Tíminn - 13.03.1964, Qupperneq 16
Föstudagur 13. marz 1964
61. tbl. 48. árg.
PIPUTÓBAKSSALA
HEFUR MÚAUKIZT
UM HÆR 3 TONN
HF—Reykjavík, 12. marz. sala á píputóbaki. og vind'lum auk-
Það sem af er þessu ári liefur izt um 2V2 milljón króna. Er
þetta greinilega bein afleiðing af
skýrslu þeirri, sem bandarískir
vísindamenn gerðu um samband
krabbameins og reykinga og vakti
mikla athygli um allan heim.
Samkvæmt upplýsingum frá
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkis-
ins hefur sala á píputóbaki aukizt
um 2,9 tonn og sala á vindlum
aukizt um 226 þúsund stykki. Alls
neraur þessi aukning tveimur og
hálfri milljón króna.
Tölur þessar eiga við söluna í
janúar- og febrúarmánuði og eru
bornar saman við söluna á sama
tíma í fyrra. Á þessum tveimur
mánuðum þegar sala á píputóbaki
og vindlum eykst um tvær og
hálfa milljón króna, minnkaði sala
á sígarettum um 7 milljónir króna,
Sé^t á því, að þó nokkpð margir
virðast alveg hafa hætt að reykja,
en aðrir farið yfir í pípu- eða
vindlareykingar. f sambandi við
vindlana má geta þess, að mest
aukning var í sölunni á smávindl-
um.
Lclkfélag Reykjavíkur frumfluHi
Rómeó og Júlíu í þýðingu Helga
Hálfdánarsonar á þriðjudagskvöldii
— í tilefni af 400 ára fæðingaraf-
mæli Shakespeares á þessu árl.
Leiknum var frábærlega tekið, og
lelkstjóranum, Thomasi Mac Anna
frá Dyflinni, þakkað með gjöfum og
blómum. Myndin er af Helga Hálf-
dánarsyni. — Sjá leikdóm á bls. 9.
Di Stefano
hérihaust
GB—Reykjavík, 12. marz. en þá er ákveðið að hann komi.
Guiseippc di Stefano, ítalski Hann hélt tónleika í Kaupmanna-
tenórsöngvarinn frægi, seni Pétur höfn nú í febrúar, en þá höfðu
Pctursson, forstöðumaður Skrif- Hafnarbúar beðið eftir honum í
stofu skenmitikrafta, hefur reynt þrjú ár.
að fá hingað til lands lengi undan-
Enn nógu að sjón-
varpa frá Dallas
Það íinnir lítt sögulcgum at-
burðum í Dallas. í bandaríska
fréttaritinu Time er skýrt m. a.
frá réttarhöldunum yfir Jack
Ruby. Er jafnframt skýrt frá
því að einn dag í síðustu viku
hafi sjö fangar, sem geymdir
voru í klefum á hæðinni fyrir
ofan réttarsalinn, brotizt út
meðan verið var að saksækja
Ruby á hæðinni fyrir neðan.
Fangarnir sjö gátu borið
fangavörð ofurliði, og ruddust
síðan af stað út úr húsinu í
gegnum mannþröngina fyrir ut-
an réttarsalinn. Einn þeirra
komst áfram með því að veifa
skammbyssu, sem hann hafði
skorið út úr sápustykki og síð-
an litað með skósvertu. Hann
rak „sápu“-byssuna í síðu einn
ar starfsstúlku réttarins, notaði
hana fyrir gísl, á meðan hann
var að troðast í gegnum ótta-
slegna mannþröngina. „Farið
frá mér“, hrópaði konan.
„Hann er með byssuna í baki
mínu“.
I troðningnum, scm þcssu
fylgdi, íróðst nítján ára gömul,
ólétt nektardansmær nær und-
ir. Ilún heitir Karen Lynn
Bennett, og gengur undir nafn-
inu „Litla Lynn“ í starfi sínu.
Þegar Litla-Lynn sá manninn
með byssuna, hrópaði hún upp:
„Guð minn góður. Hann ætlar
að drepa mig“. Litla-Lynn var
mætt barna til að bera vitni í
máli Rubys. Hins vegar var ótti
• liennar við sápubyssuna ástæðu
laus. Og rétt á eftir tókst vörð-
um laga og réttar að handsama
flóttamanninn, sem hélt á sáp-
unni og annan til. Hinir fimm
þokuðu sér áfram til dyra og
sluppu út meðan ringulreiðin
stóð sem hæst. Einhverjir
þeirra voru gripnir síðar en
aðrir 'iafa ekki náðst enn.
Eins og áður hefur gerzt í
Dallas, \ ar þessum atburðum
í forsal réttarins yfir Ruby,
sjónvarpað. Fylgdust því þús-
undir og aftur þúsundir, sem
voru að fylgjast með réttarhöld
unum vfir Ruby, með því, þcg-
ar fangarnir ruddust frain á
sjónarsviðið og beittu sápubyss
unni fyrir sig.
Meðan þessu fór fram í for-
salnum, hélt réttarhaldið áfram
yfir Ruby. Sækjendur ákæra
hann fyrir að hafa skotið Lee
Harvey Oswald „að yfirlögðu
ráði“, en ekki, eins og vcrjend-
ur halda fram, i augnabliks æð
iskasti vegna hryggðar yfir
dauða Kennedys.
Lltla Lynn (me5 sólgleraugu)
farið, kemur liingað í september
ti'I tónlcikahalds.
Vonir stóðu til, að di Stefano
kæmi hingað fyrr, en vegna þess
að hann teiur sér ekki fært að
koma hingað sérstaka ferð, nema
á leið milli heimsálfa, verður ekki NTB-Kaupmannahofn, 12. marz. j leggi hart að dönsku konungsfjol-
af íslandsferð hans fyrr en í haust, * MÍ8S líklegt er talið, að brúð- j skyldunni að samþykkja, að brúð
að þvi er umboðsmaður hans í kauI> Þeirra Konstantíns Grikkja-j kaupið verði haldið svo fljótt sem
London tjáði Pctri fyrir nobkru, konungs og Önnu-Maríu Dana-! mögulegt er. .
'■ -mirrrJTpit • prinsessu verði haldio nu þegar 1; Mal þetta er mjog ofarlega
Verður Anna María drottning ímaíi
Guiseppa di Stefano
maí eða í byrjun júní. Það er eink
um gríska konungsfjölskyldan,
sem vill láta brúðkaupið fara fram
svo fljótt, sem mögulegt er, svo
að Grikkland verði ekki drottning
arlaust lengur en nauðsyn krefur.
Anna-María sem nú dvelst í
Grikklandi í sambandi við jarðar-
för Páls konungs, er einungis 17
ára gömul, og verður því að fá sér
stakt leyfi, hið svokallaða konungs
bréf, til þess að gifta sig. Anna-
María var einungis 16 ára gömul,
þegar hún irúlofaðist hinum unga
þáverandi Irónprinsi Grikklands,
Konstantín, og var ákveðið að þau
skyldu gifta sig í janúar næsta ár.
En hin skyndilegu veikindi og
dauði Páls konungs gerði strik í
reikninginn, og er talið, að Grikkir
hugum manna, bæði i Danmörku
og Grikklandi, og kvöldblöðin tvö,
Ekstrabladet og BT segjast hafa
það eftir áreiðanlegum heimildum
í Aþenu, að brúðkaupið fari fram
í maí.
Maímánuöurinn mun einkum
valinn vegna þess, að Nikita Krust
joff forsætisráðherra Sovétríkj-
anna kemur í opinbera heimsókn
til Danmerkur í júní og það mun
ásamt ýmsum fleiri atburðum taka
tíma konungshjónanna dönsku. Er
því talið tnjög líklegt, að þau vilji
að brúðkaopið verði afstaðið fyrir
mánaðamót.in maí-júní.
Talið er líklegt, að gefin verði
út opinber yfirlýsing um málið,
þegar dönsku konungshjónin koma
Framhald á 15. síðu.
Konstantín konungur styður móður sína, Friðrlku, út í beifreið eftir
minningarathöfn um Pál konung í dómkirkjunni. Anna-María, heitmey
hans, brosir, þrátt fyrir sorgina.