Alþýðublaðið - 27.07.1951, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.07.1951, Blaðsíða 1
f Veðurútlit: Hæg breytileg átt. Skýjað en víðast úrkomulaust. Forustugrein: ^ B Spánn og Atlanthafbanda lagið- ' XXXII. árgangur. Föstudagur 27. julí 1951. 168. tbl. Teclrylikja er þeim nauðsyn Hvað sem á dynur halda Bretar fast við þjóðrrsiði. Á myndinni sjást brezkir hermenn í iv ' Kóreu fá sér te sopa á milli bardaga. a * a 6 3 c ft » \i« 9 «" a s v .. ur náðsf um skrárafriði vopnahlésins í Kóreu Einvígi milli ® óvísí að friður verði saminn Torfa og Lund- bergs í ágúsf TORFA BRYNGEIRSSYNI befur verið boðið ti! Svíþjóðar til þess að keppa þar á meist- aramóti í Málmey, sem fram fer dagana 14.—15. ágúst. Hef- ur Torfi tekið boðinu og fengið leyfi frjálsíþróttasambandsins til keppninnar. Á móti þessu mun Torfi mæta á ný hinum kunna stang- arstökkvara Svía, Ragnari Lundberg og heyja einvígi við hann í stangarstökki. Torfi mun að lokum keppa á tveim öðrum stöðum í Svíþjóð í þessari ferð. ---------*---------- Lík flnnsi við Leirvog__________ Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD IÐ fannst lík rekið í flæðai’mál inu við Álfsnes í Leirvogi. Reyndist það vera lík Snæ- bjarnar Stefánssonar skip- stjóra, sem fórst af báti her á Viðeyjarsundi fyrir nokkru síðan. Enn barisi á öllum vígstöövum í Kóreu ---------•-------- Á TÍUNDA UNDIRBÚNINGSFUNDI ’að vopna- hlésviðræðum í Kóreu hefur styrjaldaraðilum tekizt að komast að samkomulagi um dagskrá vopnahlés- fundarins. Vopnáhlésfundurinn hefur ekki verið á- kveðinn, en samkomulag náðist um, að þar skyldi verða- ákveðin markalína, er hvorugur herjanna mætti yfi-r- stíga, og skyldi skipuð r.efnd til þes að sjá um að á- kvæði fundarins um markalínuna skyldu ekki virt að vetugi. Einnig var ákveðið, að styrjaldaraðilar skyldu skiptast á föngum, en ekki var minnzt á hversu s'tórt herlið 'hvor aðili skyldi hafa til varnar við hlut- lausa svæðið. Talsveröur ágreiningur hefur orðið um livar markalínan skuli dregin, og hafa kommúnistar krafizt þess, að miðað skuli við 38. breiddarbaug, en fulltrúar sameinuðu þjóðanna vilja draga línuna á því svæði, sem þegar hefur unnizt í styrjöld- inni og hfý da þeirri vígstöðu, sem þeir nú hafa. Fundinum i Kaesong verður haldið áfram í dag. Enn er cftir að semja um ýmis atriði, og telja fréttamenn í Kóreu að óvíst sé, að samn- ingar um vopnahlé náist, þótt samkomulag um ofan talin dag- skráratriði hafi náðst. Talsvert var um bardag'a í Kóru í gær. Á austurströnd Kóreu héldu flugvélar samein uðu þjóðanna uppi ársum á birgðastöðvar kommúnista, en á vestur vígstöðvunum var ár ásum kommúnista hrundið. Framvarðasveitir sameinuðu þjóðanna telja að kommúnistar haldi áfram miklum liðflutn ingum frá Mansjuríu og talið er ótvírætt að samkomulag um vopnahlé náist. Yar olíugróði Einars OlgeirS' sonar gefinn upp til skaffs? ------♦—----- Maðurinn, sem greiðir 2774 krónur í útsvar og skatt, fékk 100 þús. krón- ur í aukatekiur skömmu eftir stríð. ÞJÓÐVILJINN þykist vera ákaflega hneykslaður á því, hvað forustumenn Alþýðuflokksins borga háa skatta. Hins vegar hefur hann ekkert við það að athuga. þó að kommúnistar hif miklu hærri tekjur og fer undan í flæm- ingi, ef minnzt er á hneigð þeirra til skattsvika. Það er þó ólíkt meira afbrot að svíkja undan skatti en að greiða háa skatta! íj I tilefni þessa er ekki úr vegi að minna á olíugróða y Einars Olgeirssonar. Formaður kommúnistaflokksins { fékk sjöfalt verð fyrir hutbréf sín í Nafta, þegar Olíuverzlun íslands keypti það skömmu eftir stríðið. Hlutbréf, sem Einar hafði gefið 15 000 krónur fyrir, kostuðu kaupandann 100 000 krónur, þegar salan fór fram. Það er gróði, sem nemur 600—700%. Alþýðublaðið spurði þess í vetur, hvort þessi gróði Einars Olgeirssonar hefði verið gefinn upp til skatts. Einar hefur ekki haft fyrir því að svara þeirri fyrirspurn, og Þjóðviljinn þagði þunnu hljóði. Vill nú ekki málgagn kommúnistaflokksins gera svo vel og segja skýrt og afdráttarlaust til um það, hvort þessi fáheyrði olíugróði Einars OT'geirssonar hafi verið gefinn upp til skatts? Og er það ekki grun- samlegt, að maður, sem haf'ði þó þessar aukatekjur á einu ári skömmu eftir stríð, skuli nú vera svo blá- fátækur, að hann greiðir ekki nema 2774 krónur í útsvar og skatta? Norðmenn unnu Islendinga á landsleiknum með 3:1 Pravda gefur sovél- höfundum línu -------♦—---- Segir þá vanrækja að lýsa Rússlandi kommúnismans. PRAVDA, aðajmálgagn rússneska kommúnistaflokks- ins, hefur í forustugrein ráð- ist harkalega á þá sovéthöf- unda, sem „snúi baki við nú- tímanum til þess að vegsama fortíðina“. Ræðst Pravda í þessu til- efni á rússneska rithöfundafé- lagið, ritstjóra fjölmargra bók menntatímarita og einstök flokksfélög fyrir að eiga sök á þessum lyfirsjónum rithöf- undanna. Segir Pravda, að rithöfunda félagið hafi ekki tekið nægi- legt tillit, til samþykktar mið- stjórnar kommúnistálflokksins ♦ NORÐMENN SIGRUÐU ÍSLENDINGA með 3 mörkum geg 1 á landsleiknum í knatt- spyrnu, sem fram fór á LiIIe- sehtleikvanginum í Þránd- lieimi í gærkvöldi. Þetta er fyrsti ilandsleikurinn í knatt- spyrnu, sem fram fer í Þránd- heimi, og horfðu á leikinn 17— 20 þúsund manns. Veður var mjög gott, þegar leikurinn fór fram, en hitinn allt að 20 stig. í hálfleik stóðu leikar 1:0, Norðmönnum í vil, en í síðari hálfleik settu Norðmenn 2 mörk og íslendingar 1. Þetta er sjötti landsleikur- inn, sem íslendingar heyja í knattspyrnu og annar erlendis. Áður hafa íslendingar keppt við Norðmenn, en það var sum- arið 1947, og þá unnu Norð- menn með 4:2. um bókmenntir og listir. Skip- ar blaðið sovéthöfundunum að velja viðfangsefni sín í nútíð- inni og lýsa Rússlandi komm- únismans.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.