Tíminn - 07.04.1964, Síða 4
JERRY LUCAS OSCAR ROBERTSON
HVOR SAMSTÆOAN £R BETRI?
Elgin Baylor og Jerry West, eða Oscar Robertsson og Jerry Lucas?
og reyndari, en ég mundi samt
taka Robertson-Lucas vegna
boltameðferðar þeirra og hæð
ar, (Lueas er 2.05, Robertson
og Baylor eru 1.96, og West er
1.89).
.Sjálfur þjólfari Cincinnati
segir: „Ég heid að Lucas ver.ii
aldrei góður skotmaður, en
hann er frábær skipuleggjan
varnarleikmaður og „rebound
er“. Oscar virðist ekki gera
neitt stórkostlega. En horfið
bara á hann. Takið eftir mjúku
hreyfingunum hans, þá mun
hann heilla ykkur.“
Enginn hefur neitað því, að
Baylor-West samstæðan sé sú
bezta í atvinnirmennskunni i
dag, enda hafa þessir tveir
leikmenn skorað til samans 62
stig í leik t.vö síðustu keppms
tímabil. Lið Lakers í dag er
bað langbezta, sem það hefur
átt frá byrjun. Það sem gerir
gæfumuninn er, að með þeim
Baylor og West, eru menn, sem
skilja mikilvægi þeirra tveggja
mata þá, setja upp „klipping
ar“ fyrir þá og fleira, og sið
ast en ekki sízt er það hin
góða samvinna þeirra tveggjs
Charley Wolf, sem þjálfáði
Cincinnati síðasta keppnistímn
bil hafa farizt svo orð u m
hæfileika Oscar Robertson:
„Þegar Lakers og Cincinnati
eiga að leika tala ailir um
hvað Oscar muni eiga erfitt
kvöld. f leiknum virðist hann
svo ekkert áberaridi góður, en
þegar reiknað er saman eftir
leikinn er Oscar stigahæstur
með flest fráköst. og með flest
,.assists“ (sendingar, sem skor
að er úr).
Árangur Oscars á síðasta
keppnistímabili var ágætur
I-Iann varð fjórði í skorun með
518 stig alls (að meðaltali 28.8
stlg í leik). en fvrir ofan hann
voru 3 miðherjar Hann var
annar í „assists". og það sem
athvglisverðast af öllu var, að
Framhald * 15 $í3u
Síðan 1948 hafa tvö lið borið höfuð og hcrðar yfir önn-
ur bandarísk atvinnumannalið. Fyrst var það Minneapolis
Lakers, sem varð meistari fimm sinum á sex árum —
og síðan Boston Celtics, sem á sjö síðast liðnum árum,
hefur unnið sex NBA-titla. Og líkur eru fyrir, að Boston
Celtics vinni keppnina í sjöunda skipti í ár. Enn þrátt
fyrir sigra þessara liða ár eftir ár, hafa þau samt ekki
átt beztu leikmcnn Bandaríkjanna.
Annað bezta atvinnumannalið
Bandaríkjanna, Los Apgeles
Lakers, cr það lið, sem haröasta
Bbaráttu hefur háð við „The
World Champion" núna síðustu
árin. Atvinnumenn Lakers evu
ungir, þrautseigir, öruggir og
greindir leikmenn. En það sem
meira er, þeir eiga á að skipa
einum bezta „ductt“, ef svo
mætti segja, í Bandarikjunum'
t í dag, en það er samstæðan
Elgin Baylor og Jerry West..
Nokkrar svona samstæður
hafa skotið upp kollinum und
anfarin ár, cn engin komizt í
hálfkvisti við þessa Lakers-
menn. í gamla Minneapolis Lak
ers var fyrst samstæðan George
Mikan og Jim Pollard, þá Mik-
an og Vern Mikkelsen. Og *
Boston Celtics „The Double B“
þeir Bill Russel og Bob Coousy
En hvers vegna er verið að
ræða um ákveðnar samstæðu/V
Jú. sagan hefur leitt í ljós, að
það er i hreinn ógerningur að
byggja upp lið á einum manni,
samanber Wilt Chamberlain og
San Fransrsco Warriors.
Þegar keppnistímabilið 1963
—64 byrjaði héldu margir, að
aðalbaráttan um úrslitin yrði
eins og fyrri árin milli Lakers
og Boston Celtics. En enda þótt
Bob Cousy hefði lagt skóna á
hilluna, virtist það engin áhnf
hafa á Celtics, og eftir 13
leiki höfðu þeir unnið 12, ei,
tapað aðeins einum, en það tr
árangur, sem aðeins eitt at-
vinnumannalið hefur náð áður
Og augu manna beindust ekiri
eins að Lakers. Nú tók að bera
á annarri samstæðu, sem ei
laust á eftir að skjóta Lakers
aftur fyrir sig. Það cr samstæð
an Oscar Roberts og Jerry Luc
as í Cincinnati Royals. Oscar
er bezti körfuknattleiksmaðu,
Bandaríkjanna í dag. í skoðana
könnun fréttaritara í Bandaríki
unum, sem fram fór fyrir sið
ustu áramót, fékk Oscar 20
stig, það hæsta sem fáanlegt
er og hann er sá eini, sem hing
að til hefur hlotnazt sá heiður
Næstur honum var Elgin Bavl
or með 19,5 stig.
Jerry Lucas var á sínuvn
tíma bezti áhugamaður Banda
ríkjanna. Hann var 3svar sinn
um valinn í All-America, en
það er úrval úr öllum háskól-
um landsins. Hann lyftir há-
skólaliði sínu Ohio State tvisvar
sinnum upp á toppinn í NCAA-
keppninni, nefnilega keppnis-
tímabilin 1959 og ‘60. Lucas
lék að vísu miðherja í sínu
gamla háskólaliði, en nú hefur
hann verlð gerður að fram-
herja, og það er ekki enn fuil
reynt hvernig sú breyting gefst.
en aðalmarkmið þjálfara liðs-
ins er að nota Lucas í fráköú
in fyrir Robertson sem þá ein
beitir sér að skyndiupphlaupun
um en fáir jafnast á við hann
í þeim, þar sem knattleikni
hans er frábær.
Nokkrir frægir þjálfarar haía
verið spurðir að því, hvora sam
stæðuna þeir mundu kaupa
Baylor-West eða Robertson
Lucas, ef þær væru falar. Hér
'fara á eftir svör þeirra.
Red Auerbach. þjálfari Bosl
on Celtics, svarar: „Baylor-
West hafa bæði sýnt það og
sannað að þeir eru stjörnur:
Jerry Lucas er ennþá óþekrl
afl.
George Ireland, þjálfari NCA
A-meistaranna 1963, svarar:
„Það er enn ekki fullreynt
hvernig Lucas reynist sem at
vinnumaður, myndi ég því hik
laust kaupa Baylor-West sam
stæðuna."
Undarleg svör? Engan veg
in. Það er að vísu satt, að
Lucas er en óþekkt afl, en ef
hann reynist eins góður i þess
ari nýju stöðu sinni hjá Cincv
Royals, og hann var sem mið
herji hjá Ohio State, leikur eng
inn vafi á því hvaða lið kem
ur með lil að standa uppi í hár
inu á Bolton Celtics næstu ár-
in, en úr því verður þó tíminn
að skera
Bandarískur
körfuknattleikur
Aftur á tnóti svarar Harrv
Gallatin, þjálfari St. Louis
Hawks, spurningunni á þessa
Iejð: „Eg mundi frekar velja
Robertson-Lucas. Þeir eru
yngri, (Baylor er 2§ ára, West
25, Robertson 24 og Lucas 23.)
og eru ef til vill ekki enn
komnir á hátind frægðarferils
síns, en hins vegar má geta
ráð fyrir, að Bavlor sé búinn
að lifa silt fegursta.
Og Eddie Donovan, þjálfari
New York, svarar á þessa leið:
„Eg mundi taka Robertson-
Lucas, einungis vegna „hins
stóra 0“, hann er engum líkur
Þetta „CINCY-UNDUR“ getur
gert allt i körfubolta, það
er þess vegna sem hann er
beztur".
Charley Wolf, þjálfari De
troit,, svarar: „Að vísu eru þetr
Baylor-West betri, enda eldri
KEPPA í S0LF0NN
★ Laugardaginn 11. apríl fara
níu reykvískir skíðamenn til
keppni í Alpagreinum í Sol-
fonn, Hardangcr, Noregi.
Skíðaráð Bergen og Skíðaráð
Odda standa fyrir móti þessu.
Auk Reykvíkinga og Bergens-
manna, mæta ennfremur til
keppni sveitir frá Skotlandi og
Hollandi.
Sveit Reykvíkinga er þannig
sklpuð:
Ásgeir Christiansen, Ásgeir
Úlfarsson, Björn Bjarnason,
Björn Ólafsson, Helgi Axelsson,
Leifur Gíslason, Sigurður Ein-
arsson, Þórður Sigurjónsson og
Karólína Guðmundsdóttir.
Keppt verður í fyrsta sinn
um nýjan verðlaunagrip, sem
er farandbikar. Keppni í stór-
svigi hefst laugardaginn 18-
apríl og í svlgi sunudaginn 19.
apríl.
Áætlað cr að koma aftur
mánudagskvöld 20. apríl.
Fararstjórar eru formaður
Skíðaráðs Reykjavíkur Ellen
Sighvatsson og varaformaður
Skíðaráðsins Lárus Jónsson.
JUDO — LYFTINGAD
★ Miðvikudagana 8„ 15. oa
22. apríl verður haldið kynn
ingar- og kcnnslunámskeið í
judo og lyftingum, og fcr
kennsla fram í Ármannsfelli.
íhróttaheimili Glímufélagsins
Ármanns við Sigtún.
Á námskeiðinu verður lögð
áherzla á að kynna fjölbreytni
þessara íþrótta, t. d. ýmsar
greinar judo. svo sem sjálfs
vöm, handtökuaðferðir ög
kenpnitækni, en judo spennir
yfir mjög breitt svið, og geta
allir fundið þar eitthvað við
sitt hæfi.
Lyftingar hafa lítið verið
kynntar hér á landi til þessa, en
nú er farið að æfa lyftingar
innan judodeildar Ármanns,
sem gengst fyrir þessu nám-
skeiði.
Lyftingar eru ein af ‘hlnum
sígiidu íþróttagreinum, sem
keppt er í á Olympíuleikunum
Þar er keppenduni skipt í 7
flokka eftir líkamsþyngd. Marg
ir eru haldnir beim slæma mis
skilningi. að líkamsþyngd ag
meðfæddir lieljarkraflar séu
nauðsynlegir til að ná góðum
árangri í lyftingum. Sannleik
urinn er sá, að þar er mest
komið undir hugrekki, Iipurð
og snerpu ásamt góðu jafnvægi.
Hinn ameríski lyftingamaður
Kári Marðarson. sem mun leið
beina á námskeiðinu, er gott
dæmi um þetta. Hann vcgur
sjálfur aðeins 65 kg„ en hann
jafnhattar 125 kg„ og hefur
lyft hér í Olympíuþríþraut 315
kg.,
A seinni árum hafa augu
íþróttamanna um allan heim
opnazt fyrir gildi lyftinga til
alhliða þjálfunar. Nú cr svo
komið að flest alllr beztu
•í)»róttamenn í öllum löndum
iðka lyftingar án tililts til þess
hver er þeirra keppnisgrein-
Á námskeiðinu vcrður æfing
um hagað þannig, að þátttak
endum verður skipt í tvo hópa,
sem skiptast á um að æfa judo
og lyftingar.
Æfingar hefjast öll kvöldin
kl. 8.
TÍMINN, þrlSjudaginn 7. aprll 1964
4