Tíminn - 21.03.1964, Side 13

Tíminn - 21.03.1964, Side 13
Til sölu 3ja herb. íbúð á I. hæð me'ð sér hita og sér inngangi. Út- borgun um 200 þús. Skúrbygging á eignarlóð m/ vatni, frárennsli og raf- magni. Mætti innrétta sem íbúð. 3ja herb. risíbúð í Kópavogi. Útb. 150—200 þús. Verzlunarpláss í Vesturborg- inni. Fokheld liæð í Austurborg- inni, 6 herb., tvöfalt gler og kynditæki. Sanngjarnt verð. Húseign á' eignarlóð, I. hæð, 180 ferm., efri hæð 90 ferm. Stór bílskúr. Góð lán áhvíl- andi. Hús í Fossvogi á 2ja ha. erfða- fesfulandi. Einbýlishús í Silfurtúni á einni hæ'ð, 3 svefnherb. tvær stof- ur, eldhús, bað, geymsla og bílskúr. Girt og ræktuð lóð. 5 herb. hæð við Rauðalæk, scr inng. 5 herb. efri hæð við Skafta- hlíð. Ný efri hæð með öllu sér í Kópavogi. Hæð og ris, alls 7 herb., ásamt verkstæðishúsi í Kópavogi. Efri hæð og ris, tvær íbúðir, getur verið ein 10 herb. íbúð. 5 herb. íbúð í sambýlishúsi í Vesturbænum, endaíbúð. Sja herb. íbúð í tvíbýlishúsi við Hvassaleiti. Jarðir í nærsveitum Rvíkur. Rannveig Þorsteinsdóttir, hæstaréttarlögmaSur Laufásvegi 2. Sími 19960 og 13243. Höfum kaupendur með miklar útborganir að 2ja —3ja og 4ra herb. íbúðum í smiðum eða nýjum. 2ja tll 3ja herb. íbúðum í vest- urborginni. 4 til 5 herb. íbúðum, helzt í vesturborginni eða nálægt miðborginni. 4—5 herb. íbúð á Teigunum eða nágrenni. 3—4 herb. íbúð í Laugarnesi eða við Kleppsveg. 3ja til 4 herb. kjallaraibúðum og risíbúðum. 2—3—4 herb. íbúðum í Kópa- vogi. Til söiu 2 herb. íbúð við Langholtsveg í góðu standi, 1. veðréttur laus. 3 herb. risíbúð við Mávahlíð. 3 herb. nýleg kjallaraíbúð við Heiðargerði, selst aðeins í skiptum fyrir hús úr steini eða timbri í borginni eða nágrenni. Timburhús, járnklætt, hæð og ris á steyptum kjallara við Öldugötu, eignarlóð, laus 14. maí. Lúxusíhúð í Þingholtunum á tveim hæðum um 100 ferm. hvor hæð. Timburhús, 5 herb. íbúð við Suðurlandsbraut. Útborgun luO til 150 þús. kr. 2ja herb. íbúð við Fálkagötu, útborgun 75 þús. Múrhúðað timburhús, 3ja herb. íbúð, selst til flutnings. Góð lóð í nágrenni borgar- innar getur fylgt. Mjög gott verð. H AFN ARF JÖRÐUR: 3 fbúðir uppsteyptar í Kinnun- um* í og 3 herb. AIMENNA FASTEIGH AS&LAN UNPARGATA 5 SÍMI 211B0 HJALMTÝB PÉTURSSON T í M I N N, laugardagur 21. marz Jaröar- afnot (afgirt tún og beitiland), ásamt góðu húsnæði fyrir sauðfé og fugla, er til leigu frá 1. maí, skammt frá Reykjavík. Skilyrði fyrir leigu er að hirða ' nokkrar kýr yfir vetrarmánuðina. — Þeir sem vildu sinna þessu, sendi nöfn sín í lokuðu umslagi auðkennt: ,,Fjáreign“, til afgr. Tím- ans fyrir marzlok. Keflavík Fermingarföt Fermingarslaufur F ermingarskyrtur Kaupféíag Suöurnesja Vefnaðarvörudeild Lögfræðiskrifstofan Iðnaöarbitnka- húsinu, IV. hæö Tómasar Arnasonar og Vilhjá ms Arnasonar TIL SÖLU 3ja herb. íbúð í smíðum í Kópavogi 4ra herb íbúð við 'yjörvasund 4ra herb íbúð tilbúin undir tréverk í Kópa- vogi. 3ja herb. risíbúð við Lindargötu 3ja herb. íbúð í Skerjafirði Einbýlishús á Grimsstaðaholti. Einbýlishús í Kópavogi Tvíbýlishús við Óðinsgötu 7 herb. íbúðir í Háaleitishverfi tilbúnar undir tréverk. 2ja herb. íbúð á Seltjarnamesi og Skerjafirði. Vægar út- borganir og góð lán áhvíl- andi. 4ra herb. risíbúð í Kópavogi. Lóð undir tvíbýllshús í Kópavogi. 3ja herb. sér íbúð í tvíbýlishúsi i Kópavogi. — Harðviðarinnrétting og teppi á stofu. Laus 14. maí. f SMÍÐUM 3ja og 4ra herb. íbúðir á góðum stöðum í Kópavogi. Útborganir frá 100 þús. Endurskoðunar- og fasteignastofa Konráðs Ó. Sævaldssonar Hamarshúsinu við Tryggvagötu 5 hæð (lyfta) Símar 20465—24034 og 15965 1» Sumardvö! Óska eftir sumardvöl fyrir tvodrengi 8 og 9 ára. Meðgjöf greidd, ef óskað er. Upplýsingar í síma 51381 eftir kl. 5. KVIINNING H'ramhalo at 8 síðu Fullyrða má að endurreisn Þor- lákshafnar sem útgeröarstöðvar byggðist einmitt á sjósóknurum. eins og Svavari o.g hans líkum. Sjó mönnum sem aldir voru upp við brimöldu og hafnleysu þessarar strandar, innfæddum héraðsmönn- um. Hæfni Svavars sem stjórnanda á sjó var með eindæmum mikil. Að mínu áliti hafði hann frá- bærlega gott vit á sjósókn og veiðiskap, og þótt mörgum þætti oft nokkuð djarflega sótt og t:l séu af því margar sögur, hlýtur vitið að hafa flotið með, því að farsældin fylgdi honum alltaf. Mér er Ijúft að minnast 15 ára samstarfs okkar Svavars. Ms'ð sínum góðu hæfileikum á sínu gagnmerka starfssviði lagði hann svo drjúgan skerf til uppbyggingar Þorlákshafnar að seint mun fyrn- ast; samstarfsmönnum sínum og samborgurum til heilla. Svavar var einn af frumbyggj- um hinnar nýju Þorlákshafnar og reisti sér eitt af fyrstu íbúðarhús- um hér. Til marks um álit Þorláks hafnarbúa og traust til hans má benda á einróma kjör hans sem eina fulltrúa staðarins í hrepps- nefnd Ölfushrepps. Eins og svo margir Stokkseyringar, hafði Svav ar heitinn yndi af söng og þegar söngfélag var stofna'ð hér, var hann einn af stofnendum þess. Söngfélagar flytja honum hinztu kveðju með kæru þakklæti fyrir margar ánægjustundir. Þessi fátæklegu kveðjuorð lýsa ei nema litlu einu af stuttum kafla ævi Svavars enda verður þar um betur fjallað af hæfari mönnum en ætlun mín er að þakka góðum samferðamanni og félaga ágæta samfýlgd um visst æviskeið. Gagn merku lífi ágæts íslenzks alþýðu- manns er lokið hér á jörðu og byggð hans vottar minningu hans virðingu sína. ag ættmönnum hans samúð í sorg. Aldraðri móður hans flyt ég innilegar samúðar- kveðjur. Siðustu lendingu Svaras er lok- ið. Þeir sem hann þekktu vita að sú lending tókst vel. Þorlákshöfn, 18.3. 1964. Th.B. GATNAGERÐARÁÆTLUN Framhald a-f 7 síðu. framkvæma 1963, og enn síður allt, sem átti að gera 1964. Frá árinu 1963 skal nefnt sem dæmi: Laugarnesvegur frá Laugaveg að Sundlaugavegi, sem áætlað j var, eftir þáverandi verðlagi, að. •myndi kosta rúmlega 4 millj.j Þá skal og upplýst, að ýmis vand ’ kvæði eru talin vera á, að halda sér við fyrri samþykktir um aðj fullgera STAKKAHLÍÐ frá Ból- staðarhlíð að Háteigsveg og HÁ- TEIGSVEG frá Lönguhlíð að ■ Stakkahlíð. Sýnir uppdrátturinn og tillögur, að ekki er ætlazt til þessa. Er þó brýn nauðsyn að Ijúka þessu verki. Við þessa götukafla eru tveir fjölmennir skólar, Kennaraskólinn og Sjómanna- skólinn, og ein kirkja fullbyggð og önnur í smíðum. Það hefir áunnizt, síðan tillag- an kom fram, að borgarráð legg- ur áherzlu á, að hraðað verði j fullnaðarfrágangi Stakkahlíðar. \ Frá mínum sjónarhól átti nú Háteigsvegskaflinn að vera með í þeirri bókun borgarráðs. Ög á- kveðnar raddir voru uppi í borg- arráði, um að meiri áherzlu bæri að leggja á, að fullgera Stakka-: hlíð norðan Miklubrautar, en sunnan. Áætlun 1962 og 1964. Hvað ráðamenn borgarinnar j telja sig lítið bundna við fyrri samþ. kemur e.t.v. skýrast fram með því að bera saman heildar-j fjárframlag til vissra gatna eða hverfa Samkv. áætluninni 1962, skyldi framlag á árinu 1964 til að fullgera götur í Teigunum, Laug- arneshverfi og neðst á Klepps. j vegi nems samt. kr. 25,5 millj.— En í hinni nýju áætlun er þessi fjárhæð lækkuð niður í kr. 11 millj. og 150 þús. eða m.ö.o. | lækkað um meira en helming að krónutölu og EKKI HAFA NÚ KRÓNURNAR STÆKKAÐ SÍÐ- AN 1982! Hér eru algerlega felld niður( framlög til að gera t.d. þessar götur: Reykjavegur kr. 3,2 millj. Laugalækur kr. 2.0 millj. Kleppsvegur kr. 2.5 millj. Hluti af Laugarnesvegi kr. 2,5 millj. og lækkað framlag til annarra gatna verulega. Vonbrigði. Það veldur miklum vonbrigð- um hjá þeim borgarhúum, sem eiga heima við malar- og leir- götur, sem búið er að ákveða að malbika á vissum tíma, þegar það bregst og framkvæmd verks- ins bíður í eitt, tvö eða þrjú ár. En í stað þess eru allt aðrar göt- ur fullgerðar. ÞAÐ ER VONT AÐ ÞOLA FORINA OG RYKIÐ, EN ÞÓ VERRA, EF EKKI MÁ TREYSTA ORÐUM OG SAMÞ. FORYSTUMANNA BORGAR- INNAR, sagði einn aldraðurj borgarbúi við mig nýlega. — Við þá breytingu og frestun á að framkvæma fyrri gatnagerðar- áætlun, verða ýmsar aðrar götur fullgerðar fyrr en vonir stóðu til. Er það að vissu marki á-j nægjulegt fyrir þá, sem búa við þær og þurfa mest að nota þær.! Og það ei erfitt að vera á móti malbikun, hvar sem hún er. En meðan verið er að ná hala sín-j um, er mikil ástæða til að líta á; aldur byggðarinnar. Biðtími' þeirra, sem búnir eru að þolaj forargöturnar í 10 til 20 ár eða[ lengur, er þegar orðinn ærið langur. Tek ég í þessu sambandi| undir mál borgarfulltrúans um þörf á að malbika Holtin, sagðij Björn. Alvörumál. Hér hefir verið brugðið ljósi á það fyrirbæri, hve lítið er hirt um að halda sig við fyrri samþykktir um gatnagerð/ Og þetta er því miður stað- reynd, sem ekki verður hrakin. En það kann að verða bent á, að í heildaráætluninni frá 1962, séu fyrirvarar um möguleika borgar- stjórnar, til að breyta röð fram- kvæmdanna Alveg rétt, það eru fyrirvarar! Og það geta verið þær ástæður fyrir hendi, að nauðsyn beri til, að fresta fram- kvæmdum. EN ÞAÐ Á AÐEINS AÐ VERA UNDANTEKNING. Einnig má spyrja: Hvers vegna að ‘samþykkja vissa gatnagerð á vissum tíma. ef áætlunin um verkið er svo ótraust, að ekki er á að byggja? Á það ber að leggja áherzlu, að hvað sem öllum fyrirvöruni liður, — beri hinni virðulegu borgarstjórn Reykjavíkur, að fara mjög gæti'lega í að samþ. áætlun um að fullgera vissair göt- ur á ákveðnum tíma, en sætta sig síður við, að það sé ekki gert, sem samþykkt er, sagði Bjöm að lokum. Óskar Hallgrímsson tók einnig til máls og gagnrýndi fram- kvæmd áætlunarinnar nokkuð, einkum það, hve úr hófi dregst að ljúka malbikun Holtanna svo nefndu, einkum Stórholts. Borgarstjóri svaraði gagnrýni Björns á þá lund, að erfitt væri að samræma það að nýta vélar, vinnuafl og möguleika til þess að ljúka verkum í því að fylgja áætlun til langs tíma, nákvæm- lega, og væri það orsök þess, auk skorts á vinnuafli, að áætlunin hefði farið nokkuð úr skorðum. GEGN BRUNATRYGGINGU Framhald af 7. síðu. hætti bæði í borgarstjórn og annars staðar án slíkrar út- færslu, enda ekki eðlilegt að ætlast til hennar og kröfur um slíkt harla sjaldan settar fram. í þessu máli, eins og mörgum öðrum væri að sjálfsögðu um ýmsar leiðir að ræða, og mundi þeim mönnum, scm Alþingi eða ríkisstjórn fæli að annast und irbúning málsins ekki van- treystandi til þess að meta þær og velja og hafna. Mætti t. d. benda á svipaða aðferð og höíð er við tryggingu húsa og einn ig að skylt væri að tryggja inn bú fyrir ákveðna lágmarksupp- hæð, og fleiri leiðir væru til. Lægi í augum uppi, sagði Ein- ar, að fráleitt væri að vísa þessu mikla og viðurkennda hagsmunamáli almennings frá á þessum tylliforsendum. Hér væri lagt til, að málinu væii vísað til Alþingis, en þar hefðu stuðningsmenn borgarstjórnar meirihlutans meginráð máia sem stæði, og væri kynlegt, ef meirihlutinn í borgarstjórn van treysti samflokksmönnum sín- um á Alþingi og í ríkisstjórn til úrlausnar málsins og hygð- ust vísa frá máli, sem þeir hafa Iýst yfir fylgi við, með þeim rökum, að Framsóknar- menn bentu ekki á ákveðnar framkvæmdaieiðir. Birgir ísleifur og borgar- stjóri héldu enn fast við síu fyrri rök fyrir frávísun og töldu sig ekki geta samþykkt tillöguna nema vita nokkum veginn fyrir hvaða framkv - leið ætti að fara, og töldu meira að segja óvirðingu við Alþingi að leggja málið fyrir það með þessum hætti- Alfreð Gíslason benti meðal annars á, hve óvenjulega meíri hlutinn færi að við frávísuu þessa máls. Venja hans væ»i sú, er hann vildi koma fyrir góðum málum andstæðinga, að vísa þeim til borgarráðs eða nefnda, þar sem unnt væri að svæfa þau í kyrrþey. En hér væri um áskorun eiria að ræða og því eðlilegt, að borgarstjórn fengi að greiða atkvæði um til- löguna sjálfa og efni hennar cn ekki að vísa henni frá. Lagði hann til, að þessu mikilvæga máli væri vísað til 2. umræðu og borgarráðs í millitíð. Björn Guðmundsson taldi. að fráleitt væri annað, en borgarstjórn fengi að tana hreina afstöðu til málsins, svo að fram kæmi, hvort menn væru með því eða móti, en það væri léleg röksemd Sjálfstæð- ismanna að vilja ekki vfsa mál inu til sinna manna á Alþingi. Kvaðst hann undrandi á þessari afstöðu með hliðsjón af því, sem áður væri fram komið. Augljóst virtist, að stuðningur við málið efnislega væri ekki eins heill og látið hefði verið. og undir mundi búa óskin um það, að ekkert væri gert í málinu. Var frávísunartillagan síðan samþykkt með 9 atkv. gegn 4. 13

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.