Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR, 8. maí NTB-Washington — Dean Rink, utanríkisráSIierra USA, fór í dag áleiðis til Haag, en þar mun hann sitja utanríkis- ráíiherrafundi Nato-ríkjanna. NTB-Brussel — Utanríkis- ráðherra Frakklands, Couve de Murville, sagði i dag, að hann vonaði að tollaviðræðurnar á Kennedy-ráðstefnunni myndu auka heimsviðskiptin. NTB-París — Kínverski Kommúnistaflokkurinn hefur vísað frá tillögu Sovctríkjanna um, að þessi tvö lönd haldi toppfund einhverjar næstu vik urnar til þess að ræða deilur sínar. NTB-Aden — Herlið Suður- Arabíska Sambandsins, stutt af brezkum herdeildum, náði á sitt vald í dag hæðinni Jebel Mahlay, sem áður var í hönd- um uppreisnarmanna. NTB-Atlanta — Rúmlega hálf milljón manna hyllti L. B. John son, þegar hann ók um götur Atlantaborgar í Georgíu. Hann er á ferð um Suðurríkin í sam- bandi við baráttu sínay gegn fátæktinni. NTB-Washington — Repú- blikanskur þingmaður fullyrti í dag, að sum lönd kaupi tyggi gúmmí, yngingarpillur . og brennivín fyrir bandarísku efnahagsaðstoðina. NTB—Nicósíu. — Brezkri SÞ- herdeild tókst i dag að koma á vopnahléi við þonpið Lourou djina á suðausturströnd Kýpur, en þar hefur verið barizt und- anfarið. Barizt var í Kýrenía- fjöllum í dag. MTB—Leopoldville. — 17 fang ar köfnuðu í Ioftlausum fanga klefa í Mwene-Ditu í Kasai í Kongó. 5 aðrir sluppu naum- lega lifandi. NTB-Braunscliweig. — Vestur- þýzka lögreglan gerði í dag upptækar eignir stríðsglæpa- inannsins Zech-Nenntwich. Þær cru virtar á 50.000 mörk. NTB—Havana. Sendihcirra Sov- étríkjanna á Kúbu, Alezander Aleksejev, sagði í dag, að USSR hafi aldrei gert neinn samn- ing við USA um könnunarflug yfir Kúbu. NTB—Atlanta. — Lyndon B. Johnson, forseti USA, hvatti í dag löggjafarþing Georgiu-rik- is að gefa blökkumönnum jafn- rétti i ríki sínu. NTB—-Moskvu. — Landbúnað- ar- og fiskimálaráðherra Ghana sagði í dag, að Ghana myndi opna hafnir sínar fyrir sovézk skip. í staðinn munu Sovét- menn kenna Ghanabúum fisk- veiðar. NTB—Oslo. — Ríkisstjóm USA hefur beðið Noreg um að veita Suður-Víetnam tæknilega- og fjárhagslega aðstoð. Fleiri NATO-ríki hafa fengið slíka beiðni. KRÚSTJOFF TIL EGYPTALANDS NTB-Alexandríu og Moskvu 8/5 Nikita Krustjoff, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, kemur á morgun í 16 daga opinbera heim- sókn til Arabíska Sambandslýð- veldisins. Hann mun verða við- staddur vígslu fyrsta hluta Aswan- stíflunnar og ræða þá við afríska stjórnmálamenn. Krústjoff kemur til Alexandríu kl. 9 á laugardagsmorguninn að þarlendum tíma og tekur Nasser, forseti Arabíska sambandslýðvelds ins, þar á móti honum ásamt ráð- herrum sínum. Er það í fjórða Áfengismál rann- sakað á Dalvík KJ-Reykjavík, 8. maí Snemma í vikunni voru tveir að komumenn á Dalvík sakaðir um sölu á áfengi og hefur annar mað urinn nú játað að hafa selt nokkr ar flöskur áfengis þar á staðnum. Við húsrannsókn hjá mönnunum tveim fannst ekkert áfengi, en annar mannanna játaði sölu áfeng is. Grunur leikur á að um meiri sölu hafi verið að ræða en sann azt hefur, og er málið í rannsókn hjá sýslumannsembættinu í Eyja firði. sinn, sem þeir hittast. Krústjoff mun m. a. dvelja í fjóra daga við Aswan-stífluna. Er talið víst, að hann muni þar verja Sovétríkin í viðræðum sínum við stjórnmálamenn frá Asíu og Afríku. Mun Krústjoff ráðast á þá stefnu Kínverja, að Sovétríkin eigi ekki að koma nálægt málefn- um Asíu og Afríku og að þau séu ekki asískt ríki. Krústjoff mun einnig heim- sækja Port Said og leggja þar krans á minningarstyttuna um tvo Egypta, sem féllu í Suez-deilunni 1956. Auk þess mun hann ræða Verkamenn vinna! ur sé góðs viti í sambandi við þingkosningarnar í haust. Ef þetta hlutfall helzt, þá mun Verka- mannaflokkurinn fá 100 þing- manna meirihluta. Verkamannaflokkurinn vann sig ur í tíu bæjum, þar á meðal í Portsmouth, sem fær í fyrsta sinn verkamannastj órn. NTB-London, 8. maí Brezki Verkamannaflokkurinn rak endahnútinn á siguir sinn í mörgum bæjar- og sveitarstjórnar- kosningum í Englandi og Wales, með því að fá næstum því % borg arstjórnarfulltrúa í Stóru-London, sem hefur 32 kjördeildir. Verka- mannaflokkurinn vann í kosning- imum í gær 254 sæti nettó í nm 400 kjördæmum í Englandi og Waies. Þýðir þetta, að flokkurinn hefur rétt sig glæsilega við eftir hið mikla tap 1961, en þá tapaði hann 195 sætum. Brezkir stjórnmálamenn benda að vísu á, að hér sé ekki um neitt fylgístap hjá íhaldsmönnum að ræða, en þó telja fylgjendur Verkamannaflokksins, að þessi sig komin snotur bók, sem Hafsteinn við Nasser í Kairó og mun þar verða efst á baugi aukin fjárhags leg og hernaðarleg aðstoð við Arabíska Sambandslýðveldið. Göturnar í Kairó og Alexandríu og göturnar, sem Krústjoff mun aka um til Kaíró, hafa verið skreyttar með egypzkum og sovézkum fánum, hamri og sigð og slagorðum á rússnesku og ara- bísku. Krústjoff mun halda þrjár mikl ar ræður meðan á heimsókninni stendur og hann ætlar að halda blaðamannafund daginn fyrir heimferðina. Fjölda kommúnista hefur verið sleppt úr fangelsun- um, vegna heimsóknar Krústjoffs en þar hafa þeir setið síðan 1958 þegar Nasser lét handtaka komm únista í Egyptalandi og Sýrlandi sem þá var hluti Arabíska Sam bandslýðveldisins. „MAÐURINN VIÐ STÝRIД KJ-Reykjavík, 8. apríl Maðurinn við stýrið heitir nýút- NÚ ER MADURINN HORFÍNN! EJ-Reykjavík, 8. maí Maðurinn, sem hefur síðustu daga haft samband við danska síðdegisblaðið „BT“ og fullyrt, að hann hafi sorfið höfuðið af litlu hafmeyjunni við Löngulínu, er nú horfinn! Og vinur, hans, sem gerð ist milligöngumaður milli skemmd arverkamannsins og „BT“ birtir bréf á forsíðu blaðsins og biður skemmdarverkamanninn að hafa samband við sig strax. Danska lögreglar, hefur í blaða- viðtali látið í ljós áhuga á að hafa j samband við milligöngumanninn. Hann er því kominn í dálítið erf- iða aðstöðu og hefur því beðið skemmdarverkamanninn um að hafa samband við sig. Maðurinn, sem segist hafa sorf- ið höfuðið af hafmeyjunni, hvarf nokkrum mínútum eftir að hann í gær. Mun maðurinn ganga um með höfuðið í tösku og er líklegt, að hann sé enn þá í Kaupmanna- höfn. Taugar skemmdarverkamanns- ins munu algjörlega í rúst vegna þeirra miklu blaðaskrifa, sem orð ið hafa um málið upp á síðkastið, og mun hann þess vegna hafa horf ið. 10 daga miðar á lista- hátíðina kosta 750kr. - og F.í. gefur 20% afslátt af farmiðum listahátíðarfargjöldum. Veittur er rúmlega 20% afsláttur af þessum fargjöldum og gilda þau frá 5— 15 júní. Farþegar, sem njóta þessa HF—Reykjavík, 8. maí. Á morgun verður byrjað að sélja heildaraðgöngumiða að Lista mannahátíðinni úti um allt land og t hafði látið bréf nr. 2 til „BT“ -áimUn Flugfélag fslands veita gest j afsíáttar verða auðvitað að kaupa samt korti yfir svæðið, þar sem um hátíðarinnar rúmlega 20% j ferðir bæði fram og til baka og höfuð hafmeyjunnar átti að vera afslátt af farmiðum til Reykja-; geta því lengst stanzað 10 daga víkuir. 11 bænum, en minnst þrjá. Heildaraðgöngumiðarnir kosta; 750 krónur og gilda í 10 daga.j jafnt á skemmtanir, sýningar og ; fyrirlestra. Úti á landi eru miðj amir til sölu í afgreiðslum Flug-j félags íslands, en í Reykjavík íl Unuhúsi við Veghúsastíg. Úti áj landi er jafnframt hægt geymt, í kjallara nokkrum í Kaup mannahöfn, en þangað sóttu blaða menn bréfið, eins og sagt var frá FARFUGLINN Guðmundsson gefur út og SVFf og BFÖ standa auk þess að. Eins og nafn bókarinnar bendir til, þá er hér um að ræða bók, er tekur til umferðarmála, og þá einkum og sér í lagi manninn við stýrið. Sænski sálfræðingurinn Áke Camelind er höfundur henn- ar, en við þýðinguna á íslenzku hafa lagt hönd á plóginn þeir Skúli Jensson lögfr., Ásbjörn Stef ánsson læknir og Símon Jóh. Ág- ústsson prófessor. Ámi Böðvars- son kand. mag hefur annazt prót- arkalestur. Maðurinn við stýrið sHptist í sex höfuðkafla, en hver þeirra svo í nokkra undirkafla. Bók þessi á að geta orðið góð hjálp hverjum þeim ökumanni sem temja vill sér góða ökumennsku. Hún er ekki tæmandi um efnið, en ætti að geta orðið góður grundvöllur til frekari íhugana um akstur og öku mennsku. í formála bókarinnar segir Ólaf- ur Gunnarsson sálfræðingur m. a.: „Ekki væri vansalaust, þegar eins greinargóð bók og þessi hefur ver ið gefin út á íslenzku, ef þeir, sem um ökukennslu sjá, gerðu hana ekki að skyldunámsbók a. m. k. nú þegar á öllum meiraprófsnám skeiðum, og sem fyrst áður en minna bílpróf er teMð.“ Bókin fæst í bókabúðum og kost ar kr. 90.00. KIRKJUDAGUR í GRENSÁSSÚKN FB—Reykjavík, 8. maí. Farfuglinn heitir málgagn Banda lags íslenzkra farfugla, og hefur það verið gefið út um nokkurra ára bil. Fyrsta tölublað 8. árgangs barst okkur í dag, og segir þar m.a. frá aðalfundi Reykjavíkur- deildarinnar, 21. ferðaáætlun henn ar, frá Alþjóðafarfuglaþingi og móti í írlandi í fyrra og Óttar Kjartansson skrifar uim Grinda- skarðaveg. í blaðinu kemur fram, að Far- fuglar hafa nýlega fest kaup á húseigninnj Laufásvegi 41 og 41a, þar sem þeir munu hafa bækistöðv ar sínar og þar verður opnað gistiheimili 1. júní n.k. f fréttum frá aðalfundi Reykja- víkurdeiidarinnar segir, að þátt- taka í sumarferðum í fyrra hafi verið góð þrátt fyrir óhagstætt veður, og voru að meðaltali 29,9 þátttakendur í hverri ferð. j Sunnudaginn 10. maí, mun sókn- ... , .... |arnefnd og kvenfélag hins nýja miða fynr eitt og eitt kvold og Grensásprestakalls beita sér fyrir kosta þeir 60—100 kronur. Ekki j sérstökum kirkjudegi í sókninni. 30 SelJa St3ka mlða i Tilgangnnn er að kynna starfsemi ' safnaðarins og helztu verkefni, i Reykjavík, Flugfélag íslands vill stuðla að því að sem flestir íslendingar geti notið Listamannahátíðarinnar, og gefur því fólki kost á sérstökum H0RFIN SKEKTA FB—Reykjavík, 8. maí. f nótt hvarf bátur frá bryggju úti í Gróttu. Þetta var lítil skekta blágrá að utan en bikuð að innan, en utan á henni að framan voru báðum megin ómálaðir nýir listar 1 bátnum voru 4 árar og ýmislegt annað dót. Biður rannsóknarlög- reglan aila þá, sem kunna að vita hvað orðið hefur af bátnurn, að láta sig vita. sem fyrir liggja, en einnig að afla fjár til starfsins. Hefst dagskráin með guðsþjónustu í Breiðagerðis skóla kl. 14, en um kvöldið kl. 20,30 verður haldin samkoma á sama stað. Þangað eru að sjálf- sögðu allir velkomnir, sóknarbú- ar sem aðrir Reykvíkingar. For- maður sóknarnefndar, Magnús Gíslason námsstjóri, mun flytja þar ávarp í upphafi, en sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup ræða um kirkjulíf í Reykjavík fyrr og nú. Auk þess verður einleikur á celló, einsöngur og kórsöngur kirkju- kórsins. Kvenfélag Grensássóknar gengst fyrir kaffisölu í Breiðagerð lisskóla þennan dag bæði síðdegis að lokinni messu og eftir samkom una um kvöldið. Það mun einnig annast sölu merkja þennan dag. Styrkja byggingu Hallgrímskirkju Kvenfélagskonur í HaUgríms- söfnuði í Reykjavík hafa almenna kaffisölu í Silfurtunglinu síðdegis ? morgun, sunnudag, til ágóða fyir ir byggingu Hallgrímskirkju. Bregða þær nú af þeirri venju að hafa þessa árlegu kaffisölu að haustinu Séra Jakob Jónsson, prestur Hallgrímssafnaðar, lét þess getið við blaðið, að gjafir til kirkjubyggingarinnar bærust nú mjög miklar og hvaðanæva að af landinu. Kæmi nú vel í ljós hve milcinn áhuga menn hefðu á þessari kirkjubyggingu. 2 T í M I N N , laugardaglnn 9. maf 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.