Alþýðublaðið - 11.06.1947, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 11. júní 1947
Útgefandi: AlþýSuflokkurinn.
Kitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson.
Auglýsingar: Emilia Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
láEdasfyrkur fi!
pólifískra níðskrifa l
FYRIR NOKKRUM DÖG-
UM birtist í einu dagbiaði
höfuðstaðarins auglýsing,
sem töluvert umtal hefur
vakið. Þar boðaði Halldór
Kiljan Laxness, skáld og rit-
höfundur, að hann myndi
verja styrk beim til ritstarfa,
sem þingkjörin nefnd hefði
úthlutað honum 1947, kr.
4000,00, að viðbættri meðal-
vísitölu þessa árs, en frá-
dregnum opinberum gjöld-
um, sem á upphæðina leggj-
ast, til verðlauna fyrir ,,beztu
ritgerð um uppgjöf íslenzkra
landsréttinda haustið 1946,“
byggða á „hlutlægri rann-
sókn á aðaraganda þessa
verknaðar, svo og hvötum
þeirra manna innlendra, er
að honum stóðu.“ Eiga dóm-
arar ritgerðanna, sem berast,
að vera þrír, tilnefndir af Al-
þýðusambandi íslands, Stúd-
entafélagi Reykjavíkur og
Félagi þjóðvarnarmanna,
einn frá hverjum aðila; en sú
kvöð á að liggja á ritgerðun-
um, að hið kommúnistíska
bókaútgáfufélag Mál og
menning hafi forgangsrétt á
kaupum á þeim til birtingar.
Svo mörg eru þau orð
skáldsins um þessa fyrirhug-
uðu, frumlegu verðlauna-
veitingu.
/
Það er ekki í fyrsta sinn í
ár, sem Halldór Kiljan Lax-
ness vekur á sér athygli fyr-
ir einkennilegar ráðstafanir
á því ríkisfé, sem honum er
árlega úthlutað til ritstarfa.
Fyrir tveimur árum lýsti
hann opinberlega yfir því, að
hann myndi leggja það i sjóð
til styrktar „ofsóttum lista-
mönnum“. í fyrra neitaði
hann blátt áfram að veita
fénu viðtöku. Og nú í ár ætl-
ar hann, sem sagt, að verja
því til „verðlauna fyrir beztu
ritgerð um uppgjöf íslenzkra
landsréttinda haustið 1946“.
Það lítu ekrki út fyrir að
Halldór Kiljan Laxness sé
mikið þurfinn fyrir það fé,
sem honum er veitt af litlum
efnum þjóðarinnar til rit-
starfa; enda mun hann, því
betur, hafa mjög viðunan-
legar tekjur af bókum sínum
bæði hér og erlendis. En með
því, að árlega er stofnað til
eins konar styrjaldar um
skáldastyrk hans, fer ekki
hjá því, að mönnum komi
það alleinkennilega fyrir
sjónir, hvernig honum er
varið. Nú síðast var um það
deilt, hvort hefja skyldi
Halldór Kiljan Laxness upp
í sérstakan ,,heiðursflokk“
við úthlutun skáldastyrkj-
anna og hækka stórlega þá
fjárupphæð, sem honum er
veitt; en á það var ekki fall-
izt. Máske er í því að 'leita
Verkfallið og nauðsynjarnar. — Börnin og mjólk-
in. — Fiskurinn og kjötið. — Samúðin og fanta-
brögðin. — Orlofsfé og sumarleyfin. — Frjáls-
ræði sjúklinga. — Ekki fieiri bréf um það.
VERKFALLIÐ setur svip
sinn á Reykjavík, ekki aðeins
að því leyti, að vinna liggur
niðri, heldur hefur mannfjöld-
inn aukist mjög í miðbænum
um miðjan dag, svo að Austur-
stræti lítur út eins og stór-
borgarstræti. Þegar Dagsbrún-
armenn leggja niður vinnu
nálgast það allsherjarverkfall.
Störf þeirra grípa svo mjög inn
í störf annarra stétta og stöðv-
un þeirra hefur áhrif á hvert
eitt einasta heimili í bænum.
FÓLK hefur mjög spurt um
það, hvort mjólkurflutningar
til bæjarins mundu stöðvast,
Þeir stöðvast, ef bifreiðarnar,
sem flytja mjólkina hingað,
geta ekki fengið benzín. Ein-
hverjar viðræður munu hafa
farið fram milli stjórnar mjólk
ursamsölunnar og stjórnar
Dagsbrúnar um þetta mál, en
lausn mun ekki fengin þegar
þetta er ritað. Verður því þó
ekki trúað, fyrr en það kemur
í ljós, að stjórn félagsins stöðvi
flutning á mjólk til bæjarins.
Hún er aðalfæði barnanna og
þeim ætti að minnsta kosti að
forða frá afleiðingum verk-
íallsins.
SKORTUR á ýmsum fæðuteg
undum mun gera vart við sig
eftir einn eða tvo daga. Til
tölnlega litlar kjötbirgðir munu
vera til í bænum og erfitt mun
reynast að fá fisk keyptan. Við
skulum að þessu sinni láta það
liggja milli hluta, hvort rétt
hafi verið að hefja verkfalls-
herferð nú, en yfir hinu er ekki
hægt að þegja, að það er á-
stæðulaust að koma í veg fyrir
að almenningur geti keypt
nauðsynlegustu fæðutegundir,
þó að vinna sé stöðvuð við
stærstu fyrirtækin í bænum.
Enda mun verkamönnum vera
það ijóst, að samúðin með verk
falli þeirra verður enn minni
en hún nú er, ef þeir láta stjórn
sinni haldast það uppi áð beita
fantabrögðum.
VERKAMAÐUR skrifar mér
þetta bréf: „Er það rétt, sem
fullyrt er, að orlofsfé sé ekki
borgað út meðan á verkfalli
stendur? Ég spyr vegna þess,
að ég ætlaði að fara að taka út
orlofsfé mitt í dag og fékk það
svar hjá flokksstjóra mínum,
að orlofsfé væri ekki borgað
út þegar á verkfalli stæði. Mér
þótti þetta illt, því að ég ætl-
aði að nota tækifærið meðan
verkfallið væri til þess að fara
í sumarleyfi og þurfti ég þá á
peningunum að halda. Ég
skrifa þér af því að mér finnst
þetta harla einkennilegt og
undarleg lög, eins ágæt og þau
eru að öðru leyti, — ef þetta
er þá rétt“.
ÞETTA ER FÁSINNA. Or-
lofsfé er greit't þó að verkfall
standi yfir. Upplýsingar flokks
stjórans eru annað hvort
sprottnar af fávizku eða ill-
girni. Ég birti hins vegar bréf
verkamannsins eingöngu vegna
þess, að vel getur verið að
fleiri hafi fengið svona upplýs-
ingar en hann. Það er alveg
rétt af verkamönnúm að reyna
að nota tímann meðan verkfall
ið stendur til að taka sér sum-
arleyfi. Verkfallið getur staðið
lengi, þó að maður voni að svo
verði ekki. — Og rétt er því að
nota tímann eins vel og hægt
er.
ÍBÚI í KLEPPSHOLTI
skrifar: „Ég las með athygli
bréfið frá „Sveitakonu" um
sjúklingana á Kleppi og frjáls-
ræði þeirra. Sögur hennar eru
ljótar og til skammar fyrir það
fólk, sem þannig kemur fram,
hvort sem um er að ræða börn
eða fullorðna. Hins vegar má
ekki loka augunum fyrir því,
að það verður að hefta að ein-
hverju leyti frelsi hættulegra
sjúklinga. Við höfum orðið fyr-
ir leiðindum — og stundum
miklum af völdum sjúks fólks
frá Kleppi og fólk vill ekki
þola það. Allir verða að bera
sinn sjúkdóm eins og hvern
annan kross. Því má þó ekki
Framhald á 7. síðu.
ástæðunnar til þess, að skáld-
ið hefur nú ákveðið að verja
styrk sínum til hinnar frum-
legu verðlaunaveitingar, sem
að framan getur, þó að erfitt
eigi menn með að hugsa sér,
að skáld og rithöfundur á
borð við Halldór Kiljan Lax-
ness geti látið stjórnast af
slíkum hégómaskap.
En hvað, sem því líður:
Þjóðin er fyrir löngu orðin
þreytt á hinum árlega met-
ingi og þvargi einstakra rit-
höfunda út af skáldastyrkn-
um. Og það eru takmörk fyr
ir því, hvaða skollaleik hún
lætur bjóða sér, með það fé,
sem hún af fátækt sinni ver
til þess að styrkja þá eða
sýna þeim viðurkenningar-
vott. Þegar Halldór Kiljan
Laxness auglýsir, að hann
ætli að nota skáldastyrk
sinn í ár til þess að verð-
launa pólitísk níðskrif um
meirihluta alþingis, til áróð-
urs fyrir kommúnista, þá er
þjóðinni meira en nóg boðið.
Og fjöldi hugsandi manna,
einnig þeirra, sem meta
skáldskap Halldórs Kiljans
mikið, spyrja í dag, hvort
ekki sé tímabært, að hlífa
honum fyrst um sinn við
frekari skáldastyrk, sem
hann bersýnilega hefur svo
litla þörf fyrir og ekki veit
annað með að gera, en það,
sem hin boðaða verðlauna-
veiting ber vott um.
held ég í Þjóðleikhúsinu seinni hluta þessa mánaðar.
Upplýsingar í síma 7240 11. júní 1947.
Lárus Pálsson.
Hringurinn hefur ákveoið að gera sérstakar
ráðstafanir til að efla barnaspítalasjóð sinn, með
því að safna sem fiestum styrktarfélögum. —
Styrktarfélagar greiða 100 kr. árstillag í þrjú ár.
Ef nógu margiT gerast styrktarfélagar, rís barna-
spítalinn brátt af grunni. Hringurinn heitir því
á alla, unga og gamla, að styðja hann í þessu
starfi meðþví að gerast styrktarfélagar og hvetja
aðra til þess. Þar sem hér er um velferðarmál
barnanna að rlæða, fer vel á því, að foreldrar inn-
riti börn sín sem styrktarfélaga.
Hringkonur annast innritun styrktarfélaga
í Soffíubúð á miðvikudaginn og næstu daga frá
kl. 10—6.
Einnig má alla daga hringja í síma 3146 —
3680 — 4218 — 422 — 4283, þar sem líka verð-
ur tekið við nýjum styrktarfélgum.
Þeir, sem hafa danska múrara í vinmi, eru
vinsamiega beðnir að láta há vita, að Múrara-
félag Reykjavíkur býður þeim í sameiginlega
ltaffidrykkju að Tjarnarlundi föstudaginn 13. þ.
m. kl. 8V2 síðdegis.
Aðgnguömiðar verða afhentir í skrifstofu
Sveinasambandsins fiimmtudaginn 12. þ. m. kl.
5—7 síðdegis.
SKEMMTINEFNDIN
H.f. Elmskipafélag íslands.
Aðalfundur félagsíins, sem haldiimj var 7. jþ. m.
samþykkti að greiða hluthöfum 4% — fjóra af hundr-
aði — í arð fyrir árið 1946. Arðurinn verður greiddur
á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík, og hjá afgreiðslu
mönnum þess um land1 allt gegn framvísun arðmiða.
Hnnþá eiga allm‘argir hluthafar e'ftir aði sækja
nýjar arðmiðaarkir fyrir árið 1943—1961. Eru þúð vin-
samlíeg tilmæli félagsins, að hluthafar sæiki arðmiða-
arkimar hið fyrsta, en þær eru afhentar gegn fram-
vísun arðmiðastofnsins, sem fylgir hlutabréfum félags-
ins í Reykjavík, stofnunum er ennfremur veitt við-
taka hjá afgreiðslumönnum þess um land allt.
Þá skal á það minnt, að arðmiði er ógildur, ef ekki
hefur verið krafizt grieiðslu á honum áður en 4 ér eru
liðin frá gjalddaga hans.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.