Alþýðublaðið - 27.11.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.11.1948, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBtAÐIÐ Laugardagur 27. nóv. 1948. íitgefandi: Alþýðuflokkarinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. SiuEdur iil að koma í veg fyrír þjófuað! ÞAÐ leikur ekki á tveim tungum, að hin fráfarna kommúnistaatjórn Alþýðu- sambandsins hafi gert sér h't ið fyrir og stolið tímariti sam bandsins „Vinnunni“ og stungið undan tveimur sjóð- um þess. Þetta síðasta og versta hneykslí hennar hefur verið gert heyrinkunnugt hér í blaðinu og að vonum vakið mikla athygli alls almenn- ings. Verkalýðurinn mun af- þessu draga þá augljósu álykt ,un, að fráfarandi Alþýðu- sambandsstjórn hafi ekki ver ið við eina fjölina felld í á- virðingum sínum og afbrot- um. Mátti þó sannarlega ætla, að hún hefði nóg af sér brot ið, þó að hún endaði ekki ó- lánsferil sinn með því að fara ófrjálsum höndum um eignir Alþýðusambandsins. Brot kommúnista í þessu sambandi liggur í augum uppi- Það sést hvað bezt á því, að Þjóðviljinn reynir ekki að finna athæfi fráfar- andi sambandsstjómar aðra stoð en bá, að gripið hafi ver ið til þessara ráða til að fyrir byggja, að hin nýja stjórn A1 þýðusambandsins kastaði eign sinni. á tímaritið „Vinn una“ og hina umræddu sjóði sambandsins! Mál þetta ligg ur þannig Ijóst fyrir. Skrif- finnar Þjóðviljans Hta svo á, að samherjar þeirra í fráfar andi Alþýðusambandsstjórn hafi verið svo ráðsnjallir og hugkvæmir að fremja þennan hneykslanlega stuld til að korna í veg fyrir hugsanleg- an þjófnað! * Þetta er meginvörn Þjóð- viijans fyrir hina þjófóttu kommúnista í fráfarandi Al- þýðusambandsstjóm. Síðan er einu sinni enn hrúgað upp fullyrðingum um, að Alþýðu flokksmenn hafi gerzt stór- þjófar, þegar horfið var að því ráði að skilja Alþýðusam bandið frá Alþýðuflokknum, og gefið í skyn, að hin nýja Alþýðusambandsstjórn. hafi haft stórfelld þjófnaðará- form á prjónunum! Það er ástæðulaust að fjöl- yrða um þetta þjófnaðarskraf Þjóðviljans. Þessi margra ára gamla rógsaga kommún- ista gegn Alþýðuflokknum hefur þegar fengið sinn dóm í undirrétti, og hæstaréttar- dóms mun skammt að bíða. En að gefnu tilefni verður naumast komizt hjá því að minna Þjóðviljann á, hver ger ólík þessi tvö mál eru. Ann ars vegar er sem sé um að ræða fullkomlega löglega ráð stöfun, en hins vegar um aug Ijósan þjófnað. * Tilburðir hlutaðeigenda í þessum tveimur málum eru LEIKFÉLAG REYICJAVÍKUR eftir JOHANN- SIGURJONSSON Sýnin.g kl. 3 á sunnudag. Miðasala í dag fxá kl. 2—4. Reksfrarfiallmn á Farsóttahúsinu. — Skýring. — Askomn til Leikfélagsins. — Bifreiðar og bif- reiðastæði. AF TILEFNI UMMÆLA um rekstuishalla á farsóttahúsinu hér í pistli mínum í fyrradag skal það tekið fram, að rekst- urshallinn varð í síðast liðin 5 ár kr. 1.394.097,82. Á síðast liðnu ári einu varð hann kr. 407.408,10,. eða. tæplega .hálf milljón króna, og virðist það sannarlega vera æríð nóg. ÉG HEF FENGI® þær upp- lýsingar frá bæjarskrifstofun- um, að þessi mikli reksturshalli á þessu sjúkrahúsi sé fyrst og fremst sá, að fæstir sjúkling- anna greiða neitt fyrir dvöl sína þar. Bærinn verður að borga fyrir þá. Alls námu greiðslur frá sjúklingunum sjálfum á síðasta ári aðeins 39 þúsundum króna. Hér er ein- göngu um farsóttarsjúklinga að ræða, sem úrskurðaðir eru í einangrun í sjúkrahúsinu. Er því ekki hægt að gera neinn samanburð á þessu sjúkrahúsi og öðrum. MJÖG MYNDARLEG ÚT- GÁFA er Komin af Pilti og stúlku, hinni vinsælu skáld- sögu Jóns Thoroddsens, einni fyrstu skáldsögunni, sem skrif- uð var á íslenzku. Er bókin gef- in út nú til minningar um það, að 100 ár er liðin síðan Jón Thoroddsen samdi hana. Eins og kunnugt er sneri Emil Thor- oddsen sögunni í leikrit og var það sýnt hér við mikla aðsókn. Hefði Emil Thoroddsen lifað, þá hefði hann orðið fimmtugur á þessu ári. Finnst mér því ekki úr vegi, að Leikfélagið tæki nú leikritið til sýningar til minn- ingar um hvort tveggja, aldar- afmæli sögunnar og hálfrar ald ar afmæli Emils Thoroddsen. Hvað segir Leikfélagið um þetta? FÓTGANGANDI SKRIFAR: „Viltu vera svo vænn að útvega mér svar við eftirfarandi: Er leyfilegt að leggja bílum upp á gangstéttir og láta þá t. d. standa þar heilu kvöldin og næturnar? — Eru engin ákvæði í lögreglusamþykktinni, sem banna þetta? ÉG GERI RÁÐ FYRIR, að ekki sé leyfilegt að leggja bíl um upp á gangstéttir; en því gerir lögreglan þá ekki gang- skör að því að koma í veg fyrir þetta? Hún hlýtur að vita, að þetta er stórhættulegt fyrir fót gangandi vegfarendur, fyrir ut- an það, hvað þetta ber vott um mikið menningarleysi og skipu Lagsleysi. TILEFNI ÞESS, að ég minn- ist á þetta, er, að nýlokið er malbikun og gangstéttagerð á Amtmannsstíg, en um leið er gangstéttin fyllt bílum öll kvöld og allar nætur, svo að fótgangandi fólk verður að hrökklast út á akbrautina. Er bílaeigendum nokkur vorkunn að leggja bílum sínum á bíla- stæðið, sem liggur einmitt að Amtmannsstíg?“ NEI; ÞAÐ MUN EKKI leyfi" legt að leggja bifreiðum upp á gangstéttar, en það er látið við- gangast vegna þess, að hvergi virðist vera hægt að leggja bif- reiðum annars staðar nema rétt á einstaka stað í bænum. Bif- reiðaeigendur geta því hvergi haft bifreiðar sínar annars stað- ar, nema þeir eigi bifreiða- skúra; en bæði er, að menn fá ekki lóðir fyrir slíka skúra og jafnvel þó að þeir hafi lóð er | þeim bannað að byggja skúrana. I, ÉG VEIT EKKI, hvernig á statt er um svæðið auða við Amtmannsstíg. En ef leyfilegt er að leggja bifreiðum þar, þá eiga þeir, sem eiga bifreiðar og láta þær standa á gangstéttum við Amtmannsstíg, vitanlega4 heldur að leggja þeim þar, enda skil ég ekki í öðru, en að í því sé fólgið meira öryggi fyrir bif- reiðar þeirra og að minni líkur séu til þess, að þær verði fyrir skemmdum þar en á opinni götu, auk þess sem það er betra fyrir vegfarendur. Messur á morgun Ðómkirkjan. Messað á morg- un kl. 11. Séra Bjarni Jónsson (altarisganga). Kl. 5, séra Jón Auðuns. Laugarnesprestakall: Messað á morgun kl. 2. Séra Garðar Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl. 10 árd. Nesprestakall: Messað í kap- ellu háskólans kl. 2 e. h. Séra Jón Thorarensen. Fríkirkjan. Barnaguð^þjón- usta kl. 11. Messa kl. 5 síðd.: Séra Árni Sigurðsson. Hafnarfjarðarkirkja: Messað kl. 2 e. h. Séra Garðar Þor- steinsson. Grindávík: Messað kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 4. á sunnudagskvöld kl. 8. Miðasala í dag frá 4—7. Sími 3191. GUÐSPEKÍFÉLAGS ISLANDS verður næstkomandi sunnudagskvöld. (28. ]p. m.) í húsí félagsins við Ingúlfsstræti. Hefst það klukkan 9. ÞESSIR RÆÐUMENN TALA: 1. Guðjón B. Baldvinsson. 2. Frú Lilja Björnsdóttir. 3. Þorlákur Ofeigsson. Hljómlist verður á undan og eftir erindunum. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsxúm leyfir. S.K.T ELDRI DANSARNIR í G.T..húsinu í kvöld kl. 9. — Aðgöngumiðar ®kl. 4—6 e. h. í dag. Sími 3355. Barnlaus hjón, sem fara til útlanda, óska eftir íbúð í Reykjavík í 8—10 vikur. Hús- gögn þurfa að fylgja. — Tilboð sendist í Pósthólf 68, Siglufirði. Verkamannafél. Dagsbrún Vegna þess að nokkuð er farið að bera á at- vinnuleysi meðal verkamanna í bænum, vill Verkamannafélagið Dagsbrún, að gefnu tilefni, beina því til allra atvinnurekenda, sem hafa verkamenn í þjónustu sinni, að þeir framfylgi þeim samningsákvæðum, sem tryggja fullgild- um Dagsbrúnarmönnum (bæjarmönnum) for- gangsrétt til allrar verkamannavinnu í bænunt: Jafnframt eru allir Dagsbrúnarmenn minnt- ir á að hafa jafnan á sér skuldlaus félagsskír- teini, er sanni vinnuréttindi þeirra. Stjórnin. líka mjög sinn, með hvorum hætti- Ráðstöfun þeirra eigna, sem Þjóðviljinn segir, að Alþýðuflokksmenn hafi stolið, fór fram fyrir opnum tjöldum. En þjófarnir í frá- farandi Alþýðusambands- stjórn frömdu ódæði sitt í myrkri og þögn. Þeir ráku smiðshöggið á þjófnaðinn dag inn áður en Alþýðusambands þingið hófst. A þinginu var ekki minnzt einu orði á þessa ráðstöfun fráfarandi sam- bandsstjórnar á eignum Al- þýðusambandsins. Þvert á móti var af öllum gengið út frá því, að utmræddir sjóðir yrðu áfram í vörzlu löglega kjörinnar sambandssfjórnar, og þingið afgreiddi mál „Vinnunnar11 á sama hátt og tíðkazt hefur, að sjálfsögðu í þeim trú, að hún yrði eftir sem áður málgagn Alþýðu- sambandsins. Hafi hér verið um lögmæta ráðstöfun að ræða, er það í meira lagi einkennilegt, að þingi Alþýðusambandsins skyldi ekki vera gerð grein fyrir henni. Sannleikurinn er sá, að þessi óhæfa fráfarandi Alþýðusambandsstjórnar er svo augljós og hneykslanleg, að hún þorðf ekki einu sinni að gera fylgifiskum sínum á sambandsþinginu grein fyrir nenni, og það er í fyllsta máta vafasamt, að öllum frá farandi sambandsstjórnar- mönnum hafj verið um ódæð ið kunnugt. Engum blandast hugur um, hvað því olli, að verk þetta var unnið í myrkri og þögn. Hefði Alþýðusambandsþing- inu verið um þetta hneykslis mál kunnugt, tmyndi fordæm ing þess hafa náð langt inn í raðir þeirra fulltrúa, sem ann ars fylgdu fráfarandi sam- bandsstjórn að málum og vildu framlengja völd henn- ar. Þetta fólk hefur að vísu látið glepjast í stjórnmálum og verkalýðsmálum,; en það er yfirleitt heiðarlegt og drengilegt, og Alþýðublaðið mun aldrei ætla því að ó- reyndu, að það hefði skipað sér í sveit með þjófum og bóf um. Sú málsvörn Þjóðviljans, að hér hafi verið framinn stuldur til að koma í veg fyr- ir þjófnað, er auðvitað hlægi Ieg. Hitt er alvarlegt, að í röð um íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar skuli finnast af brotamenn á borð við fráfar andi Alþýðusaimbandsstjórii.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.