Tíminn - 14.02.1964, Blaðsíða 16
TALSVERT GOS í SURTI OG
EYJAN STÆKKAR STÖÐUGT
FB-Reykjavík, 13. febr. I vegna slæms skyggnis. Marka
Líknr benda til þess að taJs- j þeir þetta af því, að í dag sást til
vert gos hafi verið í Surti síðustu eyjarinnar og hafði hún þá ttflu-
dagana, enda þótt Vestmannaey- vert stækkað og teygði sig lengra
ingar hafi ekkert til hans séð til vestuirs, en hún hafði áður gert.
Nýtt tæki á stærð við hálfa baun mun hafa mikil áhrif á daglegt líf manna
TÆKNILEG BYLTING
JK-Reykjavík, 13. febrúar.
UM ÞESSAR mundir er nýtt
og lítið tæki að ryðja sér til
rúms í rafeindaiðnaði Banda-
ríkjanna, svonefnt ..microcir-
cuit“. Þetta tæki er ekki stærra
en hálf baun en gegnir samt
miklu flóknara hlutverki en
transistorarnir, sem nýléga
fóru eins o? eldur í sinu um
allar jarðir.
Talið er, að þetta litla áhald
sé meiri bylting en transistor-
arnir voru á sínum tíma. Ef raf
eindaheili væri með lömpum og
tilheyrandi útbúnaði, sem not-
aður var í gamla daga, og ætl-
azt væri til, að minni hans væri
sama og mannsheilans, þyrfti
hann að vera jafn stór og Emp-
ire State byggingin. Með trans
istorum þyrfti slíkur heili að
vera jafn stór og tíu hæða há-
hýsi. En með hinum nýju
„microcircuitum" er hægt að
koma honum fyrir í skókassa:
Hvert „microcircuit“ gegnir
hlutverki fjölmargra transist-
ora og annarra tækja að aulci
og meðal þess, sem þeir gera
kleift, er sjónvarpstæki, sem
ekki eru stærri en Ikexkaka. —
Því verður nú fyret hægt að
framkvæma drauminn um sjón
varpstjald, sem hangir á vegg
éins og kvikmyndatjald. Þa
skapast einr.ig möguleikar á að
hafa sjónvarpstjöld í hverju
herbergi hússins, þótt tækið sé
aðeins eitt. Aðalnotkun „micro-
circuita“ er samt í rafeinda-
heilum, þar sem þeir gera reikn
ingana miklu fljótlegri og heil-
ana sjálfa miklu einfaldari,
smærri, og síðast en ekki sízt
ódýrari.
Þessi nýju tæki eru talin
miklu nákvæmari en transistor-
ar. Þau eru einnig þannig, að
skipta má um þau á augabragði
og auka þanr.ig lífdaga rafeinda
heilanna og annarra tækja, sem
þau eru notuð í. Eitt „microcir-
cuit“ er einn þúsundasti af
stærð svipaðs lampakerfis og
einn hundraðasti af stærð trans
istorakerfis. Nú eru þessi tæki
fyrst og fremst framleidd fyr-
ir bandaríska eldflaugaiðnað-
inn en búizt er við, að notkun
þeirra margfaldist á næstu ár-
um. Árið 1963 voru þau seld
fyrir samtals nærri milljarð ís-
lenzkra króna, en búizt er við
að eftir þrjú ár verði salan kom
in upp í 15 milljarða íslenzkra
króna á ári.
HÉR sjáum við eitt „microcircuit" á
korktappa i félagsskap býflugna. 4
myndinni sést greinilega, að taekið
er mun smærra en flugan. Þetta
litla taeki hefur
að geyma.
ótrúlega hæfileika
Krefja Keflavíkurbæ um
1,5 milljón kr. í lóðaleigu
IGÞ-Reykjavík, 13. febr.
í dag verður mál landeigenda
Ytri-Njarðvíkur með Vatnsnesi
gegn Keflavílcurbæ út af lóða-
gjöldum, flutt frá Reykjavík og
þingfest á ný í Keflavík. Landeig-
endur krefja bæinn um eina og
hálfa milljón króna í leigu fyrir
lóðir undir ýmsum opinbcrum
byggingum. Farið var af stað með
þctta mál í Reykjavík árið 1962,
en það hefur lcgið niðri þangað
til nú, að það verður flutt til
Keflavíkur.
SPARKAÐILLI-
LEGA i
KJ-Reykjavík, 13. febrúar
Nokkuð var um slysaflutninga
hjá Slökkviliðinu í dag. Klukkan
um hálf tólf var sparkað illilega
í mann á horni Tjarnargötu og
Vonarstrætis, og meiddist hann á
vinstra fæti. Farið var með mann-
inn á Slysavarðstofuna.
Um þrjú leytið varð árekstur
fyrir framan Fríkirkjuna. Kona
skarst í andliti við áreksturinn og
og var flutt á Slysavarðstofuna.
Um fimm leytið datt maður i
stiga á Café Höll í Austurstræti.
Framhald á 15 síðu
FRAMHERII
FUNDUR í FRAMHERJA, félagi
iaunþega, verður á sunnudaginn 16.
tebrúar kl. 2,30 að Tjarnargötu 26.
Forseti Alþýðusambands íslands mæt
ir á fundinum og svarar fyrirspurn-
um. — Stjórnin.
Landeigendurnir, sem mál þetta
höfða, eiga nær helming lands
þess er liggur undir Keflavíkurbæ.
Sjálfur á bærinn nær engar lóð-
ir, en hinn hluti lóðanna er eign
hlutafélags. Þær lóðir, sem bær-
inn er krafinn um leigu fyrir eru
undir íþróttasvæði bæjarins, 42
þús. ferm, bamaskólanum, 12,100
ferm. gagnfræðaskólanum, 14,700
ferm, skrúðgarði 13.050 ferm. leik
velli við Faxabraut 2,280 ferm. og
leikvelli við Hringbraut, 18,050
ferm.
Lóðaleiga er fyrir misjafnlega
langt tímabil, en sumt af leig-
unni nær allt aftur til 1. janúar
1945. Leigugjaldið er krafið til 1.
janúar 1963. Falli dómur á þá
lund að bænum beri að greiða
þessa fjárhæð í lóðaleigu til land-
eigenda, halda greiðslur bæjarfé-
lagsins að sjálfsögðu áfram, enda
ekki um neina endanlega greiðslu
að ræða.
Landeigendur hafa látið bæn-
um eftir land undir götur endur-
gjaldslaust, og hefur sú skoðun
komið fram, að líkt sé komið á
með götum og landi undir opin-
berar byggingar. Þær þjóni bæj-
arfélaginu á líkan hátt og án
gatna, skóla og leikvalla væri bæj
arfélagið illa á vegi statt og litlar
lóðir að leigja. Hitt kemur á móti,
að eignarrétturinn situr í fyrir-
rúmi og landeigendur gætu allt
eins krafið bæinn um gjald fyrir
land undir götur. Tímanum skilst
að sá háttur hafi verið hafður á,
að bærinn skipulegði lóðir og út-
hlutaði þeim til einstaklinga, er
síðan greiða lóðaleigu til landeig-
enda. Málið stendur því einungis
um leigu fyrir lóðir undir opin-
berar byggingar. Lögfræðingur
landeigenda í þessu athyglisverða
máli er Sveinbjörn Jónsson, lög-
maður, en Páll S. Pálsson, lögmað
Framhald á 16. siðu.
Undanfarna daga hefur ekkert
sézt til Surts úr Eyjum, en í dag
var gott skyggni og sá þá vel til
gossins. Sáu Eyjamenn þá, að Surt
ur var farinn að teygja sig lengra
til vesturs en áður, og leit einna
helzt út eins og þar hefði mynd-
azt ný eyja, sem nú væri orðin
áföst aðal'eyjunni.
Skip landhelgisgæzlunnar var
þarna á sveimi í dag, og mældi
eyjuna, eða athugaði. Bárust þær
fréttir frá skipinu, að eyjan hefði
ekkert hækkað en lengzt nokkuð,
en ekki voru neinar tölur nefndar
í því sambandi.
Eldglæringar sáust í dag í Surti
og talsverður mökkur var upp úr
gígnum.
ÞRIR KOMNIR
TIL SAMNINGA
KH-Reykjavík, 13. febr.
Loftleiðastjóm verst enn frétta
af samningaviðræðum við fulltrúa
Canadair-fl'ugvélaverksmiðjanna
um flugvél'akaupin, en eins og Tím
inn skýrði frá í gær, komu hingað
tveir fulltrúar verksmiðjanna í
gær til samninga. f morgun bætt-
ist þriðji maðurinn í hópinn, og
er hann einn af forstjórum verk-
smiðjanna í Quebeck í Kanada,
Mr. Cunley. Martin Petersen, far
gjaldasérfræðingur Loftleiða, er
kominn heim af Stokkhólmsfund-
inum, og átti Tíminn tal við hann
í dag. Hann kvaðst engu geta bætt
við það, sem Agnar Kofoed Hans-
en, flugmálastjóri, skýrði blaðinu
frá í gær. Martin Petersen sagði,
að enn hefði ekki verið ákveðið
hvenær viðræður Loftleiða og SAS
sem áformaðar eru á næstunni,
hæfust, né heldur hvar þær yrðu,
en það yrði ákveðið næstu daga.
Óánægja er með
rækjuveiðibann
i ísafjarðardjúpi
FB-Reykjavík, 13. febr.
Rækjuveiði í ísafjarðardjúpi er
nú hætt, og veiðimenn eru óánægð
ir yfir að fá ekki að veiða meira
en þær 400 lestir, sem fiskifræð-
ingar hafa heimilað. Staðhæfa sjó
menn, að rækjugengd sé nú með
mesta móti.
30 SÉRLEYFISHAFAR VERÐA
/ UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI
FB-Reykjavík 13. febr.
Stefnt er nú að því að hægt
verði að taka Umferðarmiðstöð-
ina við Hringbraut í notkun ein-
hvern tíma seint á þessu ári. Fjár
skortur hefur tafið framkvæmdir,
en rætzt hefur úr lionum og er
innrétting hússins hafin. Þarna
inunu um 30 sérleyfishafar fá að-
stöðu í framtíðinni, og síðar er
ætlunin að reisa þarna á sömu lóð
miðstöð fyrir vöruflutninga- og
sendibíla, en teikhing hefur enn
ekki verið gerð af þéirri bygg-
ingu.
Umferðarmiðstöðin varð fok-
held fyrir nokkru og nú er hafin
innrétting hússins. Þarna verða
skrifstofur ýmissa sérleyfishafa,
Félag sérleyfishafa og Umferð-
arskrifstofan verða þarna til húsa.
Þar að auki er ætlunin, að Póstur
og sími hafi afgreiðslu í húsinu,
og Verzlunarbankinn hefur feng-
ið þarna inni fyrir útibú.
Nýlega auglýsti Samgöngumála-
ráðuneytið til leigu veitinga- og
greiðasölustað, sem verður í suð-
urhluta byggingarinnar. Veitinga-
salurinn er 200 fermetrar að stærð
og er ætlunin, að þarna geti gest-
ir og gangandi fengið keyptan heit
an og kaldan mat og nestisböggla,
en auk þess verða líklega seldir
þarna ýmsir smáhlutir, hentugir í
ferðalög. Sér biðsalur verður í hús
inu, fyrir þá, sem bíða eftir áætl-
unarbílunum.
Framhald á 15. síðu.
Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræð-
ingur segir sitt álit vera, að það
ætti að vera öllum fyrir beztu, að
nú sé mikil rækja í Djúpinu, því
töluvert þurfi til þess að hafa
stofninn upp aftur eftir ofveiði
undangenginna ára.
GS, fréttaritari blaðsins á ísa-
firði, símar, að rækjuveiði sé nú
hætt og búið að fiska upp í kvót-
ann-, 400 lestir, sem fiskifræðing-
ar ákváðu. Veiðimenn staðhæfi,
að rækjugengd sé nú með mesta
móti, en að vísu sé rækjan ekki
á takmörkuðum svæðum eins og
áður, heldur dreifist hún um allt
Djúp, alveg út að Bolungarvík,
sem sé einsdæmi, og rækjan komi
upp úr þorskum, veiddum út um
allan Djúpál. Enginn af fiskifræð-
ingum vorum hefur komið hing-
að í vetur til að kynna sér málið,
heldur berja blákalt fram stöðvun
án athugunar, segir GS enn frem-
ur. kækjan, sem veiddist í gær í
Útdjúpinu var stór og falleg og
eru veiðimenn reiðubúnir að fiska
ekkert á gömlu miðunum, aðeins
fá að vera við veiðarnar í Útdjúp-
Framhald 6 15. siðu.