Alþýðublaðið - 05.02.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 05.02.1950, Page 6
1 s ALÞÝÐUBLAÐIÖ Sunnudagur 5. febrúar 1950 Leifur Leirs: SONATA í F-DÚR. Þórdunur ómögulegt að sofa þórunur í fjarska leiftur nei ekki e^n enda eru þau vægast sagt ekki bráð nauðsynleg þegar dunurnar heyrast má að minnsta kosti alltaf gera ráð fyrir að leiftrin komi einhvern tíma á næstunni og þangað til er ekki um annað að gera að bíða rólegur eins og þeir segja í búðunum-------— þórdunur enn en engin leiftur----- hverju gegnir þetta eðlisfræðilega óeðli hafa kjarnorku fræðingarnir eitthvað verið að fikta við þrumuleiðara himinsins eða er við skiptanefndin sáluga farin að láta til sín taka þar uppi --------- Leifur Leirs. (poet oekenom.) Dr: Álfur Orðhengils: Dr. Álfur Orðhengils: Á GLUGGA. Hvað er relativt og hvað ekki? Hvað er gluggi og hver eru einkenni hans. Gagnsær? Að vísu, en væri það sérkenni gluggans, væru nylonsokkar líka gluggar item yfirlýsingar stjórnmálamanna, dagana fyrir kosningar. Gott og vel. Við skul um þá segja að gluggar séu úr gagnsæu gleri. Hvað þá um I mjólkurflöskur samsölunnar? Er hægt að kalla þær glugga? Ég gæti trúað að það gæti orð- ig ágreiningur um það fyrir dómstólunum. Við getum þá reynt að dfiiýiera glugga þann- ig — að þar ,sem sæi í gegn um húsveggi, þar væru gluggar. Ekki dugar það, því að þar, sem húsveggir eru svo gis/.ir, að all- staðar sér inn um þá, yrði vegg- urinn öllu fremur gluggi, en veggur með þeirri defineringu, og væri þá ekki sá gluggu á neinum vegg; ergo væri glugg- inn veggur en ekki gluggi. Enn ein tilraun; bíðið bara .svolítið við, — nú kemur það. Gluggi er sá hluti veggsins, sem unnt er að sjá bæði inn um og út um, — enda til þess gerður. Já, þetta lítur ekki svo illa út, svona í fljótu bragði. En hængur er á, sagði kerlingin, Éþegar hvergi fengust rúsínur. Ef þetta væri nú svo, væri þá glugginn gluggi, þegar breitt er fyrir hann; dreg- in fyrir hann gluggatjöld eða einhver önnur þau bellibrögð viðhöfð, þannig að ekki sæi út um hann og ekki inn um? Tví- mælalaust ekki, því að þá hef- ur hann yfirtekið eiginleika veggsins. Er þá hægt að segja að glugginn sé gluggi, aðeins þegar hægt er sjá út um hann og inn um? Nei. Það er ekki hægt. Annað hvort er gluginn alltaf gluggi eða aldrei------- og samkvaémt þessu er hann það aldrei, því að gagnsæisfyrirbær ið er þá eingöngu það ásigkomu lag hlutarins, sem hægt er að svipta hann hvenær sem vill. HTvað höfum við nú unnið vio þessa definingu? Ekkert, munuð þið segja; við höfum ekkert unnið, en hinsvegar höfum við tapað, — nefnilega gluggun- um! Við höfum unnið margt og mikið, segi ég; meðal annars þá athyglisverðu staðreynd, að i ís- lenzkri byggingarlist, — arki- tektur á erlendum málum, —- er ekki neitt það til, sem hægt er að nefna glugga, og um leið úti lokað það, að nokkur geti legið á glugga, hjá sjálfum sér eða öðrum; nema því aðeins, að mað urinn hafi lausa skrúfu, og gefi andskotann í alla rökfræði. En lausar skrúfur hafa aliir„ — ég hef til dæmis tvær — ---- Dr. Álfur Orðhengils. Smuri brauð og snlffur. Til í búðinnl alian daginn Komið og veljið eða símið SÍLD & FISKUR. laut að sjóhergögnum. Stund- um hafði forstjóri fyrirtækisins að vísu nefnt hann sérfræðing í bréfum til stjórnarvalda ann- arra ríkja, en hann vissi full- vel, að sami forstjóri myndi jafnvel kalla hann viliimann og mannætu, ef i>ann héldi að það hefði áhrif á verzlunarmögu- leikana. En sjálfum var honum illa við þennan titil. „Jæja, Mr. Graham.“ „Ég er vélfræðingur. Stuud- um vinn ég sem sérfræðmgur í s j óhernaðar tækj um.“ „Þér getið nefnt það hvaða nafni sem þér viljið. Cator og Bliss Ltd. hefur tekið að sér að vinna þýðingarmikil verk fyrir tyrknesku ríkisstjórnina. Já, svo er nú það. Ég veit ekki ná- kvæmlega í hverju þessi störf eru fólgin.“ Hann sveiflaði höndinni, sem hélt um sígarett- una. „Það er hlutverk hermála- ráðuneytisins að sjá um það. En mér hefur verið sagt undan og ofan af um þetta. Ég veit, að nokkur herskip okkar eiga að fá nýjar fallbyssur og tundur- skeytahlaup. Ég veit líka, að þér voruð sendir hingað til þess að ræða um þessi mál við full- trúa ríkisstjórnar minnar. Enn fremur veit ég það, að ríkis- stjórnin leggur áherzlu á það, að þessi nýju tæki komist í skipin í vor. Fyrirtæki yðar hefur líka samþykkt það. Þér munuð einnig vita um þetta.“ ,,Ég hef eiginlega ekki um annað hugsað síðustu tvo mán- uðina.“ „Iyi dir. Nú skal ég segja yð- ur fleira, Mr. Graham. Ég skal segja yður, að sú ákvörðun að fá tælcin í vor, var ekki alveg út í bláinn af hálfu ríkisstjórn- arinnar. Ástandið í alþjóðamál- um gerir það nauðsynlegt, að tækin séu komin í skipin á hin- um tiltekna tíma.“ „Það veit ég einnig.“ „Ágætt. Þá munuð þér skilja það, sem ég ætla nú að segja yður. Sjóhernaðaryfirvöldin á Þýzkalandi, ftalíu og Rússlandi vita mjög vel um það, að í ráði er að vopna þessi skip á þess- um tíma. Og ég er ekki í nein- um vafa um það, að um leið og búið er að búa skipin þessum nýju tækjum, þá munu njósn- arar þessara stórvelda komast að því, hver þau séu og hvernig þau eru. Já, þeir munu komast að því, þó að það sé nú sem stendur aðeins á örfárra manna vitorði — og þar á meðal yðar. Þetta er geysi þýðingarmikið atriði í málinu. Það er ekki hægt að halda slíkum málum leyndum til lengdar, og enginn býst heldur við því, að hægt sé að halda þeim lengi leyndum. Það gæti jafnvel hent sig, af ýmsum ástæðum, að við sjálfir teldum heppilegast fyrir okkur að birta upplýsingar um búnað skipanna. En,“ — og nú benti hann með vel snyrtum vísi- fingri —, „þér eruð í mjög sér- kennilegum aðstæðum sem stendur, Mr. Graham.“ „Já, það get ég að minnsta kosti skilið.“ Grá og köld augu hershöfð- ingjans hvíldu á honum urn stund. „Ég er ekki staddur hér í nótt til þess að segja skrítlur, Mr. Graham.“ „Afsakið, hershöfðingi.“ „Allt í lagi. Gjörið svo vel og fáið yður aðra sígarettu. Ég var að segja, að þér hefðuð sem stendur alveg sérstaka aðstöðu. Segið mér. Hafið þér nokkurn tíma talið yður ómissandi fyrir fyrirtæki yðar, Mr. Graham?“ Graham hló. „Aldrei. Ég gæti nefnt yður fjölda marga menn, sem hafa alveg eins mikla hæfileika og ég hef á sama sviði.“ „Þá vil ég nú segja yður það, Mr. Graham,“ svaraði Haki hershöfðingi, „að nú sem stend- ur.eruð þér algerlega ómissandi í starfi yðar. Já, líf yðar er á- kaflega dýrmætt. Við skulum gera ráð fyrir því, að þjófurinn yðar hefði verið hittnari þarna í herberginu, og að þér, í stað- inn fyrir að sitja hér og rabba við okkur, lægjuð núna í sjúkrahúsi á uppskurðarborð- inu með kúlu í lunganu. Hvaða áhrif myndi það hafa haft á það starf, sem þér hafið nú með höndurn?11 „Að sjálfsögðu myndi fyrir- tækið þegar í stað fá öðrum manni störfin.11 Haki hershöfðingi setti upp hinn mesta furðusvip, alveg eins og hann stæði á leiksviði. „Jæja, það var ágætt! Sér- kennilegt fyrir Breta! Þeir eru spdrtmenn miklir! Einn maður fellur! Annar settur í hans stað undir eins! En bíðið við!“ -—- Og aítur benti hann með vísifingri áminnandi. „Haldið þér, að það væri nauðsynlegt? Vitanlega! Kopeikin gæti hæglega komið skjölum yðar til Englands! Nei, þetta er ekki eins einfalt og þér haldið. Ég efast um, að hinir leiknu félagar yðar heima gætu ráðið rúnirnar á skjölum yðar, töflum og teikningum. Þeir myndu einmitt ekki geta ráðið í það, sem þeir þyrftu allra helzt að geta skilið, jafnvel ekki þó að félag yðar hafi ekki byggt skipin, sem hér er um að ræða.“ Graham roðnaði. „Mér skilst, hershöfðingi, að þér vitið full vel, að ekki er hægt að eiga við slíkt mál á einfaldan hátt. Mér var harð- bannað að setja vissa hluti nokkurs staðar á pappír.“ Haki hershöfðingi ýtti stóln- um sínum. „Já, Mr. Graham.1, Hann brosti uppörvandi. „Ég veit það. Annar sérfræðingur yrði sendur hingað til þess að vinna upp það, sem tapazt hefði og þér höfðuð lokið við.“ Hann dró stól sinn fast að borð- inu. „Og á meðan,“ sagði hann og beit saman tönnunum, „myndi líða að vori og skipin liggja í höfn í Izmir og Galli- poli og biðu eftir nýju fallbyss- unum og tundurskeytahlaupun- um. Takið eftir, Mr. Graham. Tyrkland og Stóra-Bretland eru bandamenn. Óvinir lands yðar óska einskis frekar en að herskipastóll okkar standi eins og hann er í dag, þegar snjóa og ísa leysir og sumarið er kom- ið. Þeir munu gera allt, sem í þeirra valdi stendur til þess að það verði þannig. Allt, Mr. Graham. Skiljið þér það?“ Graham fannst eins og háls- inn herptist saman. Hann neyddi sjálfan sig til þess að brosa. „Er þetta ekki helzt of mikið sagt, hershöfðingi? Við höfum engar sannanir fyrir því að það sé satt, sem þér eruð að segja. Og hvað sem öðru líður, þá er þetta lífið sjálft, en ekki . ... “ Hann hikaði. „Ekki hvað, Mr. Graham?“ sagði hershöfðinginn og horfði á hann eins og köttur, sem ætl- ar að fara að grípa músina. „.... Ekki ævintýri eða leik- sviðsleikur, ætlaði ég að segja, þó að ég sé kannski heldur ó- kurteis.“ Haki hershöfðingi stóð upp snögglega. „Ævintýri! Sannan- ir! Lífið sjálft!“ Það var eins og hann þeytti orðunum af vörun- um með djúpri fyrirlitningu. Haldið þér, að mér sé ekki ná- kvæmlega sama hvað þér segið, Mr. Graham? Ég er bara að hugsa um störf yðar og hreint ekkert annað. Lifandi eruð þér einhvers virði fyrir Tyrkland. Og ég ætla að reyna að halda í yður líftórunni eins lengi og mér er unt. Það er stríð á næstu grösum í Evrópu. Skiljið þér það?“ Graham svaraði ekki. Hershöfðinginn starði á hann um stund, en hélt svo áfram lægri röddu: „Fyrir tæpri viku, þegar þér voruð enn í Gallipoli, komumst við á snoðir um, það er að segja njósnarar mínir komust á snoð- ir um, samsæri um að ráða yð- ur af dögum. Samsærið var illa skipulagt og sýndi að hálfgerð- ir viðvaningar höfðu haft und- irbúninginn á hendi. Ráðgert hafði verið að nema yður á brott og síðan að svæfa yður svefni hinna réttlátu með hnífi. Sem betur fer erum við ekki neinir heimskingjar. Okkur

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.