Alþýðublaðið - 03.04.1947, Page 4
ALÞÝE JBLAÐIÐ
Fimmtudagur, 3. apríl 1947.
^U|><)dubtaM&
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Símar:
Ritstjórn: símar 4901, 4902.
Afgreið'sla og auglýsingar:
4900 og 4906.
Aðsetur
í Alþýðuhúsinu við Ilverf-
isgötu.
Verð í lausasölu: 50 aurar.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Páskahlé sg sljérn-
PÁSKAHELGIN, sem fer
í hönd, gefur öllum aknenn-
ingi kost á að njóta hvíldar
frá daglegum störfum. Al-
þingi hefur einnig fengið
frí; aðeins ríkisstjóminni
virðist lítið munu verða til
setu boðið helgidagana. Hún
mun yfir hátíðina verða
önnum kafin við að undir-
búa afgreiðslu fjárlaganna
og hinna ýmsu stórmála, sem
hún hefur lagt fyrir alþingi
að undanförnu.
*
Þjóðviljinn hefur notað
það sem árásarefni á ríkis-
stjórnina, að hún lét gefa
þinghlé yfir páskana og tel-
ur hann þessa ráðstöfun
bera þess vitni, að rikis-
stjórnin sé úrræðalaus og
starfslaus. Gengur hann
svo langt í fullyrðingum sín-
um að staðhæfa að atváhnu-
leysi sé yfirvofandi af völd-
um ríkisstjórnariinnar!
Fullyr ðingar Þ j óð vilj ans
um starfsleysi stjómarinnar
munu láta hjákátlfega i eyr-
um þeirra, sem fylgiast með
landsmálum og vita þar af
leiðandi, að stjórnin hefur
lagt hvert stórmálið af
öðru fyrir alþingi
að undanförnu Úrræða-
Jeysi hennar er ekki meira
en það, að henni hef-
ur tekizt að stöðva dýrtiðar-
skriðuna, en það er afrek,
sem fyrrverandi rikisstjórn-
um hefur verið um megn.
Þannig hefur stjórninni efa-
laust tekizt að koma i veg
fyrir, að aðalatvinnuvegir
landsmanna og þá fyrst og
fremst sjávarútvegurinn,
yrðu fyrir stórfelldum á-
föllum, eða stöðvuðust með
öllu. Það er því tvímæla-
laust mun nær sanni, að
stjórnin hafi komið i veg
fyrir atvinnuleysi en valdið
þvi eins og Þjóðviljinn vill
vera láta.
*
Þvi verður ekki haldið
fram af neinni sanngimi, að
það sé sök núverandi ríkis-
stjórnar að alþingi hefur
ekki enn afgreitt fjárlög
þessa árs. Ástæðan fyrir
því, að enn hefur ekki verið
gengið frá fjárlögum, er
stjórnarkreppan, og á henni
áttu kommúnistar sök. Þeir
hafa einnig liagt mikla á-
herzlu á að tefja fyrir af-
greiðslu fjárlaganna með
skripaleik sínum i sambandi
við þau. Þjóðin mun áreið-
lega gera sér grein fyrir þess
um staðreyndum og kveða
á sínum tíma upp yfir
kommúnistum þann dóm,
Margir liáííOisdagar og langt frí. — Ferðalög og
bifreiðaferðir. — Varað við ferðalögum austur um
sveitir. — Verzlun í íyfjabúðum. — Nokkur orð
til kaupmanna.
NÚ ER BYRJUÐ ein lengsta
hátíð ársins, í mörgum grein-
um er ekki unnið á laugardag-
inn fyrir páska og verða því
fimm hátíðardagarnir. Fólk
mun að þessu sinni mjög nota
hátíðardagana til ferðalaga,
enda er nú að því leyti hægara
um ferðalög hjá mörgum, að
bifreiðum hefur fjölgað óskap-
Iega. Unga fólkið mun því á-
reiðanlega nota tækifærið og
fara upp til fjallanna ef það
getur einhvers staðar fundið
færa fönn.
FÁ ER EKKI ÓLÍKLEGT,
að enn verði straumur austur í
sveitir og að margir leiti alla
leið austur í Hreppa og Þjórsár-
dal til að sjá eldgosið. Mér
þykir nóg um þessi gosferðalög.
Að sjálfsögðu er eðlilegt að
jarðfræðingar og aðrir vísinda-
menn svo og blaðamenn og út-
varpsmenn fari austur, en
ferðalög almennings í stórum
stíl austur eru ekki heppileg
og gera má ráð fyrir að fólk
austur ’ þar hafi nú öðrum
hnöppum að hneppa en að
veita fólki móttöku. Fólk ætti
að spara ferðalög sín austur, og
það er að minnsta- kosti skylda
þess að leita ekki heim á heim-
ilin.
PILLERIUS SKRIFAR á
þessa leið: „Ég kom um daginn
inn í apótek til þess að kaupa
bómull og gazebindi. Tveir
litlir bómullarpakkar og tveir
smápakkar af gazebindi kosta
saman lagt kl. «6.00. Nú vita
allir, að enda þótt hvort tveggja
sé sótthreinsað og sæmilega um
búið, þá geta slíkar vörur ekki
kostað nema lítið brot af kr.
6.00 í innkaupi. Þetta gildir
auðvitað fjölda annarra hluta,
sem fást í þessum búðum eins
og aspirín eða magnýl, joðáburð
eða heftiplástur, að þeir eru
seldir með mörg hundruð pró-
sent álagningu. Mér er spurn,
er enginn vegur til þess að
kippa þessu í lag?
MÉR HEFUR DOTTIÐ ráð í
hug af því að margir lofa nú
frjálsa verzlun. Því mega ekki
matvörukaupmenn eða aðrar
búðir selja einföld og nauðsyn-
leg' meðul eins og flest þeirra,
fást í handkaupum í apótekum?
Það þarf enga sérfræðinga til
þess að selja aspirín eða joð-
áburð, jafnvel þótt joðáburður
sé talinn eitraður, sem er nú
tæpast rétt. Lyfjadeild Áfengis-
verzlunarinnar ætti að geta selt
þetta hvaða kaupmanni, sem er
alveg eins eins og bökunar-
dropa.
ÞAÐ VÆRU mikil þægindi
fyrir alla, sem búa í úthverfum
Reykjavíkur, að geta náð í
handhægustu meðul án þess að
ómaka sig ofan í bæ og svo að
bíða í 5—15 mínútur í apótek-
unum eftir afgreiðslu. Það er
ekki hlaupið að því fyrir íbúa
Kleppsholts, að bregða sér í
vetfangi ofan í bæ til þess t. d.
að ná í brunasmyrsl, allra sízt
ef strætisvagninn er bilaður.
Ég er viss um að allir væru
fegnir ef svolítið væri rýmkað
til um leyfi á sölu ýmissa lyfja,
og smásalarnir mundu senni-
lega þakka fyrir slíka álagningu)
og nú er leyfileg á þessa hluti.
Bara, að verðlagsstjórinn sæi
þá í friði.
EN í ALVÖRU TALAÐ, ef
ekki eru líkur til að þetta fáist
leyft með góðu móti, þá ætti
einhver framtakssamur kaup-
maður í útliverfum bæjarins að
ná sér í nokkur meðul og aug-
lýsa það. Væri gaman að vita,
hvort dómarar landsinS treystu
sér til að dæma hann í stórar
sektir. Ef slíkt yrði uppi á ten-
ing'num, væri eitthvað meira en
lítið bogið við réttarfarið hér
á landi. Það er varla meiri sekt
í því frá sjónarmiði almennra
borgara, að selja apsirín í
venjulegri búð heldur en að
selja hænuegg í apóteki. Ég
verð að segja það, að ef ný-
lenduvörukaupmaður fær ekki
aspirínleyfi, ja, þá ættu kaup-
menn að fá t. d. karamelluleyfi
dæmt af apótekum."
Hannes á horninu.
sem þeir skilja bezt og
gleyma sízt.
*
Gííuryrði Þjóðviljans um,
að ríkisstjórnin sé völt í
sessi, munu verða mæld og
vegin innan skamms, ef að
líkum lætur. Kommúnistar
hefðu átt iþess kost að láta
fram fara könnun á fýlgi
stjórnarinnar meðal alþingis
manna fyrir löngu, ef þeir
hefðu óskað eftir því. Einar
OiJgeirsson boðaði, þegar
stjórnin var mynduð, að
kommúnistiar myndu brátt
kanna fylgi hennar á al-
þingL .Með þeim ummælum
var gefið í skyn, að komm-
únistar ætluðu að bera
fram vantraust a stjórnina.
Af því hefur ekki orðið enn-
Sýning é annan
£ páskum ki. 20.
W :
i ■% »
eftir Thomton Wilder.
Aðgöngumiðasala í Iðnó á laugardag
frá klukkan 2—6. — -Tekið á móti
pöntunum í síma 3191 kl. 1 til 2. —
Pantanir sækist fyrir klukkan 4.
þá, og almenningur mun á-
reiðanlega skilja, að ástæð-
an fyrir þvi sé fremur sú, að
kommúnistar finni vanmátt
sinn 1 stjórnarandstöðunni,
en að þeir vilji sýna stjórn-
inni nokkra hlífðarsemi.
Fylgi kommúnista á alþingi
hefur líka komið glögglega í
ijós nú nýlega. Þegar kosið
var í stjórn síldarverksmiðja
rudsins fékk Áki Jakobsson
tvö atkvæði auk atkvæða
þingmanna kommúnista.
Meðan máttur þeirra er ekki
meiriil en það, munu þeir
vissulega ekki velta rífcis-
stjórninni þótt þeir gjarnan
viildu. En meðan þeir áræða
ekkí að bera fram vántraust
á stjórnina, verða8 stóryrði
þeirra ekki alvarléga itekin.
Almennur
í Breiðfirðingabúð annað í páskum kl. 9,30.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 6.
Breiðfirðingabúð.
Þorvaldar Skúlasonar
í Listamannaskálanum
er opin daglega
il 10.
34 herber
helst á hitasvæðinu óskast til leigu í sumar eða
fyrr. Ennfremur skrifstofuherbergi. Mikil fyrir-
fram greiðsla. Upplýsingar gefur Pétur Þ. J.
Gunnarsson — sími 2012 og 3028.
Ég undirritaðiír hefi í dag selt hr. kaupm. ís-
leifi Pálssyni verzlunina Þórsmörk á Laufásvegi
41.
Um leið og ég þakka viðskiptin á liðnum árum,
vona ég að verzlunin njóti framvegis sömu vin-
sælda og áður.
Reykjavík, 1. apríl 1947.
Virðingarfyllst,
Sæmundur Jónsson.
Samkvæmt ofanskráðu hefi ég undirritaður
keypt verzlunina Þórsmörk.
Mun ég reka verzlunina með líku sniði og ver-
ið hefir og gera mér far um að verða við kröfum
viðskiptamanna minna. %
Virðingarfyllst,
ísleifur Pálsson.