Alþýðublaðið - 26.04.1947, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.04.1947, Blaðsíða 3
Laugardagur 26. apríl 1947 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Stefán Jóh. Stefánsson forsæfisráðherra: Veíur kvaddur - sumri fagnað. íSLENDINGAR hafa fyrr og síðar fagnað tvennu: sumri og-sól. Víða á landinu, sérstaklega þar sem sól hverf ur sjónum um langt skeið, er fyrstu sýn hennar fagnað með ' sérstöku sólarkaffi. Og fyrsti sumardagur er um land allt haldinn hátíðlegur, og hver óskar öðrum igléði- legs sumars. Svo hefur það verið, og svo verður það. Koma sumarsins er öllum fagnaðarefni. Hún er tákn þess, að riki vetrar sé i burtu rutt og við taki ilangir, ljós- ir og hlýir dagar, grös grænki en frost og fannir hverfi. Allt þetta er mönnum óblandið gleðiefni. Það léttir fargi af flestum, er vetur kveður. Og þó eru veturnir misjafnlega harðir Oig hrjóskir, og sumrin öll ekki eintóm bliða. En sumar- ið er samt tákn nýrrar og betri árstíðar, er orkar á hugi 'manna til örvunair og gleði. Vetur sá, er nú kveður, hefur framain af verið mjög mildur og gæftaríkur. En siðari hluta hans hefur hert frost og kingt snjó. Og ennlþá breiða djúpar .fannir sig yfir margar byggðir landsins. En menn vita, að við komu sum- arsins muni fannirnar fljótt hverfa Þessi vetur hefur, eins og aðrir, borið margt misjafnt í skauti sínu fyrir ísíenzku iþjóðina. Frægasta eldfjall heimsins, Hekla, hefur hafið gos og breitt eldi og eimyrju í kring um sig. Blómlegar foyggðir hafa orðið fyrir tjóni, svo að áhyggjur stafa af, Iþótt vonir standi ti.1 að áföll verði ekki óskapleg. Hrikaleikur og hamfarir Heklu hafa verið mörgum stórkostleg sýn og ógleym- anleg, en um leið vakið .geig og kvíða. Eldfjallið mikla, fagra og sagnríka er Íslandi f senn ógn og undur. Það er itákn vors tígulega föður- lands, þar sem ofin er saman d órofa heild eldur og is, tign og tortíming. Hafið mikla, en oft harð- dræga og mannskæða, hefur verið gjöfult á liðnum vetri. Islenzku sægarparnir hafa dregið úr djúpi þess dýrmæt föng fyrir þjóðina alla. Gæft- ir hafa viðast verið óvenju miklar og þá hefur s'ázt staðið á sjómönnunum að stunda hina erfiðu sókn. Verður sem fyrr, að þar er fengurinn mestur og gagnlegastur. Veturinn er liðinn með alla við'burði sína, góða og vonda, voveiflega og gleði- ríka. Sá hinn sami kemur aldrei aftur, þó að við taki síðar bræður hans, líkir eða Ávarp þetta flutti Stef- án Jóh. Stefánsson í ríkis- úttvarpið á sumardaginn fyrsta, og er það birt hér m eðgóðfúsu leyfi höfund- ar. ólikir, þó aldrei eins, en með ærið margt sameiginlegt. Sumarið tekur nú við völd- um. Það verður ekki ná- kvæmlega eins og nok'kurt annað sumar, sem liðið er eða síðar kemur. En þó er eitt vist. Þvi fylgir aukin birta og h'lýja, gróður og gleði. Þess vegna er þvi fagnað hér á landi, meira og almennara en annars staðar. A.llir vita nú, hvað vetur- inn bar í skauti sínu. Enginn veit, hvaða viðburði nýbyrj- að sumar hefur þjóðinni að fær,a. Allir óska þess, að þeir verði ánægju og heillarákir. Þjóðin hefur undanfarið lif- að góðæri. Allir hafa haft atvinnu og hana vel borg- aða. Ekki hefur verið skort ur á neinum nauðsynjum. Þjóðin hefur aflað sér tækja itil aukinnar framleiðslu. Or yggið hefur vaxið i þjóðfé- laginu. Fullkomið frelsi er fengið, frelsið, sem allir fagna eins og sumri og sól. En réttindin auka öllum á- byrgum mönnum skyldur. Það, sem er unnið, þarf að vernda. Engin sumargleði má láta mönnum það úr minni líða. Langir, sólbjartir dagar geta orðið dapurlegir, ef þeim fylgja ekki fullkom in réttindi fólksins í lland- inu til þess að lifa óháð og í frelsi, með rétti til þess að vinna og raunar skyldu til að vihna, rétti til þess að- fá vinnu sína vel borgaða, öryggi um afkomu sína og sinna. En til Iþess, að svo megi verða, og allir geti not ið hins dásamlega íslenzka sumars, þurfa að vera ríkar i hugum alllra manna skyld- urnar við samfélagið, skyld urnar til þess að vinna sam eiginlega að því, að búa svo að þjóðfélagsháttum, með gagnkvæmum skilningi og samtökum, með fullum lýð- ræðsháttum, án ofbeldis og ofstopa, að búskapur þjóðfé lagsins, ibúskapur heildarinn ar, geti gengið öruggum skrefum áleiðis til heilla og hagsmuna fyrir stéttir þjóð- félagsins. Ofríki cg síngirni eru verstu óvinirnir. Skiln- ingur, sanngirni og félags- hyggja eru styrkustu stoðirn Framhald á 7. síðu. Venjið œskuna á að lesa það, sem ástsœlasta skáldið skrifaði: Ijóð, sögur, rifgerðir og bréf Jónasar Hallgrímssonar. rwtF." Box, 263. Garðastræti 17, Aðalstræti 18, Njálsg. 64, Laugavegi 100, Laugavegi 38. Öll verk skáldsins, um 800 síður, í einu bindi aðeins 60,00, í fallegu bandi. Sent í póstkröfu um allt. Minningarorð: Ragnhiidur Sveinsdóttir frá Eyrar- bakka. lokkrar sfúlkur geta ferigið fasta atvinnu við afgreiðslu- störf í mjólkurbúðum vorum. Upplýs- ingar í skrifstofu vorri. Mjólkursamsalan. ÞAÐ MÁ MEÐ SANNI SEGJA um alla, sem ber fyr- ir okkur á lífsleiðinni, eins og sáldið segir: - Útan manninn allir sjá, orð og gjörðir heyra, én hyggjuranninn horfa upp á held ég kosti meira. Ekki á þetta síður við um gamla fólkið, sem á vegi okk ar verður. Við sjáum látlausa búninginn, föstu skrefin og finnum traústa handtakið, en við sjáum ekki örin, sem það ber eftir stríð lífsins, eða hvað undir þeim býr. Það hefur átt við sína eigin erfið- leika að stríða, sem örlög lífs ins höfðu áskapað því, og svo var samtíðin, sem hafði upp á elda og ísa að bjóða, ásamt verzlunareinokun og sam- gönguleysi á sjó og landi. Þessar eldraunir lífsins hef ur fólkið, sem nú er að hverfa okkur sjónum, orðið að þola. Það er því engin von, að það bindi bagga sína eins og unga fólkið. Kjörorð þessa fólks er að spara, vinna og vera trúr. Léttúð í hvaða mynd, sem er, er í þess augum ódyggð. Ég sá Ragnhildi fyrst aust- ur í Fljótshlíð. Hún var þá vinnukona hjá Teiti og Sig- urlaugu á Grjótá. Síðan flutt- ist hún í tómthúsbjúið í Heið arko|i í Hraunshverfii. Þar bjuggu þau Þorvaldur Magn ússon og hún. Það voru slæm kjör, sem margur átti í þá daga, að búa í tómthúsi með bairnahóp. Faðirinn fór 1 burtu tvisvar á ári, að leita sér atvinnu (slátt og vertíð), hinn tímann var enga vinnu að hafa, en móðirin sat heima með soltin böirnin og stund- um, ef hart var í ári eða afla lítið, kom heimilisfaðirinn með litla björg í bú. Þannig voru lífskjör íslenzku for- mæðranna. Það er því ekki að undra, þótt þær horfi undr andi á það, sem nú gerist. Þessari hetjubaráttu varð Ragnhildur sáluga að berjast, og hið ytra sýndist hún koma heil hildi firá, en ekki er mér grunlaust, að ströng lífsbar- átta hafi bugað þrek hennar, þó að hún héldi hið ytra kjarki. Svo fór þó, að lífs- kjörin breyttust tiLhins betra. Það fór að lifna yfir atvinnu- lífi á Eyrairbakka, og þangað fluttust þau og stunduðu bæði.vinnu, þótt gömul væru og slitin. Hún vann eins og víkingur heima og heiman, og afkoman batnaði og varð sæmileg. Vissulega hefðu þau getað unnið svona fyrr hefðu þjóðfélagsleg skilyrði verið fyrir hendi. Eftir margra ára dvöl á Eyrarbakka fluttust þau til Rreykjavíkur og bjuggu á Bergstaðastræti 63. Þar dó> Þorvaldur árð 1937. Ragnhildur og Þorvaldur eignuðust fimm börn, tvær dætur og þrjá syni, sem öll eru hér í Reykjavík. Þorvaldur var móðurbróð- ir Ársæls Árnasonar og’ þeirra systkina. Faðir hans var Magnús Þorvaldsson frá Stóra-Klofa á Landi. Magnús var Íengi á heimili föður míns, og eru fyrstu kynni mín af Ragnhildi komin af því. Ragnhildur sáluga var fædd í Selkoti undir Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru: Sveinn, síðar bóndi á Stóru- borg undir Eyjafjöllum, Jóns sonar bónda í Aurgötu, Ólafs sonar bónda á Raufarfelli (síðar Fit), Eiríkssonar í Pét- ursey. Móðir Ragnhildar var Þorbjörg Árnadóttir frá Rauðafelli, Árnasonar ,og Ragnhildar ísleiksdóttir í Efstabæli, Árnasonar í Drangs hlíð ísleikssonar. Allt voru þetta þekktar og að góðu kunnar bændaættir við Eyja fjöll. Ragnhildur var í föður- ætt af hinni kunnu Selkots- ætt, en í móðurætt komin frá Jóni Oddssyhi Hjaltalín sýslu manni. Ragnhildur ólst upp með móður sinni fyrstu æviárin, og var móðir hennar hin mesta ágætiskona, að því er merkur maður hefur sagt mér, sem þekkfii hana frá æskuárum sínum. Hún var um margra ára skeið vinnu- kona hjá Einari Jónssyni, hreppstjóra í Yzta-Skála, en síðar sjá syni hans, Guð- mundi á Fit. Svo vel féli þeim við hana, að synir Ein- ars sáu henni alveg farborða í ellinni. Ragnhildur var vinföst og raungóð, og alla tíð sýndi hún mér traust og vináttu, sem ég aldrei fæ nógsamlega metið. Hún var mjög greinagóð á menn og málefni og hélt sér vel að útliti og kröftum, þótt aldurinn væri hár. Ragnhild- ur var mjög myndarleg í verkum sínum. Útprjón eft- ir hana og spuni gaf ekki eft- ir því bezta, sem nú sést á sýningum. Ekki voru það þó skólarnir, sem hún hafði Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.