimmt arþraut. Einnig verður keppni í ýmsum listgreinum, svo sem • bókmenntum, höggmynda- list, mállara- og teiknilist, byggingalist og tómlist. —• Loks eru ráðgerðpr sérstak- ar sýningaríþróttir. Ekki hefur enn verið á- kveðið hvernig hýsing i- þróttamanna og starfsliðs verður hagað, en gert er ráð fyrir að sjá þurfi meira en 5000 keppemdum og starfs- mönnum fyrir fæði ög hús- næði á meðan á leikjunurn stendur. Talað hefur verið um að byggja Oilympiu-þorp. eins og stundum hefur verið gert áður. en ekkert hefur verið ákveðið í þvi efni.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.