Tíminn - 13.03.1964, Blaðsíða 13
A L M E N N A
FASTEIGNASALAN
Hef kaupendur
metJ miklar útborganir að
2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðuin,
bæði nýjum og eldri
4ra herb. íbúð
í Teigunum eða nágrenni.
Hæð og kjallara
nýlegu eða í smíðum.
Tveimur hæðum og kjallara
í smíðum.
Parhúsi eða raðhúsi
á góðum stað.
Til sölu
2ja herb. kjallaraíbúð
við Vífilsgötu. Sér inngang-
Hitaveita.
2ja herb. góð íbúð
í vesturborginni.
3ja herb. hæð
við Hverfisgötu. Allt sér. Ný
standsett. Laus strax.
3ja herb. risíbúð
við Laugaveg. Sér hitaveita.
3ja herb. hæð
við Efstasund. Sér inngang-
ur. Sér hiti.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
við Holtsgötu. Fullbúin und-
ir tréverk. 1. veðréttur laus.
Lán kr. 150 þús. fylgir.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
við Sólheima.
4ra herb. rúmgóð íbúð
við Kárastíg
Ný og glæsileg efri hæð
við Fálkagötu.
Teppalögð með sér þvotta-
húsi.
Timburhús
við Suðurlandsbraut. Útborg
un 150 þús kr.
Byggingarlóðir
í Kópavogi.
AIMENNA
fASTEIGNASAIAN
LINDARGATA 9 SÍMI 21150
FASTEIGNASALAN
TJARNARGÖTU 14
TIL SÖLU
2Ja herb. íbúð
með sér inngangi og sér hita,
í steinhúsi við Marargötu
2ja herb. góð íbúð
á 2. hæð við Ljósheima.
2ja herb. kjallaraíbúð
í nýju búsi í Laugarnesi. j
2ja herb. góð kjallaraíbúð
við Blönduhlíð
3ja herb. íbúð -j
á 2. hæð í Stóragerði. Her- |
bergi fylgir í kjallara.
3ja herb. íbúð
í timburhúsi á eignarlóð í j
Skqrjafirði — Lágt verð, |
lág útborgun. >
3ja herb. íbúðir
á hæðum í steinhúsum við •
Hverfisgötu.
4ra herb. ibúð
við Lokastíg. Laus 'strax.
4ra herb. vandaðar íbúðir
við Háaleitisbraut.
4ra og 5 herbergja íbúðir
í smíðum við Háaleitisbraut
og Fellsmúla.
Einbýlishús, nýleg og vönduð
við Hlíðargerði, Sogaveg.
Hlíðarveg Digranesveg og
Álfhólsveg.
Fallegt timburhús
með 7 herb. íbúð við Geitháls
Auk ofangreinds. höfum við
íbúðir á ýmsum stöðum í
bænum, stórar og smáar.
Leitið upplýsinga.
Fasteifnasalan
Tjarnargöfu 14
Sími 20625 og 23987
1. HAGKVÆMUSTU KAUP A HElMtttSTRAKTOR
2. VðNDUÐUSTU MOKSTURSTÆKl OG FLJÖTVIRK-
ASTA VÖKVAKERFI A TRAKTOR
3. NV SLATTUVÉL HLIÐARTENGD
Pantiff vélarnar tímanlega vegna lánsumsókna
og afgreiSslu.
KAUPFÉLÖGIN — S.Í.S. VÉLADEILD
RÓMEÓ OG JÚLÍA
Framhaid aí 9 síðu.
Gísla Halldórssonar í hlutverki
bróður Lárenz, sem er talinn helg-
ur maður i Verónsborg en flytur
speki, sem er í eðli sínu fremur
heiðin en kristin. Framsögn Gísla,
svipbeitingin og fasið allt má telj-
ast tií afreka.
Helgi Skúlason veltir sér í hlut-
verki Merkútíós, reitir af sér
brandara og stórskemmtilega orða
leiki, fer eins og hvirfilvindur um
sviðið. Bjarni Steingrímsson leik-
ur félaga hans, Benvólíó, heldur
dauflega, en hlutverkið hverfur
mjög í skuggann fyrir Merkútíó.
Bjarni er ungur leikari, hefur
numið í Þjóðleikhússkólanum og
á leikskóla ' Svíþjóð.
Pétur Einarsson leikur Tíbalt,
sem fellir Merkútíó óvarann og
fellur síðan sjálfur fyrir Rómeó.
Pétur er svipmikill á leiksviði,
hefur áður komið fram sem Mac-
beth og virðist kjörinn til að leika
fornar hetjur. Þeir Pétur og Helgi
skylmðust listilega og af óvar-
kárni, sem er nokkuð óvanaleg á
leiksviði líér. Sama er að segja um
viðureignina í upphafi leiksins.
Þessi atriði virtust þrautæfð, og í
þetta sinn verður ekki látið nægja
að segja „gaman var að sjá, hvern-
ig þeir pössuðu sig að meiða ekki
hver aðra.“'
Þá var ánægjulegt að sjá afjt-
ur á sviðinu þær Önnu Guðmunds-
dóttur og Eddu Kvaran. Anna lék
fóstruna, slórt hlutverk, þakklátt
og vel af hendi leyst. Edda fór
laglega með hlutverk frú Kapúlett.
Af öðrurp hlutverkum ber að geta
París greifa, sem Erlingur Gísla-
son lók með glæsibrag. Valdimar
Lárusson og Karl Guðmundsson
leika þjóna Kapúletts, náungana
Samson og Gregor, og vöktu gam-
an, og Karl Sigurðsson þjón Róme-
ós, vel á haldið hlutverk.
Knútur Magnússon samdi tvö
lög, sem kórinn syngur við lútu-
spil, anijað tveggja endurtekið
stef, . Suðriín Ágniunðsdóttir er
fyrir kórnum og þar syngur Knút-
ur og spilar undir. Þessir þýðu
söngvar eru vel heyrðir í leikhús-
inu, en má ég bera fram þá ósk,
að rokkararnir láti þá í friði.
Ingibjörg Björnsdóttir samdi
dansspor og Egill Halldórsson bjó
leikarana undir skylmingar.
Fleiri - koma hér við sögu, en
leikarar og statistar eru 40 alls.
Borgar Garðarss. og Kristín Anna
bera hitann og þungann, setn felst
undir mjúklátu yfirborði Shake
spearesýningarinnar. Til þeirra
eru kröfurnar, andspænis hóni
þaulskólaðra leikara. sem gegna
minniháttar hlutverkum, saman-
borið við þau tvö, en búa yfir
stórum meiri reynslu-
Þannig verður það einatt um
Rómeó og Júlíu.
Baldur Óskarsson
FÖSTUDAGURINN HENNAR
Framhald af 8. síðu.
Ferðaskrifstofu ríkisins undanfar-
in tvö ár, og mér fellur vel að
leiðbeina ferðafólki. Ég var m.a.
uppi á Hveravöllum um tíma í sum
ar og eldaði ofan í Þjóðverja í
skála Ferðafélagsins. Það var
mjög skemmtilegt, en nú langar
mig til þess að fá loft undir væng-
ina.
— Kvíðirðu ekki fyrir því að
vakna kl. 7 á morgnana, til þess að
fara út á völl?
— Nei, nei, maður hefur bara
gott af því að vakna snemma.
— Hefurðu verið erlendis áður9
— Já, ég var í verzlunarskóla í
Galsgow, og svo hef ég ferðazt
um mestalla Evrópu. meira að
segja komið til Færeyja. bætir
hún brosandi við.
Við kveðjum svo þessar nám-
fúsu stúlkur og óskum þeim alls
góðs í framtíðinni.
ALÞJÓÐADÓMURINN
Framhald af 7 síðu
Þess vegna hljóta íslendingar
að leggja öllu meiri áherzlu á
það en nokkuð annað að fá
Breta til að falla frá nauðungar-
samnin^num, er þeir ginntu raga
og fávísa íslenzka ríkisstjórn til
að fallast á 1961.
Bretar hafa á undanförnum
árum verið að falla frá nauð-
ungarsamningum, sem þeir létu
svörtu ættarhöfðingjana í
Afríku gera á seinustu öld. Það
hefur verið þeim til sóma.
Bretar láta nú mjög af því, að
þeir séu góðir vinir íslendinga
og þykjast sýna það með því að
bjóða forseta íslands og íslenzk-
um þingmönnum heim.
Slík boð gátu blekkt svörtu
ættarhöfðingjana í Afríku á sein
ustu öld, en íslendinga blekkja
þau ekki.
Vináttuna ber að dæma af
verkunum.
Meiri óvináttu væri ekki hægt
að sýna íslendingum en að ætla
að reyna að hindra þrekari út-
færslu á fiskveiðilandhelgi
þeirra með málskoti til alþjóða-
dómstólsins þar sem svo yrði
reynt að ógilda hana með tilvitn-
un til úreltrar og ranglátrar
hefðar.
Þetta mál verður prófsteinn á
það, hvort Bretar eru vinir ís-
lendinga, en * ekki veizluhöld
fyrir forseta íslands eða ís-
lenzka þingmenn. Þ.Þ.
AB-BÓK
Framhalo at bls 3
Höfundur lýsir baráttu leiðtoga
þjóðarinnar til að bæta lífskjör
almennings, auka menntun og
framfarir og skipa landinu sess
meðal menningarþjóða nútímans.
Eins og fyrri bækur í þessum
bókaflokki, er Mexíkó um 160 bls.
að stærð, prýdd á annað hundrað
myndum. Myndirnar eru prent-
aðar á Ítalíu, en texti er prentað-
ur í prentsmiðjunni Odda. Sveina-
bókbandið annaðist bókband.
SUÐURLANDSSÍLD
Framhalc aí bls 3
búkfitu 10% pr. kg kr. 1,60. Síld
til vinnslu í verksmiðjur, pr. kg.
kr. 0,67. Loðna til vinnslu í verk-
smiður pr. kg. kr. 0,37. Verðið
er allt miðað við, að seljandi skili
síldinni á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
Seljandi skal skila síld og loðnu
til bræðslu í verksmiðjuþró og
greiði kaupandi kr. 0,03 pr. kg.
í flutningsg.iald frá skipshlið.
Framangreint verð var sam-
þykkt með atkvæðum þriggja
nefndarmanna gegn atkvæðum
þeirra Sigurðar Péturssonar og
Tryggva Heigasonar.
Reykjavík, 9. marz 1964.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
ANDREA SKRIFAR
Framhalri a-f 8 síðu
ir því kurteisar." Það er
kannski engin tilviljun að
kurteisi sku'li vera franskt
tökuorð í íslenzku. Tökuorð,
sem virðist ekki hafa öðlazt
fullap þegnrétt í málinu enn
þá.
Enda þótt hluta íslenzku
þjóðarinnar virðist vera ó-
kunnugt um það, þá er það
engu að síður alsiða meðal
menningarþjóða, að konur
noti hatta jafnt á götu sem í
kirkju, jafnt í Ieikhúsum sem
veitingahúsum, jafnt í kokk-
teilboðum sem við opnum list
sýninga, svo nokkur dæmi
séu nefnd.
LIONSKLÚBBURINN BALDUR, REYKJAVÍK.
Skemmtun fyrír æskufólk
verður í Austurbæjarbiói laugardaginn 14. marz 1964 klukkan 5,00 eftir hádegi. —
Meðal skemmtiatriða:
1. Leikþáttur og söngleikur, sem Skátafélögin í Reykjavík annast.
2. „Jassleikfimi“, stúlkur úr Glímufélaginu Ármanni, stjórnandi frú Guðrún
Lilja Halldórsdóttir.
3. Kjörin verður „Yndisfríð landsins“.
4. Danssýning, nemendur úr Dansskóla Hermanns Raghars.
5. Hljómsveit Svavars Gests leikur og syngur og aðstoðar við önnur atriði
skemmtunarinnar.
Kynnir Hermann Ragnar Stefánsson.
Aðgöngumiðar seldir i Austurbæjarbíói í dag eftir kl. 4,00 og laugardag irá kl. 2. —
Sími 11384. — Verð kr. 50.00.
Skemmtun unga fólksins í ár.
13
TÍMINN, föstudaginn 13. marz 1964 —