Alþýðublaðið - 16.08.1950, Qupperneq 8
LEITIÐ EKKI GÆF-
UNNAR langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðaliapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmaima. —
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK!
Takið höndum saman vi3
unga jafnaðarmenn ®g að-
stoðið við sölu happdrættis
miða í bifreiðahappdrættH
Sambands ungra jafnaðar>
manna. j
Horræn hljénr!is!ðr!iÉfí6 i
Helsinki í næsía snányi
--------------;--*»-----
Mör* verk verSa fluít bar efíir íslenzk
tónskáid, rn„ a. „Saga symfónian“ eftir i
Jón Leifs, er flutt verður þar ífyrsta sinn
DAGANA 15.—19. september verður haldin norræn hljóm- j
listarhátíð í Helsinki í Finnlandi, en slíkar hátiðir eru haldnar j
á tveggja ára fresti og til skiptis á Norðurlöndunum, nema
hvað ckki hefur enn ver'ið talið fært að efna til norrænnar
tónlistarhátíðar hér, sökum skorts á þjálfaðri symfóníuhljóm-
sveit, og er spurning, hvenær úr því rætist.
Á hljómlistarhátíð þessari
verða flutt ýms tónverk eftir
íslenzka höfunda og hafa sum
þeirra ekki verið flutt áður
opinberlega. Verk þessi eru
Koncert a grosso eftir' Jón
Nordal, sem fluttur var á lista
mannaþinginu í Þjóðleikhúsinu
í vor; strokkvartett eftir Helga
Pálsson, sem fluttur verður af
Sibelius-strokkvartettinum
finnska, sem talinn er bezti
strokkvartett á Norðurlöndum,
og Chaconne eftir Pál Isólfs-
son.
Veigamesta íslenzka verkið,
sem þarna verður flutt, er
„Saga symfonia“ eftir Jón
Leifs, og verður hún flutt af
symfóníuhljómsveit Helsinki-
Ekstrabladet birtir
viðtal við Sigurð
Hordal um hand-
ritamáiið
EKSTRABLADET í Kaup-
mannahöfn birti nýlega ýtar-
legt viðtal við Sigurð Nordal
prófdssor um handritamálið.
Er það skrifað af Leif H. Hen-
dil, sem \dega var á ferð hér
á laridi, og er undir fyrirsögn-
inni • „Sagaöen uden sagaer“.
Nordal skýrir í viðtalinu mál-
stað íslendinga, sögu handrit-
anna og þýðingu þeirra fyrir
íslenzku þjóðina svo sem bezt
verður gert, eins og hans er von
og vísa. Hann virðist hafa sann
fært Hendil rækilega (,ef sann-
færingar hefur verið þörf), því
að blaðamaðurinn bætir nokkr-
Um orðum frá eigin brjósti aft-
an við viðtalið. Hann segir:
„EirtS og prófessor Nordal talar
■—- og talar af innileik — svo
tala : allir íslendingar. Við
stöndum andspænis heitustu
óskum allrar íslenzku þjóðar-
innar, og við Danir munum
tvímælalaust vinna gott verk
og réttlátt, ef við uppfylltum
þessa ósk án allrar þrætu um
hána'.
Mannkynið þarf að sjá dæmi
um vináttu og alúð þjóða á
milli. Danir eiga í þessu máli
","*gott tækifæri til slíks.“
—. I ■■ .. ........—
EANDARÍKJAMENN afhentu
Frökkum í gær tvo tundur-
spilla, og tóku franskir sjó-
menn við þeim í amerískri
• 'höfn. .
borgar; hefur Jussi Jallas ann-
azt æfingar á verkinu, en tón-
skáldinu hefur verið biðið að
koma til Helsinki og stjórna
flutningi þess á hátíðinni. Sym j
fónía þessi er í fimm köflum,
sem nefndir eru eftir fornsögu-
persónum. Ber fyrsti kaflinn
nafn Skarphéðins, annar Guð-
rúnar Ósvífursdóttur, sá þriðji
nefnist „Björn að baki Kára“,
fjórði „Grettir“ og fimmti
„Þormóður Kolbrúnarskáld“.
Má geta þess að við flutning
þessa verks verða í fyrsta skipti
í sögu symfóníuhljómlistarinn-
ar notaðir fornlúðrar, gerðir
eftir þeim lúðrum, sem fundizt
hafa í jörðu frá bronseöld í
Danmörku. Er það í fimmta
þættinum, og á að tengja verk-
ið Stiklastaðabardaganum, þeg
ar blásið er til orustu, en Þor-
móður Kolbrúnarskáld er tal-
inn hafa látizt eftir þann bar-
daga. Symfónía þessi er samin
á árunum 1941—1942, en flutt
þarna í fyrsta sinn.
Dr. Páli ísólfssyni hefur
einnig verið boðið að sækja há-
tíð þessa, en hann mun ekki
geta komið því við að taka boð-
inu.
stéttum 62 þátttökuríkja.
Venja er, að hvert ríki sendi
fulltrúa frá ríkisstjórn, alþýðu-
samtökum og atvinnurekenda-
samtökum, en að þessu sinni
sat Jónas þingið einn af íslands
hálfu, nema hvað Haraldur
j Kröyer, sendisveitarfulltrúi í
Osló, var honum til aðstoðar
vikutíma.
Á þinginu var gerð samþykkt
um alþjóðlegt samstarf til að
vinna gegn atvinnuleysi, og
var bent á leiðir í því efni.
Eitt athyglisverðasta mál
Frá vinstri: Ingi Þorsteinsson,
Bob Mathias og Örn Clausen.
Verkamannabú-
slaðir í byggingu
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
SANDGERÐI.
BYGGINGARFÉLAG verka
rnanna í Sandgerði hefur nú
hafið byggingu fjögurra íbúð-
arhúsa, og er þess vænzt að
efnisskortur tefji ekki fram-
kvæmdir, því mjög mikil þörf
er fyrir að fá íbúðirnar sem
fyrst í notkun.
Umsjón með byggingunum
hefur Karl Bjarnason íormað-
ur byggingarfélagsins.
Einn einstaklingur er einnig
að reisa íbúðarhús og eru horf-
ur á að hægt verði að fallgera
það í haust.
Þá er verið að fullgera salt-
fiskþurrkhú?, sem Miðnes h.f
á, og mun það taka til starfa í
haust.
þingsins var alþjóðasamþykkt
um heildarsamninga milli
verkalýðssamtaka og atvinnu-
rekenda •!’ sættir í vinnudeil-
um. Er þetta mjög mikilsvert
mál vegna þeirra verkfalla cg
þess vinnu- og framleiðslutaps,
sem verður víða vegna vinnu-
deilna, og er því augljós ggan-
semi af hvers konar umbótum
á lausn þeirra mála með auð-
veldara móti.
Alþýðublaðið mun síðar
skýra nánar frá þingi þessu.
ILO ræðir sæítir í vinnudeilum og
sömu laun karla og kvenna
Jónas Guðmundsson sat ársþing al-
þjóða vinnumálaskrifstofunnar.
..... ♦
JÓNAS GUÐMUNDSSON, skrifstofustióri félagsmála-
ráðuneytisins, er nýlega kominn heim frá Sviss, þar sem hann
sat hið árlega þing alþjóða vinnumálaskrifstofunnar, ILO. Með-
ál viðfangsefna á þessu þingi var alþjóðasamþykkt um sömu
laun fyrir sömu vinnu, samband vinnuveitenda og verkamanna,
atvinnuleysið og margt fleira, er viðkemur hinum vinnandi
Hörð keppni s 1ÖÖ m, hlaupi 1
' á meisfaramótiíiu í gær : 1
--------------!---—... - ■
Haukur vann á 10,8, Finnbjörn hljóp áj
10,8 og Örn varð þriðii á 10,9 sek.
-------%......-
SÍÐARI HLUTI meistaramóts íslards í frjálsum íþróttum.
fór fram í gærkveldi. Árangur var í ýmsum greinum góður
og þáttakan mikil. Langmesta athygli vakti 100 metra hlaup-
ið, þar sem úrslit voru óviss fram á síðustu stundu og bar-
áttan mjög hörð milli þriggja beztu mannanna. Torfa tókst
ekki að setja met í stangarstökkinu, fór vel yfir 4,15, en felldi
4,30 þrisvar sinnum, þar af tvisvar sinnum mjög naumt, Ingii
Þorsteinsson hjó nærri íslandsmetinu í 400 metra grindahlaupi,
sömuleiðis Guðmundur LárussoA í 400 metra hlaupi.
Úrslti í einstökum greinum0,
urðu þessi (aðeins getið þriggja
fyrstu manna, þar sem kepp-
endur voru þrír eða fleiri):
400 metra grindahlaup: Is-
landsmeistari Ingi Þorsteinsson
KR á 56,2 sek.
Stangarstökk: Torfi Bryn-
geirsson KR varð íslandsmeist-
ari, stökk 4,15 metra. 2. Kol-
beinn Kristinsson Selfossi, 3,60
metra. 3. Robert Mathias, 3,40
metra.
400 metra hlaup: íslands-
meistari Guðmundur Lárusson
Ármanni á 49,5 sek. 2. IngþÞor
steinsson KiR 51,9 sek. 3.
Sveinn Björnsson KR 52,3 sek.
Kringlukast: íslandsmeistari
Gunnar Huseby KR 47,29 m.
2. Þorsteinn Löve ÍR 45,95 m. 3.
varð Bob Mathias, kastaði 44,94
m. og fjórði Friðrik Guðmunds
son KR 44,85 m.
100 metra hlaup: íslands-
meistari Haukur Clausen ÍR á
10,8 sek. 2. varð Finnbjörn Þor
valdsson ÍR á sama tíma og 3.
varð Örn Clausen á 10,9 sek.
Þrístökk: íslandsmeistari
varð Kristleifur Magrlússon
Vestmannaeyjum, stökk 13,95
metra. 2. varð Jón Bryngeirss.
einnig frá Vestmannaeyjum
(róðir Torfa), stökk 13,64 m. og
3. Oddur Sveinbjörnsson frá
Ungmennafélaginu Hvöt í
Biskupstungum, stökk 13,39 m.
1500 metra hlaup: íslands-
meistari varð Pétur Einarsson
ÍR á 4:09,4 sek. 2. Stefán Gunn
arsson Ármanni á 4:16,2 og 3.
Sigurður Guðnason ÍR á sama
tíma. Sigurður er mjög ungur,
en bráðefnilegur hlaupari.
Hann á vafalaust mikla framtíð
fyrir höndum á millivegalengd
um, ef hann leggur rækt við
þær greinar.
Sleggjukast: íslandsmeistari
varð Þórður Sigurðsson KR,
kastðai 43,02 metra. 2. Vil-
hjálmur Guðmundsson KR,
40,56 m. og þriðji Gísli Sigurð-
son FH, 34,22 metra.
80 mctra grindahl. kvenna:
íslandsmeistari varð Margrét
Hallgrím ^óttir, UMF Reykja-
víkur á 15,1 sek. 2. Hafdís
Ragnarsdóttir á sama tíma. 3.
Helga Björnsd. KR 16,4 sek.
Kringlukast kvenna: Isþands-
meistari varð Ruth Jónsson Ár-
nessýslu, kastaði 33,03 metra.
2. María Jónsdóttir KR 32,57
m. 3. Margrét Margeirsdóttir,
KR, 30,16 m.
Fyrirlestur um
íþróttamál
PRÓFESSOR, dr. Carl Diem,
forstöðumaður þýzka íþrótta-
skólans í Köln, flytur fyrirlest-
ur miðvikudaginn 16. ágúst kl.
20,30 í 1. kennslustofu Háskóla
Islands.
Fyrirlesturinn verður fluttur,
á ensku og nefnist ,,Funda~'
mental principles of physical
education11. — Öllum heimill
aðgangur.
—---------*---------
)
Skemmliferðir
um næslu helgi
SKEMMTIFERÐIR Ferða-
skrifstofu ríkisins um næstu
helgi verða sem hér segir: 1)
Þriggja daga ferð í Þórsmörk.
Ekið austur á laugardag, dval-
izt inn frá ^fir sunnudag og
ekið til baka á mánudag. 2)
Gullfoss- og Geysisferð á‘
sunnudaginn. Ekið um Hreppa
að Gullfossi og þaðan að Geysi
og beðið eftir gosi. 3) Þá er og
ráðgerð Fljótshlíðarferð á
sunnudaginn, ekið að Múlakoti.
þaðan um Markarfljótsaura
meðfram Stíflunni. GengiS
verður á Þórólfsfell, skoðutS
Þórólfsglj úfur, Bleiksárglj úfur,;'
Mögugilshellir og svo sögustað-*'
ir. 4) Ferð til Borgarfjarðar.'
Ekið verður um Þingvelli og
þaðan norðpr Kaldadal að
Húsafelli. Á heimleið skoðaðid
Barnafossar og komði að ReykV
holti. 5) Bláfellsför. Ekið á Blá-’
fellsháls og gengið þaðan á Blá-
fell, en útsýni er þaðan geysi-1
vítt yfir hálendið. HringferS
um Krýsuvík, Selvog, Strand-1
arkirkju, Hveragerði og heýrs
um Hellisheiði. !
Gengu á land í Nor&~
ur-Kóreu í gærdag
AMERÍSKUR herflokkué
gekk í gær á land á austur-
strönd Norður-Kóreu, skammf
sunnan við landamæri So%7ét-
ríkjanna. Sprcngdu Amcríku-
menn í loft upp járnbrauta-
göng, sem aðalbrautin til Vla-
divostok liggur um, en um haná
berst mikil hjálp frá Sovétríkj-
unum til kommúnista í Kóreu«