Tíminn - 21.03.1964, Síða 1

Tíminn - 21.03.1964, Síða 1
15 RAKSTRARl I PEIBSONNA SJAINLESS ©ITiÍíL I: 68. tbl. — Laugardagur 21. marz 1964 — 48. árg. Stálþil reist í vor um þvera Tjörnina til þess að kanna botninn betur ÞOUR GRUNNURINN í TJORNINNI RAÐHUSIÐ EJ-Reykjavík, 20. marz. Er botninn í norðurenda Tjarnarinnar, þar sem fyrir- hugað er að byggja ráðhús Reykjavíkurborgar, lítið ann- að en leir og leðja? Borgaryf- irvöldin í Reykjavík virðast nú, þegar búið er að teikna ráðhúsið og ákveða staðsetn- ingu þess, ekki lengur vera viss um, að hægt sé að reisa ráðhús . við norðurenda Tjarnarinnar, og telja, að fyrri rannsóknir í því sambandi gefi ekki fullnægjandi upplýs- ingar. Mun því áætlað að hefja nýja rannsókn á Tjarnarbotn- inum með vorinu. Blaðið hefur það eftir áreiðan- legum heimildum, að ráðandi menn efist nú æ meira utn, að hægt sé að finna nægilega sterka undirstöðu í norðurenda Tjamar- innar til þess að byggja ráðhúsið þar. Einn fundur hefur verið haid inn í ráðhúsnefnd nýlega og mun þar hafa ríkt einhugur nefndar- manna um, að það fjármagn, sem þegar hefur verið veitt, verði not- að til þess að gera nýjar rannsókn- ir á Tjarnarbotninum, þar sem þeir telja, að fyrri rannsóknir geti á engan hátt talizt fullnægjandi. Rannsókn sú, sem fram á að fara í vor, verður miklu fullkomn- ari en fyrri rannsóknir. Á m. a af þurrka upp norðurenda Tjarn- arinnar á þann hátt, að stálþil verður sett þvers yfir Tjörnina. Síðan munu sérfræðingar gera ná- kvæmar rannsóknir á jarðveginum og reyna að komast niður á fasta undirstöðu. Mun þessi rannsóka því verða allumfangsmikil og taka talsverðan tíma. Ef svo kynni að fara, að fastur botn finnist hvergi í norðurenda Tjarnarinnar, þá mun draumurin'i um staðsetningu ráðhússins þar verða að engu. Svona mun ráðhúsið líta út, ef hæqt verður að byggja það f Tjarnarendanum. FRIÐARHORFU R A KÝP- UR BATNANDI AÐ SINNI NTB-Nicosiu, 20. marz. TILTÖLULEGA rólegt var á Kýpur í dag eftir hörkubardaga ! þá, sem geisuðu á vesturhluta eyj- arinnar í gær og urðu a. m. k. 6 j tyrkneskum mönnum að bana. — Þetta er þó aðeins um stundar sakir og eru bæði Tyrkir og Grikk- ir ennþá í bardagastöðum sínur.i við bæinn Kalokhorio, þar sem bar ist var í gær, reiðubúnir til bar- daga. Við bæinn Gaziveran komst á vopnahlé í nótt, og er nú verið að ræða um svipaðan vopnahléssamn ing fyrir Kalokhorio. Samkvænit samningum eiga brezkar herdeild ir að vera á verði í bænum til þess að sjá um, að umferðin um þjóð- veginn, sem liggur í gegnum bæ- irm, verði með eðlilegu móti. fbú- arnir eiga að fjarlægja allar vega- táimanir. Sex þeirra, sem létu lífið í bar- dögunum í gær, voru tyrkneskir menn. Þrír aðrir tyrkneskir og fjórir grískir sæðust. Talsmaður brezka hersins sagði í dag, að svo að segja hvert hús í bænum Framhald á 15. síðu. Vinneyzlan minni og litlu meiri tóbaksnotkun en um aldamótin á hvern íbúa. en neyzla ýmissar matvöru hefur margfaldazt JK-REYKJAVÍK, 20. marz. HVER ÍSLENDINGUR innbyrðir nú að meðaltali minna áfeng- ismagn en forfaðir hans gerði um og fyrir aldamótin síðustu, og nútíma íslendingurinn notar ekki ýkja miklu meira tóbak en forfaðir hans gerði fyrir aldamótin — en hann notar að vísu annars konar tóbak. Þótt hagskýrslur séu talda’- leiðigjarn lestur, má finna þar ýmsa athyglisverða hluti, og svo er einnig úm Verzluna.- skýrslur ársins 1962, sem er.i nýkomnar út. Þar er meðal ano ars skýrsia um árlega neyzlu íslendinga á nokkrum vörum á árunum frá 1881 til 1962. Á árunum frá 1881 til 1900 neytti hver islendingur að með altali tveggja lítra af hreinum vínanda, ef vínneyzlan er um- reiknuð í nreinan vínanda, en nú síðustu árin, eða frá 1945 til 1962, hefur neyzlan sveiflast upp og niður milli 1,6 og lítra, og var 1,8 lítrar árið 1962. Vínneyzlan minnkaði tölu- vert upp úr aldamótunum sí'o- ustu og náði lágmarki á bann- árunum á öðrum tug aldarinr ar. í skýrslunni er þó ekki tek- ið með í reikninginn það magn. sem menn brugguðu í heime- húsum. Vínneyzlan var einnig lítil á árunum frá 1921—1935, en þá voru aðeins leyfð létt vín. Þessi árin var meðalneyzí- an rúmlega 0,6 lítrar á mann. Þegar vínið var gefið' frjálst. jókst vínneyzlan lítillega, en ekki að marki fyrr en eft’r stríðsárin. Þá komst neyzlan upp í það, sem hún hefur nú verið um átján ára skeið, eða á milli 1,6 og 1,9 lítra. í öll- um þessum tölum er aðeins reiknað með löglega innflut.tu og framleiddu víni, en smygl- vara engin reiknuð. Á árunum 1881—1900 neytli hver íslendingur að meðaltali 1.2 kílós af tóbaki, og hefur það að sjálfsögðu nær eingöngu verið munn- og neftóbak. Þetta magn helzt óbreytt fram alla tuttugustu öldina, þót.t sígárett- ur fari að ryðja gömlu tóbaks notkuninni úr vegi. Eftir seinri heimsstyrjöldina, eða á árun um 1945—1946, eykst tóbaks nolkunin skyndilega, alveg á Framhald á 15. síðu Hlaut tvenn fyrstu verð- Baunin! ÓJ-Selfossi HF-Reykjavík, 20. marz Ungur arkitekt af Akra- nesi hlaut bæði fyrstu og önnur verðlaun í hugmynda samkeppni um gagnfræða- skólabyggingu á Selfossi, en hann hafði sent inn tvær tcikningar. Arkitektinn er Ormar Þór Guðmundsson, og starfar liann í skipulagi Reykjavíkur. Verðlaunun- um hefur nú verið úthlutað og hefur sýning á teikning- unura verið sett upp á Scl- fossi. Þriðju vcrðlaun hlutu arkitektarnir Skarphéðinn Jóhannsson og Guðmundur Kr. Guðmundsson, sem gert höfðu sameiginlega teikn. ingu. Ormar Þór hefur áður fengið' fyrstu verðlaun í hug myndasamkeppni, og var það áður en hann lauk námi. Hann fékk fyrstu verðlaun í keppninni um Mosfells- kirkju og er nú verið að reisa kirkjuna samkvæmt teikningum hans. Ormar hef ur einnig gert, með Haraldi Haraldssyni, skipulagsteikn- ingu af miðbænum í Reylfja vík, og er það líkan nú á sýningu úti í heimi, en myndir af því birtust í Vik- unni snemma í vetur. Selfoss hefur vaxið mjög mikið á undanförnum ár- um, og gagnfræðaskólinn, sem þar var byggður árið 1952, er pú orðinn allt of Iítill og tvísetið í allt hús- næðið. Árið 1959 var sótt um leyfi til að byggja nýja gagnfræðaskólabyggingu og kjörin var byggingarnefnd, en i henni eiga sæti Hjalti Gestsson, ráðunautur, Mar- teinn Björnsson, verkfræð- ingur, og Þorsteinn Sigurðs. son byggingarmeistari. Árið 1962 var svo sam- Framhald á 15 síðu. TTSTEfiW JÓNSSON UM STÓR- VIRKJUN OG STÓR- IÐJUMÁL SJA ALÞINGIS- FRÉTTIR BLS 6 I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.