Tíminn - 21.03.1964, Qupperneq 3

Tíminn - 21.03.1964, Qupperneq 3
Gengur með ágrædda dauðs manns hönd Sjóliðinn Julio Luna frá Ecuador gengur nú um me'ð annan handlegg en hann haiði fyrir fáum vikum — sem sé af dauðum manni — en hann hefur ekki hugmynd um það sjálfur. Julio varð fyrir því slysi, er handsprengja sprakk rétt hjá honum, að hægri hönd hans og framhandleggur tættust sund- ur. Þetta gerðist nokkru fyrir hádegi 13. febrúar s. 1. Lækn- irinn, sem fékk Julio til með- ferðar, heitir dr. Roberto Gi1- bert, hefur forframazt í skurð lækningum í hinu heimsfræga bandaríska sjúkrahúsi Mayo Clinic, en er nú yfirlæknir við handlækningadeildina í Clín ica Guayaquil í Ecuador. Rétt í þann mund, sem Juho var lagður inn á spítalann, frétti dr. Gilbert yfirlæknir af sjúklingi á næsta sjúkrahúsi, 47 ára gömlum götusópara, sein væri nær dauða en lífi af inn- vortis blæðingu. Þegar dr. Gilbert hafði skoðað meiðsl Julios, hringdi han strax í yfir lækninn á hinum spítalanum og bað um að fá að fylgjast með því, hvernig götusóparan um reiddi af, spurði hvaða blóð flokki hann tilheyrði, og það kom á daginn, að þeir voru í sama blóðflokki sjóliðinn og sóparinn. Innan stundar fékk |s w Julio Luna eftir skurSaðgerðina, sem stóð í tíu stundir. dr. Gilbert tilkynningu um, að sóparinn væri látinn. Yfirlækn irinn sótti þá þegar um leyíi til kirkjuyfirvaldanna og fjöl- skyldu götusóparans til a'5 nema burt hægri handlegg hans til að freista þess að græða hann á hinn slasaða mann. Það leyfi var veitt. Klukkan níu um kvöldið, tíu klukkustundum eftir að Juiio slasaðist og fimm stundum eftir lát götusóparans, hóf dr. Gil- bert aðgerðina, að skipta um handlegg á Julio, græða á hann dauðs manns handlegg, og klukkan sjö næsta morgun var því verki lokið, og hafði staðið í tíu stundir. Símaði hann þeg- ar til Boston í Bandaríkjunum og spurði um umönnun eftir slíkan flutning líffæra eða lima A FÖRNUM VEGI BÓKABÚÐIR í Reykjavík erj vettvangur hinna ólíklegustu grasa. Til dæmis má í einni búð kaupa heildarútgáfu á verkum Agötu Christie á spænsku, fyrir nú utai vasaútgáfur á sögum þessarar reyf- arakellingar á því máli, sem hún skrifar sjálf. í Reykjavík má sennilega kaupa mest allt ijós, sem pólitíkusar heimsins láta skína á prenti, alpt frá N. Krústjov til L. Erhard og fyrirrennara þeirra, eða fæst ekki ennþá elntak af „Leninismens pro blemer'* eftir J. Staiín? Kannski eitthvað sé farið að sneyðast um Stalínsbækur í Rvik, hann er víst ekki lengur ■ móð, og löngu er Hitler úr móð, eða það sem stígvélaður Hess hrio aðl niður fyrir hann, og þeir orðr ir merkileg rannsóknarefni báðh tveir. En áhugamenn um glæpamál og stjórnmál þurfa engu að kvíða. — Innkaupasamband bóksala sér fyrir því. TII dæmis hefur bókaverzlun í Reykjavík nú á boðstólum >of dýrð i tveimur bindum um þá, sem hlutu járnkrossinn þýzka sem dug andi manndráparar í selnni heimc- styrjöldinni og myndlr af viðkom- andi í fullum skrúða. Jafnvel Inside Detective og True Police, sem aldrei vantar, falla 1 skugga slíkra bóka. Þetta er að þekkja sitt fólk og vlta hvað pví kemur. — BÓ. af einum manni á annan. Tvsir læknar, sérfróðir í plastískum skurðlækningum, tóku sér sam- dægurs far til Ecuador. Þeir urðu furðu lostnir að sjá, hvern ig dr. Gilbert hafði tekizt verk ið. Hins vegar eru þeir ekki enn vissir um það, hvernig manninum eða hinum uraflutta handlegg á nonum reiðir af. En vöðvar og sinar eru sjúklings ins og ekki fengnar að láni. Þegar hann er beðinn að hreyía fingurna, gerir hann það þegar í stað. Helzta vandamálið var, er síðast fréttist, hvernig ætti að draga úr bólgunni í hend- inni. Líkur bentu til, að flogið mundi með hann til Boston til að fylgjast þar með ástandi hans, þar sem læknar hafa a- huga á að fá hann. En þeir dást mikið að því, hvernig dr. Gilbert hefur tekizt að fá all ar æðar til að mætast. Luna er farinn að ganga um og hin aðfengna hönd er mun dekkri á lit en sú, sem fyrir var. Luna hefur ekki verið sagt frá því, sem gerzt hefur, hann heldur, að það hafi verið gert við hina sködduðu hönd. Lækn ar hafa ekki enn gert það upp við sig, hvenær Julio muni cnað ur til að taka við þeirri vitn- eskju, að hann gangi með hönd af dauðum manni. Þessi læknisaðgerð er talm einsdæmi í handlækningum, að því er segir í fréttinni, og er engin ástæða til að vefengja það. En samt kemur manni í hug ein af undrasögunum, sem gengu af lækningum Jóns Steinssonar Bergmanns norður á Hólum í Hjaltadal fyrir rösir um 200 árum. Sem sé sú saga. að hann hafi átt að skipta um læri á kindum, flutti af svartri á á hvíta og fylgdi sögunni, að báðar ærnar hefðu gerigið snob urlega með mislitan fót. Rússajeppj TIL SÖLU Bifreiðin er yfirbyggð og í góðu standi og þannig traust og örugg ferðabif- reið. Upplýsingar i síma 36171. Vélbátur Til sölu vélbátar af ýmsum stærðum Upplýsingar gefur Axel Kristjánsson, lögfræðingur. t*5¥EGSBANKI ÍSLANDS IBUÐ TIL SÖLU 4ra herb. íbúð ca. 100 ferm. til sölu milliliða- laust. Er kaupandi að 4ra til 5 herb. íbúð með bílskúr. Upplýsingar í síma 36607. S’iurðgrafa til leigu Höfum til leigu hina fjölhæfu J.C.B. 3 skurðgröfu. LOFTORKA s/f Símar 21450 og 41278. RITARASTAÐA er laus til umsóknar á vita- og hafnamálaskrifstof- unni. Sérstök áherzla er lögð á góða vélritunar- kunnáttu. Umsóknir, er greini frá venjulegum upplýsingum (aldur, menntun, fyrri störf o. s. frv.) sendist skrif- stofunni fyrir 1. apríl n. k. Laun samkvæmt kjarakerfi opinberra starfs- manna. Upplýsingar um starfið veittar næstu daga frá klukkan 9—12. Vita- og hafnamálaskrifstofan. T f*M I N N, laugardagur 21. marz 1964. — Hruni® Morgunblaðið segir í leiðara í gær: „Þegar viðreisnarstjórn- in tók við þrotabúi vinstri stjórnarinnar, tókst henni á skömmum tíma að afstýra því hruni, sem við blasti“. Þjóðin öll veit, að vart eru til meiri öfugmæli en þetta. Rétt var það, að vinstri stjórnin fór frá vegna þess að hcnni tókst ekki að ná samstöðu um dýrtíðar- varnir gegn 17 stiga vísitölu- liækkun, sem við blasti. Þetta kallaði Mbl. lirunið á sínum tíma og jafnan síðan. Svo tók „viðreisnar“-stjórnin við. Hún hefur síðan hækkað vísitöluna um rúinlega sams konar vísi- tölustig og giltu í tíð vinstri stjórnarinnar. Þetta kallar hún svo að hafa afstýrt hruni. Sé litið á staðreyndirnar en ekki þessi öfugmæli og líkingunni um „hrunið“ sem yfir vofði 1958, haldið, þá liggur í augum uppi, að hún Iiefur ekki kom- ið í veg fyrir hrunið, heldur steypt sjálfri sér og þjóðinni í miklu stórfelldara lirun, en við vinstri stjórninni blasti. 1 dýrtíðarmálum á „viðreisnar"- stjórnin aðeins Iof skilið fyrir eitt: Hún er ekki lofthrædd. Nm er Framséknar- mönnurn kenni um Þessi hrikalegi dýrtíðarvöxt- ur á vegum „viðreisnarstjórn- arinnar er nú staðreynd, sem stjórnin getur ekki einu sinni á móti mælt, og hún viðurkenn- ir hættuna og bölið, sem af staf ar. En þá grípur hún til þeirra skýringa, að dýrtíðin og verð- bólgan sé Framsóknarflokknum að kenna undir viðreisnar- ’stjórn. Fyrr má nú' rota en dauðrota. Þetta jafngildir enn einu sinni yfirlýsingu stjórn- arinnar um það, að hún hafl alls ekki komið fram megin- , stefnu sinni á fimm ára stjórn- artímabili, því að hún var yfir. lýst sú að stöðva dýrtíðina. Dýr tíðin átti aðeins að vaxa um I® 5 stig sem snöggvast eins og heitið var en síðan lækka aft- ur miklu melra og allt að fær- ast í himnalag. Nú blasir ann- að við. Og nú segir stjórnin að Framsóknarflokkurinn í stjórn arandstöðu hafi eyðilagt þetta allt saman fyrir sér. Ber að Iíta svo á, að stjórnin sú sterka Iog trausta sé að lýsa því yfir, að hans stefna hafi ráðið? Samt vill stjórnin ómögulega segja af sér. Hún vill um fram allt sitja í ráðherrastólunum, þó að hún lýsi yfir annan hvern dag, að stjórnarandstaðan hafi ráð- ið og ráði gangi málanna og eyðileggi allt fyrir sér. Svona er samkvæmnin og heilindin í skrifum aðalstjórnarmálgagns- ins. Mundi það ekki þykja held- ur skrítin ríkisstjórn víðast hvar, sem vildi sitja og sitja lon og don, en lýsa því yfir sýknt og heilagt, að allt gangi öfugt við það, sem hún vill, og stjórn arandstaðan ráði ferðinni í þveröfuga átt við það, sem stjórnin vill? DýrtíSardraugurinn En undir þessum mótsögnum í áróðri stjórnarinnar býr auð- vitað sá sannleikur, að henni er ekki svo Ieitt sem hún lætur. Samkomulag hennar og atlæti við dýrtíðardrauginn er betra en hún hefur á orði. Stjórnin og gæðingar hennar eiga meira að segja góð skipti við þann draug, ábatasöm viðskipti, sem notið er bak við tjöldin. 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.