Alþýðublaðið - 27.08.1947, Síða 1

Alþýðublaðið - 27.08.1947, Síða 1
m Veðurhorfur: Suðvesían og' sunnan átt Skúrir. Aiþýðublaðið vantar unglinga til að bera blaðið til fastra kaupenda. a XXVII. árg. Miðvikudagur 27- ágúst 1947. 190. tbl. Ræða afstöðu Norðuriaoda ti! UN ©g lýðræði í atvinnu- og fiárhagsmálum Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHOSN í gær. Á FIMMTUDAGINN hittast 200 jafnaðarmenn og verkalýðsleiotogar hvaðanæva að af Norðurlönd- um í Oslo til þess að ræða afstöðu Norðurlandaþjóð- anna til bandalags hinna saméinuðu þjóða og lýðræði í atvinnu- og fjárhagsmálum. ísland og Finnland skiptast innan skamms á sendi- herrum. --- Finsen verður einn ig sendiherra í Finnlandi KHÖFN í gær FKEGN frá Helsingfors hermir, að Vilhjálmur Fin- sen, sendiherra íslands í Stokkhólmi, muni innan skamms jafnframt verða skip aður sendiherra Islands á Finnlandi. Sama frétt hermir, að Tar- janne, sendiherra Finnlands í Osló, muni samtímis einn- ig verða skipaður sendiherra Finnlands á íslandi. Framsögu í fyrra dagskrár máli fundarins, afstöðunni til bandalags hinna sameinuðu þjóða, mun Halvard Lange, utanríkisráðherra norsku j af naðarmannast j órnarinn- ar hafa; en framsögu um lýð- jæði -í atvinnu- og fjárhags- málumi hefur Ernst Wigfors, fjármálaráðherra sænsku j afnaðarmannast jórnarinn- ar. Áður en fundurinn í Osló hefst munu utanríkismálaráð herrar Norðurlanda hittast í Kaupmannahöfn, á miðviku- dag og fimmtudag, til þess að ræða afstöðu Norðurlanda á allsherjarþingi sameinuðu þjóðanna í september. En jafnfrámt munu þeir ræða árangur Parísarfundarins um hjálpartilboð Marshalls og tillögur, sem fram hafa kom- ið um tollabandalag með þeim þjóðum er að Parísar- fundinum stóðu. HJULER. Frakkar beittu neitunarvaldi gegn rannsóknarnefnd til Indónesiu ■-------♦------- Umræðum öryggisráðsins um málið lauk í gær með áskorun til öeggja aðila, að virða vopnahléið frá 4. ágúst ----------------*------- UMRÆÐUM ÖRYGGISRÁÐSINS um Indónesíumálið lauk í gær með því að samþykkt var með 10 samhljóða at- kvæðum (brezki fulltrúinn sat hjá) áskorun frá pólska full- trúanmn til beggja aðila, Hollendinga og Indónesíumanna, að virða voþpnahléið, sem samið var 4. ágúst. í fyrrakvöld hafði franski fulltrúinn beitt neitunarvaldi til að ógilda aðra samþykkt, gerða samkvæmt tillögu rúss- neska fulltrúans, um að senda rannsóknamefnd til Indónesíu. Hafði hún verið samþykkt með 7 atkvæðum gegn 2 (Belgíu og Frakklandi), en 2 ríki sátu hjá (Bretland og Kína). Eftir að Frakkar eyddu þessari samþykkt með neit- unarvaldi, sem þeir notuðu við þetta tækifæri í fyrsta sinn, var samþykkt tillaga frá Ástralíu um að fela ræð- ismönnum í Batavíu á Jövu að fylgjast með því, hvernig vopnahléið í Indónesíu væri haldið; en jafnframt var sam þykkt að skipa þriggja Frh. á 7. síðu. Myndin sýnir Gustav Rasmussen, utanríkismálaráðherra Dana (iengst til hægri), sem í dag tekur á móti norrænum embættisbræðrum sínum í Kaupmannahöfn, Bjarna Benedikts syni frá Islándi, Halvard Lange frá Noregi og Östen Undén frá Svíþjóð. Þeir halda fund í Kaupmannahöfn í dag og á morgun til að ræða afsiöðu Norðurlanda á allsherjarþingi hinna sameinuðu þjóða í september. Á myndínni sjást einnig tveir aðrir ráðherrar úr dönsku stjórninni. Sovéfstjérniii vill enga endur- skoðun dauðadémsins í Sofia --------4-------- Og bufgarska þingið látið baona flokk Petkovs, bændafSokkinn --------4-------- SOVÉTSTJÓRNIN neitaði í gær, að verða við þeim til- mælum, að heita sér ásamt Bandaríkjunum og Bretlandi fyrir endurskoðmi dauðadómsins yfir búlgarska bændaforingjanum Petkov. Og um svipað leyti var tilkynnt í Sofía, að búlgarska þingið, sem skipað er að meiri hluta kommúnistum, hefði bannað flokk Petkov, bændaflokkinn, ,„með lögmn“. í sambandi við neitun- sovét stjómarinnar, að> stuðla að endurskoðun dauðadómsins yfir Petkov, lét Vishinski, aðstoðarutanríkismálaráð- herra Molotovs, svo um mælt í Moskva í gær, áð krafa um endurskoðun dómsins væiri. í- hlutun í innanlandsmál Búlg, aríu. Hinsvegar hafa bæði Bandaríkin og Bretland bent á, að samkvæmt Yaltasam- þykktunum beii þeim og Rússlandd sameiginleg skylda til þess, að tryggja mannrétt- indi og lýðræði í Búlgaríu, og þegar sjómmálaflokkar séu bannaðir og stjórnarandstæð- ingar dæmdir til dauða sé það því aðeins skylda hinnar sam eiginlegu eftirlitsnefndar Vest urveldanna og Rússlands í Búlgaríu, að rannsaka á hvaða grundvelli það sé gert. Haraldur Guðmunds- son mætir á 50 ára afmæli norska AlþýSuflokksins í GÆR fór Haraldur Guð- mundsson, forstjóri trygg- ingastofnunar ríkisins, loft- leiðis til Osló til að mæta þar fyrir hönd Alþýðuflokksins á 50 ára afmæli norska Alþýðu flokksins í þessari viku. ' Haraldur mun einnig sitja hinn norræna jafnaðarmanna fund, sem haldinn verður í Osló í sambandi við flokksaf mælið og hefst á fimmtudag- inn. Umtalsefnið: Þátttaka Finnbjarnar og Hauks í Svíamótinu í Stokkhólmi. Forustugrein: Svo seœ menn sá munu þeir uppskera. Stefán Jóh. Stefáns- son forsæfsráðherra kom heim í gærkveldi STEFÁN JÓH. STEFÁNS- SON forsætisráðherra kom flugleiðis heim frá Stokk- hóhni í gærkveldi. Sat hann þar fund nor- rænna félagsmálaráðherra, eins og áður hefir verið frá skýrt í fréttum hér í blaðinu. Bjarni Benediktsson situr fund norrænna utanríkisráðherra. ■ BJARNIBENEDIKTSSON utanríkisráðherra fór héðan í gærmorgun áleiðis til Kaup- mannahafnar. Mun hann sitja þar fund norrænu utan- ríkismálaráðherranna, sem hefst þar í dag. Mun utan- ríkisráðherrafundurinn ræða afstöðu Norðurlandaþjóðanna á allsherjarþingi sameinuðu þjóðanna í september í haust. Ein af vélum Sogs- stöðvarinnar bilar í FYRRADAG varð bilun á kælivatnsútbúnaöi einnar vélaiánnar í Sogsstöðinni og veldur bilunin því, að spenn an mun lækka nokkuð þangað til viðgerð hefur verið fram- kvæmd. Reynt verður að gera við vélasamstæðuna eins fljótt og tök verða á. Leiðtoga stjórnarand- stæðinga misþyrmtá kosningafundi í Ung- verjalandi. FREGN FRÁ LONDON £ gærkveldi hermir, að stuðn- ingsmenn ungversku stjórn- arinnar hafi ráðizt á 'einn helzta forustumann ung- verzku stjórnarandstöðunn- ar, Pfeiffer, á kosningafundi og misþyrmt honum. Fréttastofa ungversku stjórnarinnar segir um þetta, að árásin hafi verið stjórnar- andstæðingunum að kenna. Pfeiffer er nú kominn til Búdapest og mun ekki geta tekið þátt í kosningabarátt- unni þá daga, sem eftir eru til kosninga; en þær eiga að fara fram 31. ágúst.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.