Tíminn - 13.03.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.03.1964, Blaðsíða 5
í Vorstörf í Ásahreppi SR-Berustöðum, 9. marz. HÉR er sífellt sama sum- arblíðan, jörðin klakalaus og grænkar og grær. Menn keppast við venjuleg vor- störf/ s. s. dreifingu búfjár- áburðar, túnavinnslu o. fl. Einnig hefur verið unnið að jarðvinnslu og hefur jarð- tætari unnið allmikið í Vet leifsholtshverfi cg víðar. Skurðgrafa hefur unnið að undirbúningi vegagerðar móts við Hárlaugsstaði, og á að gera beinan veg fram uneð 'hinum slæmu beygjure hjá Brattastíg. Heilsufar er gott í sveit- inni, enda jafnvel kvenfólk farið að reykja pípu, en hætt við sígarettur. Og nú vona menn að vorharðindi verði fremur í apríl en í maí, ef þau koma. Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur var haldinn 26. febr. s.I., en þar flutti formaður félags- ins Bjarni Bjarnason læknir er- indi um 15 ára starf félagins, sem stofnað var 8. marz 1'949. Síðan flutti hann skýrslu stjórnarinnar um störf telagsins á árinu, sem leið. Á síðasta hausti var úkveðið að Krabbameinsfélag Reykjavikur tæki að sér að skiptileggja aukna fræðslustarfsemi meðal almenn- ings. Starfið er enn í byrjun, en samvinna hefur þó verið höfð við héraðslæknana Ólaf Björnsson, Þorgeir Gestsson, Jón Árnason og Jónas Oddsson um fræðslufundi, og verða þeir haldnir á vegum kvenfélaganna í Þykkvabænum, Gaulverjabæ, Hvolsvelli, Fljóts- hlíð, Neskaupstað, Eskifirði og á Reyðarfirði, og á vegum Krabba- meinsfélags Reykjavíkur, sem út- vegar fræðslukvikmyndir um mein semdir í brjósti og leghálsi kvenna Einnig hafa kvikmyndir um skaðsemi reykinga verið útbúnar með íslenzku tali og sýndar í mörg um skólum bæði í Reykjavík og úti á iandi eftir beiðni skólastjóra. Tveimur fræðsluritum um sjálfs- skoðun á brjóstum og um skað- semi reykinga verður dreift, og barnaskólum í kaupstöðum lands- ins gefin film-ræma með litskugga myndum um skaðsemi reykinga. Þá hefur verið samið við nokkra lækna um flutning fræðsluerinda í útvarp og hefur Hjalti Þórarins son flutt citt þeirra. Jón Oddgeir Jónsson hefur ver- ið ráðinn íiamkvæmdastjóri félags ins og hefur hann haft umsjón með þremur happdrættum, sem 15 áRA haldin voru á árinit, en í tilefni 15 ára afmælisins hefur verið ráð- izt í afmælishappdrætti og er vinn ingurinn 180 þús. kr. bifreið, en dregið verður um vinninginn 18. maí n.k. Skuldlaus eign félagsins um síðustu áramót var tæplega 1 millj. króna. Á fundinum var borin fram og samþykkt þessi tillaga: Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur, haldinn 26. febr. ’64 skorar á landlækni og heilbrigðis- málastjórn, að sjá til þess að bætt verði úr þeim skorti, sem nú er á sjúkrarúmum fyrir krabbameins sjúklinga. A.B. bók um Mexikó komin ut Fyrstu bækur Almenna bókafé- lagsins á - írinu 1964 eru nú komn ar út, bækur mánaðanna janúar og febrúar. Janúar-bókin er Mexíkó eftir William Weber John son. Þýðandi er Þórður Örn Sig- urðsson. Verð á Suðnrlandss/U komið Verðlagsráð sjávarútvegsins hef ur síðan fyrrahluta febrúar, unn- ið að verðákvörðunum á síld, Aðalfundur pípulagn- ingameistara Félag pípulagningameistara í Reykjavík hélt aðalfund sinn 1. marz s.l. Formaður félagsins, Grím ur Bjarnason flutti skýrslu um starfsemi félagsins á síðasta ári, og ræddi um ýmis hagsmunamál stéttarinnar. Kom m. a. fram að félagið hafði opnað mælingaskrif- stofu fyrir pípulagningamenn -í samvinnu við sveinafélagið. Þá hafa félagsmenn unnið að gróður- setningu í Heiðmörk, en þar fékk félagið land til skógræktar fyrir nokkrum árum. Grímur Bjarnason var endur- kjörinn formaður og einnig í stjóm Meistarasambands bygginga manna í Reykjavík. Loks var Grímur Bjarnason kos inn í yfirnefnd í sambandi við á- kvæðisvinnu, sem samið var um að skipa í síðustu samningum við Sveinafélag pípulagningamanna. Aðalfundur veggfóðr- arameistara Aðalfundur Félags veggfóðrara- meistara í Reykjavík var haldinn 15. febr. s.l. Rædd voru ýmis fé- lagsmál, samþykktir reikningar og enn fremur fjárhagsáætlun fyrir yíirstandandi ár. Halldór Stefáns- son, formaður, baðst eindregið undan endurkjöri ásamt ritara og gjaldkera. Formaður var kosinn Guðmundur J. Kristjánsson. veiddri við Suður- og Vesturland, tímabilið 1. marz til 15. júní þ. á. Enn fremur á loðnu til bræðslu yfirstandandi loðnuveiðitímabil. Sámkomulag varð í ráðinu um eftirfarandi verð. Síld til flökunar pr. kg. 1,42. Síld til flökunar: í súr, frystingu,, salt eða aðrar verk unaraðferðir, pr. kg. kr. 1,12, Síld, ísvarin til útflutnings í skip pr. kg. kg kr. 1,40. Síld til skepnufóðurs pr. kg. 1.00. Samkomulag náðist ekki um síld til heilfrystingar, síld til bræðslu og loðnu til bræðslu, þessuhi vérð ákvörðunum var því vísað til yfir- nefndar til úrskurðar. Yfirnefndin var þannig skipuð: Guðmundur Ólafs, bankastjóri, til- nefndur af hæstarétti sem odda- maður nefndarinnar, Sigurður Pét ursson, útgerðarmaður, Reykjavík og Tryggvi Helgason, sjómaður, Akureyri, tilnefndir af fulltrúum fiskseljenda í Verðlagsráði og Guð mundur Kr. Jónssoft, framkvæmda stjóri Reykjavík og Ólafur Jóns- son, framkvæmdastjóri, Sandgerði, tilnefndir af fulltrúum fiskkaup- enda í Verðlagsráði. í veikinda- forföllum Ólafs Jónssonar tók Helgi G. Þórðarson framkv.stj., Hafnarfirði sæti hans í nefndinni við verðákvörðun á síld til heil- frystingar, Yfirnefndiri lauk störfum í gær, er hún hafði ákveðtð eftirfarandi verð, samkvæmt tillögum odda- manns nefndarinnar. Síld til heilfrystingar: Stórsíld (3—6 stk. í kg.) með lágmarks- Framhald á 13. sfðu. Skortur á þjálfurum Dagana 23. til 30. janúar s.l. var efnt til ráðstefnu á vegum Evrópu ráðs um íræðslu á sviði íþrótta- mála og fjallaði ráðstefnan alveg sérstaklega um hinn mikla skort sem er víða í löndum Evrópu á leiðbeinendum í frjálsu æskulýðs- og íþróttastarfi, og hvað unnt væri i að gera til þess að bæta úr þeim I skorti. Vann ráðstefnan m. a. að undirbúningi að samningu náms-1 skrár fyrir leiðbeinendur, og er' ætlunin að Evrópuráð láti gefa hana út til notkunar í aðildarlönd i um þess. Fól menntamálaráðuneyt ið Reyni Karlssyni, íþróttakenn- ara, að sækja þessa ráðstefnu af sinni hálfu, en hann hafði einnig áður sótt aðra ráðstefnu, sem efnt var til af Evrópuráðinu og fjall- aði um íþróttamál. Á ráðstefnu þeirri, sem að framan getur, störf- uðu 4 nefndir, og var Reynir Karls son kosinn ritari einnar nefndar- ínnar. Þetta er áttunda bókin í hinum vinsæla bókaflokki AB, Lönd og þjóðir. Höfundurinn er bandarísk ur maður, sem hefur ritað margt um Mexíkó, enda nákunnugur landi og þjóð. Bókin rekur í stórum dráttum sögu Mexíkó allt frá dögum Aztek anna, sem réðu í landinu fyrir komu Spánverja þangað. Segir hún frá landvinningum Spánverja, nýlenduskeiðinu, óánægju og upp- reisnum landsbúa, sem leiddu til sjálfstæðis þjóðarinnar árið 1810, og loks sögu seinustu áratuga. — Framhald á 13. síöu. Félagsfræði handa unglingaskólum Fyrir nokkru kom út á vegum Ríkisútgáfu, námsbóka Félágs- fræði handa unglingaskólum, eftir Magnús Gíslasön námsstjóra. — Þetta erii önnur útgáfa. Áður hafði bókin verið gefin út sem handrit. Þessi nýja útgáfa er mkið aukin og breytt. Allmargar breytinganna eru byggðar á bendingum kenn- ara, sem kennt hafa bókina til reynslu tvo undanfarna vetur. Bókin er 160 bls. í Skírnisbroti, prýdd 53 teikningum eftir Þröst Magnússon teiknara. Einnig eru í bókinni 42 ljósmyndir, einkum úr atvinnulífi þjóðarinnar, og þrjár litmyndasíður með skjalda- merki fslands, þjóðfánanum, rík- isfánanum og helztu umferðar- merkjum. Nýr íormaður kven- réttíndafélagsins KVENRETTINDAfélag íslands liélt nýlega aðalfund sinn. For- maður félagsins, Sigríður J. Magn- ússon, gat þess í skýrslu sinni, að það væri eindregin ósk sín að láta nú af formennsku í félaginu og baðst hún því undan endur- kjöri. Sigríður J. Magnússon hef- ur verið formaður Kvenréttindafé HÁMARKSVERÐ A FISKI, BENZINi OG OLIU Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á fiski í smásölu og er söluskattur innifal- inn í verðinu: Nýr þorskur, slægður: Með haua, pr. kg. kr. 4.40. Hausaður, pr. kg. kr. 5.50. Ný ýsa, slægð: Með haus, pr. kg. kr. 5.90. Hausuð, pr. kg. kr. 7,40. Ekki má selja fiskinn dýrari, þótt hann sé þverskorinn í stykki. Nýr fiskur, flakaöur án þunnilda: Þorskur, pr. kg. kr. 11,60. Ýsa, pr. kg. kr. 14.10. Fisk- fars, pr. kg. kr. 16.00. Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á benzíni og olíum, og gildir verðið hvar sem er á landinu: Benzín, hver lítri kr. 5,90. Gas- olía, hver lítri kr. 1,62, Steinolía í tunnum, hver lítri kr. 2.49. Stein olía mæld í smáílát, hver lítri kr. 3,50. Heimilt ei að reikna 5 aura á lítra af gasolíu fyrir útkeyrslu. Heimilt er einnig að reikna 32 aura á lítra af gasolíu í afgreiðslu gjald frá smásöludælu á bifreið- ar. Sé gasolía og benzín afhent í tunnum, má verðið vera 2y2 eyri hærra hver olíulítri og 3 aurum hærra hver benzínlítri. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 7. marz 1964. Söluskattur er innifalinn í verð- lags fslands s. 1. 17 ár. Lára Sigurbjörnsdóttir, sem ver ið hefur varaformaður félagsins allmörg undanfarin ár, var nú kjör in formaður. Á fundinum fór fram kosning 19 fulltrúa á landsfund Kvenrétt indafélags íslands, sem haldinn verður á komandi sumri. Hinn ný- kjörni fonmaður, Lára Sigurbjörns dóttir, mælti nokkur orð til frá- farandi formanns. Hún þakkaði henni frábært starf í þágu félags- ins og sérlega gott samstarf. Ragnheiður Möller og Guðný Helgadóttir, sém báðar höfðu um árabil verið í stjórn Xvenréttinda félags íslands í formannstíð Sig- ríðar, mæltu einnig til hennar nokkur orð. í ræðum allra þessara kvenna kom fram mikil vinsemd og hlýhugur i garð Sigríðar J. Magnússon. Hún á nú sæti í stjórn Alþjóðakvenréttindafélagsins — sem Kvenréttindafélag íslands er aðili að. Þverskurður „FIótex“ Nýstárleg gólfteppi Þessa daga stendur yfir sýning á vegum Fransk-íslenzka verzlunar félagsins h. f. í sýningarskála SÍá í Kirkjustræti á svokölluðum plast-nylon dúkum. Hér er þó ekki um venjulega gólfdúka að ræða, svo sem nafnið bendir til, heldur gólfteppi, sem lögð eru á gólf að mestu leyti eins og venjulegur gólfdúkur, en er í rauninni mjúkt gólfteppi, framleidd á sérstakan hátt úr óslítandi gerviefnum, nyl- on og vinlyle. Eftir þeim upplýsingum, sem Fransk-íslenska verzlunarfélagið lét oss í té um framleiðslu þessara gólfteppa, hefur Vísinda- og tekn íska miðstöðin í París, en teppin eru framleidd í Frakklandi, geit sérstaka athugun á framleiðslunm, og staðfest, að teppin einangra vel hita og hljóð, og ættu þess vegna að vera mjög hentug í fjöl býlishús. Plast-nylon dúkurinn, öðru nafni Flotex-teppi, er framleidd- ur í tveimur þykktum, 4.5 mm, sem ætlaður er í samkomuhús og annars staðar, bar sem mikil um ferð er og mikið reynir á slitþol- 3.5 mm þykkt er notuð í íbúðar hús. Slitþol teppisins er talið allt að tíu sinnum meira en beztu uil arteppa, en flókinn er búinn til úr einföldum nylonþráðum, sem lóast ekki eða eyðast þegar ryksugað er. Hreinsun er mjög auðveld. Teppin eru þvegin eins og venju legur gólfdúkur, og því oftar sem þau eru þvegin, því fallegri verða þau og viðhald þeirra verður auð veldara. Þar sem teppin drekka ekki í sig vatn, er m. a. hægt að nota þau á baðherbergi, íþrótta skála og fleiri staði, þar sem hrein lætis er sérstaklega gætt- Flotex-teppin eru framleidd i 14 litum, ómunstruðum, og eru talin þola sólarljós mjög vel. Verð teppanna er nú 424 kr. ferm. af þynnri gerðinni, en hin þykkari er á 514 kr. ferm. Flotex-teppi hafa þegar verið lögð í nokkur hús hér í bænucn. sambyggingar og ganga í stórhýs um. Fyrirtækinu hafa og borizt pantanir frá opinberum aðilum til bygginga úti á landi. Þessi sýning hefur vakið ail mikla athygli, því hér er okkur ef til vill, sýnd lausn á erfiðu vandamáli að prýða gólf íbúðar- húsa, verzlana og opinberra staða með teppum, sem fullkomlega standast kröfur um slitþol, hrein- læti, og er óeldfimt. TiJM-i N N, fösfudaglnn 13. marz 1964 — s

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.