Tíminn - 16.06.1964, Síða 1
Regnið bætti sprettu en réði
ekki við uppblástur og sandfok
HF-Reykjavík, 16. júní.
Á langardaginn byrjaði að rigna
á SV-landi eftir þriggja vikna
þurrk. Rigning þessi var bændum
mjög kærkomin, því að af völd-
nm þurrksins hefur grasspretta
tafizt mjög, en nú fer henni von-
andi eitthvað fram. Annað vanda-
mál, sem þurrkurinn orsakaði, var
sandblástur, og stóð sandstrókur-
Inn yflr öllu Suðvesturlandi aust-
an af söndum og af uppblásturs-
svæðunum á afréttum Árnessýslu.
Það létti því mörgum, þegar
byrjaði að rigna á laugardaginn,
en sá böggull fylgdi skammrifi, að
svo til ekkert rigndi á Landi í
Rangárvallasýslu, Gaulverjabæj-
arhreppi og í efstu sveitum Hruna
mannahrepps. Þessar sveitir eru
á mörkum afréttanna og má þvi
Framh á bls 3
Myndin er af nýstúdentum M. P. er þeir höfSu sett upp kollana. Tímamynd-GE)
330 NÝSTÚMNTAR í ÁR
HF-Reykjavík, 16. júní.
í dag útskrifuðust 211 nem-
endur frá Mcnntaskólanum i
Reykjavík, en alls útskrifast í
vor 330 stúdentar af öllu land-
inu. 73 frá Menntaskólanum á
Akureyri, 21 frá Menntaskólan
um á Laugarvatni og 25 úr
Verzlunarskólanum í Reykja-
vík. Dúxinn í Menntaskólanum
í Reykjavík varð Jakob Yngva-
son með fyrstu ágætiseinkunn
9,62.
MR var í dag(slitið við há-
tíðlega athöfn í Háskólabíói, en
nemendafjöldinn er orðinn svo
mikill, að ekki er fært að
halda skólaslitaathöfnina í
skólahúsinu sjálfu. Rektor setti
athöfnina með ræðu og sagði
þar m. a., að á næsta hausti
mundi nýbyggingin fyrir ofan
gamla skólann verða tekin í
notkun og mundu þar verða
sex rúmgóðar kennslustofur og
í kjallaranum yrði verkstæði
og matstofa. Þrátt fyrir þetta
yrði að nota Þrúðvang enn
næsta vetur, þar sem fyrsti
áfangi hins nýja menntaskóla
við Litluhlíð verður ekki til
fyrr en haustið 1965.
Nemendur í MR í vetur voru
903 að tölu, 305 stúlkur og
Framhald á 3 síðu
ENGIR SÍLDAR-
KÓNGAR í ÁR?
FB— Reykjavík, 15. júní
Nú hefur verið ákveðið, að
í sumar verði ekki birtar afla-
tölur einstakra báta, og byggist
þessi ákvörðun á tilmælum frá
Samgöngumálarðuneytinu til
Fiskifélags íslands, en Sjós'lysa
reefnd hefur gert þetta að til-
lögu sinni. Byggist þetta án
efa á því, að ekki verði eins
mikið meta kapp í veiþunum,
þegar menn vita ekki, hve mik
inn afla hver einstakur bátur
Jiefur fengið. En um leið verð
ur vicanlega erfiðara fyrir á-
hugameren að fylgjast með afla
óskabátanna sinna.
Á miðnætti á laugardag höfðu
borizt á land samtals 154.262
mál og tunnur.
í dag og gær var bræla á
síldarmiðunum, og lágu mörg
skip í vari. Á Raufarhöfn lágu
inni um 20 skip, en 7 skip biðu
þar iöndunar. Allar þrær síld
arbræðslunnai eru fullar, og
aðeins hægt að landa jafnóðum
og hólfin tæmast aftur. Bræðsl
an er nú búin að taka á móti
um 75 þús málum. Frá því á
laugardag hafa komið þangað
17 skip með rúmlega 12000 mál
Fjögur skip hafa landað í
Neskaupstað í dag samtals
2250 málum Bræðslan er búin
að taka á móti um 5000 málum,
og byrjar væntanlega að bræða
á fimmtudaginn. Fyrsta tunnu-
skipið kom hir.gað um helgina
með síldartunnufarm.
Minnsta skip
KJ-Reykjavík 15. júní.
það er belra að huga vel ai
öllu áSur en farið er i sjóferð,
og hér á myndinni fyrlr ofan er
Eiríkur Kristófeisson fyrrverandi
skipherra og forstjórar Olíufé-
lagslns þelr Jéhann Gunnar Stet
ansson (t. v.) og Vilhjálmur Jóns
son (t.h.) um borð í olíubátnum
Lágafelli á laugardaginn. Eirj>-
ur vár að leggja af stað msð bát
<nn norður á SiglufjörS, en Lá]a
fell mun fyigja síldarflotanum
'• sumar og sjá bátunum fyrir
brennslu og smurningsolíum. Ei
rfkur sagðisf aldrel hafa farlð
Eiriks!
með minna sklp, og það vae.i
svo sannarlegr- hressandi að fara
á sjóinn og sfgla norður á Sig'u-
fjörð. Lágafe'l er 7 lestlr, smið-
aður i fyrra, cg Stefán Hörgdal
vélstjórl verður með bátinn <
sumar.
SKYNDIHAPPDRÆTT! SUF ÖG FUF - Gerið skil ó skrifstofunni rjarnargötu 26 sem allra fyrst. Opið kl. 9-121. h., 1-
630 og 8-10 e. h. Símar 1 55 64 og 1 29 42. Umboðsmenn úti á landi eru hvattir til að panta nú þegar viðbótarmiða