Tíminn - 14.02.1964, Blaðsíða 1
VFLBYSSUÓGNARÖLD Á KÝPUR:
Skjóta hver
annan niður
‘i
NTB-Nicosia, 13. febrúar
Minnst 50 manns hafa látið lífiö
og 100 særzt í bardögunum sem
geisað hafa í bænum Limassol á
Kýpur undanfarið, og þótt samið
hafi verið um vopnahlé var enn þá
í kvöld skothríð á svæðinu. Lík-
lega er tala dauðra miklu hærri
en 50, því að ekkert er vitað fast-
ákveðið um dánartölu tyrkneskra
manna. Brezkir borgarar i Limas-
sol hafa verið fluttir þaðan, og er
ástandið á Kýpur nú mjög alvar-
lcgt.
Mörg hundruð manns tóku þátt
f bardögunum við Limassol. Flest-
ir þeirra voru, að sögn sjónarvotta
borgaralega klæddir, en mjög vel
vopnaðir, m. a. með sjálfvirkum
skotvopnum. Grískættaðir menn
óku í brynvörðum jarðýtum um
götur borgarinnar, og gerðu
NÝTT
MILLI.
MAL?
í GÆJRKVELDI frétti blaðið,
að nýtt mál væri á döfinni á
Keflavíkurflugvelli. Er talið a5
pósthúsið á vellinuin hafi keypt
ávísanir af Jósafat Arngríms-
syni, að verðmæti svo hundr.
þús. skipti og látið þær liggja,
unz Jósafat hentaði að leysa
þær út aftur. — Jafnframt er
talið að um mikla fjármálaó-
reiðu sé að ræða hjá pósthús-
inu. jafnvel svo milljónum
skipti. — Það mun hafa verið
starfsmaður í þjónustu hins op-
inbera, sem benti á að athuga
þyrfti fjármálastarfsemi póst-
hússins. — Þetta nýja mál er a
byrjunarstigi.
■ýc GRISKIR þjóðernissinnar fara I
tlokkum um götur Nicosiu og láta
ofriðlega.
hverja vélbyssuárásina á fæt-
ur annarri inn í tyrkneska bæjar-
hlutann. Brezku herdeildirnar,
Framhald á 15 siðu
★ STANZLAUS réttarhöld eru
nú í Vallarmálinu, en lítið hefur
enn heyrzt rrá þeim, sem um mál
ið fjalla. Einn situr enn í gæzlu-
varðhaldi af þeim þremur, sem
stungið var inn í upphafi. í gær
fóru fram yfirheyrslur yfir þess-
um eina í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg. Þetta er glugginn
á þingsalnum. Tjöld voru dregin
fyrir hann í gær, sem verður að
kallast táknrænt fyrlr þá þögn,
sem hingað tii hefur ríkt um mál-
Ið. En þessir veggir eru gamlir
og kynnu frá mörgu að segja, ef
þeir mættu mæla, líka því, að
aldrei hafa verið eins mörg af-
brotamál á döfinni og nú.
RETTVI
KJ-REYKJAVÍK, 13. FEBRÚAR. — Fjársvikamálin, sem komið hafa upp að undanförnu, eru í stöðugri rannsókn og cndurskoðun
eftir því sem yfir verður komizt. Eru sum þeirra umfangsmikil, þar sem margir koma við sögu og rannsókn því erfið og flókin. Hér
á eftir er sagt frá níu helztu málunum.
★ AÐ UNDANGENGINNI húsrannsókn hjá einum forsvarsmanni
Eimskipafélags Reykjavíkur, Faaberg, sem framkvæmd var á ár-
inu 1961, var ákveðið að bókhald fyrirtækisins skyldi sent til end
urskoðunar. Grunur lék á að maðurinn hefði skotið undan gjald-
eyri, sem fyrirtækið hafi aflað og að gefnar hefðu verið rangar
skýrslur til yfirvaldanna um gjaldeyrinn. Endurskoðuninni lauk svo
ekki fyrr en í september 1963, og um þessar mundir stendur yfir
dómsrannsókn í máli þessu. Mál þetta hefur verið yfirgripsmikið og
endurskoðunin því tekið langan tíma.
★ í SUMAR varð uppvíst urn sölu töluverðs magns af íslenzkum
peningum erlendis. Var hér um að ræða upphæðir, sem skiptu
hundruðum þúsunda. Mál þetta er hjá Sakadómi Reykjavíkur og
verður að öllum líkindum tekið þar fyrir innan skamms.
★RÍKISENDURSKOÐUNIN hefur haft með hið svokallaða Frí-
jj hafnarmál að gera, og hefur farið fram endurskoðun á sfarfsemi
1 Fríhafnarinnar nokkuð aftur í tímann- Mál þetta heyrir undir
I Varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins. en deildarstjóri í Varn-
1 armáladeild er erlendis og því ekki hægt að fá frekari upplýsingar
utn málið. Starfmaður Fríhafnarinnar var grunaður um fjárdrátt,
sem hann játaði við yfirheyrslur. Var þar um að ræða erlenda
mynt, sem hann hafði dregið úr sjóðum Fríhafnaiinnar.
★ STARFSMAÐUR Eimskipafélags Islands afhenti á árinu 1963
fyrirtækinu Raftækni hér í bæ 24 bíla, án þess að tilskildum þlögg-
um með áritun tollstjóra væru framvísað. Rannsókn þessa máls er
nú lokið, en starfsmaðurinn fékk eina flösku af áfengi fyrir
hvern bíl, sem hann afhenti á þennan hátt. Það voru aðeins tveir
menn, sem komu við sögu í tnáli þessu, fyrrnefndur starfsmaður
og forstjóri Raftækni. Málið verður innan skamims sent saksókn
ara, sem ákveður, hvort höfða skuli mál á hendur mönnum þess-
um.
★ UPPVIST varð um stórfelldan fjárdrátt hjá einum starfsmanni
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis við endurskoðun hjá fyrirtæk-
inu um síðustu áramót. Grunur féll strax á starfsmann sparisjóðs-
ins, setn þá var nýlátinn, og þótti þegar sannað, að hann væri
sekur um fjárdráttinn. Nokkrir kunningjar mannsins munu vera
viðriðnir málið, sem er enn í höndum rannsóknarlögreglunnar og
Framhald á 15. sfSu.
Bæði atvinnurek-
endurog laun-
þegar vilja afnám
bannsins á verð-
fryggingu kaups
SJÁ ALÞINGIS-
FRÉTTIR BLS. é