Alþýðublaðið - 22.05.1947, Blaðsíða 7
Fimmtndagur 22. maí 1947.
ALf»YÐUBLAÐ8B
7
Bærinn í dag.
*------------------——'4
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Blaðamannafélagið
heldur fund á morgun kl. 3-
að Hótel Borg.
Uppeldisheimili fyrir
vandræðapilta
og sfútkur
FJÖRIR ÞINGMENN,
Katrín Thoroddsen, Gylfi Þ.
Gíslason, SigurSur E. Hlíðar
og Helgi Jónasson, flytja í
sameinuSu þingi tillögu til
þingsályktuinar um uppeldis
heimiii.
■ Þingsályktunartillagan mæl
ir svo fyrir, að alþingi á-
lykti að fela ríkisstjórnmni
að undirbúa lögigjöf um stofn
un athugunarstöðva fyrir
börn, sem séu andlega miður
sín, og uppeldisheimili fyr-
ir pilta og stúlkur, sem séu
á glapstigum siðferðislega,
;sbr. lög um vernd barna og
ungmenna, og leggi frum-
varp um stofnun slíkra
stöðva fyrir nsesta reglulegt
alþingi.
r
Iþróifamóf skólans
í Haukadal
Á ANNAN í hvítasunnu
fer fram nemendamót íþrótta
skólans í Haukadal í tilefni
af 20 ára afmæli skólans.
Bæði eldri og yngri nem-
endur koma þarna saman og
keppa í öllum íþróttagrein-
um. Líklegt er að háð verði
bændaglíma, boðhlaup, sund
og frjálsar íþróttir. Annars
er ekki enn endanlega búið
að ganga frá dagskrá móts-
ins, en hugmyndin er að í-
þróttirnar verði sem næst
kennslustundarformi.
Bandaríkin banna
sígareHusendíngar
iii Þýzkalands
S'ígareffusaSa þar
hefur aukiS á
vandræðin.
BANDARÍKJASTJÓRN
hefur bannað allar sending-
ar á sígarettum til Þýzka-
lands, og er talið að þetta
bann geti stuðlað verulega að
því, að bæta úr matvæla-
skortinum á Þýzkalandi.
í því sambandi er bent á,
að þýzkir bændur hafi í
seinni tíð lag't það í vana
sinn, að neita að selja mat-
væli til borganna fyrr en
þau yrðu greidd þeim í síg-
arettum, og þar með oft auk-
ið stórkostlega á matvæla-
skortinn og vandræðin í
bæjunum. En sígaretturnar
seljast sem kunnugt er fyrir
geypiverð á svörtum mark-
aði á Þýzkalandi.
Til dæmis um það var
skýrt frá því í fréttum frá
London í gærkveldi, að síg-
arettubirgðir fyrir 7000
sterlingspund, sem fluttar
hefðu verið til Berlínar.
hefðu verið seldar þar á
svörtum markaði fyrir það
sem svaraði 2 milljónum
sterlingspunda!
Er þess nú vænzt, að
bannið á sígarettusending-
um frá Bandaríkjunum til
Þýzkalands svipti þýzka
bændur að minnsta kosti
þess’ari ástæðu, gróðavoninni
af greiðslum í sígarettum, til
þess að halda tímum saman
í afurðir sínar, sem fólkið í
bæjunum þarfnast svo mjög.
Palssíímimálið
áfram að auka vald sitt í Pal
estínu þar til þeim hefur tek
ist að fá þjóðirnar til að við
urkenna landið sem þeirra
eigin.
En hvar myndi það enda
ef leyfðir yrðu takmarkalaus
ir innflutningar Gyðinga til
Palestínu? Áreiðanlega ekki
við Jordan og naumast held
ur ' við Euphrates. Þetta er
erfitt málefni og ekki gott að
segja hvað er rétt og hvað
rangt.
Því ástandi sem ríkir nú í
Palestínu verður að ljúka,
uppreisnar og skemmdarstaf
semi verður að leggjast nið
ur. Ólíklegasta leiðin til
þess að þetta takist er að
halda áfram að flytja Gyð-
inga inn í landið. Þeirn mun
síðift- er þetta hægt á þann
hátt að leyfa öðrum kynflokk
um að setjast þar að. Ekki
myndi héldur vera farsælt að
láta Araba drottna yfir land-
inu. Það er heimskulegt að
láta sér detta í hug að öll
vandamál Palestínu væru
leyst ef aðeins Bretar færu
þaðan. Eða méð því að Arab
ar og Gyðingar fengju hvor-
ir um sig sína eigin yfir-
stjórn.
Nei, vandamál Palestínu
verða ekki leyst á svo auð-
veldan hátt sem margir
halda. Það líklegasta til að
koma málunum í betra horf
er að sameinuðu þjóðirnar
leggi málinu lið. Og líkleg-
ast er að landið þurfi enn
um stund að vera undir hern
aðaraga, og væri þá eðlileg-
ast að alþjóðasamband færi
með málin. En hlutverk hvers
þess aðilja sem kann að taka
við stjórn yfir „landinu heil
aga“ hlýtur að vera: Að land
ið sé ekki gert að sjúkrahúsi
villuráfandi flækinga. Að
þeim sé hegnt, sem gera sér
leik að því að brjóta lög og
sýna mótbróa við yfirvöld-
in. Að orðin sem Gyðingar
nota svo mjög „að koma
heim“, eða kröfur Araba um
að þeiim beri meiri réttur til
landsins en Gyðingum, er
ekki hægt að taka alvarlega.
Það er ekki æskilegt að Pal
estína sé setin og Stjórnað
með hervaldi. Suezskurður-
inn, sem er svo mjög þýð-
ingarmikill fyrir hinn vest-
ræna heim, má ekld vera
umsetinn af herjum.
Þessi höfuðvandamál vilj-
um vér Bretar gera okkar
til að leysa, og sennilegt er
að engir séu eins vel fallnir
til að leysa úr þessum hnút-
um eins og vér, vegna þess
hve vel vér þekkjum Palest-
ínu og það fólk sem byr þar.
- Skemmtanir dagsins -
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Grunaður um
njósnir“ — James Mason,
Lucie Mannheim og Herbert
Lom. — Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Leyndardómur
fornsölunnar“ — Gloria
Jean, John Qualen. — Kl. 5,
7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Meðal flökku-
fólks“ Stewart Granger, Je-
an Kent, Anne Graword,
Dennis Price og Robert Help
man. — Kl. 5 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Ilnefaleikakapp-
inn“ — Danny Kaye. •— Kl.
7 og 9.
H AFN ARF J ARÐARBÍ Ó: —
„Heiður Englands" sýnd kl.
' 7 og 9.
Söfn og sýningar:
MÁL VERK ASÝNIN G Ásgeirs
Bjarnþórssonar í Listamanna
skálanum. Opin kl. 10 til 10.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: —
Opið kl. 14—15.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
Leikhúsið:
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
„Ærsladraugurinn". Sýning
kl. 8 í kvöld. — Síðasta sýn
ing fyrir hvítasunnu.
TÍVOlí:
SKEMMTISTAÐURINN
TIVOLI opinn kl. 2—11,30.
Samkomuhúsin:
ALÞÝÐUHÚSIÐ í HAFNAR-
FIRÐI: Dansað í kvöld kl.
9—11.30.
BREIÐFIRÐIN G ABÚÐ: —
Dansað frá kl. 9—11.30.
Hljómsveit Björns R. Einars-
sonar með Karl Billich.
HÓTEL BORG: Dansað frá ld.
9—11,30. Hljómsveit Þóris
. Jónssonar.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9
árd. Hljómsveit frá kl. 10
síðd.
TJARNARCAFÉ: Salirnir opn-
ir.
Útvarpið:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Al-
bert Klahn stjórnar).
20.45 Dagskrá kvenna (Kven-
félagasamband íslands)
Erindi: Björgunarstarf
(frú Ingveldur Einars-
dóttir frá Grindavík).
21.10 Frá útlöndum (Gísli Ás-
mundsson).
Jarðarför föður okkar, tengdaföður
Sigurðar Björsissoiii
rrverandi brunamálastjór
ler iram írá JJómkirkjunni föstudaginn 23. maí n.k.,
kl. 3 síðdegis, að aflokinni kveðjuathöfn á heimili hans.
Það er ósk aðstandenda, að þeir, sem hefðu viljað
minnast hins látna með blómum, styrki heldur ein-
hverja líknarstarfsemi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför föður okkar,
Jésis Jénssonar,
Hverfisgötu 68.
Guðríður Jónsdóttir. Ingveldur Jónsdóttir.
Þökkurn af hjarta öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför dóttur
okkar,
líristíiijr.
Rósa Aðalheiður Georgsdóttir,
Kiartan FriðberY Jónsson.
ssa
til sölu.
íshjörninn hf.?
Hrólfsskálamelum. Sími 2467.
i^ýir árekstrsr Gytiinga @g Aralsa.
-----------------«-------
PALESTÍNUNEFNÐ BANDALAGS IIINNA SAMEIN-
UÐU ÞJÓÐA, sem kosin var á aukaþingi þess í New York
á dögunum til að rannsaka Palestínumálin og búa þau undir
hiS reglulega allsherjarþing bandalagsins í haust, fer til
Palestínu í byrjun júnímánðar til þess að kynna sér málin
á sjálfum vettvangi viðburðanna.
Nokkur ótti er látinn í
ljós um það, að Arabar muni
verða ófúsir til samvinnu við
rannisókmannefndina; en tal-
ið er þó, að allmikill hópur
Araba, einkum verkamenn
og menntamemn, sé hlyntur
áframhaldandi flutningi Gyð
inga til Palestínu og vilji
eiga friðsamlega samvinnu
við þá.
Fregnir frá London í gær-
kveldi sögðu frá nýjum, all-
alvarlegum ártekstrum milli
Araba og Gyðinga í grennd
við Tel Aviv í Palestínu og
létu mokkrir menn þar lífið.
Úibrel
&lþýSubla$i8.
HjólrelSarmaður
ekur á lífiitn dreng
Droiiguririii
beinsbrotnaéi.
LAUGARDAGINN 17. þ.
m. milli kl. 3 og 4 e. h. ók
unglingspiltur, sem var á
reiðhjó'li á lítinn dreng við
húsið nr. 5 við Amtmamms-
stíg mieð þeim afleiðingum,
að litli drenguxinin viðbeinis-
'brotnaði.
Sá sem ók reiðhjólinu
stanzaði þiegar og reisti
drenginn upp af götunni, en
fór svo í burtu.
Rannsóknarlögregilan bið-
ur _bann, sem ók reiðhjólmu,
að gefa sig fram við hana
sem fyrst,, ennfremur sjónar
votta, sem kynnu að hafa
séð síysið.