Tíminn - 14.03.1964, Page 7

Tíminn - 14.03.1964, Page 7
Útgefantíi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Tómas Ámason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjómarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- lands. f lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Hagnýt menntun AðalfUndur miðstjórnar Framsóknarfloltksins ályktaði, að mikla nauðsyn bæri til þess, að endurskoða skólakerf- ið í landinu með hliðsjón af þörfum og kröfum þjóð- félagsins til nútíma tækni. En jafnframt er á það minnt, að við megum ekki þess vegna vanrækja það megin- hlutverk skólastofnana þjóðarinnar að efla þekkingu á sögu og menningu íslenzku þjóðarinnar. Gildi það, sem nútíma tækni hefur fyrir framfarir og bætt lífskjör eykur mjög kröfurnar, sem gera verður til tæknilegrar kunnáttu. Vélin kemur æ víðar að notum í hendi mannsins, og þeir verða sífellt fleiri, sem geta hætt svokallaðri erfiðisvinnu og farið að stjórna vélum í staðinn. Því verður að sníða kennsluna eftir þörfum tæknimenningarinnar. Við erum orðnir langt á eftir í þessum efnum. Hér á landi er lögboðið, að stundað skuli nám í fjögur ár til þess að fá leyfi til þess að klippa hár af manni eða baka brauð, og skal ekki löstuð góð kunnátta í þeim greinum sem öðrum. En við höfum enga skóla, sem leiðbeint geta um vinnubrögð í helztu útflutningsatvinnu- vegum okkar. Enginn fiskiðnskóli starfar í þessu landi, og það fólk, sem vinnur við höfuðatvinnuvegi þjóðar- innar, á ekki kost á hentugu námi í sínum greinum. Um hina æðri tæknilegu menntun er fátt hagstæðara að segja. Verkfræðingar eru að vísu orðnir yfir 300 hér á landi, en eru þó enn hlutfallslega færri en víðast hvar annars staðar. Tæknifræðingar eru hér allt of fáir og ættu að vera tífalt fleiri til þess að rétt hluffall næðist við aðrar þjóðir. En um leið og skólakerfið er endurskoðað þarf að tryggja, að ungmenni hvar s^m er á landinu hafi sem jafnasta aðstöðu til þess að öðlast menntun. Það er þjóðfélagsverkefni að veita slíkan kost á menntun, hvar sem menn búa á landinu. Þó að kröfur tæknimenntunar leggi okkur mikla skyldu á herðar, má samt ekki van- rækja að unga kynslóðin öðlist trausta þekkingu á sögu og menningu þjóðarinnar. Því aðeins hefur þjóðin hag- nýta menntun, að þetta tvennt haldist í hendur. FYRIR NOKKRUM dögum hafði Ólafur Jóhannes- son framsögu fyrir tillögu til þingsályktunar, er hann flytur ásamt 7 öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins um undirbúning löggjafar um almennan lífeyrissjóð allra landsmanna. Er hér hið merkasta mál á ferð. Fjall- ar það í raun um tvo veigamikla þætti varðandi afkomu og aðbúð alls almennings í landinu. Með stofnun almenns lífeyrissjóðs, sem yrði viðbótarsjóður við almannatrygg- ingarnar, myndu tryggingarnar aukast og allir lands- menn fá þá aðstöðu, seih þeir einir hafa nú, er trygginga njóta í sérstökum lífeyrissjóðum hinna einstöku stétta og starfsgreina. Sú viðbótartrygging, sem hinum almenna lífeyrissjóði er ætluð á að grundvallast á sjóðsöfnun. Slík sjóðsöfnun er sérstaklega æskileg til þess að standa und- ir íbúðalánaþörfinni og þá alveg sérstaklega unga fólks- ins, sem þarf að byggja yfir sig, en eins og kunnugt er ríkir nú hið mesta öngþveiti í húsnæðismálum og hús- næðislánakerfið er mjög fjárvana miðað við hina miklu og sívaxandi íbúðalánaþörf Með stofnun almenns lífeyr- issjóðs er því unnt að ge. a tvennt í senn, efla lífeyris- tryggingar og bæta að verulegu leyti úr íbúðalánaþörf inni. Á þinginu 1957 var samþykkt tillaga nokkurra Framsóknarmanna um athugun á stofnun almenns lífeyr- issjóðs. MORDECAI BRiENBERG: Var Oswald ekki morðinginn? Þekktur amerískur félagsfræðingur vefengir skýrslur lögreglunnar í Dallas. í ERLENDUM blöðum er nú rætt um það í vaxandi mæli, hvort Lee Oswald hafi verið hinn raunverulegi morðingi Kennedys. Þeim virðist fjölga, sem draga þetta í efa og byggja það einkum á ýmissi ónákvæmni og mótsögnum, sem virðast koma fram í skýrsl um rannsóknarlögreglunnar. Ein athyglisverðasta greinin, sem nýlega hefur birzt um þetta efni, birtist í enska viku- ritinu Spectator, fyrra föstu- dag ,en ritstjóri þess er Mac- Leod, einn kunnasti leiðtogi brezka íhaldsflokksins. Grein þessi var eftir Mordecai Brien- berg, háskólakennara í félags- fræði við Berkeleyháskólann í Kaliforníu. Enska blaðið Daily Mail birti stuttan útdrátt úr þessari grein Brienbergs, síðastl. laugardag, og fer sá útdráttur hér á eftir: í MÁLSSKJÖLUM í Dallas er eiðfest skýrsla lögreglu- þjónsins, sem fann riffilinn á sjöttu hæð slcólabókageymsl- unnar, en þaðan á Lee Oswald að hafa skotið á Kennedy for- seta. í skýrslu þessari er sagt, að riffillinn hafi verið af Mauser-gerð, með 7,65 milli- metra hlaupvídd. 22. nóvember s.l., fullyrti Henry Wade, héraðssaksóknar- inn í Dallas, að þetta væri morðvopnið, og lófafar Os- walds hefði fundizt á því. Dag- inn eftir birti ríkislögreglan tilkynningu, þar sem sagt var, að. Oswald hefði keýpt riffii; í márz, ’og þá gengið undir dul- nefninu Hiddel. Þetta var ítalskur riffill með 6,5 millí- metra hlaupvídd. Wade breytti afstöðu sinni eftir að þessi skýrsla kom fram. Nú sagði hann það ítaisk- an riffil, sem hann hefði í fór- um sínum. Það var ekki leng- ur riffill af Mauser-gerð. SÉ hleypt af riffli, sem haldið er við öxl sér, má finna púðurleifar á höndum og and- liti. Og skrýtið virtist að skjóta frá mjöðm sér af riffli með áföstum sjónauka. Lögreglan í Dallas beitti paraffín-rannsókn við athugan- ir á höndum Oswalds og and- liti. Púðurleifar fundust á báð- um höndum hans, en ekki á andlitinu. Enn fremur full- yrðir ríkislögreglan nú„ að „engin lófafþr“ hafi „fundizt á rifflinum.“ Þetta er í beinni mótsögn við fullyrðingu Wades héraðssaksóknara, 22. nóvem- ber. LÆKNARNIR þrír, sem önn uðust forsetann strax eftir skotárásina, sögðu við frétta- menn í sjúkrahúsinu, að ein af kúlunum hafi komið í háls- inn, „aðeins neðan við barka- |kýlið“. Mikill munur er á sári eftir kúlu á innleið og kúlu á út- , leið. Allir þrír læknarnir héldu því fram, að þeir gerðu dag- lega að skotsárum. Læknarnir sögðu enn fremut, að kúlan hefði stefnt niður á við og kom- ið út aftur. Þegar ríkislögreglan var bú- in að yfirheyra læknana þrjá, gáfu þeir yfirlýsingu, þar sem þeir höfðu' breytt um skoðun lár. ■-■- Lee Harwey Oswald á hálssári forsetans, en höfðu þó áður verið ,vissir í sinni sök og borið öllum saman. í yfirlýsingunni segja þeir, að sárið á hálsinum hafi verið eftir kúlu á útleið. Læknarnir segja samt sem áður, að þeir geti ekki átt tal við fréttarit- ara, eða rætt þetta mál frekar. EF skotið, hefði verið á for- setann, þegar bíll hans nálg- aðist skólabókageymsluna við ’ Hóuston-stræti í Dallas, hefði í skötsárið á hálsinum komið heim við þann framburð, að skotið hefði verið frá sjöttu hæð skólabókageymlunnar. Þannig hljóðuðu líka fyrstu útskýringar ríkislögreglunnar. En myndir gefa til kynna, að skotárásin hafi orðið, þegar bíllinn var kominn 75—L00 yards fram hjá byggingunni. FRÉTTÁRITARI einn beið eftir bílalest forsetans, sem átti nokkurn spöl ófarinn að honurn, þegar skotárásin var gerð. Hann heyrði fyrsta tal- stöðvarkall lögreglunnar, og þar var sagt, að „öll skotin virðast hafa komið frá járn brautarbrúnni“, sem var fram undan bílunum. í fyrstu útvarpsfréttunum var sagt, að lögregluþjónn hafi hraðað sér til járnbrautar- brúarinnar og sézt elta tvo menn eftir brúnni. En þessi frétt var ekki framar nefnd r nafn. Skotgat var á framrúðunni i bíl forsetans Starfsmenn leyniþjónustunnar komu í veg fyrir að fréttaritarar kæmust svo narrri bílnum, þar sem hann stóð við sjúkrahúsið, að þeir gætu komizt að raun um stefnu kúlunnar gegnum rúð- una. Flogið með bílinn til Was- hington, og þar var hann í varð veizlu leyniþjónustunnar. Átta dögum síðar var skipt um framrúðu í bílnum. Ekki er um það vitað, hvort skemmda rúðan hefir verið eyðilögð. AÐ LOKUM má geta þess, að fjórir fréttaritarar blaðsins Mornings News í Dallas, voru sjónarvottar pð skotárásinni. Þeir stóðu milli járnbrautar- brúarinnar- og skólabóka- geymsl-unnar. Allir fullyrða þeir, að skotið hafi verið fram- an á bíl forsetans. SAMKVÆMT hinni opin- beru tilkynningu var skotið þremur skotum. En um fimm kúlur virðist hafa verið að ræða. Hleypti Oswald af íimm skot um á hálfri sjöttu sekúndu? Sérfræðingar í meðferð riffla eru mjög vantrúaðir á, að af- bragðsskytta gæti miðað og skotið þremur skotum á þeim tíma SKOTUNUM var hleypt af milli klukkan 12,30 og 12,31. Samkvæmt framburði konunn- ar, sem Oswald leigði hjá, kom hann heim í íbúð sína klukkan 12,45. Samkvæmt annarri frá- sögn, á hann að hafa komið heim klukkan eitt. í þeirri frá- sögn er sinnig rælt um „mjög mikla umferðártöf“ í borginni. Af hálfu hins opinbera er því haldið fram, að Oswald hafi farið fjórar mílur í leigu- bíl. í ótruflaðri umferð ætti sú ferð að taka tólf mínútur. Ilafi Oswald komið heim klukkan 12,45, hefir hann að- eins haft tvær mínútur til um- ráða til þess að l.júka því, sem hér er talið: A. Fela morðvopnið. B. Ganga ofan af sjöttu hæð niður á aðra hæð. C. Taka upp mynt og ná í coka-cola-flösku úr sjálf- salanum. D. Ræða við lögregluþjón. E. Fara út úr húsinu og ganga fram hjá fjórum þvergötum að strætis- vagni F. Fara með strætisvagnin- um og kalla á leigubíl. VIÐURKENNA ber, að allt var í uppnámi. En hví skyldu þá lögregluyfirvöldin stöðugt vera sannfærð um eitt, sök Oswalds? Varð lögreglan i Dallas við hinni háværu kröfu um hand- töku og áleit Oswald hentugt ’ fórnardýr, af því að hann var efstur á lista hennar yfir „bylt ingamenn"? (ÍMINN, laugardaginn 14. marz 1964 /

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.