Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 9
VANTAR NÝ ÍS- LENZK LEIKRIT NÚ f VIKUNNI áttum við leið l)já sikrifstofu Bandalags íslenzkra leikfélaga við Garðastræti og not- uðum tækifærið til að spjalla við íramkvæmdastjórann Sveinbjörn Jónsson, forvitnast um starfsemi leikfélaganna úti á landi og sit';- hvað fleira um þau málefni. — Hvað eru félögin orðin mörg i bandalaginu? — Það eru 40 leikfélög og 28 önnur menningarfélög í bandalag- inu eða alls 68. Og lengst af hafa þau verið á milli 60 og 70. Hið síðasta, sem gekk í banda- lagið, er alveg nýtt af nálinni og ekki enn tékið til starfa. Það nefnist Tjarnarleikhúsið í Eeykjavík, verður til húsa í Tjarn arbæ, eins og Gríma, og byrjar sjálfsagt leiksýningar næsta vet- ur. Stofnendur Tjarnarleikhússins eru 14 útskrifaðir leikskólanemend ur. Annars eru félögin dreifð um landið. Ungmennafélögin halda uppi félagslífinu víða í sveitum m. a. með því að efna til leiksýn- inga. Kvenfélögin voru mikil drif- fjöður á þessu sviði. — Hvernig var nú leikstarfsem- In úti á landi árið, sem leið, var mikil f jölbreytni í leikritavali? — Hér er skrá yfir leiksýning- arnar leikárið 1963—1964 á vegum félaga innan bandalagsins. Fyrst kemur nafn félagsins, þá leikfitið. sem sýnt var og í svigum nöfn höfunda: Gríma í Keykjavík: Reiknivélin (Erlingur Halldórsson), Leikfélag Hellissands: Tannhvöss tengda- mamma (P. King & F. Cary), Leik / félag Ólafsv.: Orrustan á Háloga- landi (Arnold & Bach), Leikfélag Flateyrar: Svört á brún og brá (Philip King), Leikfélag Bolung- arvíkur: Saklausi svallarinn (Arn- old & Bach), Leikfélag Hólmavík- ur: Fórnarlamþið (Yrjö Soini), Leikfélag Blönduóss: Maður og kona (Jón Thoroddsen/Emil Thor- oddsen & I. Waage), Leikfélag Sauðárkróks: Fædd í gær (Garson Kanin), Leikfélag Siglufjarðar: A útleið (Sutton Vone), Leikfélag Ólafsfjarðar: Þrír skálkar (Cail Gandrup), Dalvíkur: Bör Börsson jr. (Falkberget/Sandö), Leikfélag Önguistaðahrepps: Gimbill (Ge- org Savory), Leikfélagið Iðunn- Jósafat (Einar H. Kvaran), Leik- íélag Akureyrar: Þrettándakvöld (Shakespeare), Góðir eiginmenn sofa heima (Walter Ellis), og Galdra-Loftur (Jóhann Sigurjóns son), Leikfélag Húsavíkur: Með-' an sólin skín (Terence Rattegan), Leikfélag Þistilfjarðar: Það er aldrei um seinan (Felicity Dou- glas), og Köld eru kvennaráð (Staf ford Dickens), Leikfélag Vopnafi Græna lyftan (Avery Hopwoodi, Leikfélag Neskaupstaðar: Það er aldrei um seinan (Felicity Dougl- as), Leikfélag Reyðarfjarðar: Skipt um nafn (Edgar Wallace) og Allra meina bót (Patrekur og Páll), Leikfélag Fáskrúðsfjarðar Græna lyftan (Avery Hopwood), Leikfélag Hafnarkauptúns: Klert:- ur í klípu (Philip King), og Sak- lausi svallarinn (Arnold & Bach), Leikfélag Selfoss: Víxlar með af- föllum (Agnar Þórðarson), Leik- félag Hveragerðis: Systir María (Charlotte Hastings), Leikfélag Hafnarfjarðar: Jólaþyrnar (Wyny- ard Browne), Leikfélag Kópavogs: Maður og kona (Jón Thoroddsen/ Emil Thoroddsen & I. Waage), og Húsið í skóginum (Ann-Cath Vest- ly), Ungmennafélag Mýrahrepps: Græna lyftan (Avery Hopwood), Ungtnennafélagið Fram: Sprek (Loftur Guðmundsson), Ungmenna félag Möðruvallasóknar: Saklausi svallarinn (Amold & Bach), Ung mennafélagið Magni: Aumingja Hanna (Kenneth Horne), Ungm- félagið Egill rauði: Húrra krakki (Arnold & Bach),^Ungmennafélag- ið Dagsbrún: Óheillasjónvarpið (Arnold Ridley), Ungmennafélag Gnúpverja: Húrra krakki (Arnohl & Bach), Ungmennafélag Hruna- manna: Kvenlæknirinn (W. S. Maugham). — Ekki eru nú þetta öll félögin 68, sem í bandalaginu eiga að !vera? — Nei. Það er mismunandi á- hugi og aðstæður hjá félögum, eins og gengur og gerist. Eitt og eitt leikár vill falla úr, imáske af þessum ástæðum. En þó mun aðalorsökin vera sú, að sum félög hafa ekki fjárhagslegt bol- magn til að koma upp leiksýningu á hverjum vetri. Mjög fá félög efna til leiksýninga í fjáröflunar- skyni, kostnaðurinn er það mikill, en möguleikar á aðsókn ekki að sama skapi til að gefa hagnað. — Mest eru þetta leikrit af létt- ara tagi, sýnist mér. Er engin til- hneiging úti á landi til að velja annars konar leikrit til flutnings? — Það er mest spurt um gaman- leiki hjá okkur Og þetta er eðlilegt Allur fjöldinn viil fá að sjá gaman Landslag / Bogasalnum Pétur Friðrlk listmálari opnaði sýningu í Bogasalnum s.l. laugardag og sýnir þar nærri eingöngu landslags- myndir, flestar frá Þingvöllum, Þjórsárdal og nokkrum einstökum fjöllum, svo og húsmyndir úr sjávarþorp- um, og auðvitað nokkrar úr Hafnarfirði, þar sem hann setti sig niður með heimili og vinnustofu fyrir nokkr- um árum. Myndin hér að ofan heitir Ármannsfell séð frá Þingvöllum. Pétur Frlðrik er feikna vinsæll málari, og það að maklegleikum, sannaðist það enn nú, þvi að langflestar myndirnar á þessari sýningu hans seldust þegar fyrsta daginn, en gestir hafa þyrpzt daglega í Bogasallnn til að skoða hana. Nú fer sýningunni senn að Ijúka. Hún er opin kl. 2—10 e. h. og lýkur á mánudagskvöld. leiki í svartasta skammdeginu úti í dreifbýlinu. Og þótt vilji sé fyrir hendi hjá ráðamönnum leikfélag anna til að velja vönduð leikrit alvarlegs eðlis, þá mundi það verða þeim það fjárhagslega ofviða áhættan er svo mikil, víðast yrði aðsókn svo hverfandi lítil, að stór tap yrði á sýningum, svo mjög sem kostnaður hefur farið vaxandi upp á síðkastið. — Og flest eru þessi leikrit út- lend? — Já. En það vill langhelzt sjó íslenzk leikrit. Það kemur lítið fram af nýjum íslenzkum leikritum. Gömlu vinsælustu ís- lenzku leikritin hafa verið sýnd svo oft og víða að það er ekki hægt að halda áfram að endurtaka þau ára tug eftir áratug. En skorturinn á nýjum íslenzkum leikritum er til- finnanlegur. —En hafið þið ætíð mikið úr- val af þýddum erlendum leikrit- um hér á skrifstofunni, svo að fé lögin hafi að því leyti úr miklu að moða? — Við höfum látið fjölrita á annað hundrað leikrita, sem taka venjulegan kvöldsýningatíma, auk þess sem við höfum útvegað fjölda þýddra einþáttunga, eink- um eftir beiðni skóla. Af þeim eig um við ekki til neinar birgðir, og einnig er farið að ganga mjög á birgðir okkar af lengri leiikrituu- um, og það er sömu söguna að segja af því og öðru, að fjárhagur- inn hamlar. Styrkirnir, sem veittir eru til þessarar starfsemi hata ekki hækkað neitt til að vega upp á móti vaxandi kostnaði og dýrtíð Félög úti á landi hafa mörg áhuga að taka söngleiki til flutnings, þar eru víða ekki síður kraftar til þess en venjulegra leiksýninga, svo mik ið sem er um söngfólk og kóra víða úti um iand. SöngleikirnÞ Meyjaskemman og Alt Heidelberg hafa verið fluttir á fleiri en ein- um stað utan Reykjavíkur. En það er kostnaðurinn við að setja svona viðamikil verk á svið, sem stendur fyrir þrifum. — En er ekki í undirbúningi lög gjöf, sem á að stuðla betur að leikstarfsemi úti á landi? — Það hefur staðið til. Og meira að segja er búið að semja frutn- varp til laga um fjárhagslegan stuðning við leiklistarstarfsemi á hugamanna. En þetta frumvarp veldur mér miklum vonbrigðum Það gerir að vísu ráð fyrir nokk- urri hækkun á fjárveitingu, en hún er ekki nema brot af því, sem reksturskostnaður hefur aukizt síð an 1957. í frumvarpinu er geng- ið út frá 20 þúsund króna styrk til hvers félags, sem sýnir heils kvölds verkefni, en það gerir ekki ráð fyrir neinum ákveðnum tekjum til bandalagsins, setn hafa verið nærri óbreyttar síðan 1957, það er styrkurinn og árgjöld félaganna, en þau eru alls ekki aflögufær með meira, eins og hagur þeirra er. Því er fyrirsjáanlegt, að hér eftir sem hingað til verða vandkvæði á að útvega félögunum verkefni, að ég ekki tali um ný íslenzk leikrit, hvað þá að tryggja leikstjóra, en á því byggist starfsemi félaganna. Frumvarpið er raunar ekki enn komið fyrir Alþingi heldur verður það nú sent félögunum til athug unar og umsagnar á næstunni. Raunar vantar hér heildarlög- gjöf um leiklistarstarfsemi, í líkingu við þá sem Danir hafa nýlega sett hjá sér. — Hvaða leikstjórar hafa starf- að á vegum bandalagsins á síðasta leikári? — Það eru Inga Þórðardóttir, Gunnar Róbertsson Hansen, Ragn- hildur Steingrímsdóttir, Erlingur E. Halldórsson, Agnar Þórðarson, Einar Kristjánsson Freyr, Ágúst Kvaran, Hólmfríður Pálsdóttir, Höskuldur Skagfjörð og Kristján Jónsson. —Svo við snúum aftur að ís- lenzkum leikritum. Hillir undir nokkur ráð til úrbóta? — Ég skrifaði bréf í vor til rithöfundafélaganna beggja hér i Reykjavík og óskaði samvinnu um að finna leiðir til að örva íslenzka höfunda til að skrifa sýningarhæf leikrit fýrir áhugamannaleikfélög- in. Æskilegt væri, að Bandalag fsl. leikfélaga gæti boðið höfundum. sem kæmu með leikritshandrit, ríf lega greiðslu þá þegar, og siðan lyki höfundur við leikrit sitt eða gerði á því breytingar í samráði við leikstjóra, og fengi svo enn góð höfundarlaun í viðbót, þegar hann endanlega skilaði verkinu til flutnings. Því geri ég mér vonir um, að eitt- hvað fáist út úr þessu, að íslenzk- ir rithöfundar sinni meira leikrit- un en verið hefur. Mest þökk í slíku væri bæði leikendum og leiu stjórum, sem vilja fá íslenzk verk til að spreyta sig á, svo og leik- húsgestum um land allt, sem bíða með óþreyju eftir nýjum íslenzkum sjónleikjum. TÍMINN, laugardaglnn 9. mal 1964 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.