Tíminn - 13.03.1964, Qupperneq 3

Tíminn - 13.03.1964, Qupperneq 3
SPEG S ÞESSI MYND ér frá jarðar- för Páls Grikkjakonungs. Fremst á myndinni sést Alice Grikkjaprinsessa, móðir her- togans af Edinborg eiginmanns Elizabetar drottningar. Nœst henni stendur Catherine Grikkjaprinsessa og þar fyrir aftan er Anna-Maria Dana- prinsessa, tilvonandi Grikkja- drottning. í LENGRI TÍMA hefur ver- ið rætt um það í Bretlandi, hvort vel klæddir karlmenn eigi að ganga með axlabönd eða belti. Nú hefur formaður sambands brezkra klæðskera kveðið upp dóm um þetta á- kvæði. Auðvitað dætnir hann axlabönd það eina rétta, því, eins og hann segir, ,hanga‘ buxurnar ekki almennilega uppi, nema axlabönd séu not- uð. — Hann bendir einnig réttilega á það, að fyrirmenn þriggja stærstu stjómmála- flokkanna í Bretlandi, þeir Alec Douglas-Home, Harold Wilson og Mr. Grimond noti axlabönd, og segir, að axla- bönd séu eins nauðsynleg hverj um herramanni og barmurinn er hverri vel vaxinni konu. ☆ EINS og allir vita, þá er ekkert eins mikilvægt fyrlr Englendinga og einn tebolli, þegar illa stendur á. Það kom greinilega í ljós í ræðu hjá ráðherranum Edward Heatli, þegar hann fyrir nokkrum dög um hélt ræðu í neðri deild brezka þingsins. Tilhugsunin um einhverjar aðstæður, bar- daga eða vandræði, hver sem úrslit þeirra verða, er alls ekki svo hrjdlileg fyrir Englend- inga, ef þeir geta fengið sér „a nice eup of tea“ á eftir — sagði Edward og eru víst flestir sammála honum. ☆ SKÓLAYFIRVÖLDIN í New York urðu heldur en ekki undr andi um daginn, þegar niður- stöður af skoðanakönnun með- al skólabarna lágu fyrir. Það kom nefnilega í Ijós, að flestir nemendanna kærðu sig frekar um áfengi en öl, en mikill minni hluti var í vafa. ENSKA Ijóðskáldið og rithöf undurinn, Robert Graves, (I. Claudius) hélt nýlega fyrirlest ur í New York, þar sem hanri útskýrði orsakirnar fyrir því hve ljóðskáldum hefði farið mikið aftur beggja vegna At- lantshafsins. Ein aðalorsökin sagði hann, að væri sú, að svo mörg ung skáld, neyddust, vegna peningavandræða, til þess að vinna fyrir kvikmynd- ir og sjónvarp. Hann sagði jafn framt ,að ekkert væri eins niðurdrepandi fyrir skáldagáfu og að vinna að öðru eins létl- meti. DAGBLAÐ í Hollywood birti nýlega trúlofunarfregn íéikara nokkurs og ungrar óþekktrar leikkonu. Þar var m. a. haft eftir einhverjum, sem þekkti stúlkuna, að hún væri indæl, ung stúlka, sem mundi verða prýðileg sem 1. kona fyrir leik- ara. BRIGITTE BARDOT tr heimsfræg kvikmyndastjarna, það fer víst ekki fram hjá neinum, enda hugsar hún ekki í neinum smáupphæðum. — Nýlega fékk hún skeyti frá næturklúbb nokkrum í Florida. Það var á þessa leið: Bjóðum yður 300.000 dollara fyrir að skemmta í viku. Svar óskast strax. Og BB svaraði um hæl: Ef þið bjóðið mér milljón skal ég íhuga málið. Og svarið kom: Samþykkjum milljón. Sú litla var ekki scin á sér, ekki samt til að samþykkja, hún sendi eftirfarandi skeyti: Hugsa mal- ið. ★ SÍÐUSTU fregnir úr bók- menntaheiminum herma, að Franco einræðisherra á Spáni sé genginn í spánska rithöf- undafélagið. Það vita það víst ekki margir, cn Franco hefur skrifað tvær bækur. Önnur nefnist Dagbók hermanns, og lýsir lífinu í spönsku útlend- ingahersveitinni í spánsk-mar- okkanska stríðinu í kringum 1930. Hin bókin er handritið að kvikmyndinni Raza, sem sem gerð var árið 1940. Einræð isherrann hefur samt ekki skrif að undir eigin nafni, heldur nefnt sig Jaime de Andrade. ★ VÍSINDAMENN við háskóí- ann í Chicago þykjast nú hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að mannsaugað sé ekki fært um að sjá umhverfi sitt í réttu ljósi. Sem sönnun fyrir þessu segja þeir, að jafnstórir pen- ingar virðist í augum fátækra barna vera stærri en í augum ríkra barna. ELISABET Englandsdrottn- ing hefur nú eignazt son og er hann fjórða barn hennar. Hiri eru Charles, 15 ára, Anne, 13 ára, og Andrew 3 ára. — Ný- fæddi prinsinn er þriðii til ríkiserfða í Bretlandi. en á undan honum eru bræð- ur hans, Oharles og Andrew Opinberlega hefur ekki verið skýrt frá, hvað hinn nýfæddi prins muni heita, en orðrómur er uppi um það, að nafnið verði James. Meðfylgjandi mynd er tekin af drottningunni um miðj an janúarmánuð á Liverpool- járnbrautarstöðinni í fylgd með henni er Andrew sonur hennar og þrír af eftirlætis- hundum konungsfjölskyldunn- ar. ÞAÐ er líklega óþarfi að kynna manninn hérna á mynd- inni, Paul McCartney, einn af hinum heimsfrægu Bítlum. — Paul er þarna að koma úr veizlu, sem Alma Cogan söng- kona hélt þeim fjórmenningun- um, eftir að þeir komu úr söng- förinni um Bandaríkin. MikiS fjör var í þessari veizlu, sem haldin var í Kensingtoníbúð söngkonunnar, og þegar lienni lauk í morgunmund, sást Paul fylgja stúlkunni þarna heim. — Þetta er brezka Ieikkonan Jane Asher og hafa þau Paul sézt mikið saman, einkum eftir að hann kom frá Ameríku- MIÐDEGISVEIZLA var ný- lega haldin í Hollywood og þar mættu 900 manns. Meðal gest- anna voru allir helztu framleið- endip: og leikstjórar í borginui og þar á meðál hinn 81 árs gamli Sam Goldwyn- Hann hélt langa ræðu, þar sem hann varaði leikstjóra við því, að nota of mikið af kynórum í myndum sínum og of mikið af ruddamennsku. Það hefur : för með sér strangara eftirlit, en aðalatriðið er, að það mun eyðileggja kvikmyndafram- leiðsluna, eins óg hún lfeggur sig, ef ekki er tekið tillit til smekkvísinnar. Þessar rudda- !egu myndir vekja kannski ein- hverja stundarhrifningu, en það mun enda með því, að vandlátir kvikmyndahúsgestir hætta alveá að fara í kvik- myndahús. ☆ FORELDRAR í litlu, jap- önsku þorpi hafa nú sett upp skilti við innkeyrsluna í þorp- inu, sem á stendur: Akið var lega, það er ekki víst að börn- in hlýði okkur. Jörð óskast keypt eða til leigu. Tilboð sendist á afgr. Tím- ans fyrír 28. marz, merkt: JÖRÐ — 10. Stærsia úrval bifreiða á einun> staS Salao et örugg hfá okkur RYDVORN Grensásveg 18, slmi 19945 Rvðverium bílana með • Tectyl Skoðum og stillum bilana fliótt og vel BILASKOÐUN Skúlagötu 32. Simi 13-100 SPARH9 T!MA 0G PENINGA LeitiS fi! okkar BÍL ASALINN VIÐ VITATORG Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvals gleri. — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega Korkiðjan h.f. Skúlagötu 57 - Sími 23200 3 í TÍ*MINN, föstudaginn 13. marz 1964 —

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.