Alþýðublaðið - 27.10.1949, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Ffríimtudagdr 27. ókt. 1949,
Útgefanðl: AlþýBuflokkurtna.
Ritstjórl: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Grönda.1.
Þing-fréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjómarsimar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusimi: 4900.
Aðsetur: Aiþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan hJL
Kosningaúrslifin
og kommúnisfar
KOSNINGAÚRSLITIN hafa
orðið kommúnisturn lítið fagn
aðarefni. Þjóðviljinn segir í
gær, að kosningarnar séu sigur
fyrir ríkisstjórnina og er ærið
daufur í dálkinn. Sannleikur-
inn er líka sá, að kommúnistar
hljóta að hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum. Þeir háðu
kosningabaráttuna af ofur-
kappi og reyndu allt, sem þeir
gátu, til að blekkja fólk til
fylgis við sig. Þeir breiddu yf-
ir nafn og númer, kölluðu sig
,,hina sameinuðu stjórnarand-
stöðu“ og reyndu að ala á óá-
nægiu kjósenda, en í stað raun
hæfra tillagna um lausn hinna
aðkallandi vandamála, komu
þeir með hvert yfirboðið af
öðru eins og þeirra hefur verið
siður eftir að þeir hrökkluðust
úr stjórn og urðu utan garðs í
íslenzkum stjórnmálum.
Hins vegar er Þjóðviljinn að
reyna að telja fólki trú um, að
ósigur kommúnista sé ekki
eins mikill og ætla megí í
fljótu bragði. Því til sönnunar
skýrir hann frá því, að komm
únistar hafi bætt við sig 1462
atkvæðum í þeim 15 kjördæm-
um, sem fyríd var talið í. En
það er síður en svo, að hér sé
einhverju af að miklast fyrir
kommúnista. Af þessari fyigis-
aukningu eru 1143 atkvæði í
Reykjavík. Það er að sjáif-
sögðu miklum mun meira
fylgi en kommúnistar verð-
skulda. En þessi atkvæðaaukn-
ing nægði þá ekki til að hindra,
að kommúnistaflokkurinn tap-
aði í Reykjavík einu þingsæti
frá síðustu kosningum og skildi
einn af þremur aðalmönnum
sínum eftir í valnum. Utan
Reykjavíkur nam atkvæða-
aukning kommúnista í fyrstu
14 kjördæmunum 319 atkvæð-
um, svo að flokkurinn hefur
þar tapað hlutfallslega fylgi
frá síðustu kosningum. Úrslit-
in eru glögg sönnun þess, að
svo er. Kommúnistar hafa tap-
að atkvæðum frá síðustu kosn-
ingum í Hafnarfirði, á ísafirði,
á Siglufirði, á Akureyri, á
Seyðisfirði, í Vestmannaeyj-
um, í Snæfellsnessýslu, í Aust-
ur-SkaftafellssýsIu og í Vestur-
Skaftafellssýslu. Það var því
ekki vafi að fylgisaukning hans
er stöðvuð úti um land, og hann
er byrjaðyr að tapa á sumum
þeim stöðum, sem verið hafa
meginvirki hans undanfarin
ár, svo sem á Akureyri, Siglu-
firði og í Vestmannaeyjum.
Þjóðviljinn ætti því að fara
varlega í öll mannalæti í sam-
bandi við þessar kosningar, því
að þær sýna þróun gerólíka
þeirri, sem kommúnistar ósk-
uðu eftir.
Ilitt er ekki nema satt og
rétt, að kosningaurslitin eru
mun hagstæðari ;kommúnist-
um en ætla mátti. Sannarlega
var ástæða til þess að ætla, að
þeir færu eftirminnilega hrak-
för hér eins og í öðrum frjáls-
um löndum um gervallan
heim. Þróun heimsstjórnmál-
anna hefur fært þjóðunum
heim sanninn um, hvert er
eðli og hver tilgangur komm-
únismans. Hér á landi eru
kómmúnistar hvorki betri né
verri en í öðrum löndum. For-
ustumenn íslenzkra kommún-
ista eru hundhlýðnir og sauð-
tryggir þjónar Moskvuvalds-
ins. Málgagn íslenzkra komm-
únista er á engan hátt frá-
brugðið kommúnistablöðunum
erlendis, nema ef vera kynni,
að það sé orðljótara, öfga-
fyllra og hvatvíslegra en þau.
Kommúnistar sátu um skeið í
stjórn á íslandi. Þeir hlupust
brott frá völdum óg ábyrgð
vegna ímyndaðra hagsmuna
Rússa og ótta við aðsteðjandi
’erfiðleika. íslenzkir komrnún-
istar hafa sýnt í verki, að þeir
eru svarnir andstæðingar lýð-
ræðis og þingræðis. Þeir hafa
meira að segja skipulagt aðför
að alþingi íslendinga og þar
með óvirt helgustu stofnun
þjóðarinnar með þeim hætti,
nem er einsdæmi í sögu lands-
ins. Með tilliti til alls þessa er
það vægast sagt furðulegt, að
kommúnistar skuli ekki biða
stórfelldan ósigur við kosn-
ingar hér á landi. Það er því
miður augljóst, að fslendiugar
ætla að verða seinni en flestar
aðrar frjálsar þjóðir til að þvo
af sér smánarblett kommún-
Ismans.
Kommúnistar lögðu mikla
áherzlu á utanríkismálin í
j hinni nýafstöðnu kosningabar-
j áttu. Þeir börðust eins og vit-
| iausir menn gegn þátttöku fs-
^ lands í Atlantshafsbandalaginu
^ og Marshallaðstoðinni. En kosn
' ingarnar sýna og sanna, að
þjóðin hefur látið þennan á-
róður kommúnista sem vind
um eyru þjóta. Kosningaúr-
filitin eru óvéfengjanleg sönn-
un þess, að yfírgnæfandi meiri
iiluti íslendinga álítur, að ut-
anríkismálastefna núverandi
ríkisstjórnar hafi verið rétt og
skynsamleg. Reynsla framtíð-
arinnar mun líka leiða í ljós,
að svo hafi verið. Hún mun
vitna gegn áróðri kommúnista
hér eins og í öðrum frjálsum
löndum. Þá mun koma að því,
að íslendingar geri upp við
þann stjórnmálaflokk, sem
stofnaður var hér til þess eins
að gæta hagsmuna erlends
stórveldis, en hefur í reynd
engu áorkað öðru en því að
sundra samtökum alþýðunnar
við sjó og í sveit. Fyrst í stað
mun fylgi það, sem leitar frá
kommúnistum, ef til vill bæt-
ast við hinar þegár allt of fjöl-
mennu liðssveitir borgara-
flokkanna. Kosningaúrslitin á
ísafirði og í Hafnarfirði við
þessar kosningar bera þeirri
óheillaþróun augljóst vitni. En
alþýðufólkið mun ekki láta
blekkja sig nema um sinn. Það
mun smám saman vakna til
vitundar um skyldu sína við
sjálft sig. Og þá mun það
fylkja sér um þann flokk, sem
einn er til þess hæfur að vera
sverð og skjöldur alþýðunnar
á íslandi.
Hvað ræðir fólk aðallega um. — Mál, sem enga
bið þolir, en fáir ræddu opinberlega í kosninga-
baráttunni. — Hörmuleg saga um neyðarástand.
Skemmfun Álþýðu-
flokksins í
ALÞÝÐUFLOKKURINN í
Hafnarfirði heldur skemmtun í
Alþýðuhúsinu við Strandgötu
n.k. laugardag. Skemmtunin
hefst með sameiginlegri kaffi-
drykkju, en nánar verður skýrt
frá skemmtiatriðum síðar.
Allt alþýðuflokksfólk er vel-
komið meðan húsrúm leyfir.
HOLLENZKA flugfélagið K
LM er þrjátíu ára um þessar
mundir. Það er nú elzta starf-
andi flugfélag í heimi, og með
þei mstærstu, sem nú starfa.
ÞRÁTT FYRIIÍ umræðurnar
okkar, eru húsnæðismálin aðal-
áhyggjuefni þúsunda manna og
kvenna í Reykjavík. Hnndruð
af ungu fólki bíður eftir því að
geta stofnað heimili vegna þess
að það á engan kost á húsnæði,
og er þetta næstum því hið allra
hörmulegasta við húsnæðis-
vandræðin, því að þetta getur
valdið ævilangri ógæfu. Auk
þess kemur svo mikill fjöldi
fólks, sem er á hrakhólum, kuld
rast í raunverulega óhæfu hús
næði og fær að vera á heimil-
um skyldfólks síns og vanda-
manna. En með því er í raun
veru skert helgi heimilisins til
mikilla muna.
ÞÓ AÐ ÁRLEGA sé byggt
allmikið af íbúðarhúsum, virð-
ist sem ekki sjái högg á vatni.
Ástæðan er auðsýnilega að við-
bótin er ekki nægileg fyrir
eðlilega aukningu á þörfinni og
þar mað hefur ekki verið létt á
neyðinni í þessum efnum þrátt
fyrir allmiklar byggingar. Um
þessi mál var ótrúlega lítið
rætt í kosningabaráttunni néma
hvað AlþýðufloKksmenn voru
að kiifa á nauðsyn á auknum
byggingum verkamannabustaoa
af því að þeir eru nógu vitlaus-
ir til að vera að tala um raun-
hæfar -umbætur á kjörum fólks,
og gleyma því alveg auglýsinga-
brellunum, sem ganga svo hæg-
iega inn í eyrun.
OG ÞÓ ER ÞETTA áreiðan-
lega mesta vandamál dagsins í
dag og veldur óútreiknanlegum
Hverjum þykir sinn fugl fagur...
KOSNINGABARÁTTAN er >
nú liðin, og hefur margt kom-
ið fram í hita umræðnanna,
sem er þess virði að minnast
eftir á og ræða þá áfram við
rólegri aðstæður. Eitt af
þessu er afstaða flokkanna til
hinna ýmsu ríkisstjórna
undanfarin ár.
ÞESS ER FYRST AÐ GETA,
að þingræðið, eins og það hef-
ur verið hér á íslandi með
fjórum flokkum, hlýtur að
leiða til samsteypustjórna.
Sjálfstæðisflokkurinn notaði
það að vísu óspart í áróðri
sínum, að hann hefði von um
að fá hreinan meirihluta á
alþingi. Það vissu þó allir,
sem nokkuð fylgjast með
stjórnmálum, að flokkurinn
hafði enga von um slíkan
meirihluta, enda ætla kosn-
ingaúrslitin að leiða í ljós, að
Sjálfstæðismönnum verður
ekki að þeirri ósk sinni.
ALLIR FLOKKARNIR fjórir
hafa setið í samsteypustjórn-
um undanfarin fimm ár,
fyrst sjálfstæðismenn,
kommúnistar og alþýðu-
flokksmenn, en síðar fram-
sóknarmenn í stað kommún-
ista. Það er því tilgangslaust
fyrir flokkana að reyna að
kenna hver öðrum um alla
erfiðleika þjóðarinnar, sem
þeir auðsýnilega bera allir
meiri eða minni ábyrgð á.
Auðvitað má kenna einstök-
um flokkum um eða þakka
einstök mál, en lengra verð-
ur varla farið í því að leggja
hverjum um sig ábyrgð á
herðar.
KOMMÚNISTAR eru gott
dæmi um öfgar í þessum efn-
um eins og svo mörgum öðr-
um. Um allt land léku þeir
sömu plötuna í kosningabar-
áttunni. Hún var þess efnis,
að nýsköpunarstjórnin, sem
þeir áttu sæti í, hafi verið
glæsilegasta og bezta ríkis-
stjórn, sem þessi þjóð hafi
átt, og hafi ekkert verið gert
í landinu, fyrr en þessi stjórn
kom til valda, og ekkert síð-
an. Hins vegar segja komm-
únistar, að núverandi stjórn,
sem kommúnistar eiga ekki
sæti í, sé mesta ógæfustjórn,
sem yfir þjóðina hafi verið
sett.
FRAMSÓKNARMENN snúa
þessu við. Þeir hamra á því,
að nýsköpunarstjórnin hafi
verið svívirðileg bruðlstjórn,
sem hafi ekki gert annað en
sóað og eytt. Þeim finnst
hins vegar, að skynsemi og
stjó’rnsemi hafi haldið inn-
reið sína í stjórnarráðið,
þegar tveir framsóknarmenn
settust í ráðherrastóla.
HÉR SKAL EKKI frekar rætt
um mat þessara tveggja
flokka á tveim ríkisstjórnum,
enda óþarft. Það er svo auð-
séð, að hvorum þykir sinn
fugl fagur og aðrir ekki, að
þessir menn verða ekki al-
varlega teknir, er þeir flytja
slíkt mál.
HINU SKYLDU MENN taka
eftir, að það er fleira sam-
eiginlegt með áður nefndum
tveim ríkisstjórnum en hitt,
sem er ólíkt með þeim. Þær
fylgdu svo til sömu stefnu i
dýrtíðarmálunum. Þær fylgdu
sömu stefnu í nýsköpunar-
málunum, nema hvað seinni
stjórnin hafði ekki 600 millj.
króna inneignir til ráðstöfun-
ar og Áki var nú ekki til að
bruðla opinberu fé.
ÞESSAR HU GLEIÐIN G AR
eru fram settar aðeins til
þess að benda á öfgar og vit-
leysu í málflutningi, er ein-
um er um allt kennt, en öðr-
um allt þakkað, þar sem
margir hafa lagt hönd á
plóg.
vandræðum þúsunda manna.
Hér er sannarlega þörf á raun-
hæfum aðgerðum. Og það þýðir
ekki nokkurn skapaðan hlut að
Bvara hrópunum um aukið hús-
næði með því að Reykjavík
vaxi óeðlilega hratt og sé fyrir
löngu orðin of stór. Það er að
vísu rétt, en fólkið verður ekki
rekið héðan, hvorki ég eða þú,
og hér vantar húsnæði handa
fólkinu.
ALDREI VERÐUR ástandið
eins ljóst og átakanlegt eins og
þegar það kemur fyrir að aug-
lýst er liúsnæði til ibúðar. Hef
ég hér dálitla sögu til að sýna
enn einu sinni, hvernig ástand-
ið er. Fyrir nokkrum döguni var
auglýst íbúðarhúsnæði. Þetta
var þriggja herbergja kjallara-
íbúð í sænsku húsi og allir vita
hvernig kjallararnir eru. Það
eru að vísu sæmilegar íbúðir en
gluggarnir litlir. Leigusalinn,
sem ef til vill hefur verið kom-
inn í alger þrot fjárhagslega
við að koma húsinu upp, tók
það ráð að stefna öllum til sín
á sama tíma og halda þar upp-
boð á íbúðinni.
FÓLK SAGÐI sín á milli, að
þetta væri hægt að leigja á 650
krónur á mánuöi, það væri venj
an, en fyrsta boð var 750 krón-
ur, annað boð 800 krónur. Fólk
kveinkaði sér, því varð hugsað
til tekna sinna og möguleika á
bví að geta staðið við boð sín.
!500 krónur. Þá þögnuðu margir,
þúsund krónur. Ýmsir fóru að
lýnast út, 1100 krónur. Þá hurfu
flestir. Síðasta boðið var 1200
icrdnur og tveggja ára leiga fyr
irfram. 28.800 krónur fyrir
tveggja ára leigu á kjallaríbúð,
sem teljast verður þriðja flokks.
ÞETTA ER hörmuleg mynd
og ljót. Leigutakinn virtist, eff-
ir útliti að dæma, vera verka-
tnaður eða iðnaðarmaður. Ef til
vill hefur hann á undanförnum
10 árum getað lagt eitthvað fyr
ir af tekjum sínum í vonum að
geta eignast þak yfir höfuðið
einhvern tíma. En ekkert hús-
næði er nú hægt að fá keypt án
þess að hafa allt að 75 þúsurtd
krónur í höndunum. Ef til vill
hefur leigutakinn hætt að hugsa
vegna neyðar sinnar, hent fé
sínu í hlé til tveggja ára. Og
eftir tvö árin fer hann aftur út,
eignalaust!
ÞAÐ ER VARLA um aðra
neyð að ræða í Reykjavík en
húsnæðisneyðin. Það verður að
snúast gegn henni. Það verður í
fyrsta lagi, fyrir opinbert frum-
kvæði, að byggja góðar íbúðir
og eins ódýrar og nokkur mögu
leiki er á. Það verður að auka
byggingu , verkamannabústaða
tnargfalda byggingu þeirra. En
auk þess verður að byggja ný
bráðabirgðahúsnæðishverfi,
jafnvel þó að mönnum finnist
það illt. Það er betra að geta
stofnað heimili af litlum efnum
en að gera það ekki. Ef ekki
verður snúizt hart við í þessum
málum koma syndir okkar yfir
ungu kynslóðina nú þegar, —
og í framtíðinni. Hættum kjaft-
(Frh. á 7. síðu.)