Alþýðublaðið - 07.02.1950, Side 5
Þriðjudagur 7. febrúar 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
RÚSSLAND OG KOMINFORM þykjast nú hafa for-
ustu í baráttu fyrir friðinum í heiminum. En hve mikið
mark er takandi á fríðarhjali þeirra, geta menn séð á eft-
irfarandi grein. Hún er lauslega þýdd úr „Arbeiderbladet-1
í Oslo, aðalbíaði norska Alþýðuflokksins, og sýnir, hversu
miklu geigvænlegri vígbúnaður Rússa er, en vígbúnaður
nokkurrar annarrar þjóðar.
KOMINFORM var stofnað
einhvers staðar í Póllandi í
septembermánuuði 1947, til
þess að vera áróðurstæki Rússa
í stórveldisbaráttu þeirra. Sá
sem þá var innsti koppur í búri
Stalins, Andrei Zdanov hers-
höfðingi, hiíTti þar þá stefnu,
sem hið nýja alþjóðasamhand
kommúnista skyldi fylgja í
starfsemi sinni, og aðeins fá-
ednpm vikum seinna kom hún
til framkvæmda með fjölda-
verkföllum á Frakklandi og á
Ítalíu og áróðursbylgju í
hverju einasta Evrópulahdi.
Nýr Kominformfundur var
haldinn í Ungverjalandi síðari
hluta nóvember 1949. í þetta
sinn var það Georgiy Malen-
kov, sem skipaði fyrir og rakti
næstu verkefni kommúnista-
flokkanna. Þau hefur Komm-
únistaflokkurinn í Noregi nú
látið á þrykk út ganga og nefn-
íst ritið: Barátta fyrir friði og
einingu verkalýðsins, og ættu
menn að kynna sér það gaum-
gæfilega. í því ei'u nefnilega
þær lærdómsreglur, sem
munu verða á komandi tíma
grundvöllur kommúnistískrar
starfsemi í öllum löndum.
Þær eru í þrennu lagi: 1. Bar-
áttan gegn stríðshættunni, sem
sífellt fer í vöxt, 2. baráttan
gegn jafnaðarmönnum, sem
eru handbendi borgarastéttar-
innar og heimsvaldasinna í
verkalýðshreyfingunni, og 3.
foaráttan gegn títóistum, sem
eru morðingjar og njósnarar
foeimsvaldasinna í herbúðum
kommúnista sjálfra.
Samþykktin um baráttuna
gegn hinni vaxandi stríðshættu
er kjarninn í hinum nýja boð-
skap Kominform. Er þar að
finna umbúðalausa og ná-
kvæma lýsingu á því, hversu
„friðarstarfið“ skal unnið.
I fyrstu og fimmtu grein-
inni er stuttorð lýsing á öllu
því, sem þörf er á að vita fyr-
ir fram um það, hvernig kom-
múnistar haga starfi sínu:
I. Sérstök áherzla skal lögð
á það að fá inn. í friðarhreyf-
inguna verkalýðsfélög, kven-
félög, æskulýðsfélög, samvinnu
félög, íþróttafélög, menningar-
og fræðslusamtök, trúarfélög
og önnur samtök, svo og vís-
indamenn, rithöfunda, blaða-
menn, menn, sem vinna að
menningarmálum og trygginga
málum, þingmenn og aðra
stjórnmálamenn, — öll þessi
samtök og menn, sem vilja
varðveita friðinn, án tiilits til
trúarbragða, stjórnmálaskoð-
ana og flokka, til að berjast á
sem breiðustum grur.ni fyrir
friðinum en gegn hætiunni á
nýju stríði, sem nú vofir yfir
mannkyninu.
5. Það verður að viðhafa þess-
ar nýju og árangursríku áð-
ferðir í baráttu fjöldans fyrir
íriðinum á breiðum grundvelli,
stofna nefndir til að vinna að
varðveizlu friðarins í borgum
og sveitum, samþykkja bænav-
skrár og mótmæli, stofna til
þjóðaratkvæðagreiðslu, sem
mjög hefur tíðkazt í Frakk-
landi og á Ítalíu, gefa út og út-
breiða bækur, sem afhjúpa
styrjaldarundirbúninginn og
safna fé til friðarbaráttunnar:
skipuleggja ,,bojrkott“ á kvik-
myndir, blöð, tímarit, bækur,
útvarp, stofnanir og menn sem
reka áróður fyrir nýrri styrjöld
— þetta allt eru geysilega mikil-
væg verkefni hinna kommún-
istísku verkamannaflokka.
Enginn þarf að vera í minnsta
vafa urn, að kommúnistar
hlýði þessum fyrirmælum út í
yztu æsar. Er augljóst, á hvaða
strengi nú skal leika. Sýnt er
fram á, hvérsu stríð er gagns-
laust, og hversu tilgangslaust
það er, að sóa vinnuafli og efni
í vígbúnað. Og eru líka ekki
allir sammála um það. En um
leið er endurtekið æ ofan í æ,
að hernaðarárás á Sovétríkin
sé í undirbúningi. Sagt. er, að
Bandaríkin gangist fyrir víg-
búnaði og undirbúningi undir
nýja styrjöld. En samtímis er
bent á, að Sovétríkin séu full-
trúi friðarins, stjórn þeirra al-
tekin friðarvilja og þjóðin öll
önnum kafin við einungis friö-
samleg störf.
Reynslan af stómældisdögum
Hitlers er sú, að óráðlegt sé að
vanmeta alþjóðalega áróðurs-
herferð. Þegar lýgin hefur ver-
ið endurtekin nægilega oft, er
harla auðvelt að láta hana sýn-
ast vera sannleika. Það væri
því ærið mikilsvert a5 korua á
framfæri staðreyndum, sem af-
hjúpa þennan skrípaleik. Er
það samt engan veginn auðvelt
verk. í „friðarríkinu“ Sovét-
Rússlandi eru jafnvel skýrslur
um framfærslukostnað og launa
kjör talin vera ríkisleyndar-
mál, engum er sléppt út úr
landinu og meira að segja
sendiherrar eru ekki frjalsir
ferða sinna nema tiltölulega
skammt út fyrir höfuðborgina.
En ákveðnar upplýsingar eru
þó birtar að staðaldri, og með
þolinmæði má raða þeiín þann .
ig, að nokkurn veginn megi sjá, I
hvernig ástandið raunverulega
er í landinu.
Fyrst er rétt að athuga, I
hversu margir menn eru þar ^
, undir vopnum, þar eð það sýn- :
ir einna gleggst hernaðarlegan
j viðbúnaS hvers lands. Fjórar
• milljónir manna eru nú í her- 1
I þjónustu í Sovétríkjunum til
| viðbótar þeim er svo heima-!
1 varnarliðið, en allir karlmenn
. á aldrinum 16—50 ára eru i
1 skyldaðir til þess að að taka !
þátt í heræfingum í 110 klukku
stundir á ári utan herþjónustu-
tíma. Þá eru æfingar í skot-
fimi, í því að varpa sér út úr
flugvél í fallhlíf, kasta hand-
sprengjum og fleira ófrávíkj-
anlegur þáttur í uppeldi þeirra
unglinga, sem eru félagar í
æskulýðssamtökunum Ozac-
him. Hervæðing rússnesku
þjóðarinnar er í harla litlu
samræmi við glansmyndina á
friðarparadísinni.
Ef litið er á Bandaríkin, sem
sagt er, að séu alveg að því
komin að ráðast á Rússland,
kemur á daginn, að þar eru
alls 1 685 000 menn undir vopn
um, það er að segja talsvert
meira en helmingi færri en í
Sovétríkjunum. í þeirri tölu
eru þó teknir með 160 000
sjálfboðnir 18 ára gamlir
menn, sem geta fengið hernað-
arþjálfun, ef þeir óska þess.
Ekki nægir að geta aðeins
um fjölda þeirra manna, sem
eru undir vopnum. Herþjón-
ustutímann þarf einnig að taka
til greina. Og Sovétríkin hafa
að því leyti vinninginn' ekki
síður. Herþjónustutíminn er
þar 2 ár í landhernum, 3 ár i
flughernum, 4 ár í strandliðinu
og 5 ár í flotanum. En í Banda-
ríkjunum er 18 mánaða her-
þjónusta í öllum hergreinum.
Þessar tölur sýna, hve hörmu-
lega löngum tíma rússneskur
æskulýður verður að eyða í
herþjónustu. Herþjónustutím-
inn er þar allt að þrisvar og
og einum þriðja sinnum lengri
en í Bandaríkjunum.
Þá er að athuga, . hversu
Félag íslenzkra rafvirkja:
Samkvæmt áskorun 3,0 félagsmanna og með tilvísun til
19. gr. laga F.Í.R. verður viðhöfð allsherjaratkvæSa-
greiðsla um kosningu stjórnar, varastjórnar, trúnaðar-
mannaráðs, stjórnar styrktarsjóðs og varamanna fyrir
yfirstandandi ár.
Framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar fyrir kl.
20, miðvikudaginn 7. þ. m. í skrifstofu félagsins. Listum
skulu fylgja meðmæli minnst 13 félagsmanna.
Félagsgjöldum verður veitt móttaka í skrifstofu félags-
ins á venjulegum skrifstofutíma.
Reykjavík, 6. febrúar 1950.
Stjórnm,
rniklu fé er varið tii landvarna
í þessum tveimur löndum. sem
tekin hafa verið til samanburð-
ar. Því að lútandi veifa kömm-
unistar jafnan í áróðri sínum
tölum, er alls ekki sýna í rétt-
um hlutföllum þær byrðav,
sem Iagðar eru á þjóðirnai
vegna hernaðarútgjalda. Venju
lega miða þeir hernaðarútgiöld
in við hundraðshluta af niður-
stöðutölum fjárlaga, en taku
verður tillit til þess, að næst-
um allir þættir atvinnuveg-
anna 1 Sovétríkjunum eru í
höndum ríkisins, svo sem bank
ar, iðnaðarfyrirtæki, verzlun,
flutningatæki, námur og fMra,
og koma inn á fjárlög. Hins
vegar eru tekiur og gjöld einka
fyrirtækja í Bandaríkjunum
auðvitáð ekki færð inn a ijá
lög. í Sovétríkjunum eru um
70% þjóðarteknanna færð inn
á fjárlög, en ekki nema 25'/ i
bandaríkjunum. Rétta grein
fyrir þessari hlið málsins er að-
eins hægt að gera sér með því
að bera hernaðarútgjöldin sam-
an við ailar tekjur þjóðarimi-
ar. Allur amTar samanburður
er villandi.
Famkvæmt skvrslum frá síð-
ast liðnu ári \oiu þjóðartekiur
Sovétríkjanna á að gizJca 575
milljarðar rúblna, e'n þjöðar-
tekjur Bandaríkjanna 222 mill-
■jarðar dollara. Hernaðarui-
gjöld Bandaríkjanna vom
sama ár um 14 milljarðar doll-
ara, en Sovétríkjanna um 110
milljarðar rúblna. Þessar
milku fjárhæðir skiptast þann-
ig:
USSR USA
milljarðar milljarðar
rúblna dollara
Landher, flugher og floti 79,0 11,9
Öryggisliðið 8,0 0,0
Birgðir hernaðarlegra hráefna 10,0 0,4
Rannsóknir í þágu hersins 4,0 1.2
Hernaðarlegar stofnanir 10,0 0,3
Hernaðarútgjöld alls 111,0 13,8
Þjóðartekjur 575,0 222,0
Hernaðarútgj. í hlutfalli við þjóðartekj ur 19,2% , 6,2%
Bandaríkin þvrftu þannig að
þrefalda hernaðarútgjöld sín,
ef þjóðin ætti að bera jafn
þungar byrðar vegna þeirra og
um er að ræða í Sovétríkjun-
um, auk þess sem byrðar hern-
aðarútgjaidanna koma þyngra
niður á fólki í Sovétríkj.unum,
þar eð lífskjör eru þar lakari
en í hinni auðugu Ameríku.
r r
Frá Bretlandi útvegum vér nú með stuttum
fyrirvara hinar nýju ROVER ,,75“ bifreiðar.
Állar nánai'i upplýsingar á skrifstofu vorri.
Hin miklu hernaðarútgjöld
Sovétríkjanna varpa skæru
Ijósi yfir ,,friðaráróður“ Kom-
inform. Það er ástæða til þess
að spvrja, hvernig kommúnist-
ar og fylgifiskar þeirra dirfist
að væna lönd, sem ekki verja
tii hernaðarútgjalda nema litlu
emu á borð við Sovétríkin, um
að hafa árásarfyrirætlanir á
prjónunum. Þessi ruddalegi
vfirdrepsskapur minnir enn ó-
hugnanlega á starfsaðferðir
Hitlers. Enginn talaði meira
um frið ’ en hann, einkum er
hann hugði á ófrið.
Það er raunar eríitt að í-
mynda sér,. að „friðarsókn“
| Kominform sé undanfari hern-
aðar af Rússa hálfu í Evrópu.
Hitt væri sennilegra, að hún
sé til þess ætluð að skapa Rúss-
um ,,frið“ til að brjóta niður
alla andstöðu í þeim löndum,
sem þeir hafa hernumið, eöa
sölsað undir sig eftir stríð, ög
draga athj'gli frá auknum
hernaðáraðgerðum þeirra í
Austurlöndum. Þá er líka auð-
veldara að skilja samþykkt
Kominform um baráttuna
gegn títóistum, en alveg sam-
tímis því, sem Kominform birt
ir ,,friðarsamþykkt“ sína, skor-
ar það á júgóslavnesku þjóðina
að grípa til vopna og hefja
uppreisn gegn Títo. Stríð viö
Títo er mikils verður þáttur í
,,írioarsóknimii“.