Tíminn - 08.02.1964, Page 1
Uggvænlegar upp-
lýsingar um lóöamál
borgarinnar komu
fram á borgarstjórn-
arfundi í fyrrakvöld.
(Bls. 6)
Verður Dagverðareyrin
valin undir aluminíum?
ÞRÍR IÐJUHÖLDAR KEYPTU STAÐINN FYRIR 2 ÁRUM
IGÞ-Reykjavík, 7. fébr.
Stóriðjumálin eru nú mjög
á döfinni, og hafa raunar ver-
ið það nokkuð lengi undan-
farið. Hins vegar komust þau
í hámæli að nýju, þegar iðn-
aðarmálaráðherra lýsti því yf
ir á Alþingi, að tilboð hefðu
FLYJA UNDAN
KJARADÓMUM
KJ-Reykjavík, 7. febrúar.
KJARANEFND hefur nú sent
frá .sér ályktunarorð í fyrstu
tveimur kjaranefndarmálunum, er
-------Kjararátt-BSRB-'lagði fyrir nefnd
ina og varða 15—20 hjúkrunarkon-
or. Meiri hlutinn úrskurðaði í
báðum málunum að hjúkrunarkon
nr með 9 mánaða sérmenntun
skuli ekki taka laun eftir 15.
launaflokki heldur eftir 13- launa-
fi. Önnur hjúkruúarkonan vann
á skurðstofu, en hin á röntgen-
deild. Dómarnir tveir voru sam-
liljóða. Nokkrar hjúkrunarkonur
munu nú hafa sagt upp störfum
vegna þessa, og hyggja á störf
erlendis.
Hér er um það að ræða, hvort
hjúkrunarkonur, sem stundað hafa
9 mánaða framhaldsnám skuli
Framhal-í' á 15. sfðu.
borizt erlendis frá um að reisa
hér aluminíumverksmiðju og
olíuhreinsunarstöð. Hefur
komið til tals að aluminíum-
verksmiðjan verði reist við
Eyjafjörð, nánar tiltekið á
Dagverðareyri, þar sem fyrr-
um var síldarverksmiðja, en
er nú geymslustaður fyrir
tunnur og timbur Tunnuverk-
smiðju ríkisins.
Fyrir tveimur árum keyptu þrír
iðjuhöldar Dagverðareyri, eða þá
átta hektara lands, sem áður var
athafnasvaeði síldarverksmiðjunn-
ar, þrjár hafskipabryggjur og húsa
kost staðarins. Þeir sem keyptu
eru Eyþór Tómasson, framkvæmda
stjóri og eigandi verksmiðjunnar
Lindu á Akureyri, Sveinn Guð-
mundssó'n 'TrániIcttaihrdáStjóri vél-
smiðjunnar Héðins og Sveinn Val-
fells framkvæmdastjórií Vinnufata
gerðarinnar. Mun þegar hafa ver-
ið farið að tala um Dagverðareyri
sem stóriðjustað þegar þremenn-
ingamir keyptu.
Þegar Tíminn hafði tal af Eyþóri
Tómassyni í dag, sagði hann, að
aðstaða fyrir hafskip til að at-
hafna sig sig væri mjög góð á Dag
verðareyri. Hún væri fyrsta flokks
staður hvað það snerti. Og hann
sagði jafnframt að hann vonaði
að verksmiðjan yrði staðsett í
Eyjafirði vegna þess að þar væri
hægt að uppfylla öll skilyrði um
vinnukraft og aðstöðu og raunar
ætti Eyjafjörður rétt á þessu. Raf
magnsmálin yrði þó að leysa áður,
því eins og nú væri komið, væri
rétt á takmörkunum að rafmagnið
frá Laxá reyndist nægjanlegt. Tal
að hefði verið um að leiða raf-
magn norður yfir öræfin frá Þjórs-
á, en hvernig sem það færi, þá
væri það staðreynd, að virkja yrði
bæði Þjórsá og Jökulsá, áður en
langt um liðið. Fram hjá þeirri
staðreynd yrði ekki komizt.
Eyþór sagði að það mundi ekki
standa á núverandi eigendum Dag
verðareýrar að semja um aðstöðu
fyrir aluminíumverksmiðju á
staðnum, og jörðin Dagverðareyri
væri föl, þannig að landrými ætti
að verða tryggt, ef til kæmi.
Fryst grænmeti komið
FB-Reykjavík, 7. febr.
Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykj
um gerði í sumar tilraun með að
hraðfrysta ýmislegt grænmeti. —
Grænmetið hefur verið til sölu i
Náttúrulækningabúðinni að und-
anförnu, og segja þeir sem reynt
hafa að það bragðist sérlega vel.
Við náðum tali af Unnsteini
Ólafssyni skólastjóra garðyrkju-
skólans og spurðum hann um græn
metið. Lagði hann mikla áherzlu
á, að hér væri einungis um tilraun
að ræða, en hann hefði í sumar
látið frysta dálítið af tómötum,
gúrkum, káli, gulrótum, rabbar-
bara og berjum í tilraunaskyni, og
nú nýlega hefði nokkuð af græn-
metinu verið sett í Náttúrulækn-
ingabúðina til sölu.
Unnsteinn sagði að stefnan væri
sú, að hægt væri að hafa ísl, græn-
meti á borðum allt árið. Græn-
metið væri tekið, þegar það væri
bezt að sumrinu, hreinsað og skor
ið niður eða meðhöndlað eftir
því, sem óskað er. Að því loknu er
það kælt og síðan látið frjósa.
Þessi frysting má ekki vera hæg
heldur verður að snöggfrysta græn
metið niður í -í- 40 stig. Eftir
nokkrar mínútur er það tekið úr
frystinum og eftir það er nægi
legt að það sé geymt við 18—25
stiga frost. Einna veigamesta at-
riðið er að grænmetið frjósi snögg
lega, til þess að hjá kristalla-
myndun verði komist, því ískristall
amir sprengja grænmetið eins og
menn þekkja hvað bezt af kar-
töflum, sem hafa frosið.
Grænmetið er geymt í loftþétt
um umbúðum, en þar sem hér er
einungis um tilraun að ræða, hef-
ur ekki verið tekin nein fullnað-
arákvörðun um umbúðirnar yfir
leitt, ef framhald verður á þessari
starfsemi, og heldur ekki á stærð
þeirra. Eins og er, geta húsmæð-
umar fengið það, sem þær vilja
vegið upp í búðinni. Þær geta svo
geymt grænmetið eftir vild í ís-
skápnum heima, og þegar það er
matreitt verður að setja það nið-
ur í sjóðandi vatn,- án þess að láta
það þiðna áður.
Unnsteinn sagði okkur, að gúrk
ur væru sérlega heppilegar til
frystingar, en aftur á móti verða
tómatar of linir til þess að hafa
þá ofan á brauð, eins og aðallega
er gert hér, þegar frostið er far-
ið úr þeim. En þá má nota í tóm-
atsúpur og pressa þá í tómatsafa,
og til þess eru þeir mjög góðir,
sagði hann. Einnig er hægt að nota
þá í alls kyns salöt.
Atvinnudeild Háskólans rann-
sakar nú þetta hraðfrysta græn-
meti, í þeim tilgangi að sjá, hvort
það hafi glatað einhverju af nær-
Framhald á 15. sfðu.
ÞAKKAR
SAMUD
Forseta íslands barst í
gær bréf frá frú Jacqueline
Kennedy, ekkju John F.
Kennedy, hins látna forseta
Bandaríkja Ameríku, sem
hljóðar svo í fslenzkri þýð-
ingu:
Eg kýs að senda um yðar
hendur hjartanlega þökk til
íslenzku þjóðarinnar fyrir
auðsýnda innilega samúð á
tímum sorgarinnar eftir
dauða mannsins míns.
Það hefur verið mér hugg
un og styrkur að frétta af
þeim þúsundum íslendinga,
sem komu í ameríska sendi
ráðið, til að votta samúð
sína, heyra um athöfnina á
Alþingi og frestun funda til
minningar um mann minn,
og fjölsótta minningarat-
höfn í Dómkirkjunni.
Það var mér og kærkomið
að Guðmundur f. Guðmunds
son, utanríkisráðherra, var
viðstaddur útförina fyrir
hönd íslenzku þjóðarinnar.
Það er ósk mín og von,
að yðar og mín þjóð megi í
sorg okkar beggja styrkjast
í þeim ásetningi að starfa
fyrir og stefna að okkar sam
eiginlegu hugsjónum.
J