Alþýðublaðið - 18.07.1950, Side 4
4
ALÞÝÐUBLABID
Þriðjudagur 18. júlí 1950
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Al’pýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Eldraun samein-
uðu þjóðanna.
MÖRGUM eru enn í minni
dagar hinna miklu vonbrigða
fyrir alla friðarvini, er gamla
þjóðabandalagið sýndi sig ger-
samlega vanmáttugt til þess fyr
ir aðra heimsstyrjöldina, að
stöðva árásarríkin, Japan, ítal
íu Mussolinis og Þýzkaland
Hitlers, sem þá tóku að ráðast
á hvert smáríkið eftir annað
Dg leggja þau undir sig í ber-
höggi við þjóðabandalagið, sem
vitanlega átti að vera þeim
skjól og hlíf. Þjóðabandalagið
hafði engan her til þess, að
verja Mansjúríu gegn Japan,
Abessimu og Albam'u gegn ít-
alíu, eða Austurríki og Tékkó-
slóvakíu gegn Þýzkalandi. Og
bær viðskiptalegu refsiráðstaf
anir, sem það reyndi að fram-
kvæma gegn Ítalíu eftir að hún
réðist á Abessiníu, báru lítinn
árangur og sýndu sig gersam-
lega ófullnægjandi til þess að
stöðva árásarríkið. Það var þá,
sem vinir þjóðabandalagsins og
friðarins urðu með hyggð að
viðurkenna, að þjóðabandalag
ið væri ekki nema „friðartíma
verkfæri“, það væri þess van-
máttugt að gera sig gildandi
gagnvart árásarríkjum, sem
ekki skirrðust þess að láta vbpn
in tala.
Þjóðabandalagið var eftir
þessa reynslu ekki nema svipur
hjá fyrri sjón og leystist með
öflu upp í byrjun annarrar
heimsstyrjaldarinnar.
Fyrir bandalag hina samein-
uðu þjóða, sem reis upp í lok
þeirrar styrjaldar og svo mikl-
ar vonir voru bundnar við þá,
virðist nú vera kominn svipað-
ur reynslutími. Hin dulbúr.a
’rnnrás Rússlands í Suður-
Kóreu verður eldraun þess; og
menn spyrja í dag um allan
heim, hvort það muni standast
hana.
Bandalag hinna sameinuðu
bjóða hefur ekki, frekar en
gamla þjóðabandalagið,. neinn
her, enn sem komið er; og
margt í skipulagi þess, svo sem
neitunarvald stórveldanna í
öryggisráðinu, sem Rússland
hefur í tíma og ótíma misnot-
að, benti frá upphafi ekki til
þess, að það myndi verða
miklu kröftugra en það gamla,
af öflugri árás, sem eitthvert
stórveldið stæði að, þyrfti að
hrinda. En þær sterku undir-
tektir, sem áskorun öryggis-
ráðsins um að koma Suður-
Kóreu til hjálpar hefur fengið
hjá hér um bil öllum meðlim-
um bandalagsins, nemp Rúss-
landi og leppríkjum þess, sýna
þó, að lýðræðisríkin að
minnsta kosti hafa lært svo
mikið af raunalegum örlögum
gamla þjóðabandalagsins og
annarri heimsstyrjöldinni, sem
því tókst ekki að hindra, að
þau ætla sér ekki, að láta fara
eins með bandalag hinna sam-
einuðu þjóða, að óreyndu. Svo
augljós er lýðræðisríkjunum
og öllum þeim, sem halda vilja
frið í heiminum, nú orðni
nauðsyn þess, að slík alþjóða-
samtök séu til og sýni sig
nægilega öflug til þess, að
engu ríki þyki árennilegt að
rjúfa friðinn og fá þau á móti
sér.
*
í Suður-Kóreu er því nú
ekki aðeins barizt um frelsi og
sjálfstæði þesp litla lands,
heldur og um framtíð og á-
hrifavald bandalags hinna sam
einuðu þjóða. Stjórn Suður-
Kóreu var á sínum tíma mynd
uð fyrir framkvæði þess og
viðurkennd af því sem eina
löglega stjórnin í Kóreu yfir-
leitt, með því að það var
hindrað af setuliði Russlands í
Norður-Kóreu, að kosningar
gætu farið fram þar um leið
og gengið var til kosninga í
Suður-Kóreu, svo að hægt
væri að mynda stjórn á lýð-
ræðisgrundvelli fyrir allt land
ið. Með hinni dulbúnu árás
flússlands á Suður-Kóreu frá
Norður-Kóreu nú er því bein-
línis vegið að bandalagi hinna
sameinuðu þjóða; og það er
augljóst, að slíka árás geta sam
einuðu þjóðirnar ekki þolað
án þess að bíða við það varan-
legan hnekki eins og gamla
þjóðabandalagið, er því mis-
tókst að stöðva árás Ítalíu á
Abessiníu. Enda gengur víst
enginn þess dulinn, hvað á eft-
ir myndi fara, ef árásin á Suð-
ur-Kóreu fengi að hafa sinn
gang og Rússland að leggja
landið undir sig með aðstoð
íeppríkis síns í Norður-Kóreu.
Árásirnar myndu halda áfram
eins og Mussolinis og Hitlers
fyrir aðra heimsstyrjöldina,
hvort sem það yrði nú Indó-
Kína austur í Asíu eða Júgó-
slavía hér vestur í Evrópu,
sem röðin kæmi næst að. Og
endirinn gæti ekki orðið ann-
ar en ný stórstyrjöld, — þriðj i
heimsstyrjöldin.
■*
Það er því vissulega mikið,
r.em veltur á því, að banda-
lag hinna saméinuðu þjóða
ítandist þá eldraun, sem árás-
in á Suður-Kóreu er fyrir það
Undir því er það komið, hvaða
vonir önnur smáríki veraldar-
tnnar mega framvégis gera
sér um vernd hinna samein-
uðu þjóða gegn sams konar
árás. Og undir því er það vafa
iítið einnig komið, hvort hægt
verður að varðveita heims-
(riðinn, eða mannkynið verð-
ur enn að þola allar þær ægi-
legu hörmungar, sem ný heims
styrjöld — þriðja heimsstyrj-
öldin — myndi hafa í för með
sér.
Hafi árásarríkið sitt fram
með innrásinni í Suður-Kór-
eu, er sannarlega lítil von til
þess, að þriðju heimsstyrjöld-
inni verði afstýrt.
Heilbrigðisskýrslur
ársins
HEILBRIGÐISSKÝRSLUR
fyrir árið 1946 eru nýkomnar
út, samdar af landlækni, Vil-
mundi Jónssyni, eftir skýrslum
héraðslækna og öðrum heim-
ildum. Skýrslurnar eru í þrem
aðalköflum, sem skiptast aftur
í marga undirkafla. Sem aðal-
efni fyrsta aðalkafla má nefna:
I. Árferði og almenn afkoma.
II. Fólksfjöldi, barnkoma og
manndauði. III. Sóttarfar og
sjúkdómár, sem skipt er niður
í yfirlit yfir farsóttir, aðra
næma sjúkdóma, ýmsa sjúk-
dóma, kvilla skólabarna, að-
sókn að læknum og sjúkrahús-
um, augnlækningaferðir. IV.
Barnsfarir. V. Slysfarir. VI.
Geðveikir, fávitar, daufdumbir,
málhaltir^heyrnaríausir, blind-
ir og deyfilyfjaneytendur. VII.
Ýmis heilbrigðismál, þar má
telja t. d. heilbrigðislöggjöf,
heilbrigðisstarfsmenn, sjúkra-
hús og heilbrigðisstofnanir,
húsakynni og þrifnað, fatnað og
matargerð, áfengisnautn, með-
ferð ungbarna, íþróttir, alþýðu-
fræðslu og heilbrigðismál, með-
ferð þulfalinga, slysavarnir,
meindýr, störf heilbrigðis-
nefnda, húsdýrasjúkdóma, fram
farir til almenningsþrifa og
margt fleira. í öðrum aðalkafl-
anum eru töflur yfir efni fyrsta
kafla. Þriðji kaflinn fjallar um
form heilbrigðissamþykkta, 3
embættiserindi. Því næst er
Enn um smánarblett á Revkjavík. — Hlut-
verk fyrir lögregluna. — Hverjir standa fyrir
sorpritaútgáfunni?
ÞAÐ ER EKKI skemmtilegt
hlutverk að vera að amast við
vesalingum. En stundum verður
þetta óhjákvæmilegt. Oft o g
mörg'um sinnum er búið að tala
um það opinberlega, að það sé
óhæft að ölóðir menn hafi Arn-
arhól fyrir dvalarstað. Hefur
ástandi þessara manna verið lýst
og það hefur ekki verið falleg
lýsing. Hefur því heinlínis ver-
ið haldið fram, að svo slæmt
væri ástand þessara manna og
framferði á stundum, að ekki
næði nokkurri átt að hafa börn
í nálægð þeirra á hólnum.
KVÖLD EITT fyrir nokkru
ætlaði ég með hóp erlendra
Cerðamanna upp á Arnarhól.
Þaðan er fagurt útsýni til Esju
og jökulsins og yfir höfnina og
vildi ég sýna þeim það. En ég
hröklaðist á burt með þá og
hraðaði mér. Dauðadrukknir
menn veltust undir bárujárn-
inu, flaska gekk á milli — og
orðbragðið var ekki á ?narga
fiska, en það gerði ef til vill
minnst til.
MÉR VARÐ það enn betur
íjóst en nokkru sinni áður, að
þessir ölóðu menn mega ekki
vera á Arnarhóli. Allt af. þeg-
ar þetta hefur verið sagt, hef ég
haft tilhneygingu til þess að taka
undir talsháttinn. „Einhvers
Gtaðar verða vondir að vera“.
Og þarna er góður staður og fáir
munu þessir memi eiga gott at-
hvarf. En þetta dugir ekki. Til-
litið til heildarinnar verður að
ráða meiru en tillitið til þess-
ara fáu vesalinga.
viðbætir, læknaúrskurðir, og að
lokum er stutt yfirlit á ensku
yfir meginefni ritsins.
Frysting karfans
KARFAVEIÐAR hafa nú verið
stundaðar í allstórum stíl í
fyrsta sinn í mörg ár, og hafa
togarar lagt karfann upp í
fiskimjölsverksmiðjur til
vinnslu. Hefur þetta gefizt
allvel, þar eð togararnir njóta
sín vel við slíkar veiðar. Þeir
hafa getað fy-llt sig á mjög
. stuttum tíma, svo. að kostnað-
ur verður ekki of hár miðað
við afla. Þá hefur verið all-
gott, en þó 'lækkandi, verð á
mjölinu, svo að sæmilegar
gjaldeyristekjur ættu að fást
af þessari vinnslu, og loks hef
ur skapazt nokkur atvinna við
verksmiðjur í landi, og hefur
það komið í góðar þarfir.
ÞAÐ ER SKÓÐUN margra
fiskifræðinga, að meira sé af
karfa, en nokkurri annarri
fiskitegund í hinu víðáttu-
mikla Atlantshafi. Þó hefur
lítið verið.gert af því að veiða
hann hér á-landi, nema þegar
staðið hefur á eins og nú og
hann verið setfúr í mjöl-
vinnslu. Hefur lítið sem ekk-
ert verið veitt af karfa til
manneldis og íslendingar
munu yfirleitt ekki hafa
borðað karfa að ráði.
AÐRAR ÞJÓÐIR hafa sumar
hverjar meira dálæti á .karfa
en við. Bandaríkjamenn telja
hann til dæmis hinn ljúffeng-
asta matfisk, og mun frystur
karfi eiga miklu meiri vin-
sældum að fagna vestra en
þorskur eða ýsa. Virðist því
einsætt, að hér verði að at-
huga gaumgæfilega alla mögu
leika á frystingu karfa, þar
sem sölumöguíeikar hans virð
ast vera miklir, en frystur
þorskur liggur óseldur í land-
inu í stórum stíl.
KARFINN er úti fyrir strönd-
um landsins, og það í stórum
stíl, eins og hver maður getur
sannfærzt um, er séð hefur
togara drekkhlaðna af þessum
fiski leggja að lanai í vor og
sumar. Frystihúsin eru til.og
geta afkastað miklu meira
magni en þau hafa gert. Mark
aðurinn er til og verðið gott.
SAGAN ER ÞÓ ekki öll sögð.
•Karfamiðin eru alllangt frá
landi og það þarf að koma
fiskinum fljótlega í frystingu.
Mun þ*tta vera. sá vandinn,
sem erfiðastur er viðfangs, en
vonandi verður hægt að leysa
þessa hlið málsins á viðun-
andi hátt, svo að hinir miklu
möguleikar, sem eru á fram-
leiðslu og sölu á þessu sviði,
verði notfærðir.
FISKVEIÐAR íslendinga hafa
undanfarin ár verið um of ein
hæfar. Stríðið átti að vísu
sinn þátt í þessu, en þá þurfti
að afla sem mest og koma afl
anum sem fljótast til Bret-
land.s. Nú gera neytendur um
heim allan meiri kröfur og það
þarf að grandskoða óskir
þeirra og reyna að haga fram
Ieiðslunni. eftir því. Þess
végna verður að hafa opin
augun fyrir nýjum framleiðslu
háttum, og frysting karfans
virðist vera tækifæri, er gæti
Ieitt til aukinnar framleiðslu,
atvinnu og gjaldeyri.stekna.
Slík tækifæri verður að noía.
ÞAÐ VERÐUR ÞVÍ að reka
fylliraftana af Arnarhóli í hvert
Binn, sem þeir stunda þar
drykkju. Það er ekki hægt að
leyfa þeim að flæma fólk af
hólnum. Þeir verða að finna sér
einhvern annan samastað. Bezt
væri að lögreglan fer.gi fyrir-
mæli um að ganga um hólinn
við og við, enn fremur ætti að
miðja varðmanninn að gera lög-
reglunni aðvart.
BÓKABÉUS SKRIFAR. „Ail
ir tala um pappírsskort og prent
smiðjueigendur og útgeferidur
eegja að þeir verði að draga
mjög úr útgáfu bóka vegna
þessa skorts. Ég efðst heldur
ekki um að skörtur sé á pappír
eins og öðrum gjaldeyrisvörum
og það má kannske segja það,
að það megi draga nokkuð úr
pappírsflóðinu, þó að ég taki
okki undir allt skraf um það
efni.
EN MIG FURÐAR á að hægt
Bjkuli vera að gefa út fjölda
tnargt af því, sem rutt er á
markaðinn í þessum pappírs-
Bkorti. Það færist í vöxt að sorp-
rit séu gefin út hér og önnur
enn fremur sem nálgast það að
vera sorprit. Það i.iir og grúir af
glæpasögum og bjálfaíegum ást
arvellusögum í bókabúðunum.
Pappírsskorturinn keniur ekki
niður á þessum bókmenntum
þvert á móti.
■ NÚ MUN ÞAÐ VERA svo að
prentsmiðjurnar fái megin hlut-
ann af pappírsleyfunum og það
eru því þær, sem standa að þess
um sorpritaútgáfum. Það er ekki
hægt að stemma stigu við þessu
m?ð öðru móti en því, að láta
fara fram rannsókn á því hvaða
prentsmiðjur bað séu, sem þann
Ig fara með pappírslevfi sín. Og
síðan að stöðva leyfisveitingar
til þeirra.
ÞAÐ VÆRI SVO SEM trú-
legt, að það yrði að hætta um
íjinn að gefa út bezta rit okksr
vegna þess að það þarf að gefa
út „Djöfulóða prinsinn“ eða
„Fjör í hjónarúmi.“ Vilja ekki
gjaldeyrisyfirvöldin athuga
þetta mál hið bráðasta“.
son
úr Nansenssjéði.
MENNT AMÁLARÁÐU -
NEYTIÐ hefur að fengnum
meðmælum háskólaráðs lagt
til, að Steindóri Steindórssyni
menntaskólakennara, verði
veittur styrkur sá, að fjárhæð
3000 norskar krónur, er stjórn
Nansenssjóðsins í Osló hefur
heitið íslenzkum vísinda-
manni í ár til fræðiðkana í
Noregi.
Steindór hyggst vinna úr
efni því, er hann hefur viðað
að sér við gróðurrannsóknir á
íslandi, og jafnframt nýjustu
aðferðir og vinnubrögð við
rannsóknir í plöntulandafræði
og plöntufélagsfræði.