Tíminn - 14.04.1964, Side 6
SAMNINGAR UM SOLU KISIL-
GÚRSINS EKKIFRÁGENGNIR
1. umræðu lauk um frumvarp
rfkisstjórnarinnar um klsilgúr-
verksmiðju við Mývatn, lauk í
neðri deild í gær og var samþykkt
til 2. umræðu og nefndar. M.a.
upplýsti iðnaðarmálaráðherra, að
endanlegir samningar. með hverj-
um hætti sala kísilgúrsins færi
fram, hefðu ekki enn verið gerðir.
Glsli Guðmundsson taldi æski-
legt að sveitar-, sýslu- og bæjar-
félög norðanlands, ættu kost á
því, að eignast hlutabréf í verk-
smiðjunni, og taldi, að ákvæði
um það þyrftu að koma inn í fruan
varpið sjálft
Jóhann Hafstein, iðnaðarmála-
ráðherra, sagði, að samkomulagið
við AIME væri aðeins bráðabirgða
viljayfirlýsing aðila og aðeins um
drög að samningum að ræða, seon
síðan ætti eftir að útfæra á ýmsa
vegu. Meðal annars yrði tryggi-
lega gengið frá því með hvaða
hætti salan færi fram uppsagnar-
ákvæði um söluna, þannig að verk
smiðjan yrði frjáls, og ekki kæmi
til mála, að sölufélagið fengi
einkarétt um aldur og ævi. — Þá
sagði ráðherrann vafasamt hjá
Eysteini Jónssyni, að telja það
sérstakt happ að við hefðum get-
að komið upp eigin sölukerfi fyrir
hraðfrystan fisk. Þar eru margir
snöggir blettir, sagði ráðherrann,
og ekki víst að ekki mætti koma
þeim málum betur fyrir á annan
veg. Þá upplýsti ráðherrann, að
AIME, hefur enga reynslu í sölu
kísilgúrs, en fyrirtækið væri vel-
metið sölufyrirtæki. Ráðherrann
tók vel í það, að sett yrðu ákvæði
í frumvarpið um hlutdeild sveit-
arfélaga i verksmiðjunni.
Eysteinn Jónsson sagðist enn
vilja árétta það, að heppilegra
væri, að allir flokkar ættu aðild
að athugun mála, sem stór væru
og fælu í sér nýjungar eins og
t.d. þetta mál. í slíkar nefndir
eins og stóriðjunefnd, hefði ríkis-
stjórnin hins vegar þann hátt á,
að velja einhliða pólitiskt. Þá
þakkaði Eysteinn ráðherra fyrir
upplýsingar um samkomulagið við
AIME, hér væri aSeins um drög
að samningum að ræða og ráð-
herrann samþykkur því, að ganga
þurfi tryggilega frá þeim samn-
ingum, þannig að verksmiðjan
M.Benz
Dieselvél
til sölu. Vélin er 110 ha.
með 5 gírkassa.
Verð og greiðsla eftir sam
komulagi.
Upplýsingar í síma 21455
og 37536.
verði raunverulega frjáls. Hins
vegar þyrfti að upplýsa nánar
þar sem kveðið væri á um skipt-
ingu hagnaðar milli sölufélags-
ins og framleiðslufélagsins, og
myndi það ef til vill fást upplýst
í nefnd. Þá sagöist Eysteinn af
gefnu tilefni enn og aftur vilja
lýsa því yfir, að hann teldi það
sérstakt happ fyrir íslendinga, að
þeir skuli hafa komið upp eigin
sölukerfi fyrir frysta fiskinn. Það
er hið mesta happ fyrir smáþjóð,
að hafa vald á sinni framleiðslu
sjálf, og neyðarúrræði ef hún
verður að leggja söluna í hendur
annarra. Kvaðst Eysteinn hafa
orðið ánægðari með frumvarpið,
ef fyrirhugað hefði verið að vert^
smiðjan brytist í því sjálf, af
selja framleiðsluna og ferigi sér
umboðsmenn með eðlilegum hætti.
En þetta mál kann að vera þannig,
að hyggilegt sé að hafa þann hátt
á, sem fyrirhugað er, ef nægilega
tryggilega er frá hnútunum búið.
Einnig talaði í málinu Bergur
Sigurbjörnsson.
Tilkynning
um lóðahreinsun í Hafrtarfirði
Samkvæmt 2. kafla heilbrigðissamþykktar Hafnar-
fjarðarkaupstaðar, er lóðareigendum skylt að
halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Eig-
endur og umráðamenn lóða eru því hér með
áminntir um að flytja burt af lóðum sínum allt
er veldur óþrifnaði, eða óprýði, og hafa lokið því
fyrir 15. maí n.k. Hreinsun verður að öðrum kosti
framkvæmd á kostnað lóðareigenda. Af marg-
gefnu tilefni skal það tekið fram, að óheimilt er
að fleygja í lækinn, höfnina innan hafnargarð-
anna í fjöru, eða annars staðar á landi bæjarins,
neinum úrgangi eða rusli og óþverra, og er að-
eins heimilt að losa slíkt rusl þar sem sorp bæj-
arins er látið í sjóinn fyrir sunnan Hellnahraun.
Hafnarfirði 13. apríl 1964
HeilbrigðisfuUtrúinn.
Ráðskona óskast
til að taka að sér heimili um óákveðinn tíma. —
3 börn að hugsa um.
Tilboð óskast sent afgr. Tímans merkt:
„Þrjú börn“
All mlklar umræður uröu í gær um frumvarpið til loftferðalaga, er
var til 3. umræðu í neðri deild.
Pétur Sigurðsson mælti fyrir breytingatillögum, er hann flytur
ásamt þeim Jóni Skaftasyni, Sigurði Ingimundarsyni og Einari Olgeirs-
syni. Hefur áður verið greint frá efni þessara tllagna.
Sgurður Bjamason form. samgöngumálanefndar deildarinnar gerðl
grein fyrir afstöðu nefndarinnar til breytingatill. og hefði hún orðið
ásátt um að leggj,a til að ákvæði væri um það í frumvarpinu, að ráð-
herra setti í reglugerð ákvæði um lágmarkshvíldartíma flugverja að
fengnum tillögum frá flugfélögum, samtökum flugmanna og flugmála-
stjóra. Að samþykkt verði tillaga um heimflutning á flugverjum og
ókeypis sjúkravist, ef þeir slasast fjarri heimilum sínum vegna starf-
ans. Þá er nefndin ásátt um að mæla með samþykkt breytingatillögu
Sigurvins Einarssonar og Benedikts Gröndal um að fella niður refsi-
ákvæði, ef flugverjar mæta ekki á tilsettum tíma til vinnu. Nefndin
mælir hins vegar ekki með samþykkt annarra tillagna.
Einar Ágústsson mælti með samþykkt breytingatillagna fjórmenn-
inganna og taldi allar breytingatillögur til bóta, sem fluttar hefðu ver-
ið. Einkum gerði hann tillöguna um sérstakan loftferðadómstól að um-
talsefni. Upplýsti hann um skipan þessara mála f Noregi og þróun
þeirra mála þar. 1956 hefði það fyrirkomulag sem frumvarpið ger-
ir ráð fyrir verið lagt niður þar í landi vegna harðrar gagnrýni og
skipuð föst rannsóknamefnd. Gagnrýnin hefði fyrst og fremst falizt í
því, að meirihluti rannsóknarnefnda hefði áður veið starfsmenn
flugmálastjórnar, en rannsókn beindist meðal annars að starfi flug-
málastjórnar í slysamálum. Umræðunni var frestað kl. 4 síðdegis í
gær en fundur boðaður að nýju kl. 9 í gærkveldi.
Umræður urðu nokkrar í efri deild um frumvarp um bann við bú-
fjárhaldi í Reykjavík. Tóku þátt í þeim Karl Kristjánsson, Auður Auð-
uns og Steinþór Gestsson. 2. umræðu varð lokið en atkvæðagreiðslu
frestað.
Samþykkt var til 3. umræðu frumvarp Jóns Áraasonar um takmörkun
dragnótaveiða. Helgi Bergs taldi nægjanleg ákvæði í gildandi lögum
til að banna slíkar veiðar.
- KABARETT
í Háskólabíói í dag kl. 5
\
Heimsfræg skemmfiairiði frá þekkfusfu fjölleikahúsum heimsms f. d. The Pn SuHivan *how,
N.Y., Cirkus Schumann, Tivoii, Cirkus Moreno, Lorry o. fi.
Stórkostlegasta og fjölbreyttasta skemmtun ársins!
Forsaia aðgöngumiða er i Háskólahiói og bókaverziun Lárusár Blöndai, Skóiavöröusfíg ogVesturveri.
Lúðrasveit Reykjavíkur
I •
irSfi
Hfriimí
ir n
?7 '*>
• .1
T í M I N N, þriðiudagur 14. april 1964.