Tíminn - 07.04.1964, Page 2

Tíminn - 07.04.1964, Page 2
Mánudagur, 6. apríl. NTB-Washington. — Douglas MacArthur, bahdaríski hers- höfðinginn heimsfrægi, lézt á Walter Reed-sjúkrahúsinu í Wáshington á sunnudaginn. Hanri var 84 ára gamall. NTB-Genf. — Edward Heath, iðnaðar- og verzlunarmálaráð- herra Breta, lagði í dag fram á viðskiptamálaráðstefnu S. Þ. í Genf áætlun í 10 liðum í þvi skyni að auka hagvaxtarmögu- leika vanþróaðra landa. NTB-Nicosíu. — Seint í kvöld náðist samkomulag um vopnahlé í þeim fimm bæjum á Kýpur, sem barizt hefur ver- ið í upp á síðkastið. NTB-Róm. — Eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun Ítalíu — Nastri Dargento — voru í dag veitt hinni umdeildu kvik- mynd Federicos Fellinis 8V2. Verðlaunin eru alls sjö og veitt árlega. NTB-Washington. — Sendi- herra Frakka í USA, Herve Alphand, sagði í gær, að NATO þyrfti að breytast. NTB-Monaco. — Paul Henry Spaak, utanríkisráðherra Belgíu, var skyndilega skorinn upp við botnlangabólgu á sunnudagsnóttina, en liggur nú á sjúkrahúsi Graces furstaynju í Monaco og líður vel. NTB-New Delhi. — Nehru forsætisráðherra Indlands sagði í dag, að indverska stjórnin myndi gera sitt bezta til þess að vinna aftur land- svæðin í Ladakh í Kashmír, sem Rauða-Kína hrifsaði í sín- ar hendur. NTB-Frankfurt. — Það lá við uppþoti í réttinum, sem fer með Auschwitz-málið í dag, þegar einn af hinum ákærðu stökk upp og reyndi að ráðast á eitt vitnið. NTB-Tokíó. — Georges Pompidou, forsætlsráðherra Frakka, kom í dag í vikulanga opinbera heimsókn til Tokíó. Stokkhólmi. — Sænskir lækn ar fluttu í dag nýra úr föður og yfir í son. Stóð aðgerðin, sem tókst í alla staði vel, í fjóra tíma og er hin fyrsta sinn ar tegundar þar í landi. NTB-Napoli. — Pieta, hin heimsfræga marmarastytta Michelangelos, seni sýnir Maríu mey með líkama Krists í fang- inu, var í dag send með ítalska skipinu Critoforo Colombo frá Napoli til New York, þar sem hún verður til sýhis á heims- sýningunni. NTB-Washington. — John- son, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær, að USA væri á góðri leið með að leysa Pan- amadeiluna. Hanri heftlr skip- að Jack Vaughan sendiherra USA í Panama. NTB-Buenos Aires. — Tvær járnbrautarlestir rákust í dag á fyrlr utan Buenos Aires.og minnst 10 létu Ufið. LÆKNAVERKFALL BELGÍU VEKUR ÓLGU NTB—Brussel, 6. apríl. i til þess að 15 mánaða gamalt bam Tveir belgískir 'læknar voru hand dó. Handtakan er f beinu sam- teknir í dag í Herentals við Tum- bandi við læknaverkfallið, sem hount í Norður-Belgíu ákærðir fyr vakið hefur mikla reiði Belga og ir að hafa sýnt kæruleysi, sem varð ' skapað alvarlegt ástand í landinu. FRAMKVÆMDIR k STOKKSEYRI BT-Stokkseyri KJ - Reykjavík. Aflabrögð hjá Stokkseyrarbát- um hafa verið góð í vetur, og mikil vinna við nýtlngu aflans. Ný frystihúsbygging hefur fyrir nokkru verið tekin í notkun á Stokkseyri. Árshátíð barna- og unglingaskólans var haldin fyrir nokkru með glæsibrag. Rófna- og kartöfluakrar bíða nú fullunnir, og innan skamms verður farið að sá í þá. Fjórir bátar róa frá Stokkseyri i vetur, hefur afli hjá þeim verið góður og landlegudagar fáir. Heild araflinn á vertíðinni er kominn upp í 1413 tonn. Mestan afla hefur Hólmsteinn borið á land, 433 tonr., skipstjóri er Óskar Sigurðsson. Þá kemur Bjarni Ólafsson með 410 t. Hásteinn með 382 tonn og Fróði 188 tonn. Nýrri frystihúsbyggingu er nú að mestu lokið á Stokkseyri, og vinna hafin þar fyrir nokkru.,Við tilkomu þessarar nýju byggingar skapast gjörbreytt aðstaða við nýt irigu aflans. Mikill hluti hans fer PILTURINN FANNST KJ-Reykjavík 6. apríl í fyrri viku var lýst eftir 17 ara gömlum pilti úr Njarðvíkum, vegna þess að ekkert hafði heyrzt frá honum í fimmtán daga. Pilturinn ér í góðu gengi í Vest mannaeyjum, og vinnur þar vertið arstörf hjá Fiskiðjunni, þjóðarbúi voru til hagsældar. , til vinnslu í frystihúsinu, en hitt | er saltað og hert. Langur vinnu- ' dagur hefur verið að undanförnu ! hjá þeim er vinna við frskinn, og | er þar á meðal margt aðkomu- 1 manna. Á s. 1. ári lét af störfum fram kvæmdastjóra við frystihúsið Guðni Einarsson, er gegnt hefur þeirri stöðu í 30 ár. Vigfús Þórð arson áður verkstjóri hjá Meitl j inum í Þorlákshöfn hefur fyrir nokkru tekið við framkvæmda- stjórn frystihússins, og skrifstofu stjóri er Þórður Böðvarson. Verk stjórar eru þeir Sigurfinnur Guðnason og Haraldur Júlíusson. Árshátíð barna og unglingaskól ans var haldin 22. marz, og var skemmtunin tvítekin. Aðal- skemmtiatriðið var leikritið Haþpið eftir PáVJ. ÁrdrilJ'Og'þótti I leikurinn takast '‘Veb,''Mjög'>'nvar vandað til alls undirbúnirígs að skemmtuninni, og lögðu skóla- stjórinn Friðbjörn Gunnlaugsson og kennararnir Sigríður Sigurðar dóttir og Erlingur Steinarsson á sig mikla vinnu við undirbúning- inn með unglingunum. Árshátíð- argestir skemmtu sér hið bezta, og rómuðu mjög allt hið óeigin- gjarna starf, sem lagt hafði verið í undirbúninginn. Á s. 1. vori voru hafnar endur- bætur á Stokkseyra-rkirkju og hef ur síðan stöðugt verið unnið við kirkjuna. Endurbótunum er nú senn lokið og hefur meðal annars verið sett upp í kirkjunni vand- Framhald á 15. síðu. Læknarnir tveir höfðu verið skipaðir af læknafélaginu til þess að inna af hendi neyðarþjónustu, og segja yfirvöldin, að þeir hafi slórað í marga tíma, áður en þeir komu að líta á barnið, sem var flutt í sjúkrahús, þar sem það lézt skömmu síðar. Talið er, að fleiri menn hafi látizt vegna verkfalls- ins, en rannsóknir lögreglunnar hafa þó ekki getað sannað að lækn arnir berí ábyrgðina. Ólgan í .þjóðinni vegna lspkna- verkfallsins vex stöðugt. Átta þús- und verkamenn gerðu tveggja tíma verkfall í dag til þess að taka þátt í fjöldafundi, sem krafðist þess, að yfirvöldin grípi þegar inn í og geri enda á verkfallíð. Óstaðfestar fregnir herma, að sum- ir yngri læknar séu orðnir pen- ingalausir og hafi tekið upp störf að nýju í laumi, en læknasamband- ið neitar því algjörlega. Minnst 95%einkalækna taka þátt í verk- fallinu, og þeir 2.000 tannlæknar, sem eru í landinu. taka einnig þátt í því. Og í dag tilkynntu augnlæknarnir, að þeir myndu taka þátt í verkfallinu, ef læknarn ir yrðu fýrir einhverjum sköðum. Verkfallið hefur skapað alvar- iegt ástand í Belgíu. Rauði Kross- inn hvatti í dag almenna borgara til þess að gerast sjálfboðaliðar sem burðarmenn og bílstjórar við sjúkrabííana, því að allir, sem þurfa læknis við, leita til sjúkra- húsanna, sem þegar eru orðin troðfull. Læknar og hjúkrunar- FRA HÚSAVlK ÞJ-Húsavík, 6. apríl. Á sameiginlegum fundi Verka- kvennafélagsins Vonar og Verka mannafélags .Húsavíkur í gær voru bæði félögin sameinuð í eitt félag, sem nú heitir Verka- lýðsfélag Húsavíkur. Stjórn var kosin, og hana skipa formaður, Sveinn Júlíusson, varaformaður Þráinn Kristjánsson, ritari Hákon Jónsson, gjaldkeri Gunnar Jóns- son og meðstjórnendur JónasBjjne diktsson, Guðrún Sigfúsdóttirpog María Aðalbjörnsdóttir. Á fundinn mætti Snorri Jóns- son framkvæmdastjóri Alþýðusam bands íslands. konur vinna dag og nótt og eru þegar orðin yfir sig þreytt Seint í kvöld tilkynnti Lefevre forsætisrúðherra, að ríkisstjórnin hefði kallað heim tvæn hjúkrunar- sveitir og alla herlækna sína í V- Þýzkalandi. Orsök verkfallsins eru ný heil- brigðislög, sem þjóðþingið hefur samþykkt Segja læknarnir, að lög- ín takmarki frelsi þeirra, afnemi þagnarskyldu þeirra og lækki verulega laun þeirra. Afmæli NATO var hátíðlega minnzt á Kefla- víkurflugvelli TK-Reykjavík, 6. apríl. 15 ára afmælis Atlantshafsbanda lagsins var hátíðlega minnzt á Keflavíkurflugvelli á laugardaginn. Kl. 12 á hádegi fór fram fánahyíl ing og voru fánar íslands, Banda n'kjanna og Natos dregnir að hún en þjóðsöngvar íslands og Banda ríkjanna leiknir af lúðrasveit á undan. íslenzkir lögregluþjónar drógu upp fána íslands, hermenn úr landgönguliðasveitum flotans tírógu upp fána Bandaríkjanna og fiugmenn drógu upp fána Nato. Að lokinni fánahýllingunni var gest- um, blaðamönnum og sendiráðs- fólki, boðið til hádegisverðar og að honum loknum var þeim sýnd varnarstöðin og tæki hennar, m. a. eftirlits- og aðvörunarkerfið, radar slöðin í Rockville og hið fullkomna stjórnarherbergi í flugskýli flot- ans. Ákveðið er að fánarnir þrír verði drengir að hún fyrir framan flugstöðvarbygginguna á hverjum morgni héðan í frá, en fram til þessa hefur það ekki verið gert nema endrucn og eins við sérstök tækifæri. Þorvaldur GuSmundsson, 'HBskuldur Ólafsson, Magnús Bryniólfsson og Egill Guttormsson, bankaráð og bankastjóri Verzlunarbankans. Verzlunarbankinn bætir við sig húsnæði Aðalfundur Verzlunarbanka fs- lands h.f. var haldinn í veitinga- húsinu Lídó laugardaginn 4. apríl s. 1. Egill Guttormsson, stkpm., for- maður bankaráðs, flutti skýrslu um starfsemi bankans á liðnu ári. Kom fram í henni að öll starf- semi bankans hafði aukizt á ár- inu. Inrilán í bankanuln hækkuðu á árinu um 68,1 milljón króna og námu heildarinnstæður í bankan- um 387,4 milljónum króna í lok síðasta árs. Á síðast liðnu ári festi bankinn kaup á húseigninni Bankastræti 5, en starfsemi bank- ans hefur verið rekin í því húsi undanfarin 3 ár. Mun starfsaðstaða bankans batna verulega, er viðbót- arhúsrými verður tekið í notkun á þessu ári. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri las upp reikninga bankans og gerði grein fyrir einstökum liðum þeirra. Bankinn starfrækir nú 2 útibú, í Reykjavík og Keflavik. Starfsmenn voru alls 50 í lok síð- asta árs. í bankaráð voru endurkjörnir þeir Egill Guttormsson, stórkaup- maður, Magnús J. Brynjólfsson, kaupmaður og Þorvaldur Guð- mundsson, forstjóri. Varamenn voru kjörnir Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson, stórkaupmaður, Björn Guðmundsson, kaupmaður og Haraldur Sveinsson forstjóri. End urskoðendur voru kjörnir Sveinn Helgason, stórkaupmaður og Jón Helgason, kaupmaður. Fundurirín var fjölsóttur, en hann sátu hátt á þriðja hundrað hluthafar. 2 T í M I N N, þriðiudaninn 7. apríl 1964

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.