Tíminn - 14.02.1964, Qupperneq 9

Tíminn - 14.02.1964, Qupperneq 9
skrifa um skipafélögin Diaíolrus, fávitans meS utan- bókarlærdóminn. Þetta litla meitl- aða hlutverk varð skopstælingin holdiklædd í meðförunum hjá Pétri. Jóhann Guðmundsson leikur Diafoirus lækni, föður Tómasar, og ferst vel að leika þetta snúna mannkerti í læknastétt, sem höfundinum er geypilega í nöp við. Halla Hauksdóttir er barna- leg og skemmtilega sannfærandi í hlutverki Louison litlu, en Þór- unn Klemenzdóttir á dálítið erfitt uppdráttar í hlutverki Angélique, systur hennar. Þórunn hefur aftur á móti fallega söngrödd, en hlut- verkið krefst söngkonu. Guðrún Finnsdóttir leikur Béline, seinni konu Amgans, sem giftist honum til fjár og tekst vel að sýna flærð hennar. Þeir Guðmundur Björns- son, Kristján H. Guðmundsson, Ól- afur Ingólfsson, Hörður Filippus- son og Aðalsteinn Hallgrímsson fara með smærri hlutverk, og auk margra þessara leikara kemur Markús Örn Antonsson fram í eft- irleik, þar sem pundað er á lækna- stéttina. 2. H.f. Jöklar hafa fyllilega flutt til landsins sinn hluta sekkjavöru væri þeim flutningum skipt í hlut falli við lestarými alls kaupskipa- stóls landsmanna. 3. Farmgjöld á sekkjavöru hafa verið hin sömu og h. f. Eimskipa- félag ísiands hefur tekið fyrir sekkj a vöi uf lutninga. 4. H.f Jöklar hefðu getað flutt til landsins meira magn sekkja- Fremhald á 13. s(6u. Það var ánægjulegt að koma á Herranótt Menntaskólans í Iðnó á mánudagskvöldið og fylgjast með leik nemendanna sem þeir frömdu af lífi og sál. Áheyrend- ur úr Menntaskólanum tóku undir leik félaga sinna með ósviknum gleðihlátrum, og þessi hlátur var svo smitandi, að reyndir leikhús- gestir, sem hafa vanið sig af að hlæja upphátt, gáfu sér lausan tauminn og skélltu hressilega upp úr . Nokkrar setningar úr hinum fræga gamanleik, fmyndunarveik- inni eftir Moliére, fóru forgörð- um við þessi hlátrasköll, og má það kallast skaði. En mundi þeim Jóhann Guðmundsson (Dlafolrus læknlr), Ásdls Skúladóttlr (Tolnette), Pétur Lúðvfgsson (Tómas), Aðalsteinn Hallgrfmsson (Bonnefoy), Þórunn Klemenzdóttlr (Angéllquie) og Kfartan Thors Argan). Pétur Lúðvígsson (Tómas Dlafolrus) og Ásdís Skúladóttlr (Tolnette vinnu- kona). Undanfarið hafa átt sér stað nokkur skrif í dagblöðunum um skipafélög landsmanna. Þar sem þessi skrif hafa verið villandi og beinlínis röng varðandi h.f. Jökla, teljum vér oss skylt að senda eftir farandi leiðréttingar, svo að al- menningur megi vita hið rétta í málinu. í einu dagblaða Reykjavíkur er hinn 11. febrúar s.l. rætt ftm, að farmgjaldastríð eigi sér stað milli skipafélaganna og sagt að þrjú skipafélög, en þar mun m.a. vera átti við h.f. Jökla, „fleyti rjóma af siglingunum, en bera ekkert af þeim skyldum, sem hvílt hafa á Eimskipafélaginu, sérstaklega um flutning á sekkjavöru." Vegna þessara ummæla viljum vér skýra frá eftirfarandi: 1. Á s.l. ári var sekkjavara 25% af heildarinnflutningsmagni skipa h.f. Jökla T í M I N N, föstudaginn 14. febrúar 1964 — Herranótt Menntaskólans: IMYNDUNARVEIKIN eftir MOLIÉRE — Leikstjóri: Haraldur Björnsson Hljómsveitina skipa: Sigrún Helgadóttir, flauta, Rut Ingólfs- dóttir, fiðla, Páll Einarsson, celló, Þórður Búason, trompet og Lára Rafnsdóttir píanó. Björn Björnsson teiknaði mjöf viðeigandi og smekkleg leiktjöld, en leiknefndin annaðist smíði þeirra. Menntaskólanemar báru kuflinn með sóma þessa Herranótt Baldur Óskarsson gamla góða Moliére ebki hafa verið meira í mun að skemmta áheyrendum svo prýðilega þótt nokkur gullkom kæmust ekki fylli lega til skila? Eg er viss um, að Moliére hefði verið skemmt í Iðnó á mánudagskvöldið, ef hann hefði lifað og mátt koma á þessa sýn- ingu. Einhver kynni að segja, að leik- endur hefðu átt að doka þar til -hláturinn lægði, en því er til að svara, að ég efast um, að slíkt lær ist fyrr en byrjað er að leika fyr- ir áheyrendum. Leikurinn er fluttur í þýðingu Lárusar Sigurbjömssonar og Ein- ars Óiafs Sveinssonar. Um höfund inn ætla ég mér ekki að fjölyrða, þann fræga mann, og því síður um verkið efnislega, enda mun það lýðum ljóst. Leikarar Menntaskólans hafa valið sér einkunarorðin: „Cucullus non facit monacum" — eigi er munkur þótt kufli klæðist. Jó- hann Guðmundsson formaður leik- nefndar ávarpaði gesti áður en sýningin hófst og sló þennan varnagla. En þess má líka minn- ast, að ófáir þekktir atvinnuleik- arar hafa stigið fyrstu sporin á Herranótt Menntaskólans. Frammi staða nemendanna á þessari sýn- ingu gaf einnig til kynna, að sum ir þeirra mættu vænta sér frama sem atvinnuleikarar. En skólafólk ið hefur ekki verið hjálparlaust; enginn annar en sjálfur Haraldur Bjömsson stjórnaði æfingum, og Jón Þórarinsson útsetti tónlistina og æfði ’fimm manna hljómsveit menntaskólanema, sem leikur fyr- ir sýningu og milli þátta. Tónleik- urinn var með ágætum og átti mik- inn þátt í að gefa sýningunni hið rétta bragð, og sýningin bar ríku- leg merki um frábæra leiðsögu Haraldar, sem getur þess í viðtali í leikskrá, að Moliére sé einmitt eftirlæti hans. Það má gera sér í hugarlund ánægju skólafólksins að fá að æfa með Har- aldi, sem virðist bókstaflega hafa kastað ellibelgnum, ef um nokk- urn slíkan belg er að ræða í sam- bandi við hann. Kjartan Thors bar hita og þunga leiksins i gervi Argans hins ímynd unarveika. Um Argan má segja, að hann er að vissu leyti sjúkling ur allra alda og jafn nákominp tuttugustu öldinni og tímum Moli- éres. Kjartan hélt þessari skop- stælingu Moljéres vel til skila: Skýr framsögn, og stílfærð skrum skæling, sem brást ótrúlega sjald an. Það fór heldur ekki milli mála að Kjartan hefur tileinkað sér ýmislegt frá Haraldi, og er það sízt að lasta. Ásdís Skúladóttir lék Toinette vinnukonu, en Ásdís er raunar enginn viðvaningur á Herranótt, og kom þar nú fram í síðasta sinn. Leikur Ásdísar var glettnislegur eins og vera bar. Hún'var öðrum fremur óþvinguð á sviðinu og beitti svipbrigðum og augnagotum listilega. Annars má segja, að stælingin í leiknum hafi náð hámarki í meðferð Péturs Lúðvíkssonar á hlut Tómasar Kjartan Thors (Argan kona hans). ímyndunarveiki) og Guðrún Flnnsdóttlr (Béllno Athugasemd vegna blaða a

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.