Tíminn - 12.04.1964, Side 1

Tíminn - 12.04.1964, Side 1
Stytt ra tiE borga Vestur- Evrópu en vestur í Dali! Nóta- bátar veiða vel við Suður land FB-Keykjavík, 11. apríl Nótabátarair halda áfram að veiða vel fyrir sunnan land, og daglega er landað rnörg hundruð lestum af fisk? í Vestmannaeyj um, Þorlákshöfn og Grindavík, svo jafnvel horfir til vandræða. 1 Vest mannaeyjum hefur oi'ðið að gcfa frí í skólum, til þess að hægt sé að vinna aflann frá Þorlákshöfn er fiskurinn fluttur landvcg til annarra vinnslustöðva, og í Grinda vík Ieggja menn nótt við dag til þess að hægt sé að koma fiskin- um undan. Veiði annarra báta en nótabát- anna géngur ekki nema í meðal- lagi vel. Frá Keflavík berast þær fréttir að veiði sé misjöfn, samt komi da'gur og dagur góður, en stundum fáist ekki bein úr sjó. Nokkrir færabátar eru gerðir út frá Keflavik, og hafa þeir aflað sæmilega, þegar gefið hefur. En annars er enginn kraftur í veið- unum, að sögn vigtarmannsins á staðnum. Sandgerðisbátar afla afar tregt, koma aðeins með sæmilegan afla eftir 2—3 nætur, en þá er fiskur- inn ekki lengur góð vara. Eftir eina nótt fæst ekki meira en 5 —8 lestir að meðaltali. Á Akranesi er ástandið ósköp svipáð, og þar berast á land 140—300 lestir á dag, sem þykir ekki mikið. Frá áramótum hefur verið landað þár 8300 lestum. Grindvíkingar segja, að þetta sé orðin allveg meðalvertíð. Þar er mjög mikið að gera, og hefur verið að undanförnu. Höfnin rúm ar aðeins 45 báta, en við það bætast oft aðrir 30—40, sem ekki eru gerðir út frá Grindavík, en landa þar samt, vegna þess hve langt er til annarra hafna frá veiði svæðunum fyrir sunnan Reykja- nesið. Af þessu skapast mikil Framhald a 15. síSu JK-Reykjavík, 11. apríl. Mikið er talað um, að við séum komnir úr einangruninni í þvera þjóðbraut. Þetta er einnig hægt að lesa úr áætlunum flugfélaganna og skipafélaganna. - Flugvélar okk- ar verða stöðugt hraðfleygari og áætlanirnar fleiri. Svo er nú kom- ið, að marga daga er auðveldara og fljótlegra fyrir Rcykvíkinga að komast til stórborga Evrópu og Ameríku en í aðra landshluta hér heima. Flugfélag íslands var þessa dag- ana að gefa út áætlun sína fyrir sumarið, og áætlun Loftleiða er væntanleg strax eftir helgina. Bæði flugfélögir hafa fjölgað ferð- um, geta flutt fleiri farþega í hverri viku og hafa smám saman verið að fá sér stærri og hrað- fleygari vélar Fyrir fjórum árum notaði Flugfélagið tvær Viscount- vélar í milliiandafluginu, þær fóru 10 ferðii í viku, og gátu flutt 500 farþega í hverri viku. Nú í sumar hefur Flugfélagið að- eins eina Viscount-vél, en tvær DC-6 vélai sem eru mun stærri. í sumar tara þessar vélar fjórtán ferðir i viku og geta flutt 830 far- þega í viku. Loftleiðir taka í sumar i notk- un risavelarnar sínar nýju, en eiga fyrir fimm DC-6 vélar. Nýju vélarnar eru svo stórar, að ekki er fjarri, að sætum Loftleiðavéla fjölgi um heiming. Til Kaupmannahafnar eru fjórtán ferðir: í viku, tvær á dag að meðaltali og flugtiminn þang- að er um sex timar Flugfélagið flýgur pangað ellefu sinnum, en Loftleiðir þrisvar í viku Til ann- arrar heimsborgar í annarri álfu, Framhald á 15. síðu. Sjónvarpstæki flutt inn eftiriits- laust til stórt jóns fyrir kaupendur IGÞ-Reykjavík, 11. apríl Fyrstu þrjá mánuði þessa árs voru sjö hundruð sjónvarps- tæki skráð seld til einstaklinga í Iandinu. Hefur kjónvarps- tækjasala vart verið meiri í annan tíma. Miðað við þessa sölu mun hált í þrjú þúsund sjónvarpstæki seljast á þessu ári. Eins og er selja sjónvarps. salar tæki sem taka við amer. ískri útscndingu. Hins vegar er vitað mál, að þegar íslenzka sjónvarpið kem- ur, verður notað svonefnt Evrópu-kerfi, eða 625 línu tæki. Eitthvað mun um það, að hing að séu flutt inn 625 línu tæki og er vandalaust að ná send- ingu fyrir 525 línu tæki á þau amerísku útsendingunni. En hér eru engu að síður seld 525 línu tæki, og verður ekki séð hvernig þeim verður breytt. þannig að vel fari. Ljtur út fyr- ir að meira kapp en forsjá hafi ráðið sölunni á 525 línu tækj unum hér. — Framh. á 15. síðu. J

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.