Alþýðublaðið - 12.07.1947, Side 2
2
r» n'wimrrriw
ALÞÝÐUBLAÐID
Laugardagur 12. júlí 1947
20 blla happdrætfi S.I.B.S.
1, dráffur n.k. þriðjudag, 15. júls
Lokað
verður vagna- sumarleyfa 21. júlí til 4. ágúat að báðum
dögum meðtöidum. — Tekið á -móti fatnaði til 16. júlí.
Nýja Efnalaugin h.f.
Sími 4263.
Ferðir Ferðafélagsins
í þessum mánuði.
Frakklandssöfnunin
nam um 407 þús. kr,
Norrænu útvarps-
mennirnir ferðast um
Suðurland á morgun
EINS OG ÁÐUR hefur
verið getið í blaðinu eru
komnir hingað á vegum rík-
isútvarpsins tíðindamenn frá
Norðurlöndum, nema Dan-
mörku, en þaðan koma tveir
eða þrír mew síðar í mánuð
inum. Á morgun ferðast út-
varpsmennirnir um Suður
land.
Menn þeir, sem hingað eru
komnir. eru þessir: Vilhelm
Zilliacus lektor, frá finnska
útvarpinu; Karl C. Lyche
fréttastjóri, frá norska út-
varpinu; Olov Forsen aðal-
fréttastjóri, frá sænska út-
varpinu, ásamt tveim aðstoð
armönnum, Brandhill og
Iyarsson.
Menn þessir hafa með sér
svonefndan upptökuvagn,
þar sem komið er fyrir upp-
tökutækjum, og ætla þeir að
ferðast um landið þennan
mánuð til þess að kynna sér
hætti lands og þjóðar og
safna fréttaefni og frásögn-
um, er þeir við heimkomuna
munu nota til kynningar í
útvarpi landanna. Ríkisút-
varpið leggur þeim til leið-
sögumann, Jón Magnússon
fréttastjóra, og greiðir hann
för þeirra að öðru leyti eftir
föngum.
Um þessar mundir kynna
'þeir sér landþúnaðarsýning-
una, en fara á morgun í för
um Suðurland. Að þeirri
ferð lokinni miunu þeir
kynna sér ýmsar stofnanir í
Reykjavík, verða síðan við-
staddir Snorrahátíðina í
Reykholti og fara að því
búnu í för um Norðurland.
38 smálesia bát
hleypi af stokk-
unum á Seyðisfirði
FYRIR síðustu helgi var
hleypt af stokkunum 38 smá-
lesta mótorbát í Skipasmíða-
stöð Austurlands á Seyðis-
firði.
Bátur þessi var smíðaður
fyrir ríkisstjórnina, og er
síðasti þáturinn, sem ríkið
samdi um smíði á við Skipa-
smíðastöð Austurlands. —
Bátur þessi mun vera óseld-
ur ennþá.
Elizabelh og
Phillp Mountbalten
hylif af miklum
mannfjölda
ELIZABETH PRINSESSA
og Philip Mountbatten prins
voru hyllt af miklum mann-
fjölda í fyrradag, þegar þau
sýndu sig saman á svölum
Buckinghamhallarinnar. Þau
hjónaefnin komu fyrst ein
út á svalirnar, en síðar komu
konungshjónin og veifuðu
til mannfjöldans.
Síðar voru prinsessan og
unnusti hennar, svo og kon-
ungshjónin og yngri prins-
essan, Margaret Rose, við-
stödd garðveizlu í Bucking-
hamhöll, þar sem 6000 gest-
ir voru þoðnir.
Heillaóskaskeyti hafa bor-
izt til London í tilefni af
trúlofun Elizabethar prins-
essu, þar á meðal eitt af
Vincent Auriol Frakklands-
forseta.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
ráðgerir að efna til eftirtaldra
skemmti- og orlofsferða í
þessum mánuði og þyrjun [
næsta mánaðar:
Breiðafjarðarför: Hefst
ferðin 17 þ. m. og stendur yf-
ir 8 daga. Farið með þifreið-
um til Stykkishólms og með
bát til Flateyjar. Ferðast
ríðandi til Arnarfjarðar og
ferðast á bátum um fjörðinn.
Komið í Geirþjófsfjörð að
Dynjuanda, Rafnseyri, Bildu
dal. Farið xíðandi yfir Foss-
heiði inn á Barðaströnd og í
Vatnsdal. Farið sjóleiðis í
Þorskafjörð. Farið ríðandi í
Barmahlíðina og að Reyk-
hólum og áttunda daginn til
Reykjavíkur.
Óbyggðaferð norður á milli
Hofs og Langajökuls. Ferð-
in hefst 19. þ. m. Verður fyrst
farið að Hagavatni, gengið í
jökulinn og Jarlshettur, svo
farið í Hvítarnes, á bátum í
Karlsdrátt, þá í Kerlingar-
fjöll, Hveravelli, Þjófadali
og víðar. Gengið á Kerlingar
fjöll og skaðuð hin frægu
hverasvæði á Hveravöllum
og Kerlingafj ölíum. 6 daga
ferð. Gist í sæluhúsum félags
ins. —
í Landmannahelli og Laug
ar. 2—-Vz dags ferð og hefst
19. þ. m.
Til Mývatns, Dettifoss og
Ásbyrgis: Ferðin hefst 22. þ.
m. og stendur yfir 9 daga og
verður komið á alla merkustu
staði Norðanlands.
Ferð austur á Síðu og í
Lakagígi hefst 22. þ. m. og
stendur yfir 5 daga. Ekið aust
ur að Klaustri en farið ríð-
andi í Lakagígi.
Til Gullfoss og Geysis 27.
júlí. Eins dags ferð. Reynt
að ná fallegu gosi. Komið að
Brúarhlöðum og í heimleið
farið upp með Sogi og Þing-
vallavatni og um Mosfells-
heiði heim. —
Um helgina yfir frídag
verzlunarmanna: 2. til 4. á-
gúst verða farnar tvær ferð-
ir. Önnur ferðin um Snæfells
AÐ TILHLUTUN félagsins
Alliance Francaise í Reykja-
vík var hafin fjársöfnun og
1 fatnaðar handa nauðstöddu
fólki í bænum Avranches í
Normandí snemma árs 1945.
Auk margs konar fatnaðar
bárust margar gjafir víðs
vegar að af landinu, bæði
peningar og lýsi, og var
keyptur fatnaður og lýsi fyr-
ir andvirðið og námu þessar
gjafir samtals, samkvæmt á-
ætluðu verði framkvæmda-
nefndarinnar, kr. 407.336,62.
Fyrir allar þessar gjafir
vill nefndin færa öllum gef-
endunum alúðarfyllstu þakk-
ir og sömuleiðis öllum þeim,
er á einn eða annan hátt
greiddu fyrir sendingum
þessum, m. a. Eimskipafélagi
íslands og fjármálaráðuneyt-
inu, er veitti undanþágu frá
innheimtu útflutningsgjalda
af öllu því, er sent var.
Frk. Thora Friðriksson
veitti miklum hluta gjafanna j
viðtöku og vann að söfnun-
inni. Enn fremur vann sendi-
herrafrú Vollery um langt
skeið að því að undirbúa
fatasendingarnar, bæði að
innkaupum og að endurbót-
um, af óvenjulegum dugnaði
og áhuga, en sendiherrann
veitti nefndinni alla þá að-
stoð, er honum var unnt.
Borgarstjórinn í Avranch-
es hefur með bréfi dags. 30.
des. ’46. beðið formann fram-
kvæmdanefndar, hr. stor-
kaupm. Pétur Þ. J. Gunnars-
son, að flytja hjartanlegar
nes og út í Breiðafjarðareyj-
ar, en hin norður að Hvítar-
vatni, Kerlingarfjölluni og
Hveravöllum.
Ferðirnar verða farnar,
verði nægileg þátttaka og er
ráðlegast að panta far
snemma.
Nú standa yfir ferðirnar
til Siglufjarðar.
Flogið er fram og til baka
í Öræfin, því ekki er hægt
að komast landleiðina vest-
an frá. Ú&jiig®
Es. Reykjafoss
fermir í Antwerpen
17. og 19. þ. m.
EINARSSON,
ZOÉGA & CO. HF.
Hafnarhúsinu.
Sirnar: 6697 og 7797.
þakkir sínar til íslendinga,
sem ,,þótt þeir séu fáir að
tölu, hafi stórt hjarta“.
MaSur slasast hjá
i
Akureyri.
Einkaskeyti frá AKUREYRI
ÞAÐ slys vildi til í fyrra-
dag á veginum norðan Akur
eyirar, að Valdimar Helgason,
jbílstjóri, Kjarna Arnarnes-
'hreppi slasaðist :er hann var
að gera við bifreið sína.
Féll vörupallur-inn á öxl
hans og háls og klemdist mað
urinn. Var hann meðvitund-
arlaus þegar að var komið.
Var Valdimar fluttur á sjúkra
hú-s og þar gert að meiðslum
hans og líður nú -sæmilega eft
i.r atvikum. Nánari orsök að
slysinu eru ókunn.
—Hafr—
ÖRYGGISRÁÐIÐ hefur
samþ., að taka inntökubeiðni
Austurríkis í bandalag hinna
sameinuðu þjóða tií umræðu
og afgreiðslu innan skamms.
ÞEIR, sem tóku myndir
á landsmótinu að Hvann-
eyfli, eru vinsamlega
beðnir að hafa samband
við skrifstofuna í Alþýðu-
húsinu og gefa samband-
inu kost á að eignast
myndirnar.
STJÓRN S.U.J.
i
G
O
U
í