Alþýðublaðið - 23.12.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 23.12.1950, Page 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 23. des. 1950. Framlenginprsnúrur jólafrélserínr Véla- og raftækjavenlunin Tryggvagötu 23. Sínii 81279. F r ank Yerby EITAR ASTRIÐ Frú Dáriðai Dulbeisu: Á ANDLEGUM STÓRHÁTÍÐARVETTVANGI Þá eru blessuð jólin komin. Ég segi fyrir mig, að það mátti ekki öllu seinna vera. Ég er al- veg orðin úrvinda af þreytu, æsingi, blaupum, kvíða, von- brigðum, — og ég v.eit eliki hverju. Endalaus hlaup, enda- lausar búðarstöður; — en það er þó ekki það lakasta! Verst er að hafa sama og ekkert upp úr öilu saman! Ég get ekki stillt mig um að segja ykkur eina smásögu, sem mér finnst táknræn, bæði fyrir það þjóðfélagslega öngþvedti, sem nú ríkir í öllum innflutn- ings- og verzlunarmálum hér á landi og þeim óheyrilegu vand- ræðum, sem þetta hefur bakað manni. Ég á vinkonu úti í Kaup mannahöfn — stórmerkilega manneskju. Meðal annars hefur hún ákaflega þroskaðan og sér- kennilegan listasmekk. Um jól- in í fyrra sendi hún mér ákaf- lega listræna vettlinga, sem hún hafði víst sjálf prjónað, með hvítum ísbirni á handarbakinu. Nú langaði mig vitanlega til að senda henni eitthvað , staðinn. En hvað? Ekki gat ég farið að prjóna handa henni vettlinga úr lopa, og band er með öllu ó- fáanlegt. Og svo fannst mér það satt að segja eitthvað svo ó- þjóðlsgt, að hafa mína gjöf ekki heldur stærri. Ég þaut fyrst eins og eldibrandur í þessar fáu kúnstverzlanir, sem til eru í bænum. Þar var ekkert að fá, sem mér fannst verulega smart, en þó sálrænt um leið. Öll al- mennileg málverk kostuðu yfir þúsund krónur, og enda þótt krónan okkar sé ekki há á móts við þá dönsku eins og allir vita, þá. þótti mér það heldur mikið fyrir eina vettlinga. Svo þaut ég f allar bókaverzlanir að vita hvort ég fengi þar hvergi góða íslenzka bók á dqjasku, — nei, nei, því miður. Listaverkabæk- urnar! Jú, veit ég Vel, að þær eru víst ákaflega sálræn list. — ■en það er nú samt til svona, það eru myndir í þeim bókum, sem heiðvirðar eldri konur geta ekki sýnt hverjum sem er kinn roðalaust, nema þá hjá Ásgrími. En ég var svo hrædd um, að Danir kynnu að gera gys að myndunum hans úr Húsafells- skógi; þeir hafa svo mikla skóga sjálfir, svo að það er ekki nema von, að þeir líti niður á j smáhríslur. Nú, ekki dugði j þetta. Ég tók mér drossíu og leitaði í hverri einustu búð frá Bræðraborgarstíg og inn í Kleppsholt, — en ailt kom fyrir ekki. Ég segi það satt, að ég var að verða brjáluð út úr þessu öllu saman! Jæja, — svo fór ég heim til. mín og tók til við símann. Hringdi og hringdi í allar áttir og til allra vinkvenna minna og las þeim raunir mínar og bág- indi. Og viti menn, — ein þeirra — sennilega sú fimmtugasta, sem ég átti tal við, hún kunni ráðið. Selskinnsskór! sagði hún. íslenzkir selskinnsskór. En hvar fengust þeir? Hún kvaðst hafa frétt af þeim í búð suður með sjó og tiltók það nánar. Og ég hringi eins og skot á Hreyfil, því að ég þorði ekki að bíða til morguns. Hæglega gat nefni- lega átt sér stað, að ekki væru til eftir nema einir skór í verzl- uninni og þeir yrðu þá farnir. Við komum á ákvörðunarstað- inn klukkan ellefu um kvöldið, vöktum kaupmanninn, — og fsngum skóna — og heim! Og mikil lifandis ósköp varð ég 'feg in, það segi ég satt. Það er kannski ekki sálrænt að segja iþað, en hálft í hvoru þótti mér sem ekki aðeins mínum heiðri og heiðri landsins gagnvart út- löndum, sér í lagi í Danmörku, — beldur og líka jólunum væri reddað. Þetta er að mínu áliti lær- dómsrík saga, og því segi ég hana, að ég hygg að mörgum hafi gengið líkt og mér. Jæja, — í andlegum friði. Dáríður Dulheims. Útbreiðið Alþýöublaðið ataður. En þrátt fyrir það hef óg ákveðið, að þessi náungi rkuli krafður gjalds fyrir skemmtunina, og það mun hærra gjalds heldur en þær taka fyrir slíkt, í vændisdrósa- húsunum, enda þótt ég leyfi mér að efast um, að þú hafir verið þess umkomin að veita honum betri skemntur. en þær. Svona, áfram nú . . “ Það var einkennandi fyrir persónugerð Victors, að enda þótt hann væri viti sínu fjær af reiði, hélt hann beinustu leið með þau í eikarlund nokkurn, sem greri á hans eigin jörð. Hann brá skammbyssunni ekki úr miði á meðan hann leysti hönk af grófum kaðli, sem hékk við söðulneíið, hnýtti rennilykkju á kaðalinn og brá henni yfir höfuðið á fangan- um, kippti síðan 1, svo að snar- an félli að hálsi hans. Þegar Jean-Paul sá, hvað hann ætl- aðist fyrir, varð hann að beita öllum sínum viljastyrk til þess að óttinn gerði hann ekki ör- magna. En Victor fór sér ekki í neinu óðslega; hann sveiflaði kaðlinum yfir eikargrein, knúði hest sinn síðan nokkur kréf aft ur á bak og hnýtti kaðalinn vel og vendilega utan um trjábol. Giles var náfölur, en samt kenndi hvorki kvíða né æðru í rödd hans. „Værir þú gæddur minnsta votti af mannslund“, mælti, hann við Victor, „mundir þú eiga einvígi við mig í stað þess að myrða mig, án þess að ég megi nokkurri vörn við koma“. Victor leit til hans, og augna tillit hans var þrungið hatri og fyrirlitningu. „Þeir, sem menn v.ilja telj- ast“, mælti hann með þunga, „skora ekki sigurvegara sína á hólm“. Að svo mæltu steig hann af baki og gekk að hestinum, sem hinn ungi, dauðadæmdí maður reið. „Victor“, æpti jDenisa upp vf ir sig. „Ég særi þig við nafn almáttugs guðs . . . “ Victor lyfti hátt svipunni, hélt henni reiddri eitt andar- tak og leit til Denísu, sveiflaði henni síðan svo hvatt, að vart mátti auga á festa, en svipuól- in small á lend hesisins, af því líku afli, að blóð spratt undan högginu. Hesturinn hvein við, hentist af stað í ofboði, en snar an kippti hinum bundna manni af baki hans og kastaðist hátt í loft upp. Og þá gerðist það und ur, að greinin, sem sennilega hefur verið feyksin. brotnaði við átakið, og Denisa sá Giles falla til jarðar, að vísu að kyrkingu kominn, en þó með lífsmarki. Denisa sá Vicfor lyfta skamm byssunni, en nú hafði hún glat að allri stjórn á sér. B’-jáluð af reiði og skelfingu réðist hún á hann, krafsaði með nöglum sínum í andlit hans /g augu, svo að skotið hljóp úr skamm- byssunni, en blóðið lak úr risp- unum. Síðan sneri hún sér að Giles, þar sem hann lá Hann iá hreyfingarlaus, og hún veitti því athygli, að blóð rann úr barmi hans og litaði jörðina. Hún gekk skrefi nær og laut að honum, en Jean-Paul tók ut- anum hana og leiddi hana f jær. „Það er búið, sem búið er, Denisa“, mælti hann lágt. Denisa reif sig lausa og réð- ist enn á Victor, af enn meira hefndaræði en fyrr. Hún beitti bæði nöglum, tönnum og hnú- :rm, svo að hann fékk engri vörn við komi, fyrr en hann kom á hana hnefahöggi, svo hörðu, að hún féll við. En það varaði aðeins andartak. Hún! spratt á fætur og réðist enn á hann, en hann bei.tti aftur hnef anum, og í það skipti svo hart,! að blóðið lagaði úr munni henn 1 ar. Jean-Paul laut að henni og reisti hana á fætur, en hún reif sig af honum, tók á rás þang- að, er hestur Giles hafði num ið staðar, stökk á bak honurn og hleypti út úr lundinum, í I áttina á veginn, sem lá með t ánni, en svartir lokkarnir flöks uðust til. | „Við verðum að hætta á það að treysta henni“, mælíi Victor. Um leið og hann sleppti orðmu, hleypti hann brúnum, það varð j ekki um villzt, að Giles hafði hreyft annan fótinn. Að vísu að ' eins örlítið, en samt var það, næg sönnun þess, að hann væri 1 enn með lífsmarki.. Jean-Paul hafði auðsjáanlega líka veitt pessu athygli, því að hann starði á Giles, náfölur og titr- ■ andi. Victor greip um hlaupið á sjóliðaskammbyssunni og hugðist slá Giles rothögg með skeftinu. Hann gekk skrefi nær j honum, en hikaði skyndilega' við, því að Jean-Paul hafði dreg ið upp skammbyssu sína og miðaði henni á Victor. „Snertu hann ekki“, hrópaði Jean-Paul, en tárin runnu nið ur vanga hans. „Ef Denisa ann honum, þá læt ég það ekki við gangast, að þú myrðir hann“. „Slepptu þessu barnleik- fangi“, urraði Victor. „Ég held bað sé ekki nema velgerningur að binda enda á kválir þessa Morðurríkj aræfils". „Þú hreyfir ekki við hon- um“, svaraði Jean-Paul, og.það var bænarhreimur í rödd hans. „Ég mundi harma það allt miit líf, ef ég neyddist til þess að irepa þig, Victor, en ég sver, að það skak ég fyrr gera, en ég ieyfi þér að vinna slíkt níðings verk. Stattu kyrr . . .“ Victor nam staðar. Jean- Paul var fölur sem nár; jafr.- vel titrandi varir hans voru bleikfölar. „Ef þú myrðir hann. verðum við hengdir!" hrópaði hann. „Já, þá verðum við áreiðan- lega hengdir!“ „Þú heldur það9“ maldaði Victor í móinn.“ Þá það! Þá verðum við hengdir.“ Hann gekk skrefi framar Skamm- byssan lifraði í hendi Jcar.- Pauls. Honum var það Jjóst, að hann mundi aldrci gola hleyþt af skotinu, — aldrei geta vegið bróður sinn ?em liann í raun- inni unni hugástum. Ilopum var þetta ljóst og Victor ekki síð- ur. Það var ekki laust við að bros léki um varir hans, þeg- ar honum varð litið á Jean- Paul með skotvopnið. Jean-Paul vissi ekki hvað gera skyldi. Hann leitaði í ör- væntingaræstum huga sér að oinhverju því ráði, sem hugs- anlegt var að gæti bjargað við málinu. Og skyndilega fann hann ráðið. Hann felldi skamm byssuna úr miði. „Gættu nú að þér, Victor!“ mælti hann lágt en rólega. „Hvernig fer þetta, ef Denisa er þunguð? Hvað er þá til bragðs að taka“. Victor nam staðar. Eins og hann hefði rekizt á ósýnilegan múrvegg. Jean-Paul þótti þeg ar sigurvænlegra, er hann sá áhrifin sem orð hans höfðu á bróðurinn. Hann ásetti sér að reyna að teygja úr umræðum sem bezt hann gæti. „Margar Suðurríkjastúlkur hafa gifzt Norðurríkjamönn- um. Gert úr þeim heiðursmenn meira að segja. Og þessi lítur út fyrir að vera bezti strákur. En látum við hann deyja, án þess að hann geti gengizt við barninu, verður Denisa dæmd af almenningi sem opinber hór kona . . .“ Um hríð stóð Victor kyrr í sömu sporum, hugsi, þung- búimi og illilegur. Síðan stakk hann sjóliðaskammbyssunni í hylkið og fór sér í engu óðs- lega. „Hjálpaðu mér þá til að koma óþokkanum heim í húsaskjól!“ urraði í honum. Það var furðuleg sjón, sem Hugh Duncan sá, þegar hann sneri hesti sínum af þjóðvegin um á heimbrautina að Lascals- ville. Hann knúði hest sinn úr sporum og náði bræðrunum, enda bar þá ekki hratt yfir. Þeir höfðu sett Norðurríkjahermann inn á bak hesti Victors og studdu hann báðir, enda virtist þess ekki vanþörf. Hugh benti á hann með svipu sinni. FGDURTUN verður í búðum í dag* seinustu eintökin

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.