Alþýðublaðið - 13.07.1947, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 13.07.1947, Qupperneq 8
Sunnudagur 13. julí 1947 Folaldið fœr sér hressingu. Þessi fallega víðavangsmynd er frá Danmörku. Meisfaramót Reykjavíkur í frjáls- um íþróftum fer fram í vikunni -------------------*------- MEISTARAMÓT REYKJAVÍKUR í frjálsum íþróttum fer fram í þessari viku og stendur yfir í fjóra daga; liefst á mánudaginn og heldur áfram á þriðjudaginn og miðviku- daginn, en lýkur á fimmtudaginn. Taka þátt í mótinu 50 keppendur frá þremur Reykjavíkurfélögunum, KR, ÍR og Ármanni. Er ákveðin keppni í 18 íþrótíagreinum og í ráði að bæta enn 2 við. Meðal þátttakenda á mótinu eru allir beztu frjálsíþróttamenn höfuðstaðarins. Fleiri bátar á sí!d frá Austfjörðum í sumar en nokkru sinni fyrr SAMKVÆMT FRÉTTUM, sem blaðið hefur fengið frá Fiskifélagi íslands, verða fleiri bátar gerðir út á síld- veiðar frá Austfjörðum í sumar en nokkru sinni fyrr. I júnímánuði var útgerð með minna móti á Austfjörð- um, enda voru hinir stærri bátar þá að búa sig á síld- veiðarnar. .Helzt voru það smærri bát ar á hinum norðlægari fjörð um, svo og frá Stöðvarfirði, sem stunduðu_línu- og hand- færaveiðar og hefur afli oft- ast verið ssemilegur og stund um góður. Dragnótaveiðar voru stund aðar á nokkrum bátum frá Fáskrúðsfirði, Neskaupstað og Djúpavogi og hefur afli yfirleitt verið góður af kola og-steinbít. Hafa frystihúsin tekið á móti afla dragnóta- bátanna en annar afli hefur því þær allur verið saltaður. / Sfaðsefning hjúkrun- arkvennaskóla á Landsspííalalóðinni Á BÆJARRÁÐSFUNDI á föstudaginn var lögð fram til laga skiþulagsnefndar um staðsetningu hjúkrunar- kvennaskóla á lóð landsspít- alans. Bæjarráð samþykkti tillög una fyrir sitt leyti. ANNAÐ KVÖLD teflir Baldur Moller fjölskák í Breiðfirðingabúð og samtím- is teflir Ásmundur Ásgeirs- son fjórar blindskákir. Skákirnar hefjast kl. 7,30. Ákveðið er að keppt verði á mótinu í 100, 200, 400, 800, 1500 og 5000 rnetra hlaupi, 110 og 400 metra grinda- hlaupi, 4x100 og 4x400 m. boðhlaupi, fimmtarþraut, kúluvarpi, kringlukasti, spjót kasti, langstökki, hástökki og stangarstökki, en einnig er í ráði að keppt verði í slekkjukasti og þrístökki, í 100 metra hlaupi eru 11 þátttakendur, þar á meðal Finnbjörn'Þorvaldsson, Clau sensbræður, Þorbjörn Péturs son og Ásmundur Bjarnason. í 200 metra hlaupi eru einn- ig 11 þátttakendur, flestir þeir sömu og í 100 metra hlaupinu. í 400 metra hlaup- inu eru þátttakendur 8, og mun keppnin um meistara- tignina verða milli Kjartans Jóhannssonar og Hauks Clau söns. í 1500 metra hlaupi eru 8 þátttakendur, þar á meðal Óskar Jónsson, Hörður Haf- liðason og Þórður Þorgeirs- son. í 5000 metra hlaupinu eru þátttakendur 6, og munu þeir Þórður Þorgeirsson og Sigurgeir Ársælsson líkleg- astir þar til sigurs. í 110 m. grindahlaupi eru 5 þátttak- endur, þeir Skúli Guðmunds son, Pétur Sigurðsson, Ólaf- ur Nielsen, Orn Clausen og Finnbjörn Þorvaldsson. í 400 metra grindahlaupi eru 4 þátttakendur, Haukur Clau-. sen, Árni Kjartansson, Reyn- ir Sigurðsson og Sveinn Björnsson. í 800 m. hlaupi eru 8 þátttakendur, og mun þar verða hörð keppni milli Öskars Jónssonar, Kjart- ans Jóhannssonar og Harðar Hafliðasonar. í boðhlaupun- um verða 2 sveitir frá KR, en 1 frá hvoru hinna félag- anna. I fimmtarþraut eru 4 þátttakendur, Jóel Sigurðs- son, Örn Clausen, Ásmundur Bjarnason og Gunnar Sig- urðsson. í kúluvarpi eru þátttakendur 5, þar á meðal Gunnar Huseby. í kringlu- kasti eru þátttakendur 6, þar á meðal Huseby, Friðrik Guðmundsson og Olafur Guð mundsson. í spjótkasti eru þátttakendur 7, og mun Finnbjörn Þorvaldsson þar líklegastur til sigurs. í lang- stökki eru þátttakendur 6, þar á meðal Finnbjörn Þor- valdsson, Örn Clausen og Torfi Bryngeirsson. í há- stökki eru þátttakendur 3, Skúli Guðmundsson, Örn Clausen og Ilermann Magn- ússon. I stangarstökki eru þátttakendur 3, Torfi Bryn- geirsson, Bjarni Linnet og Þorsteinn Löve. Til þátttöku í sleggjukasti hafa verið skráðir 3 menn, Huseby, Vil- hjálmur Guðmundsson og Þórður Sigurðsson, en í þrí- stökkinu 6, þar á meðal Torfi Bryngeirsspn, Halldór Sigur geirsson og Magnús Bald- vinsson. horfa á okkur" ---------*---------- Sviff Sml.eskaBijónin segfa f rá, ■---- 1 — 1 — FYRIR SKÖMMU komu hingað dönsk hión, er sýna sviffimleika í Tivoli, þær listir sýna bau í fimmtán metra hæð yfir jörð, og þykir mörgum nóg um, hve djarft þau tefla. En þetta er þeirra atvinna og ,,ef við teflum ekki diarft, mundi fæstum þykja ómaksins vert, að horfa á okk- ur,“ segja þau. „Hefur þú séð þau, sem sem sýna í Tivoli? Almátt- ugur, að þau skuli þora þetta.“ Ég var á gangi niður Banka stræti. Tvær ungar stúlkur gengu skammt á undan mér, og það var önnur þeirra, sem spurði stöllu sína þessari spurningu. Og það var síst að undra, þótt hún spyrði. Fimleika- listir, þær sem þau Larrowas sýna í meira en fimmtán metra hæð, eru nýstárleg skemmtun hér á landi, og bera vott um frábæra þjálf- un, leikni, og frábæra dirfsku. Nær undanteknarlaust allir sviffimleikamenn, er sýna list ir sínar á erlendum skemmti- stöðum, hafa öryggisnet und ir skammt frá jörðu, til þess að draga úr fallinu, ef illa fer, en þau kæra sig kollótt um hættuna. Ef illa fer fyrir þeim, er aðeins um limlist- ingu eða dauða að ræða. í gærkvöldi, skömmu eftir að þau höfðu leikið listir sín ar hátt yfir höfðum áhorf- enda, klædd þunnum leikfim isfötum, þrátt fyrir gust og kalsaveður, hittu blaðamenn þau að máli. „Tvisvar sinn- um munaði minnstu, að ég rnissti tak og félli til jarðar, vegna þess að ég var króklopp in“, mælti frúin. En . . .“ frúin opnar tösku sína og tek ur upp talnaband með krossi á. ,,Þetta er verndargripur minn,“ segir hún. „Ég er ka- þólskrar trúar,“ bætir hún við. „Þið hafið ef til vili veitt því athygli, að ég geri alltaf krossmark fyrir mér, þegar ég byrja að sýna. Hver sem vill má kalla það hjá- trú.“ Hann hefur einnig vernd- argrip. Barnaskó, sem hann fann á götunni í Stokkhólmi. „Hjátrú,“ segir hann. „Þeir, sem þessa atvinnu stunda. verða flestir hjátrúarfullir. Annars er ég trúleysingi. Vel getur verið, að það stuðli að hjátrú minni. Einhverju verð ur maður að trúa, eða öllu heldur, ■— maður verður að svala trúarþörf sinni á ein- hvern hátt.“ Við samræðurnar kemur í ljós, að hann stundar nám við danskan undirbúningsskóla sem við höfum með hönd- um,“ segir hann, „og því er betra að hugsa eitthvað fyr- ir framtíðinni.“ Þau hafa sýní listir sínar á Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Sviss og hvarvetna hlotið góða dóma. Á hernámsárun- urn sat hann um hríð í þýzk- um fangabúðum, fyrir út- gáfu. óleyfilegs blaðs. ,,En nú er sú tíð gleymd og maður er frjáls eins og fuglinn. Við höfum fengið samnings boð frá Ameríku. Ef til vill tök- um við því, en það tefur mig við námið og mér finnst var- hugavert að láta það sitja á hakanum. Eftir 17. ágúst er- um við fastráðin við sýning- ar á Norðurlöndum, svo nóg er að gera.“ „Finnið þið aldrei til hræðslu, þegar þið eruð að þessu hættulega starfi?“ „Það væri ef til vill of mikið sagt, en maður er þess auðvitað meðvitandi, að betra sé að láta sér ekki fip- ast tökin. Við höfum einu sinni orðið fyrir slysi. Frú- in hlaut þá nokkur meiðsl, en við höldum áfram engu að síður.“ Já, þau halda áfram. Og fólk þyrpist að sýningum joeirra og klappar þeim lof í lófa fyrir djarfan leik. Sum- ir kalla slíkt að leika sér við dauðann. Og ekki verður því neitað, að þau tefla djarft, og margir starfsbræður þeirra hafa beðið bana af slysum. En margir bíða líka bana af slysum, sam þeir hlutu við að ganga yfir götu. . . Að nokkrum árum liðnúm ætla þau að hætta þessu starfi og leggja stund á ann- að, sem minni áhætta fylgir. Eftir nokkur ár, ef — allt gengur stórslysalaust. Ólafur Túbals málari ÓLAFUR TUBALS, list- málari í Múlakoti, er 50 ára í dag. í tilefni afmælisins verða nokkrar myndir eftir Túbals til sýnis í sýningar- glugga Jóns Björnssonar, Bankastræti 7. „ Allar nánari upplýsingar °S byggst verða byggmga- j varðandi myndirnar eru gefn verkfræðingur. „Menn end- ar { listverzlun Vals Norð- ast ekki lengi við það starf, | dahl.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.