Alþýðublaðið - 03.01.1951, Qupperneq 8
Börn og unglingar.
Komið og seljið
AlþýðublalSiö.
Alir viljakaupa
AlbýftublatSið.
Gerlzt áskrifendui'j
að Alþýðublaöinu. .
Alþýðublaðið inn H
bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4900*
iergfloúnn í höfn
Það er oft stormasamt á Norðursjó að vetrarJagi, — stundum svo að fiskiskipin verða að
Ieita hafnar. Hér sést fiskiflotinn í Esbjerg á Jjtiandi aiiur í höfn. Það er stormur úti fyrir.
Verður sfofnaður sjóður fil að lána
íslenzkum námsmönnum erlendis?
VIÐ AFGREIDSLU fjáilaganna samþykkíi alþingi tillögu
frá ráðurieytinu um 200 þúsund króna hækkun -styrkja íil ís-
lenzkra námsmanna erlendis. Þá var einnig samþykkt breyt-
ingarti laga frá Birni Ólafssyni menntamálaráðherra, þess cfn-
is, að allt að 400 þús. kr. af hcildarupphæð styrkjanna skyldi
ganga til þeirra ísl. námsmanna, sem byrjað höfðu náni sitt
ytra 1949 eða fyrr, þ. e. á'ður en gengi íslenzku krónunnar var
fellt hið fyrra sinn.
?79 vistmenn á Elli-
isimilinu um áramót
UM ÁRAMÓTIN voru sam-
tals 279 vistmenn á hj”ukrunar-
og elliheimilinu Grund, þar af
204 konur og 75 Karlar, Um
áramótin 1949—'50 voru vist-
mennirnir 254, og hefur aukn-
ingin á árinu því verið 25.
Á árinu komu samtais 96
konur og karlar á heimilið, 34
fóru og 37 dóu.
Meðalaldur dáinna á árinu
65 ára og eldri var sem hér
segir:
Konur 80 ára og 7 mánaða.
Karlar 79 ára og 1 mán.
Meðalaldur 79 ár, 7 mánuðir.
Meðal dvalartími 2 ár og 177
dagar.
Máifundur FUJ í kvöld
MÁLFUNDAHÓPUR FUJ
kemur saman í kvöld í
Brciðfirðingabuð ld. 8,30.
Umræðuefni vcrður: Áfeng-
ismálin. Framsögumenn:
Oddgeir Þorleifsson og Jón
Ilaukur Stefánsson. Leið-
heinandi er Gylfi Þ. Gísla-
son.
Meðlimir eru minntir á
- að mæta stundvíslega.
♦ Með þessari afgreiðslu máls-
ins er námsmönnum þessum
veitt mikiisyerð aðstoð.
I erindi, sem umboðsmenn
námsmannanna höfðu sent
menntamálaráðherra og alþing
ismönnum, lögðu þeir einnig
j til að stofnaður yrði sjóður,
i sern gæfi íslenzkum náms-
1 mönnum erlendis, sem langt
væru komnir í námi sínu, kost
á að fá hagstæð lán til að Ijúka
náminu. Á stúdentsárum sín-
um, fyrir nálega þrjátíu árum,
stofnaði Lúðv. Guðmundsson
skólastjóri slíkan sjóð við há-
skólann hér. Vextir af lánum
úr sjóðnum eru 3,5 L.
I greinargerð sinni með till.
þessari leggja flutningsmenn
til og óska þess, að ,,alþingi nú
leggi fram allt að 1 millj. kr.
stofnframlag til slíks sjóðs“.
Enn fremur segja þeir: ,,Er það
jafnframt álit. okkar, að í fram-
tíðinni mætti að verulegu leyti
draga úr veitingum óaftur-
kræfra námsstyrkja, ef náms-
mönnum yrði gefinn kostur á
a.ð fá hjá slíkum sjóði nátnslán
með hagstæðum kjörum.
Reynsla sú, sem fengizt hefur
af starfsemi lánasjóðs stúdenta
hér á landi, í Noregi og Dan-
mörku, sýnir, að til hreinna
und.antekninga má telja, að
slík námslán endurgreiðist eigi
skilvíslega og að fullu.“
Tillaga þessi hefur mælzt
mjög vel fyrir meðal þing-
manna og má líklegt telja, að
¥arar við, að ráðið
sé aðkomufólk lil
Sandgerðis á kom-
B B
1
A'ðalfundiir verka-
íýðsfélagsins þar
haldinn 30. f. rn.
AÐALFUNDUR Verkalýðs-
og sjómannafélags Miðnes-
hrepps, Sandgerði, var haldinn
laugardaginn 30. desember
1950. í stjórn voru kosnir Páll
O, Pálsson íorrfiaður, Margeir
Sigurðsson ritari, Elías Guð-
mundsson gjaldkeri, Jón Júlí-
usson og Karl Bjarnason með-
stjórnendur.
Aðalfundurinn samþykkti
einróma að fara þess á leit við
atvinnurekendur, að þeir réðu
ekki aðkomufólk á komandi
vetrarvertíð nema þá í fullu
samráði við verkalýðsfélagið.
Fjölgað hefur í félaginu um
fjörutíu manns á árinu. Eru fé-
lagsmenn nú 170 talsins.
Róleg áramót
á Ákureyri
Frá fréttaritara Alþýðubl.
AKUREYRI.
ÁRAMÓTIN voru mjög ró-
leg hér fyrir norðan. Á gaml-
ársdag var hríðarveður og setti
niður mikinn snjó í logni.
Á nýársnótt var lítil umferð
á götum úti og engar óspéktir.
HAFR.
Rólegasía gamlár:
Pó var eiils'samt hjá síökkviliðiuy.
----------------------^----------
GAMLAÁRSKVÖLÐ 1850 var rólegasta gamlaarskvöld,
sem lögreglan í Reykjavíkur hefur áíí í þrjátíu ár. að því er
hún sjálf telur. Engin teljandi spellvirki vom framin og óeirS-
ir voru hverfandi titlar. ASeins fjórir menn voru látnir í kjall-
ara lögreglustöðvarimiar vegna ölvunar á nýársnótt, en hina
vega tók lögreglaji um 20 unglinga og hélt þeim irmi í lögreglu-
stöðinni um kvöldið, en þeir höfðu reynt að cfna til óláta í miö-
bænum.
innan skamms verði borið
fram á þingi frv. um stofnun
sjóðsins.
S’ökkviliðið var hins vegar
mikið á ferðinni um nóttina,
og var kvatt út samtal.s nfu
sinnum frá kl. 10,30 um kvöíd-
ið til kl. 5,30 á nýársdags-
morgun, en hvergi var um al-
varlegan eldsvoða að ræða og
í þrjú skipti var það gpbbað.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk í gær hjá Guð
birni Hanssyni varðstjóra, en
hann hefur verið í lögreglu-
liðinu yfir þrjátíu ár. var
þetta rólegasta gamlárskvöld,
sem hann man eftir. Sagði
hann, að sáralítið hefði verið
um óknytti, að undanteknu
því, að fyrripart kvöldsins
hefði dálítið af unghngspiltum
safnazt saman í Miðænum og
gert sprengitilraunir. Hefði
lögreglan því tekið forsprakk-
ana, sem hefðu verið um 20,
og síðan hefði þeim verið hald-
ið inni á lögreglustöðinni fram
vfir miðnætti, en þá var þeim
sleppt aftur. Að minnsta kosti
ein sprengja sprakk í Austur-
stræti, en hún Varg engum að
meini. Enn fremur voru nokkr
ir'piltar með grjótkast, og lenti
steinn inn um bílrúðu, og
skarst bílstjóxinn nokkuð. Eng
in rúðurot. urðu í Miðbæn-
um, eins og oft hefur borið við
á gamlárskvöld, að undan-
teknu því, að rúða brotnaði í
Bókaverzlun ísafoldar og mun
það fremur hafa stafað af ó-
happi en ásetningi.
Ekkert var um íkveikjur i
Miðbænurn, og taldi Guðbjörn
pað því að þakka, að efnt var
til þriggja brenna í úthverfum
bæjarins, en þær drógu að sér
gjölda manns. Fyrir það varð
líka mun færra fólk í rniðbæn-
um, en annars hefði orðið.
Brennurnar voru á þessum
stöðum: Hagatorgi, Klambra-
túni og á mótum Sigtúns og
Laugarnesvegar. Komu þús-
undir manna að þessum brenn
um, bæði börn og fullorðnir,
og flestir hurfu heim á leið
f ð þeim loknum, enda var kalt
í veðri.
Um tólfleytið var allmargt
fólk niður við höfn, en þó mun
færra en venjulega, og mun
það nokkuð hafa stafað af
kuldanum. Þar fór allt fram
meg mestu prýði.
I samkomuhúsum bæjarins
var ekkert um óeirðir, og
drykkjulæti voru mjög lítið
áberandi, eins og sést bezt á
því, að einungis fjórir menn
j?istu . kjallara lögreglunnar á
nýársnóttina.
ERÍLSSAMT IIJÁ SLÖKKVI-
LIÐINU.
Þótt lögreglan hafi haft ró-
legt gamlárskvöld, varð aller-
ilsamt hjá slökkviliðinu. Alls
var það kvatt út níu sinnum.
I fyrstu tvö skiptin var það
gabbað út og það frá bruna
boðum sér í miðbænum og sícS
ar um nóttina var þag gabbað
í þriðja sinn.
Ein kvaðningin var út af eldi
sem var í hitaveitustokk við
Bústaðaveg, og er talið líklegt,
að þar muni hafa verið kveikt
í rusli. Þá var slökkvi’iðið tví-
vegis kvatt að húsúm, þar sera
svo hafði borið til að flugeldar
höfðu farið inn um glugga og
kveikt í gluggatjöldunum. í
báðum tilfellunum var þetta
í mannlausum íbúðum, tn fólk
í sömu húsum varð eldsins
vart og slökkti hann áður en
slökkviliðið kom. Á einum stað
hafði kviknag í kolakassa und
ir eldavél, en litlar skemmdir
urðu þar. Og yfirleitt varð ekk-
ert tjón á þeim stöðum, sem í
kviknaði þessa nótt.
Dr. Karl Renner.
DR. KARL RENNER, hinra
frægi jafnaðarmaður og forseti
Austurríkis, lézt í Vínarborg
daginn fyrir gamlársdag, átt-
ræður að aldri.
Karl Renner var í tölu mik-
ilhæfustu og virtustu stjórn-
málamanna Evrópu. Hann var
kanzlari Austurríkis tvisvar
sinnum, upp úr fyrri og síðarl
! heimsstyrjöldinni, og kosinn
forseti landsins 1947.
Blöð og stjórnmálaleiðtogar
lýðræðisríkjanna hafa farið
miklum viðurkenningarorðum
um dr. Karl Renner og störf
hans í tilefni af andláti hans.
Renner var einn af afkasta-
mestu og áhrifaríkustu rithöf-
undum jafnaðarstefnunnar, og
liggur eftir hann fjölda gagn-
merkra bóka.