Tíminn - 09.06.1964, Page 1
MYNDIN er frá aðalfundi Stéttarsambands bænda í Bændahöllinni í gær. Formaður sambandsins, Gunnar Guðbjartsson frá Hjarðarfelli, í ræðustól. (Tímamynd-G
GUNNAR GUÐBJARTSSON, FORMAÐUR STÉTTARSAMBANDS BÆNDA, Á AÐALFUNDI ÞESS í GÆR: k
EJ-Reykjavík, 8. júní.
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda hófst í Bændahöllinni
í morgun kl. 10, og í skvrslu
sinni sagði formaður sam-
bandsins, Gunnar Guðbjarts-
son, bóndi á Hjarðarfelli, að
afkonia bænda hafi verið með
lakasta móti á s.l. ári, og að
verðlag landbúnaðarvara hafi
ekki verið í samræmi við
reksturskostnaðinn. Bændur
liafi því ekki fengið það kaup
sem þeim ber samkvæmt verð
lagsgrundvellinum, og að
kaup þeirra sé miklu lægra
en laun þeirra stétta, sem við
sé miðað. Einnig hafi skulda
söfnun bænda verið talsvert
mikil á árinu og þeir hafa orð
ið að láta verulegan hluta
tekna sinna sem rekstursfé til
þeirra aðila, sem vinna og
selja landbúnaðarvörur, án
þess að fá vexti af því fé. Þrátt
fyrir þetta hafi framleiðsla
landbúnaðarins aukizt mjög
mikið að undanförnu og hann
skilað mikilli framleiðni.
Gunnar Guðbjartsson setti aðal-
fundinn kl. 10 í Bændahöllinni
með stuttu ávarpi, en síðan tók
Kristján Karlsson, erindreki sam-
bandsins til máls ,og gerði tillögu
um Bjarna Halldórsson, bónda á (
Uppsölum, sem fundarstjóra, og
Kirkjubóli, sem fundarritara og
sem varamenn þeirra: Sigurður
Snorrason, Gilsbakka, og Einar
Halldórsson. Setbergi Var það
samþykkt.
Að loknum störfum kjörbréfa-
nefndar fluttu gestir ávörp, og
tók Krist.ián Thorlacius. formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, ul máls. Því næst flutti
Gunnar Guðbjartsson, Hjaiðar-
felli, (ormaður sambandsins.
skýrslu sina. Sagði hann m.a.:
„Verfðlag landbúnaðarvar;. hef-
ur ekki \erið í samræmi við rekst-
urskostnað og bændur hafa því
ekki fengið það kaup, sem þeim
ber samkvæmt verðlagsg und-
vellinum og nuklu lægra kaup
en laun þeirra stétta, sem við er
FramhaJo a 15 sll'nj
Strax löndunarbiðl
FB-Reykjavík. HH-Raufarhöfn,
8. júní.
ÞEGAR er kamin löndunarbið
á Raufarliöfn, og bíða þar fimin
skip, en bræðslan er foúin að taka
á móti um 45 þús. málum. Síldin
virðist vera að tærast nær landi,
sum skipin haín fengið sfld 50
mflur norðaustuv af Raufarhöfn,
cn önnur allt upp í 80 mílur. —
Veður er gott á miðunum og mikil
sfld, að sögn sjómannanna.
Frá því á laugardag hafa 24
skip komið til Raufarhafnar með
síld ,þar af sex tvisvar sinnum. —
Hafa þau samtals komið með um
30 þúsund mál af stórri og fallegri
síld, sem öll fer í bræðslu. Síld-
arbræðslan hefur nú tekið á móti
um 45 þús. málum. og bíða í kvold
fimm skip löndunar Má búast við
eð brátt verði skipin að fara að
snúa sér annað, et ekki verðar
hægt að byrja að bræða, en mik-
ill skortur er á starfsliði til síM-
arbræðslunnar, og sömuleiðis -, u
vélar bræðslunnar ekki allar ki v.n
ar í lag. Væntanlega verður hæ.jt
að byrja að bræða á morgun.
Síldin hefur nú færzt nokkuð
nær landi en áður, og veiðist á
svæðinu 50—80 mílur norðaus’ .ir
Framhalc? á 15 sf\
Eigendur kjörbúða hafa orðið að gnpa til sérstakra ráðstafana til þess að smjörinu sé ekki stolið *
SMJORIÐ RYRNADI UM 20%!
KJ-ReykJavík, 8. júni.
Hér á myndinni að ofan gef-
ur að líta sjón, sem hefur und
anfarið orðið algengari í kjör
búðum bæjarins: smjörstykkin
eru höfð í bakka við hlið pen-
ingakassanna og í umsjá af-
greiðslustúlknanna. Þetta kem
ur lil að því, að kjörbúðir geta
nú orðið ekki haft smjörið í
kæliborðunum, því að miklu
af því er hreinlega stolið það-
an. Hafa þessir þjófnaðir geng
ið svo langt, að fimmta hverju
smjörstykki, var stolið úr verzl
un cinni daglega.
Það er því ekki að ófyrir-
synju, að smjörið hefur verið
sett í bakka og körfur við pen-
ingakassa kjörbúðanna, til þess
að koma í veg fyrir frekari
þjófnaði. Verzlunarstjórar
gerðu könnun á rýmun smjörs
ins í kæliborðunum, og síðan
töldu stúlkurnar /ið peninga
kassana smjörstykkin, sem við
skiptavinirnir fóru með úr búð
inni — og þeir borguðu fyrir.
Niðurstaðan varð sú, að rýrnun
in var allt að tuttugu prósent,
en algengasta rýrnunar prósent
an var 12—16%, og komst nið-
ur í 8% þar sem heiðarlegustu
viðskiptavinirnir voru. Smjör- |
kílóið kostar nú kr. 123,— svo 9
í mörgum verzlunum, þar sem |
mest var stolið hafa hundruð *
króna farið forgörðum daglega. ®
------------------- -------------??