Tíminn - 23.04.1964, Page 8
Haraldur Einarsson:
Byggingarlisti n og myndlistin
eiga nána samleið í Mexico
Kona ( bðndum (Proletarlan Vlctlm) málverk eftlr Alfaro Slquelros,
faeddan 1898.
Sýning á mexikanskri list í
bogasal Þjóðminjasafnsins og
að Laugavegi 26 á vegum Arki-
tektafélags íslands ekki alls
fyrir löngu hefur orðið tilefni
þessarar greínar.
Sýning þessi, sem er farand-
sýning, er haldin í tilefni
hálfrar aldar afmælis bylting-
arinnar í Mexíkó. Sýningin í
bogasalnum var yfirlitssýning
mexikanskrar byggingarlistar
i 4000 ár, og sú að Laugavegi
ljósmyndír af verkum þriggja
höfuðsnillinga þar í landi, þá:
Rivera, Orozco og Sequeiros.
Mexíkó er stórt land. Mikill
hluti þess er þurr háslétta með
eldfjöllum og víðáttumiklum,
rökum frumskógum að suð-
austan og á skaganum Yucat-
an.
Fyrir 4000 árum var þar
komin föst þjóðfélagsskipan
með glæstar hallir pyramida,
guðsmyndir, líkneski, vegg-
skraut, leirker, vopn og áhöld.
Leifar stórfenglegra borga
og bygginga er ekki aðeins að
finna á dreif um hina sólríku
hásléttu, einnig í grænum skóg-
um Yucatans.
Sögu og fommenningu lands-
ins er oft skipt í þrjú aðal-
timabil:
Fomtimann (2000 — 100
f. Kr.), borgin dularfulla Cul-
cuilco, sem varð undir hraun-
leðju eldfjallsins Xitle árið
500 f. Kr., tilheyrir til dæmis
því tímabili.
Klassiska tímabilið (100 f.Kr.
—950 e. Kr.) og herveldistima-
bilið (950 e. kr. — 1521), eða
þar til Spánverjar hafa brotið
undir sig landið, þótt þeir hafi
ekki beygt að fullu þá kyn-
flokka, sem inni í landinu
Þessl fallega hafnarbygglng er i Veracruz.
bjuggu lýri en nokkrani ára-
tugúm síðat.' 1004
Ævintýrablær hvílir yfir
nöfnum eins og Mayar, Toltek-
ar, Zapotekar, Mixtekar og
Aztekar. Þessar þjóðir hafa
lagt sinn skerf til hins foma
Mexíkó, því að líta verður á
hina fornu menningu sem
sammna margra þjóða, sem
átt hafa sín blóma- og hnign-
unarskeið.
Menning Indiánanna, sem
Rósflr frá Tula, fyrrum höfuðborg Tolteka-lndíána. Þar voru flestar bygglngar llstaverk.
vora veiði- og akuryrkjuþjóð-
ir, hefur risið hátt á mörgum
sviðum. Þó hafa þeir verið á
steinaldarstigi. Þeir þekktu
ekki hjólið og hagnýttu sér
lítt málma.
Indíánamir hafa náð mikl-
um tökum á steinsmíði. Hall-
ir þeirra og hof skreyttar
sterkum og áberandi Útum
hljóta að hafa verið tilkomu-
miklar. Húsbúnaður og klæðn-
aður hefur verið mjög skraut-
legur, og jafnvel smáhlutir til
daglegs brúks lýsa miklum
fegurðarþroska.
Þegar Cortez og Spánverjar
hans koma til landsins árið
1519, þá era Aztekar drottnar-
ar hásléttunnar. Þeir vora sól-
dýrkendur og grimmilegar
mannfórnir hjá þeim vora tíð-
ar. Þeir höfðu setzt að í Mexi-
kódal, og höfuðborg þeirra var
Tenochtilán, núna Mexikó-
borg. Þeir vora aldrei fjöl-
mennir, og er það ein af mörg-
um ástæðum fyrir því að ríki
þeirra fellur svo snögglega
fyrir Spánverjunum. Aztekar
hafa verið illa þokkaðir af þeim
þjóðum, sem þeir höfðu kúgað,
og það ásamt hjátrú og lélegri
vopnum hefur orðið þeim að
falli.
Nýr þáttur hefst í sögu
landsins með komu Spánverj-
anna-
Evrópumenningin hefur inn-
reið sína. Á þessum tíma er
Spánn stórveldi, og þegar lönd-
in í vestri hafa bætzt við, þá
má með sanni segja að sólin
aldrei hnigi í veldi Spánar.
Spánverjarnir, sem koma í
leit að gulli finna ekki aðeins
steina og dýra málma heldur
stórt og frjósamt land að miklu
leyti óunnið. Næstu áratugimir
fara í þ«ð að róa Indián-
anna og vinna þá til fylgis við
24
tTmINN, fimmtudaglnc 23. apHI 1964 —,