Alþýðublaðið - 18.04.1950, Síða 9
Þriðjudagur 18. apríl 1950
A *. Mf Ð U B L AÐIÐ
9
Lét smfða 28 001) lesta olíu-flutn-ioéasklp
til aSdrátta á olin frá MiSausturiöndum..
OLÍUFÉLAGIÐ SHELL er nú aS láta reisa olíuhreinsun-
arstó'ðvar miklar á Brct-landi og eru þær þáttur í víotækari
áformum, sem eiga að auka olíuvinnslúna þar í landi úr 2,5
milljónum lesta, en svo mikln nam olíuyinnslan þai- árið 1947,
upp í 19,5 milljónir lesta árið 1853. Verður olían flutí óunn-
in frá Miðausturlöndum, og hefur félagið láíið byggja íií þess
nýtí olíufluíningaskip, sem hleypt var af stokkunum í apríl-
byriun p<r eefið nafnið „Velutina“.
verður haldinn í kvöld í Tjarnarbíó. Hefst kl. 8,30 stund- '
vsslega.
Umræðuefni: Útvarpið og þjóðin.
Framsögumsnn: Olafur Jóhannesson og Sigfás Sigur
hjartarson.
Að framsöguræðum loknum verða frjálsar umræður
eftir því sem tími leyfir.
öllum stúdentúm, sem framvísa félagsskírteinum .sín-
um. er heimill aðgangur að fundinum. Þeir, sem ekki enn
hafa vitjað skírteina sirma, geta fengið þau við inngang-
inn.
Aðgöngumiðar að sumarfagnaðinum á þrotum. Þeir
síðustu verða seldir kl. 5—7 í dag að Hótel Borg (gengið
um aðaldyr. Pantanir, sem ekki verða sóttar fyrir kl. 6,
verða seldar öðrum.
Merki félagsins erú nú fáanleg hjá Kjartani Ás-
mundssyni, gullsmið, Aðalstræti 8.
Stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur.
pesí
:mi tll að báter ganö.S Sieila yertíS, 'án
tð.
ssonætTy
- SKIPAEFTIRLIT RÍKISÍNS varð fyrir haúðri gagnrýni
á þingi slysavarnafélagsins í gær, er rætt var um öryggismálin
og' útbúnað skips. Béntu margir fulltrúanna á Ijos dæmi þess,
að eindæma sleifarlag ríkti í þessum efnúúi, enda töldu full-
írúarnir, að þrátt fyrir lagafyrirmæli varðandi örýggisúíbúnað
á skipum, færi því víðsfjarri, að skipaskoðunin fýlgdist riægi-
íega með því, að þessum'fyrirmsehnn sé hlýtt!
Olíuflutningaskipinu „Velu-
tina“, sem er 28.000 lestir D.
W., var hleypt af stokkunum
í Wallsend-on-Tyne 4. apríl, en
Margrét prinsessa gaf skip-
inu nafn. Verður það mest-
mégnis notað til að annast
flutninga á óunninni olíu frá
Mið-austurlöndum í olíuhreins-
unarstöovar Shell, sem nú eru
í byggingu í Bretlandi. Verða
þær í Shell Haven í Essex og
að Síanlov/ í Cheshire, eh rétt
þykir að lýsa byggingaáform-
am þessum stuttlega.
Stæklcun olíustöðvanna í
Shell Haven og Stanlow er
hluti áætlana um að færa út
kvíarnar þannig, að hægt
verðí að auka vinnslu úr olíu
í Bretlandi úr 2,5 upp í 19,5
milljón lestir á árunum 1947
til 1953. Kostnaðurinn mun
nema 125.000.000 sterlings-
pundum alls. Er hér um að
ræoa hluta úr áformi um
byggingu olíuvinnslustöðva í
Vesturálfu, sem gert er ráð
fyrir að verði mikið innlegg í
endurreisnaráform Evrópu
eftir heimsstyrjöldina síðari.
Áöur fyrr hefur venjan ver-
ið sú, að hreinsa óunna olíu
á staðnum bar sem hún er
fundin. Er hér ekki um að
ræða grundvallarbréytingu á
starfsaðferðum, lieldur hefur
verið ákveðíð að reisa vinnslu
stöðvar í Evrópu vegna að-
stæðna olíuiðnaðarins í stríðs-
iok. Félögunum var gjarnt að
reisa vinnslustöðvar á Evrópu
svæðum 1945 með því að það
hafði héppileg stjórnmálaleg
áhrif í för með sér, kostnaður-
inn var rýmilegur, vinnuaflið
fyrir heudi og yfirleitt var auð
veldara um vik þar en annars
staðar. Aðalástæðan var þó sú,
að á Evrópusvæðinu var hægt
að framkvæma áformin fljót-
lega.
í stríðslok átti Sheíl tvær
vinnslustöðvar í Bretlandi,
aðra í Shell Haven, en mestu
árleg vinnsluafköst hennar
_voru 800.000 tonn af óunninni
<olíu, og hina að Stanlow, þar
sem mestu árleg afköst námu '
925.000 tonnum. Þar að auki
var lítil saltvinnslustöð í
Ardrossan á Skotlandi og voru
afköst. hennar 225.000 tonn á
ári. 1947 hóf félagið vinnslu í
stöð við Heysham, sem það
hafði fengið hjá brezku ríkis-
etjórninni, og eru árleg afköst
þar 1.500.000 tonn.
Stsekkunaráformum, sem
Shell er nú að framkvæma að
Shell Iíaven og Stanlow, mun
lokið 1952—53 og er kostnað-
ur áætlaður 25.000.000 ster-
lingspund, en samanlögð af-
‘ köst þessara tveggja stöðva
verða þá um 6.000.000 tonn.
Hér við bætist stöðin að Heys-
ham (Ardossan stöðin er ekki
talin með, þar eð hún er ann-
arrar tegundar) og verða þá
afköst hreinsunarstöðva Shell
árið 1953 um 7.500.000 tonn á
ári, en þá verður Shell lang-
stærsta olíuhreinsunarfélagið
í Bretlandi.
Stöðvarnar að Shell Haven
og Stanlow eru langt komnar,
en þær munu framleiða ben-
zín, dieseloii'u og brennsluolíu
til innanlandsnota, svo og sér-
stakar tegundir aðrar, sem áð-
ur hafa verið fluttar inn.
Nýja vinnslustöoin að Stán-
low tók til starfa- í árslok 1949,
en þá var fyrsta eimingarkerf-
íð tengt. Þegar stöðin er til-
búin mun hún hafa annað
stórt eimingarkerfi, efnagrein
Lngarkerfi aí nýjustu gerð,
kerfi til að fullgera framleiðsl
una og hæsta og stærsta vatns
kæliturn í veröldinni.
Ekki er byggingarstarfið að
Shell Haven eins langt komið,
en vel ’gengur uppsetning eim
ingakerfis, sem afkásta mun
6000 tonnum á dag, og ætlað
er að henni verði lokið um
árslok 1950. Þar munu og vera
önnur . stórvirk framleiðslu-
tæki.
Báðar vinnslustöðvarnar eru
þannig í sveit settar, að þær
liggja vel við járnbrautar-
íeiðum og vegum, svo og að
sjó, til dreifingar framleiðsl-
unnar, Shell Haven er við
Themsárósa, nærri London.
Stanlow er á iðnaðarsvæðinu
við Ellesmere Port og um fjór-
ar mílur frá Manchester skipa-
ekurðinum, en þar er verið að
byggja nýja brygg.ju fyrir tvö
olíuflutningaskip á stærð við
e.s. ,,Velutina“.
Vinnslustöðvar þessar verða
með fullkomnustu nýtízku
stöðvum í Evrópu og munu
eiga drjúgan þátt í að gera
olíuvinnslu að stóriðnaði í
Bretlandi.
Slysavarnafélagið hefur beitt
sér fyrir auknu örvggi um borð
í skipunum og fengið því fram-
gengt, að ákveðin lagafyrir-
mæli eru komin um mörg mik-
ilsverð öryggismál í sambandi
við skiþin, hleðslu þeirra, ör-
yggistæki og fleira, sagði Guð-
bjartur Ólafsson, forseti slysa-
varnafélagsins. En það er ekki
nóg, að fá samþykkt lagafyrir-
mæli, ef þeim er ekki fylgt eft-
ir, bætti hann við. í framhaldi
af því nefndi hann nokkur
dæmi hér frá höfnínni, hvern-
ig bátar og skip færu stund-
frá landi án þess að nokkuð
hefði verið litið eftir þeim frá
skipaskoðuninni.
Einn fulltrúinn h'ér úr ná-
grenninu sagði til dæmis, að
heima hjá honum hefðu fimm
hefði verið litið eftir þcim af
vetur, en um sjóhæfni þessara
háta hlyti skipaskoðuninni að
vera ókunhugt, því að þangað
hefði aldrei verið sendur mað-
ur til skoðunar.
Má af þessu ráða, hvernig
eftirlitið er á hinum fjarlægari
stöðum á landinu, þegar það er
með þessum hætti í Reykjavík
og næsta nágrenni hennar.
Þórður Jónsson á Látrum gat
þess einnig, að sér hefði verið
falin skoðun báta þar vestra,
og tvisvar sinnum væri hann
búinn að óska eftir yfirskoð-
unarmönnum héðan að sunn-
an, en enginn hefði sýnt sig
enn þá.
Framhald af 1. síðu.
einkum í Svíþjóð og Dan-
mörku, syo sem hinn fyrrver-
andi þýzki kommúnisti Jan
Valtin hefur lýst vel í bók
sjnni „Úr álögum“.
Ernst Wollweber fór jafnan
huldu höfði, en á ófriðarárun-
um hafði sænska lögreglan
hendur í hári hans og var hann
þá dæmdur í þriggja ára. fang-
elsi í Svíþjóð. í stríðslok var
hann látinn laus, en þá haíðl
hann afplánað sekt sína. En nú
á hann, sem sagt, að hafa tekið
upp. sína fyrri iðju.
Stysavatnaþiiigið
Framhald af 1. síðu.
slysavarnafélagsins, og sýna
reikningarnir að eignaaukning
félagsins hefur orðið mjög
mikil’á síðustu árum. Fyrir 10
árum voru bókfærðar eignir
félagsins t. d. ekki nema 287
búsund 'krónur, en eru nú 2,5
milljónir króna. Er þar með
talinn sjóðurinn, sem ætlaður
er til kaupa á helikopterflug-
vélinni, en hann nemur nú uin
240 þúsundum króna. Eins og
kunnugt er, hafa miklar um-
ræður orðið á alþingi um heli-
■kopterbjörgunarflugvél, og
sagði Guðbjartur Ólafsson, for-
seti slysavafnafélagsins, í við-
tali við blaðið í gær, að framtío
þess máls væri í höndum al~
þingis, en slysavarnafélagið
væri búið að gera því kunnugt
um óskir sínar í því eíni.
í slysavarnafélaginu erti nú
165 slysavarnadeildir nieð sam-
tals rumlega 20 þúsund með-
iimum, þannig, að slysavarna-
félagið er óefað einhver fjöl-
mennustu sarntök í landinu.
Rúmlega 100 fulltruar eru nú
komnir til þingsins.
Forseti slysavarnaþingsins
var kjörinn séra Jón Guðjóns-
ron frá Akranesi, 1. varaforseti
Þorsteinn Árnason vélstjóri og
2. varaforseti Júlíus Hafstein
sýslumaður. Aðalritari þings-
Lns er Geir Ólafsson og skrif-
Etofustjóri Jón Oddgeir Jóns-
son.
Kosið hefur verið í eftirtald-
ar nefndir, og eru þessir full-
trúar formenn þeirra: Kjör-
bréfanefnd: Sigurjón Á. Ólafs-
son, fyrrv. alþingism,, nefnda-
nefnd; Ólafur Þórðarson skip-
stjóri, allsherjarnefnd: Ólafuur
B. Björnsson, Akránesi, skipu-
lags- og laganefnd: Árni Árna-
son, læknir, fjárhagsnefnd:
Júlíus Hafstein, sýslumaður, og
slysavarnanefnd: Þórður Jóns-
son frá Látrum.
Fjölmörg mál eru á dagskrá
þingsins, og hófust reglulegir
fundir kl. 2 í gær og stóðu ýfir
allan daginn. Var þá aðallega
rætt um björgunarstöðvar og
árangur af þeim, svo og tillög-
ur frá félagsstjórninni um auk-
ið öryggi á skipum. í dag hef j-
ast fundir að nýju kl. 2 e. h.
og er ráðgert að þinginu verði
lokið á sumardaginn fyrsta.
L.Í.Ú. boðar til
LANDSSAMBAND íslenzkra
útvegsmanna hefur boðað til
fulltrúafundar og hefst hann
föstudaginn 21. apríl.
Mun fundurinn ræða ýms
málefni í sambandi við bátaút-
veginn og önnur vandamál,
sem skapazt hafa í sambandi
f við gengislækkunina.
Þegar „Velutina11 var hleypt af stokkunum í Wcllsend-on-Tyne.