Tíminn - 07.06.1964, Side 3

Tíminn - 07.06.1964, Side 3
í SPEGLITÍMANS Það er engu líkara, en þeir tímar séu liðnir, þegar fólk klæddi sig í sitt fínasta til þess að fara í samkvæmi. Klúbb ur nokkur í hinu alræmda So- ho-hverfi í London, „Whisky A'Gogo club“, hélt nýlega ,,bað handklæðadansleik“, og stúlk an hér á MYNDINNI er ein gestanna.- Það fylgir frétinni, að þessi merki dansleikur liafi verið sérstaklega vel heppnaður. Þegar við liorfum á stúlkuna á MYNDINNI, virðist okkur hún vera ósköp veníuleg skóla- stúlka. Sn það er hún alls ekki, Hún hefuir nefnilega vissa gáfu, sem margir myndu öfunda hana af. Ilún getur séð í gegnum dyr og veggi og hún „sér“ einnig með binrdi fyr ir augunum! Hún er 11 ára gömul og heitir Vera Petrovna, búsett í Novochermchansk við Volgu- fljót í Rússlandi. Blaðamenn í Moskvu lögðu fyir hana nokkr- ar þrautir fyrir nokkru. Vera gat t. d. sagt, hvaða hlutir höfðu verið settir inn í lokað an peningaskáp, og með bund ið fyrir augun gat hún sagt, hvað klukkan var, og einnig lýst póstkorti nákvæmlega. Vera var mjög undrandi yf- ir því, að hún skyldi vekja slíka athygli. — „Eg hélt, að allir hefðu það eins og ég“ — sagði hún. Og hún er heldur ekki eina mannveran, sem hef ur svo merkilega „sjón“. Tvær konur í Sovétríkjunum hafa, svo vitað er, þessa sömu hæfi leika. Læknanefnd í Moskvn rannsakar nú þetta ijmrkilega fyrirbæri. Það varð mikill fréttamatur, þegar Lyndon B. Johnson for- seti tók í eyrun á einum hunda sinna og lyfti honum þannig upp á afturfæturna, og það gekk jafnvel svo langt, að dýraverndunarfélögin sendu forsetanum harðorð mótmæli. En nú hefur Johnson fengið óvæntan liðsauka, nefnilega ítölsku leikkonuna Ginu Lollo- brigida. Hún segist nefnilega gera það sama við son sjnn, Milko, sem er sex ára. „Ég elska son minn og ég tek ^ eyrun á honum. Johnson elskar hundana sína og hann tekur í eyrun á þeim. Eg tel mjög eðlilegt að sýna ást sýna á þepnan hátt“ — segir Gina. Flestir mnna eftlr lelk Mar- lon Brando í „Upprelsnin á BoUnty". Sú mynd var tekin á Tahiti í Kyrrahafinu, og varð hann mjög hrifinn af líf- i«u og umhverfinu þar. Nú ætlar hann að kaupa eyju þar rétt hjá, Tetiaroa AtolL og búa þar, þegar aldurinn færist yfir hann. Lfklst þú hlnum látna páfa, Jóhannesi 23.? Ef svo er, þá ættir þú þegar f stað að setja þlg f samband við kvik- myndaleikstjórann Ermano Olmi í Róm. Hann ætlar nefnl- lega að gera kvikmynd um líf þessa Hrkjuhöfðlngja og hefur skrifað handritið fyrir Iöngu. — En s. I. níu mán- uði hefur hann árangurslaust leitað að mannL sem hann get ur Iátið leika Jóhannes páfa á hvfta tjaldinu. 1 Og hann er orðlnn svo örvæntingarfullur, að hann sagði við blaðamenn nýlega: „Ef ég finn ekki hinn rétta fyrir 1. júlf, þá frem ég sjálfs morð!“ Svo að ef þú Ifkist páfanum heitna, þá geturðu orðið til þess að bjarga mannslífi! Það lítur út fyrir, að Jose- phine Baker fái eina helztu ósk sína uppfyllta. Hana hefur nefnilega lengi langað til þess að leika aðalhlutverkið í óper ettu, sem gerð skyldi eftir hinni þekktu sögu „Kamilíu- frúin'* ' Hún hefur fyrir löngu oi’ðið sér úti um tónskáld til að semja lögin, en það verður Francis Lopez. Erfiðara hefur reynzt að fá einhvem til þess að skrifa handritið. En nú hefur það vandamál einnig fengið sína lausn, og það er enginn en sjálfur Jean Anouih, sem ætlar að taka það verk að sér. Stúlkan á MYNDINNI er ítölsk, 20 ára og heitir Anna Vettori. Hún leikur í kvik- mynd, sem verið er að taka í Rómaborg, ásamt bandaríska leikaranum Lang Jeffries. Kvik myndin kallast „Cleopazza**. Myndin fjallar um frekar léttlynda leikkonu og söngvara nokkurn, og það er ekkert leyndarmál, að kvikmyndin er gerð í þeim eina tilgangi að hæðast að hinu ítalska ástar- ævintýri Liz Taylor og Richard Burton. Jafnvel nafn kvik- myndarinnar, sem í reyndiimi þýðir „Villta Cleo“, minnir okk ur á, að þau léku einmitt í myndinni ,,Cleopatra“ þegar ævintýrið hófst fyrir alvöru. Fréttamenn í Rómaborg segja að söguþráður myndarinn ar sé svo biturt háð um ævin- týri Liz og Richards, að lög- fræðingar þeirra ætli sér að gera hvað þeir geta íil þess að koma í veg fyrir, að hún komi nokkru sinni á markað- Dómstóll nokkur í Liver- pool dæmi nýlega mann nokk urn í 200 punda sekt fyrir að hafa s. 1. hálft ár grett sig háðslega i hvert sinn sem hann mætti einum nábúa sínum! Og Hr. Stonorr, en það hét sá dæmdi, fékk aðvörun frá dómaranum um, að hann fengi langtum alvarlegri refsingu, ef hann nokkru sinni, þegar hann mætti þessum nábúa sínum, ,,gretti sig í framan, flautaði ræki út úr sér tunguna mjálm- aði eins og köttur eða angraði hann á einhvern annan hátt“. Þessar fögru víkingastúlkur, Pamela Greer, Talitha Pol og Julie Samuels, leika allar í kvikmyndinni, sem gerð hefur verið eftir liinni frægu sögu „Ormur rauði“ eftir Franz G. Bensrtsnn, „Löngu skipin“ heif ir kvikmyndin og hún var frumsýnd í London fyrir skömmu. Stúlkurnar eru allar brezkar |og leika hér norrænar víkinga komir. sem eru hinum hug- prúðu víkingum ti! gleði og skemmtunar. En eins og fleiri, þá jjfa þær tvöföldu Iífi. Seinna í myndinni eru þær skyndilega orðnar svarthærðar og dökkar á brún og brá, enda komnar i kvenpabúr Márahijf~ir>gjans sem Ormur rauði og félagar hans lenda í óeirðum vil. T í M I N N, sunnudaginn 7. júní 1964 3

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.