Tíminn - 21.03.1964, Side 16
Laugardagur 21. mari 1964
68. tbl. 48. árg-
„Það var eins og
borðið spriklaði77
MÆLDI
1 KIPP
ÍÁR-
MÚLA
HF-Reykjavík, 20. marz.
í morgun klukkan hálfátta varð
hcimilisfólkið í Ármúla vart við
vægan jaillskjálftakipp. Vaknaði
Sigurður bóndi og allt hcimilis-
fólkið i cfra bænum við kippinn.
Jarðhræring þessi mun samt ekki
hafa komið fram á mælinum, og
samkvæmt frásögn Sigurðar
bónda, þá cr mæ'lirinn orðinn vita
gagnslaus.
Guðmundur Pálmason kom vest
ur með mælinn fyrir nokkrum
dögum og með sér hafði hann sér-
Framhald á 15. siðu.
Mun veöur-
blíöan haldast
HF-Reykjavík, 20. marz.
Háþrýstisvæðið yfir Grænlandi, ;
sem Tíminn skýrði frá i gær, virð-
ist nú aðeins hafa breytt um ■
stefnu, og er því von til þess, að
góða vcðrið haldist eitthvað leng- i
ur. Eitthvað mun samt hafa kóln- '
að í dag, og snjóaði á Hornströnd-
um.
Hitinn : Reykjavík í dag er eins !
og undanfama daga, 7—8 stig, og
er vonandi að svo verði fram yfir
páska. Annars fengum við þær
upplýsingar á Veðurstofunni, að
páskahretið þurfi alls ekki að
vera óbrigðult, því að það stend
ur alls ekki í sambandi við nein
náttúrulögmál. Helzta ástæðan
fyrir því, að oft gerir vont veður
í kringum páskana er sú, að
veðrabrigði eru ætíð mest á vorin.
— sagði Guðmundur á Saurum um átök sín við borðið
PJ-SKAGASTRÖND. — KJ-REYKJAVÍK, 20. marz.
PÁLL JÓNSSON, skólastjóri á Skagaströnd, fréttaritari Tím
ans fór í dag út að bænum Saururn þar sem undur mikil hafa
verið að gerast undanfarna sólarhringa. Hafði Páll einnar og
hálfrar stundar viðdvöl á bænum ásamt Jóni syni sínum. Gest
kvæmt hafði vcrið hjá þeim hjónum á Saurum í dag, Guðmundi
Einarssyni og Margréti Benediktsdóttur, en enginn aðkomu
manna varð var við neitt undarlegt þar á bænum.
GUDMUNDUR EINARSSON
á Saurum
Hafa
Páll Jónsson sagði svo eftir
Guðmundi:
Undrin byrjuðu 18. marz s. 1
kl. 1,20, og vaknaði Guðmúndur
þá við að borð, sem stendur út
við stofugluggann, fór á hreyi-
ingu og einn metra fram á gólf-
ið frá glugganum. Borð þetta
er gamalt og upprunalega ve!
gert, með sporöskjulagaðri
plötu og renndum fótum. Borð
þetta keypti Guðmundur hjá
Sigurði Sölvasyni kaupmanni á
Skagaströnd fyrir allmörgum ái
um. Á miðvikudaginn kom svo
hreyfing á borðið eins og fyrst.
og var þá settur .stóll út að
glugganum. Stó! þennan er
hægt að leggja saman, og cr
hann ekki mjög veigamikill. —
Þeyttist stóllinn fram á rrmt
stofugólfið á miðvikudaginn oa
brotnaði.
Á fimmtudaginn var húsfreyj
an Margrét Benediktsdóttir a’i
skilja mjólk í búrinu, og hafði
hún byttu með mjólk í á borði
hjá sér. Allt í einu kom hreyf-
ing á byttuna og kastaðist hún
í gólfið og fór öll mjólkin úr
henni. Það einkennilega var tð
konan fann ekki neina óeðli-
lega hreyfingu. hvorki á gólf-
inu né borðinu Aðeins byttan
steyptist í gólfið Var því ekki
um að ræða jarðskjálfta í dag
voru þessi undur aftur á ferð-
inni um kl- þrjú og þá var þa'ð
Si-gurborg, sem varð vör við
Framhald á 15. síðu.
Sögðust ætla
að kveðast á
við „draugsa“
Vikublaðið Fálkinn gerði út
ieiðangur til þess að kveðast
á við drauginn á Saurum. Það
er Jökull Jakobsson, rithðfund-
ur og blaðamaður hjá Fálkan-
um sem ætlar að kveðast á við
hann og sér til aðstoðar hefur
Framh. á bls. 15.
ekki o rðið vör við
BÓ-REYKJAVÍK, 20. marz.
BLAÐIÐ átti tal við Sigurborgu heimasætu á Saurum kl. 3 í
dag, Guðmundur bóndi var þá á sjó og mæðgumar, Sigurborg og
Margrét heima í bænum.
Símtalið var á þessa leið:
— Hvað gerðist í nótt?
— í nótt voru engar hrær-
ingar, en borð í eldhúsinu færð
ist til í morgun, skápur féll
um koll fyrir klukkutíma og
rétt á eftir fór mikið leirtau
fram úr skáp í búrinu.
— Hvar stóð skápurinn sem
féll um koll fyrir klukkutíma?
— í eldhúsinu.
— Hvar varst þú stödd þeg-
ar skápurinn féll?
— í eldhúsinu.
— Voru fleiri í eldhúsinu
þá?
— Eg var þar ein.
— Horfðir þú á skápinn í
fallinu?
— Nei, ég heyrði skellinn
fyrst.
— Var nokkur í búrinu, þeg-
ar leirtauið datt úr skápnum
þar?
— Nei, þar var enginn inni,
en við mæðgurnar vorum í bæn
um.
— Var skápurinn í eldhúsinu
festur eða laus?
— Hann var ekki festur.
— Skemmdist nokkuð í hon
um?
— Nei, það var ekkert í hon-
um, sem gat skemmzt.
— Brotnaði mikið leirtau í
búrinu?
— Já, þar brotnaði töluvert.
— Gerðist ekkert annað í
morgun?
— Nei.
—Vísir segir, að rúm hafi
farið af stað kl. 9 í morgun, að
móðir þín hafi þá legið í því
og þú verið inni hjá henni.
Þetta er haft eftir föður þín-
um.
— Þetta er einhver vitleysa.
— Talaði blaðamaður Vísis
ekki við föður þinn í morgun?
— Það eru svo margir bún-
ir að hringja og þetta hlýtur
að hafa misskilizt í símanum.
— Er móðir þín inni?
— Já, en hún er orðin þreytt
á að tala í símann.
—Viltu spyrja hana. hvort
rúmið hafi hreyfzt með hana
í morgun?
— Já . . .
(Sigurborg fór úr símanum
og kom aftur eftir litla stund).
— ... hún segir, að það hafi
aðeins hreyfzt.
— Hvar varst þú, þegar sú
hreyfing átti sér stað?
— Kannski í eldhúsinu,
kannski úti
— Hvenær byrjuðu þessar
hræringar?
— Aðfaranótt fimmtudags
minnir mig
— Hvað hreyfðist fyrst?
— Borðið í stofunni.
— Er sofið í stofunni?
— Mamma og pabbi sofa þar.
— Hvar stóð þetta borð?
—Það stóð við gluggann og
hreyfðist út á gólf klukkan að
ganga 2 um nóttina.
— Er þetta þungt borð?
— Nei, það er ekkert þungt.
— í blöðunum í dag stendur,
að borðið sé þungt og talsvert
átak þurfi til að hreyfa það?
— Nei. þetta er ekki þungt
borð.
—Hvai sefur þú í bænum?
— í næsta herbergi við stof-
una.
— Er opið á milli?
— Þegar dyrnar eru opnar.
— Hvar sefur bróðir þinn?
Framhald á 15. sí5u
HótelSagafullgerð
EJ-Reykjavík, 20. marz
— Við teljum, að nú sé Hótel
Saga fullgerð — sagði Þorvaldur
Guðmundsson hótelstjóri, á blaða
mannafundi, sem hann og bygging-
arnefnd Bændahallarinnar boðuðu
til á tíótel Sögu í dag. — Strax i
kvöld verður nýi bannn sem feng-
ið hefur nafnið Mímisbar, tekinn
í notkun, og má þá segja. að smíði
Bændahallarinnar sé lokið, þó að
sumar deildir hótelsins séu ekki
leknar til starfa. svo sem baðstof-
an, sem Jón Ásgeirsson mun reka.
snyrtistofan, sem Fjóla Gunnlaugs
dóttir mun annast um, og rakara
stofan.
Mímisbar tekur um 100 manns,
þar af um 80 í skti, og er lítið
dansgólf í miðjum barsalnum, sem
er mjög vandlega gerður, eins og
allt annað á Hótel Sögu. Barinn
verður opinn á hverju kvöldi alla
vikuna frá kl. 7, en auk þess verða
þar kaffiveitingar fyrir gesti hót-
elsins í venjulegum kaffitímum á
daginn.
Talið er líklegt, að Bændahöll
in kosti fullgerð með öllu innbúi
um 125—130 milljónir króna.