Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 1
Aðflutnings- og afnotagjöldin
ein borga sjónvarp um allt land
- BÆÐISTOFN- Ofi REKSTURSKOSTNAÐ FVRSTU Slð ÁRIN, SKV. SIÖ ÁRA ÁÆTLUNINNI
ÚTLENDINGAR STREYMA
T!L EYJA í FISKVINNUNA
FB—Reykjavík, 8. maí.
Fiskvinnslustöðvairnar í Vest
mannaeyjum berst nú daglega
fjöldi bréfa, aða'llega frá ír-
landi, þar sem ungt skólafólk
býður fram þjónustu sína.
Vinnsiustöðin veit um 6, sem
ákveðnir eru i að koma, Fisk-
iðjan er búin að fá 4 og ísfélag
ið hefur ráðið hátt í 50 Fær-
eyinga til sín til vinnu í surnar.
Sighvatur Bjarnason hjá
Vinnslustöðinni sagði, að fyrir
tækinu hefðu borizt á milli 40
og 50 bréf frá frum, sem vildu
koma- hingað til lands í vinnu,
en erfitt væri að ráða þetta
fólk. Sumt gæti ekki komið
fyrr en einhvern tíma í júní og
aðrir hættu við að koma þegar
á ætti að herða og vont væri
að missa af öðrum vinnukrafti
Framhalú ö 15. sfiSu
Þannig hafnaði sendiferðabíllinn á Ijósasfaurnum, eftir að Hafa ekið á telpurnar tvær á gangstéttinni fyrir
framan Útvegsbankann í Vestmannaeyjum í gær. Umferðarskiltið sem billinn fór innfyrir er rétt aftan við
bílinn. (Tímamynd Atli Ásmundsson).
TK-Reykjavík, 8. apríl
í tilefni af fyrirspurn Helga Bergs utan dagskrár í sam-
einuðu Alþingi í dag las Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráð-
herra, upp meginatriði úr skýrslu áætlunum og tillögiun
sjónvarpsnefndarinnar, en nefndin hefur nú nýlega lokið
störfum. y
M. a. kom fram í máli ráðherr-
ans, að sjónvarpsnefndin áætlar,
miðað við þá tekjuöflun, að sjón-
varpið fengi um 80% aðflutnings-
gjalda af innfluttum sjónvarps-
tækjum, 1000 króna slofngjaldi á
sjónvarp og 1500 króna árlegu af-
notagjaldi af sjónvarpi, væri unnt
að greiða árlegan reksturskostnað
fyrstu 7 starfsárin, allan stofn-
kostnaðinn skv. 7 ára fram-
kvæmdaáætlun nefndarinnar um
sjónvarp til allra landsmanna án
nokkurrar lánsfjáröflunar eða
framlaga frá ríkissjóði .
í áætlunum nefndarinnar cr gert
ráð fyrir tveggja til þriggja stunda
sjónvarpi fyrstu 5—10 árin. Er
gert ráð fyrir að byrja dagskrá
kl. 20, en senda endurtckið efni
síðdegis á laugardöguin og sunnu
dögum. Gert er ráð fyrir 15 mín.
í fréttir og 15 mín. í auglýsingar
kl. 20,30 til 21. Frumflutt íslenzkt
efni verði um 40—50% dagskrár-
innar en að auki fréttakvikmynd-
ir og fræðslukvikinyndir með is-
lenzku tali og stærri kvikmyndir
með íslenzkum textum.
Sjónvarpsnefndin, sem skipuð
var útvarpsráði ásamt útvarps-
stjóra leggur til að sjónvarpið
verði deild í Ríkisútvarpinu.
Ræða menntamálaráðberra xmi
skýrslu nefndarinnar var ýtarleg
og komu mörg mjög athyglisverð
atriði fram þar. Hefur Tíminn á-
kveðið að birta ræðu ráðherrans
í heild, enda er þetta mál mönn-
um mjög liugleikið. Fyrrihluti
ræðu ráðherrans birtist í blaðinu
í dag á bls. 5.
SKAGAMENN UNNU
Spennandi augnablik i bæj-
arkeppninni í knattspyrnu
milli Reykjavíkur og Akraness
á fimmtudaglnn. Þama hefur
Sigurþór Jakobsson skallað að
marki Akraness, en Helgi Dan
íelsson markvörður er að
bægja hættunni frá. — Skaga
menn sýndu góðan leik og
unnu verðskuldað með 2:0.
Tímamynd-GE.
AÁ-Eyjum og KJ-Reykjavík, 8. maí
íbúar Vestmannaeyja urðu óhug slegnir í dag, er sú frétt barst
út um bæinn, að ekið liefði verið á tvö stúlkubörn á aðalgötu bæjarins,
og önnur þeirra hefði látizt af völdum meiðslanna, er hún lilaut í
slysiniu.
A tæpum þrem vikum hafa þá
tvö stúlkubörn látizt í umferðar-
slysum í Vestmannaeyjum. — Er
einnig skcmmst að minnast þess,
er fyrr í þessari vilcu varð bam
fyrir bíl á Suðurlandsbrautinni í
Reykjavík og beið bana. Þessi
rciðarslög hafa vakið menn til um
hugsunar um, að virkari aðgcrða
er þörf, ef draga á úr slíkum
sorgarleikjum í framtíðinni. Sjö
manns liafa orðið fyrir bíl og lát-
izt í Reykjavík og Vestmannaeyj-
um, það sem af er þessu ári. Til
samanburðar má geta þess, að á
árinu 1963 létust 10 manns á land
inu eftir að hafa orðið fyrir bíl.
Slysið varð í Vestmannaeyj-
um laust fyrir klukkan fjögur.
Tvær telpur, Sigurfinna Stefáns-
dóttir, Gerði, sex ára að aldri, og
Margrét Gísladóttir, Bessastöðum,
fimm ára, voru að selja blöð. Er
þær voru staddar fyrir utan Út-
vegsbankann kom sendiferðabif-
reið akandi austur Vestmanna-
braut og ætlaði að beygja til
hægri upp á Kirkjuveg. Ökumað-
Framhald é 15. si3u.
ENN VARD BARN FYR-
IR BÍL OG BEIÐ BANA