Tíminn - 14.04.1964, Page 4

Tíminn - 14.04.1964, Page 4
i RITSTJORl: HALLUR SIMONARSON Alan Gllzean (llgg)andi) skorar hír mark Skot- lands. Banks gerir árangurslausa til- raun tll að verja. SKOTAR SIGRUÐU TNGLAND í ÞRIÐJA SKIPTI í RÖD! Nú á Hampden Park með 1:0. Gilzean skoraði markið í síðari hálfleik. — í 1. deild er Birmingham komið í fallhættu, er Bolton skauztupp af botninum með sigri yfir Chelsea, 1:0 i ASalviðburður brezkrar knattspyrnu um helgina var á Hampden Park leikvangin- um í Glasgow á laugardag, þar sem landsliS Englendinga og Skota mættust í 81. skipti. Yfir 133 þúsund áhorfendur sáu leikinn og flestir þeirra fögnuðu gífurlega eina marki leiksins, sem skozki miðherjinn Gilzean frá Dundee, skoraði á 27. mínútu síðari hálfleiks- Gilzean og Henderson voru beztu menn Skotlands í leiknum, en vörnin var sterkari hluti enska liðsins. Byrne. West Ham, og Hunt, Liverpool, sem komu inn í ensku framlínuna í þessum leik, þóttu standa sig heldur illa — og tvisvar sinnum fór Hunt mjög illa með góð tækifaari. Qg effir leikinn sögðu ensku blpðin, að Eng- land gæti ekki verið án. „skorara"! Hvar var nú Jimmy Greaves? Hefði hann farið, jafn illa með þessi opnu færi? Annars var leikaðferð enska landsliðsins, 4-2-4, gagnrýnd, fyrir hve illa hún var útfærð, bæði gerði hún sóknina bitlaus ari og leikinn leiðinlegri. Ekki er Óhugsandi, að breytingar verði gerðar á liðinu fyrir næsta leik. Þess má geta, að þetta var í þriðja sinn í röð, sem Skotland vinnur England. Um helgina urðu úrslit í 1. deild eins og hér segir: Arsenal—Blackbum 0:0 Birmingham—Stoke 0:1 Bolton—Chelsea 1:0 Everton—Wolvers 3:3 Fulham—West Ham 2:0 Ipswich—Aston Villa 4:3 Leieester—Blaekpool 2:3 West. Brom.—Notth. F. 2:3 Nú er tæplega lengur rætt um það, hvaða lið sigrar í deild inni. Ekkert virðist geta ógn- að Liverpool. En þá er það fallbaráttan — og Birming- ham var miðdepill atburða á þeim vettvangi um helgina, þar sem heimaliðið mætti Stoke City. Úrslitin urðu mikil von- brigði fyrir hina 19 þús. áhorf endur, þvi Stoke vann með 1:0, og var markið skorað úr vafasamri vítaspyrnu í siðari hálfleik. Áhorfendur undu þessu mjög illa og dómarinn varð að fá aðstoð lögreglusveit ar til að komast burtu af leik- vanginum. Með þessum úrslit- um er Birmingham komið í al varlega fallhættu, því á sama tíma vann „hið dauðadæmda BoIton“ óvæntan sigur yfir Chelsea. Fyrir nokkru hafði Bolton sjö stigum minna en Birmingham og var stimplað falllið ásamt Ipswich, en í síð- ustu sex leikjum hefur Bolton hlotið 10 stig, sem er meira en nokkurn gat órað fyrir. Nú hefur Bolton 28 stig eftir 40 leiki, en Birmingham er með 25 stig eftir 39 leiki. Neðst á botninum er Ipswich með 21 stig eftir 39 leiki. Úrslit í 2. deild um helgina: Cherlton—Norwich 3:1 Derby—Swindon 3:0 Grimsby—Scunthorpe 2:0 Huddersf.—Manc. C. 0:2 Leyton—Rotherham 0:2 Newcastle—Bury 0:4 Plymouth—Cardiff 1:1 Preston—Portsmouth 0:0 Southampton—Sunderland 0:0 Swansea—Leeds 0:3 Leeds er nú öruggt með sig- ur í 2. deild — og Sunder- land er nokkurn veginn ör- uggt með annað sætið. Raunar má segja, að það sé aðeins fræðilegur möguleiki, að Prest on hreppi annað sætið. Til þess þarf Sunderland að tapa leikj- unum sem eftir eru — og Prest on að vinna sína með saman- lagt 30 mörkum Baráttan á botninum í 2. deild er hörð, en í neðstu sætunum eru Grimsby, og Scunthrope. —alf. V Alltaf eykst fallhætta Víkings Aif-Reykjavík, i3. aPrQ. FH-isigar unnu létfan sigur yfir Víking í 1. deild í fyrrakvöld, 33:22. FH-ingar unnu 'léttan sigur yfír Víking J 1. deild á sunnudags- allar líkur til þess, a® jVíkingur kvöld, 33 : 22 og færast Víkingar og Ármann verði að leika auka- nú stöðugt nær 2. deild. Benda leik um sætið í 1. deild — og ef Húsnæði Barnlaust fullorðið og reglusamt fólk óskar eftir lítilli íbúð strax. — Tvennt í heimili. Fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Upplýsingar í síma 19600 og 34591, eftir kl. 8. JÖTUNN H.F. satt skaJ segja, cr Víkingsliðið illa búið undir slíka orrustu. Einn 'ijós punktur var þó við Víkings- liðið í leiknum gegn FH. Það var markvörðurinn Helgi Guðmundsson, sem lék nú með félagi sínu eftir langt hlé. Helgi forðaði Víkingi frá enn stærra tapi — og ef það er eitthvað, sem heldur Víkingi uppi í 1. deild, spái ég því, að það verði mark- varzla Helga. Vfkingai virtust til alls líklegir fyrstu 15 mínúturnar gegn FH. FH hafði ekki nema eitt til tvö mörk yt'ir. og áttu FH-ingar í miklum erfiðleikum með að skora fram hiá Helga. En svo komst ruglingur á vömina hjá Víkingi og FH-vélin fór í gang. Aftur og aftur sigldi knötturinn í markið hjá Víkingi eftir skyndiupphlaup FH, og » hálfleik hafði FH tryggt sér sjö marka forskot, 17 : 10. Sjö marka forskot FH var nokkuð, sem Víkingar réðu ekki við, þrátt fyrir góðan vilja til að jafna metin. FH-ingar léku mjög létt og skemmtilega, settu nokkr- um sinnum upp sýningu, og unnu sem fyrr segir með 11 marka mun. 33 : 22. Hjá FH voru beztir Páll Eiríks- son., Örn og Auðunn — og hinn nýi markvörður Einar, er mjög vaxandi Hjá Víkingi voru beztir Helgi í markinu og Þórarinn, sem skoraði flest mörkin. STUTTAR FRÉTTIR Handbolti f kvöld heldur íslandsmótið í handknattleik áfram að Há- logalandi, og fer þá fram þýð- ingarmikfll leikur í 2. deild, auk úrslitaleiks í 2. flokki kvenna Leikurinn I 2. deild er milli Vals og Ilauka — og tak- ist Haukum að sigra, hafa þeir tryggt sér sæti í 1. deild næsta ár. Vinni hins vegar Valur, ern þrjú lið jöfn og efst í 2. deild, sem sé Haukar, Valur og Þrótt- ur, og yrðu þá þessi félög að leika saman að nýju. Þess má geta, að Pétur Antonsson leik- ur með Va'J í kvöld, og hefur hann þegair sýnt, að hann er Valsliðinu mikill styrkur, en hann lék með Val í hraðkeppni KR fyrir skömmu, og sigraði Valur í þeirri keppni. f 2. flokki kvenna leika til úrslita í kvöld Valur og Ár- mann. Má búast við skemmtii- legri viðureign þessara aðila, en bæði félögin eiga á að skipa sterkum liðum. Þriðji leikurinn i kvöld er f 2. flokki karla, og leika saman KR og Ármann. Ármann sigraði Landsflokkaglíman var háð að Hálogalandi á sunnudaginn. Ármann J. Lárusson varð sig- urvegari i 1. Þyngdarflokki, eins og vænta mátti. Hafði Ár- mann greinilega yfirburði yfir mótheija sína. f 2. þyngdarflokki sigraði Gunnair Pétursson, KR, og í 3. þyngdarflokki Þórir Sigurðs- son, ákarphéðni. f Drengjafíokki (16—19 ára) sigraði Sigtryggur Sigurðsson, KR, og í Unglingaflokki (yngri en 16 ára) sigraði Sigmar Ei- ríksson. Skarphéðni. , Nánar um glímuna í blað- inu á morgun. Áramnn J. Lárusson 4 T í M I N N, þrlðjudagur 14. apríl 1964.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.