Tíminn - 14.03.1964, Side 4
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
SW«ra gBMBMi
HVAÐ BRAST GEGN UNGVERJUM
Rætt við Frímann Gunnlaugsson, formann landsliðsnef ndar, nýkominn heim
HSIMSMEISTARAKEPPNIN í handknattleik er eSli-
lega mikið til umræðu þessá dagana. Enn þá er spjallað
um hið stóra tap íslenzka landsliðsins gegn Ungverjum,
tap, sem orsakaði, að ísland komst ekki áfram í 8-landa
keppnina. í sjálfu sér er ekkert eðlilegra en menn velti
vöngum yfir þessu. ísland hafði sigrað hina rótgrónu
handknattleiksþjóð, Svíþjóð, sem nú keppir um sjálfa
heimsmeistaratignina í Prag. Hvað skeði eiginlega í
Bratislava í leiknum gegn Ungverjum? Að vísu hafa áð-
ur verið leidd rök að því, að íslenzka landsliðið lék und-
Ir styrkleika — en hvers vegna?
Frímann Gunnlaugsson, for
maður landsliðsnefndar HSÍ.
kom herm í fyrrakvöid frá
Tékkóslóvakíu. Við spjölluðuní
stundarkorn við hann og vé*
um talinu strax að leiknum
við Ungverja.
— Við tapinu er lítið hægt
að segja, sagði Frímann. ís-
lenzka landsliðið kom geysilega
á óvart í Bratislava með sigr
inum yfir Svíum. Við vorum
skyndilega komnir í sviðsljós
ið. Pressan á okkur var gífurlee
og því vil ég kenna um, hve
illa gekk á móti Ungverjum,
þegar á hólminn var komið.
Fyrir leikinn var ekki um ann
að talað, en við kæmust áfram,
meira segja orðaðir við heims
meistaratign. Blaðamenn geröu
'mikirtii aðsóg áð leikmönnun
um, vildu viðtöl, merkjasafnar
ar voru á hverju strái, og mar?
ir voru að safna eiginhandar
áritunum. Þá var blaðagagn-
rýnin mjög vinsamleg. Þetta
stefndi sem sé allt að sama
brunni, við vorum stimplaðir
öruggir sigurvegarar fyrir
fram. Ekki batnaði það, þegar
við svo fréttum, að Ungverjor
hefðu pantað farseðla heim r.i'
Búdapest, töldu sig ekki eiga
möguleika gegn okkur.
En ég vil taka fram, að allt
þetta glamur um fyrir frara
unninn leik gegn Ungverjum
hafði ekki minnstu áhrif á :s-
Icnzku leikmennina. Við kom
um alls ekki inn á, sem örugg
ir sigurvegarar. Hver einasti
lcikmaður fór með það inn á
í huga að gera sitt bezta. En
þrátt fyrir allt hafði þó þessi
hamagangur slæm áhrif. Liðið
fann sig aldrei í leiknum, því
fór sem fór.
— Hér heima hafa menn var
ið með alls kyns útskýringar
á tapinu, «n. a- að drykkjuskap
ur hafi verið á dagskrá hjá
íslenzku landsliðsmönnunum
daginn fyrir leikinn- Er nokf
uð hæft í þessu?
— Nei. Þettá er algerlega ut
i hött. Það varð að algeru sam
þykki allra, sem í förinni voru.
að ef einhver bragðaði áfengi.
myndi sá hinn sami fá reisi’
passa heim. Þessu var hlýtt út
í æsar — og það var hvílt vcl
fyrir alla Ieikina þrjá.
— Hvað viltu segja um mót-
herjana í riðlinum?
— Egyptar voru með veikt
lið eins og búast mátti við
Nú Svíar eru geysisterkir cg
Ungverjar reyndar líka. Ann-
ars er gaman að geta upplýst.
að Ungverjar völdu landslið
sitt endanlega sjö mánuðum
fyrir keppnina. Og á þeim sjö
mánuðum, sem til stefnu voru
lék þetta ungverska landslið
hvorki meira né minna en 109
leiki. Það þýðir, að liðið hefur
leikið til jafnaðar 24 leiki á
mánuði. Þetta hef ég eftir ör-
uggum heimildum. Svipað er
víst að segja um landsliðin frá
hinum Mið-Evrópulöndunum
Þetta er ekkert annað en af-
vinnumennska. Og þótt ó?
skilji ofurvel, að úrslitin gegn
Ungverjum hafi valdið von-
brigðum, er ég allánægður
með útkomuna í heild. Og það
er alls ekki í afsökunarskyni
þegar ég bið menn að bera
saman aðstöðumun íslenzkra
handknattleiksmanna og mót-
herja þeirra.
— Hvað viltu segja um för-
ina að öðru leyti?
— Hún var í alla staði á
nægjuleg, þótt sum ferðalögiti
væru þreytandi Samstaða allra
í þessari för var með þeim
ágætum. að ekki verður á betra
kosið. Og nú er bara að bíða
eftir næstu heimsmeistara-
heppni ... — alf.
Svíar og Rúmeitar
í úrsiilum!
•fc Þa3 verSa Sviþjóð og Rúmenia,
sem leika til úrslita um heim:-
meistaratignina í handknattleik.
Svíar töpuðu samt mjög óvænt
fyrir V-Þýzkalandi í gær, 8:18.
Rúmenar unnu nauman sigur
gegn Tékkóslóvakíu, 16:15.
Annars urðu úrslit í gær elns
og hér segir:
A-rlðill:
V-Þýzkaland-Svíþjóð
Júgóslavía-Ungverjaland
13:3
(8:5)
16:15
(9:7)
I A-riðli urðu Svíar þvi efstlr
með 4 stlg. V-Þýzkaland og Júgó
slavía með 3 stig hvort og Ung-
verjaland með 2 stig.
B-rlðill:
Rúmenia-Tékkóslóvakía
Sovétríkin-Danmörk
16:15
(9:7)
17:15
(10:10)
í B-riðlinum urðu Rúmenar
efstir með 6 stig. Tékkóslóvakia
með 4 stig, Sovétríkin með 2
stig og Danmörk ekkert stlg.
Svíþióð og Rúmenía keppa þvi
um fyrsta og annað sæti. Tékkó-
slóvakía og V-Þýzkaland um
þriðja og fjórða sæti. Sovétrikln
og Júgóslavía um fimmta og
sjötta sætið ng Danir og Ung-
verjar um sjöunda og áttunda
sætið.
Skíftapíét í das;
Firmakeppni og afmællsmót
Skiðaráðs Reykjavikur fara fram
í dag við Skálafell, svo framar
lega sem veður leyfir. Þessl mót
áttu að fara fram um helgina
siðustu, en var þá frestað vegna
veðurs. — Bílferðir eru áætlaðar
frá BSR kl. 2:
MelavíSHurisin opnaHur
-yý Baldur Jónsson, vallarstjóri
tjáði blaðinu, að Melavöllurlnn
yrði opnaður i dag klukkan 1.
Framhald á 13. síðu.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast 1 að gera 1. áfanga af heimreið frá
Eiríksgötu að Landspítalanum. Otboðsgagna sé
vitjað í teiknistofu mína að Eikjuvogi 23, gegn
250 kr. skilatryggingu. Skilafrestur er til 23. þ.m.
Rögnvaldur Þorkelsson.
Hjúkrunarfélag íslands
heldur fund mánudaginn 16. marz kl 20,30 í fund
arsal Hótel Sögu.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Sigurlín Gunnarsdóttir hjúkrunarkona, tal-
ar um framhaldsnám í hjúkrun við Árósa
háskóla.
3. Kosning fulltrúa til B.S R.B.
4. Félagsmál.
Stjórnin
I Regnklæöi
Síldarpils
! SfósiakkE?
Svimtur
o. fl.
MikiII .-líslaftuy cefinn
Vopni
Aðalstræti 16
(við hliðina á bíiasöiunni)
KFUM
KFUK
kaffi.
Æskulýösvika
í Laugarneskirkju
í kvöld kl. 8,30 talar séra Felix Ölafsson og fleiri.
Kvennakór KFUK sýngur.
Annað kvöld, sunnudagskvöld, talar Baldvin Stein;
dórsson, yfirlæknir. — Blandaður kór KFUM
og KFUK syngur — Allir velkomnir.
Útboð
Tilboð óskast í sölu á 2170 tonnum af asfalti til
gatnagerðar. — Otboðslýsingar skal vitja í skrif-
stofu vora Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
T í M I N N, laugardaginn 14. marz 1964