Alþýðublaðið - 18.07.1950, Blaðsíða 1
Yzt til vinstri: John M. Church, yfirmaður hjálparhersveita Bandaríkjanna. •— Maðurinn með
hattinn: Syngman Rhee, forseti Suður-Kóreu.
íandaríkjamenn haía
----------&-------—
MACAKTHUR tilkynnti í Tokio síðdegis í gær, að her-
sveitir Bandaríkjamanna í Suður-Kóreu hefðu í gærmorgun
orðið að hörfa af suðurbakka Kinfljótsins og taka sér stöðu
nær Taiden. Innrásarherinn hefur komið miklu liði yfir fljótið
Orðrómur um svar
haos við máSaSeit-
oo Paodit Nehrus
PANDIT NEHRU, forsætis-
ráðherra Indlands, liafði í gær
borizt svar Stalins við orðsend-
ingu sinni varðandi Kóreustyrj
öldina og lét Nehru þegar í stað
afhenda stjórnum Bretlands og
Bandaríkjanna afrit af því. í
Washington var búizt við, að
Truman myndi svara orðsend-
ingu Nehrus í gær eða í dag.
Svar Stalins hafði ekki verið
birt í gærkveldi, en blöðin í
Nýju Delhi töldu sig vita, að
Stalin teldi í því nauðsynlegt
að stöðva styrjöldina í Kóreu
hið fyrsta, en gæfi í skyn, að
skilyrði fyrir því væri það, að
kommúnistastjórnin í Peking
fengi sæti Kína í bandalagi
hinna sameinuðu þjóða, þar á
meðal í öryggisráðinu!
—...—............... -■■■
Á ÞREM STÖÐUM á land-
inu komst hitinn í gær í 23 st.
Það var í Reykjavík, á Hæli í
Hrepþum og á Þingvöllum.
og sækir enn suður á bóginn.
í tilkynningu MacArthurs
segir, að yfirförin yfir Kinfljót
hafi orðið innrásarhernum
rnjög dýr; hann hefði ekki kom
ið nema aðeins tveimur skrið-
drekum yfir fljótið og þeir
hefðu báðir verið eyðliagðir af
sprengjuflugvélum Bandaríkja-
manna. Engu að síður hefði
innrásarherinn komið svo fjöl-
mennu liði suður yfir Kin, að
liðsmunur þess og Bandaríkja-
hersveitanna væri eins og 10:1
og hefðu Bandaríkjamenn orð-
ið að hörfa ur^an til að koma
í veg fyrir að þeir yrðu um-
kringdir.
Óstaðfestar fregnir frá Kór-
eu í gærkveldi hermdu, að
fremstu sveitir innrásarhersins
væru komnar inn í úthverfi
borgarinnar Taiden.
FYRSTI SIGUR SUÐUR-
KÓREUMANNA
í tilkynningu MacArthurs í
gær var skýrt frá því, að Suð-
ur-Kórumenn hefðu unnið sinn
fyrsta sigur á austurströnd Kór
euskagans, þar sem innrásar-
herinn hefyr sótt hratt fram
undanfarna daga. Suður-Kór-
eumenn gerðu þar hart gagná-
hlaup og hröktu sveitir innrás-
arhersins á flótta.
4 dauðadómar og 33
fangelsisdémar
í Tékkoslévakíu
á laugardaginn
FJÓRIR dauðadómar og
þrjátíu og þrír fangelsisdómar
voru kveðnir upp í Tékkósló-
valdu á laugardaginn, margir
fangelsisdómarnir upp á lífs-
tíðarfangelsi.
Dómar þessir voru kveðnir
Framh. á 7 síðu.
Verður í þess sfað að kaupa saSf-
fisk annars sfaðar að, meðan SIF.
verzlar aðeins við Hélfdán Bjarnas.
FISKINNFLYTJENDUR Á ÍTALÍy ern mjög óánægðir
með það, að fyrirtæki Hálfdáns Bjarnasonar skuli hafa algerá.
einokun á sölu íslenzks saltfiskjar á Ítalíu, og aðrir virðast
ekki geta fengið íslenzkan saltfisk þar í landi. Hef’ur fisksölu-
sambandið U. I. M. (Unione Importatore Meriuzzo) sent Al-
þýðublaðinu frásögn af tilraunum þess til þess a’J fá keyptan
íslenzkan fisk, sém allar reyndust árangursiausar, þótt SÍF
væru gerð ákveðin tilboð um kaup á miklu magni af blaut-
söítuðum fiski á góðu verði.
Alþýðublaðið telur rétt, að
þær upplýsingar, sem U. I. M.
hefur sent því, komi fyrir al-
menningssjónir, því að um
mjög mikilsvert mál er að
ræða, þar sem er saltfisksala
til Ítalíu. Frásögnin af við-
skiptum U. I. M. við S. í. F.
er í stuttu máli sem hér segir:
í maímánuði síðast liðnum
I var forstjóri U. I. M„ M. Par-
odi að nafni, staddur á Norð-
ur-Spáni. Frétti hann þá, að
fulltrúi S. f. F„ Helgi Þórar-
insson, væri staddur í Madrid,
og gerði hann sér ferð þangað
til að ræða við hann um kaup
á íslenzkum fiski. í þessum
■/iðræðum lagði Parodi áherzlu
i eftirfarandi atriði, að því er
fiið ítalska samband skýrir frá
! bréfi sínu:
1) U. I. M. hefur mikinn
áhuga á að kaupa blautsait-
aðan fisk frá Islandi, og vill
athuga hvaða tilboð, sem
Islendmgar vilja gera um
sölu á allmiklu magni.
2) Þegar til lengdar lætur
mun það verða óhagkvæmt
íslenzkum fiskframleiðend-
um og sjómönnum að verzla
á svo mikilsverðum mark-
aði eingöngu við eitt fyrir-
tæki, sem hefur einokun á
öllum viðskiptum við ís-
land.
í þessum viðræðum óskaði
Parodi eftir ákveðnu svari frá
3. í. F., og Helgi lofaði því
t'yrir júnílok. Þegar Helgi
jpurði, hvers vegna Parodi
ekki hefði snúið sér til Hálf-
iáns Bjarnasonar, svaraði
Parodi því til, að hann teldi,
að Hálfdán hefði átt að snúa
sér til U. I. M., en það hefði
hann aldrei gerf.
Þegar ekkert svar barst frá
S. í. F. um tilboð ítalanna,
sendi U. I. M. 5. iúlí tvö skeyti
til íslands. Annað var til
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna, þar sem U. I. M.
bendir á, að það hafi hvað eft-
ir annað beðið S. I. F. að selja
sér mikið magn af blautsöltuð
um fiski og þeir telji sig geta
Framhald á 7. síðu.
■ BBDBEBBBnH3ESKa.-aaB0ÖSBE«BnaBBaBanaS
Voro blekktir til :
að uFidirrita „fri@"í
arávarpið46. i
: ÞÚSUNDIR DANA, sem Í
; skrifað höfðu undir hið ‘
a «
; svokallaða „Síokkhólmsá- :
■ varp“ eða „friðarávarp“:
: kommúnista, hafa tekið afí- ;
: ur undirskrift sína og lýst:
; yfir því, að þeir hafi verið:
■ blekktir til hennar. Kveðast;
■ þeir ekki bafa gert sér það ■
: ljóst, að kommúnistar stæðu •
; að þessu ávarpi og undir- i
■ skriftasöfnuninni undir það.;
• Kaupmannahafnarblaðið •
: „Berlingske Tidende“ til- ■
; kynnti að það mundi taka ’
■ við yfirlýsingum frá því ;
• fólld, sem þannig hefði ver- ■
: ið blekkt og óskaði að taka ■
; aftur undirskrift sína; og að:
■ eins fyrstu vikuna eftir ■
: þessa tilkynningu blaðsins ■
; bárust því nöfn 4499 manna,«
; sem tóku undirskrift sína'
■ undir „friðarávarpið“ aftur!;
Komlnform heimtar'
skilyrðislaust
fylgi vl Rússland
AÐALMÁLGAGN Komin-
form, sem kemur út í Búkar-
est í Rúmeníu, hefur birt á-
skorun til allra kommúnista-
flokka í heiminum þess efnis
að sýna skilyrðislaust fylgi við
Sovétríkin í baráttunni gegn
Frh. á 7 síðu.