Alþýðublaðið - 26.04.1947, Síða 5
Laugardagur 26. apríl 1947
5
SAGA ÞESSA EFNIS
ihófst árið 1944, þegar or-
ustan um Normandi stóð
sem hæst og hinar gegndar-
lausu loftárásir Þjóðverja
á London voru í algrelym-
ingi.
Vísindakona, dr Ellis Rus-
sel að naifni, hélt þá ræðu
fyrir starfsmenh Rauða
krossins í London. Kona
þessi hafði lagt sérstaka á-
herzlu á að kynna sér, hvern-
ig hægt væri að ráða bót á
matvæilaskortinum. Hún
gerði sér það ljóst, að hung-
ursneyð myndi bíða Evrópu.
Einkum lagði hún áherzlu á
að ráða bót á skorti þeim,
sem börnin yrðu að líða. Eitt
aðalvandamálið á þeim vett-
vaingi var mjólkurskortur-
inn. Hvernig væri hægt að
ráða bót á honum? Væri t. d.
hægt að nota sóyabaunir eða
eitthvert annað kornmeíi í
stað mjóikur? Til þess að
það væri hægt, myndi verða
að breyta sterkjunni í þess-
um fæðutegundum í dextr-
in, sem væri meltanlégt fyr
ir börn.
Éinn af áheyrendum dr.
Ellis var B. W. Perkins, sem
hafði helgað lif sitt hjálpar-
starfseminni. . Hann hafði
verið i Kína sem starfsmaður
Rauða krossins og hafði þar
reynit að gefa börnum soya-
mjóilk í st.að venjulegrar
mjólkur. Ræða dr. Ellis
beindi huga hans inn á nýjar
brautir i þessu eíni.
Tveimur mánuðum seinna
var Perkins staddur á Norð-
ur-ítaliu, en þar var þá mik-
ill matvælaskortur. En þar
sem engar soyabaunir voru
fáanilegar, datt Perkins í hug,
hvort ekki væri reynandi að
nota bygg í stað þeirra. Hann
fékk afnotarétt af efnarann-
sóknarstofu og hóf starfið í
desemiber 1944. Fyrsta til-
raunin, sem hann ■ gerði,
heppnaðist ekki. Aðeins litill
hluti af sterkjunni hafði
breytzt í dextrin.
í sambandi við efnafræði-
nám sitt hafði Perkins kom-
izt á kynni við ölgerð. Hann
leitaði hjálpar til ölgerðar-
mannanna í Róm, sem reynd-
ust hiriír hjálpsömustu,. og
meðal beirra kynntist hann
dr. Canrino, sem reyndist
honum ötull samstiarfsmaður.
Þeir fergu dálitið malt frá
Á STRÍÐSÁRUNUM
unnu vísindamenn allra
íanda að því að finna upp
ýmis gerviefni, sem bætt
gætu úr maívælaskortin-
um. í eftirfarandi grein,
sem birtist nýlega í Cham-
bers’ Journal, Edinborg,
segir Egon Larsen frá því,
er fundið var upp efni, sem
nota má í stað mjólkur.
ölgerðarmönnunum og blönd
uðu það með perusafa og
að lokum var bætt við soya
baunum, sem þeir höfðu náð
í einhvern veginn.
Þessi tilraun heppnaðist
vel, og nú þurftu þeir aðeins
að fá meira magn af þessum
efnum. Perkins leitaði til
vinar síns eins í Ameríku,
sem var kunnugur Hoover
fyrrverandi forseta, og Hoo-
ver gat komið því til leiðar,
að sendar voru birgðir af
soyalbaunum frá Kialiforníu.
Nú var fundin örugg og
einföld aðferð til að fram-
leiða þessa vörutegund í stór-
um stil.
Ens'kur læknir, dr. Early,
gerði tilraunir með þessa
fæðutegund og komst að því,
að hún var lystug, vitamín-
rík og hafði engin óholl á-
hrif á börn. Dr Early lagði
til, að þessi ,,gervimjóik“
yrði kölluð maltavena.
Á sjúkrahúsi var malta-
vena fyrst reynt (af ítölskum
læknum, sem notuðu hana
handa börnum, sem ekki gátu
ney.tt mjólkur. Reynslan var
góð.
Fregnir af þessari nýju að
ferð bárust til London, og dr.
Ellis, sem áður er nefnd,
gerði víðtækar athuganir
með hana á ýmsum heilsuhæl
um víðs vegar á Englandi
með góðum árangri; loks var
hún tekin í notkun á her-
námssvæði Breta í Þýzka-
landi.
Meðan framleiðsla malta-
vena var enn á tilraunastigi
i Róm, komu fyrirspurnir
um það frá Balkanlöndunum,
og þeir félagar sendu skýrslu
um árangur sinn ásamt efna
samsetningu maltavena til
Aþenu, Belgrad og Zagreb.
Þá var þetta einnig tekið í
notkun í þeim af samveldis-
löndunum, sem fátækust
voru að mjólk, svo sem Ind-
landi og Suður-AfríLu.
Dortmund í Ruhr-hérað-
inu, sem nú er mjög þjökuð
af matvælaskorti, var eitt
sinn einhver frægisti ölgerð-
arbær í Þýzkalandi. Nú eru
ölgerðirnar þar hæittar að
framieiða bjór, en framleiða
í þsss stað maltavena fyrir
ýmsar uppeldisstofnanir í
Ruhr—héraðinu.
Eins og sjá má af því, sem
að framan greinir, var malta-
vena einhver mikilvægasta
uppgötvun, sem gerð hefur
verið á seinni öldum til að
bæta úr matvælaskortinum.
Barn, sem er eldra en þriggja
mánaða, getur lifað á malta-
vena eingöngu , mokkrar vik-
ur. í fyrstu léttist það að
vísu, en eftir fyrstu vikuna
byrjar það að þyngjast smátt
og smátt. Bezti árangurinn
hefur náðst með því að
blanda saman til helminga
mjóiik' og maltavena, og
þýzkir læknar fullyrða jafn--
vel, að þessi blanda sé nær-
ingarmeiri og hoÉiari en ó-
blönduð mjólk.
Eins og áður er getið, er
sterkjan, sem var í maltimu,
orðin að dextrini í malta-
vena, og er hún þarinig að
riokkru leyti meit.
Maltið er spírað bygg, en
við spírunima myndast í
by.gginu efni, sem nefnist
diastase (eins konar enzym).
Diastase ásamt vatni breytir
sterkjunni í sykur, og það er
einmitt sú efnabreyting, sem
á sér stað, þegar bjór er
bruggaður. Sé maltið síðan
hitað með vatni, fæst sykur-
upplausn, og úr þeirri upp-
lausn er vínandi fenginn
með því að blanda geri sam-
an við og láta gerjast.
Þegar maltiavena er mynd
að, er .aðferðin svipuð, nema
að þá er diastase ekki látið
verka eins lengi, svo að úr
sterkjunni myndast dextrin
í stað sykurs.
Framleiðsla maltavena
var í fyrstu svo flókin cg
vandasöm, að það var á valdi
fagmanna einna að framieiða
þett efni, en brátt var fundin
einfaldari og hentugri að-
ferð, sem jafnvel er hægt að
framkvæma í heimahúsum,
og fer hún hér á eftir.
Efni: 1V4 pd. valsað malt,
3/4 gallon vatn, 14 pd. soya-
mjöl, m pd. hveiti, Vi teskeið
salt. Við suðuna má nota
venjulega pönnu. Er hún þá
fyrst fyllt með vatni og það
hitað upp í 50° C. Nokkru af
þessu vatni (% af því, sem
■tiitekið er í uppskriftinni) er
helt í krukku ásamt saltinu,
maitinu og hveitinu, sem áð-
ur hefur verið hrært út í
köldu vatni. Þessu skal síðan
haldið við 50°! C i klukku-
tíma eg hrænt oft í. Því næst
er hitinn hækkaður upp í
Framhald á 7. síðu.
MM eitthvað nýif íil fermingar-
, . gjafa.
Bó1 hnífar — Bókmerki — Armbönd — Víra-
virkL — Krossar og Hálsmen. — Allt innlend
framleiðsla.
Cuiáugur Magnússon gullsmiður,
Laugaveg 11.
Benna-sögurnar eru dálæti allra drengja um ger-
voll Norðurlönd.. og hinn enskumælandi heim,
enda eru þær bráðskemrntilegar og fullar af
spennandi ævintýrum, sem hrífa og heilla hugf
allra drengja á broskaaldri.
Benni i IeyniþjónusL
unni hefur farið. sigur-
för um allt ísland, og
hefur þeási saga verið
keypt og lesin framar
flestum öðrum ung-
lin.gabókum,
Fyrir skömmu var
drengur nokkur í
Reyk j avík , spurður,
hverjum hánn vildi
helzt líkjast, þegar
hann vrði stór.
„Benna,“ svaraði
hann. Það var hvorki
hik né efi hjá dreng!
Nú kemur hér sagan af Benna í frumskógum Ame-
ríku, þar sem bver furðulegi atburðurinn rekur
annan. Þetta er ekki beint framhald af fyrri sög-
unn, en hér eru sömu félagarnir þrír á',ferðinni:
Benni, Kalli og Áki, á flugi um háloftin og í á-
tökum við ræningja og villidýr á jörð niðri og í
hveifingum neðanjarðar í leit að f jársjóöum. Þeir
eru svo sem ekki athafnalausir, piltarnir þeir arna!
Geíið drengjunum BENNA-
sögurnar í sumargjöf. Þeir
munu rneta þá gjöf vel og
’ * lengi.
Coward
--------*-------
„Ærs!adraof|orion6í5 gleðlieikor um
. soiritismac
7-------♦-------
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR hefur nú lokið
við æfing'ar og undirbúning á sýningum á hinu heims
kunna leikriti Noel Cowards, sem hefur á íslenzku
■hlotið nafnið „Ærsladraugurinn“.
Verður frumsýning á þessu
nýja leikriti næstkomandi
iföstudag. Leikritið tekur
spiritistisk efni til meðferð-
ar, en er þó gleðileikur, án
þess að hægt sé að telja það
áróður gegn spíritismanum.
Haraldur Björnsson hefur
sett leikrit þetta á svið, en
hann fer þó ekki með hluit-
verk i leiknum.
Hins vegar eru hlutverk-
in í höndum margra' beztu
krafta leikfélagsins.
Arndís Björnsdóttir fer
með aðalhlutverkið: miðil-
inn, Þóra Borg Einarsson
og Valur Gíslason leika rit-
höfundahjón, Herdís Þor-
valdsdóttir leikur fyrri konu
rithöfundarins, sem er látin,
Emilía Borg og Brynjólfur
Jóhannesson leiha læknis-
hjón og Nína Sveinsdóttir
leikur þjónustustúlku. Leik-
tjöld hefur -Lárus Ingólfsson
málað.
Noel Coward er, eitíis og
kunnugt er, eitt af víðfræg-
ustu 'ieikritaskáldum Eng-
lendinga og mjög vinsæll
léikari, meðal annars í 'kvik-
myndum. Þett,a leikrit hans
hefur verið sýnt víða um
heim og hvarvetna hlotið
hinar mestu vinsæidir.
r
Drengjahlaup Ár-
mannsfer fram n.k.
sunnudag kl. 10,30
DRENGJAHLAUP Ár-
manns, það 25. í röðinni fer
fram næstkomandi sunnudag
kl. 10,30 fyrir hádegi. 38
þátttakendur verða í hlaup-
inu og eru þeir flestir frá 6 í-
þróttafélögum.
Keppt verður í þriggja
manna og fimm manna sveit-
um, samkvæmt regiugerð ÍSI
um fiokkakeppnni. í 3ja
manna sveitunum er keppt
bikar, sem Eggert Kristjáns-
son stórkaupmaður gaf og er
haridhafi þess bikárs nú ÍR. í
fimtíi manna sveitunum ex?
keppt um nýjan bikár, sem
líftryggingadeild Sjávátrygg-
ingafélags íslands gaf.