Tíminn - 07.04.1964, Page 5
RITSTJORI: HÁLLUR. SIMONARSON
HEFUR FRAM NU ÞFSAR
TRYGGT SÉR TITILINN>
- Sigraði KR naumlega á sunnudag með 22:18.
Alf-Reykjavík, 6. apríl.
íslandsmeistarar Fram áttu í miklum brösum með KR-liðið
á sunnudagskvöld og það var ekki fyrr en á síðustu þremur
mínútunum, sem gert var út um leikinn. Fram vann með
fjögurra marka mun, 22:18, og er það eftir atvikum vel
sJoppið, því að óheppnin elti KR-inga á siðustu •mínútunum.
Msð þessum sigri hefur Fram tryggt sér íslandsmeistaratign
1964, ef dómi undirréttar í kæru FH gegn Fram verður
hnekkt hjá dómstóli HSÍ.
Leikur Fram og KE á sunnu-
dagskvöldið var allan tímann æsi
spennandi og yfirleitt skiptust lið
in á að halda eins til tveggja
marka forskoti. KR-ingar fóru
betur af stað og það var ekki fyrr
en átján mínútur voru liðnar, að
Fram náði í fyrsta skipti forystu,
6:5. f hálfleik var staðan jöfn,
9:9.
f síðari hálfleik bjóst maður við
að Framarar myndu taka leikinn
í sínar hendur, en það fór á aðra
leíð. Guðjón í KR-markinu átti
sérlega góðan dag og greip vel
inn í, en það, sem fyrst og fremst
skeði, var það, að Fram reyndi
of mikið línuspil, sem KR tókst
alltaf að halda niðri. Síðustu 5
mínútur leiksins voru hápunktur-
inn. Þá jafnaði Karl Jóhannssön
stöðuna fyrir KR, 17:17. Litlu síð-
ar skoraði Sigurður Einarsson
fyrir Fram, 18:17. KR virtist fá
upplagt tækifæri til að jafna, þeg-
ar Sigurður Óskársson var með
knöttinn óvaldaður á línu, en þá
greip Þorgeir Lúðvíksson, mark-
vörður Fram, vel inn í og varði.
Ingólfur skorar svo 19:17 fyrir
Fram — og enn eltir óheppnin
KR. Karl Jóhannsson tók nú víta
kast, en skaut í stöng — knött-
urinn þaut út til Framara og Ing-
ólfur bætti 20. markinu við fyrir
Fram. Þegar þriggja marka for-
skot var fengið, var gert út um
leikinn og Fram vann með fjór-
um mörkum, 22:18, en sanngjörn
úrslit hefðu e. t. v. verið 20:18.
Það brá fyrir góðum handknatt
leik hjá báðum liðum og sýndu
KR-ingar ekki síðri leik, en þeg-
ar þeir mættu Fram í fyrri um-
ferðinni. Sérstaklega var varnar-
leikurinn vel útfærður. Reynir og
Guðjón í markinu voru beztir, en
mjög góðan leik sýndi Herbert
einnig. Mörk KR skoruðu Herbert
og Reynir 5 hvor, Karl og Heinz
3 hvor og Hilmar og Bjöm E. 1
hvor.
Fram-liðið sýndi í sjálfu sér
ekki slakan leik, þótt sigurinn
yrði ekki stærri. Heppilegra hefði
verið fyrir Fram að leika með
meiri hraða gegn KR og treysta
ekki eins á línuspilið, sem KR-
ingar eiga svo gott með að stöðva.
Beztu menn voru Ingólfur og Þor-
geir í markinu, sem að undan-
förnu hefur sýnt prýðisgóða leiki.
Mörkin skoruðu Ingólfur 9, Guð-
jón 4, Sigurður og Karl B. 3 hvor,
og Jón og Tómas 1 hvor.
Dómari var Gunnlaugur Hjálm-
arsson og hélt hann leiknum vel
niðri, þótt sumir dómar orkuðu
tvímælis.
NÚERU
JÖFN Á BOTNINUM
Hvert þeirra sekkur niður í 2. deild?
Alf-Reykjavík, 6. apríl.
Ármenningar gripu í síðasta
liálmstráið í hinni liörðu baráttu,
sein háð er á botninum í 1. deild,
þegar þeim tókst að sigra ÍR á
sunnudagskvöld með þriggja
marka mun, 24:21. Og eru Ár-
menningar því komnir með sex
stig eins og KR og Víkingur og
stórt spurningamerki svífur nú
yfir þessum þremur félögum —
hvert af þeim sekkur niður í 2.
deild?
Ármenningum tókst að sigra ÍR
þrátt fyrir að mörgu leyti slakan
leik og lengi leit út fyrir, að ÍR
myndi sigra. ÍR-ingar héldu for-
ystu út allan fyrri hálfleik og
fram í miðjan síðari hálfleik. En
þá tókst Ármenningum að kom-
ast fram úr, en forskotið varð
aldrei mikið og allt fram til síð-
ustu mínútna var munurinn á lið-
unum aðeins eitt mark. Nokkuð
var um brottvikningar úr báðum
liðum undir lok leiksins og þeg-
ar svo Gunnlaugi Hjálmarssyni
var vísað út af rétt fyrir leikslok
mjög óverðskuldað, voru úrslitin
ráðin. Staðan í hálfleik var 13:12
fyrir ÍR, en lokatölur, eins og
fyrr segir, 24:21 fyrir Ármann.
Ármanns-liðið var frekar slappt
í þessum leik, sérstaklega brást
Þorsteinn í markinu og Hörður
var frekar daufur. Bezti maður
liðsins var Lúðvík Lúðvíksson,
þrátt fyrir taugaspennu til að
byrja með; Mörkin skoruðu Lúð-
vík 12, Árni 6, Hörður 5 og
Ingvar 1.
Hjá ÍR var Hermann Samúels-
son beztur og Jón í markinu átti
nokkuð góðan dag miðað við fyrri
leiki. Mörkin skoruðu Hermann 9,
Gunnlaugur 8, Þórður 2, Gylfi og
Þórarinn 1 hvor.
Heldur slakur dómari í þessum
leik var Sveinn Kristjánsson.
Hér skorar Guðjón fyrir Fram. Gunnlaugur dómari fylgist vel me8
öllu fyrir aftan.
Liverpool náði forustu í 1.
deíld með góðum sigri yfir
Mftnch, ,,,U.' 3;0 á laugardag
og hefur nú 52 stig, eftir 37
leiki, en næst fyrir neðan kem
ur Everton með 49 stig eftir
39 leiki.
Úrslit á laugardag:
1. delld
Aston Villa—Burnley 2:0
Blackburn—WBA 0:2
Blackpool—Asenal 0:1
Chelsea—Leicester (frestað)
Liverpool—Manch. Utd 3:0
Notth. F—Birmingh. 4:0
Sheff. U.—Fulham 1:0
Stoke—Everton 3:2
Tottenhaim—Ipswich 6:3
West Ham.—Bolton 2:3
Wolverh.—Sheff. W 1:1
2. deild
Bury—Middleb. 1:1
Cardiff—Derby ( 2:1
Leeds—Leyton O. 2:1
Manch. C—Newcastle 3:1
Northamp—Southamp. 2:0
Norwich—IPlymouth 1:1
Portsm.—Grimsby 2:2
Rotherham—Preston 4:2
Scunthorpe—Charlton 1:1
Sunderland—Swansea 1:0
Swindon—Huddersfield 1:2
í 2. deild heldur Leeds enn
forustunni, en í öðru sæti er
Sunderland.
HEF OPNAÐ NÝJA
BAÐ- OG NUDDSTOFU
í Bændahöllinni (gengið um aðalinngang Hótel
Sögu).
Jón Ásgeirsson, aut. fysioterapeut, — sími 2-31-31
selur ALL T FYRLR
★ SÆNSKAR ðRVALS GARDÍNUR í mjög glæsilegu úrvali
ic Einnig f,GARDi$ETTE“ í sfórgiæsilegu úrvali . og Vestur-þýzk DI0LINE gardínuefni.
★ Ný munstur og nýir faiiegír tízkulitir á islenzkum gardínum.
— Önnumst uppsetningu ef óskaö er —
★ Komiö og kynniö ykkur giæsilegasta og fjölbreyttasta gardínuúrval borgarinnar.
ALL TFYRIR SLUGGANA
Austurstræti 22. Sími 14190
TIMINN, þriðjudaginn 7. apríl 1964 __
i