Tíminn - 16.06.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 16.06.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriCi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. ACrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. lnnan- lands. — í lausasöiu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Mesta menningar- hneyksli á Islandi Þegar litiS er yfir þau tuttugu ár, sem liðin eru frá stofnun lýðveldisins, verður ekki annað sagt en ýmis stór spor hafi verið stigin til að koma fótum undir fjöl- breyttara og traustara mennta- og menningarlíf. Mikið hefur verið byggt af skólahúsum, en hins vegar hefur sjálft skólakerfið nokkuð staðnað og þarfnast vafalaust verulegra endurbóta til samræmis við breyttar aðstæður. Af einstökum málum ber það sennilega hæst, að Þjóð- leikhúsið og Sinfóníuhljómsveitin tók til starfa á þess- um tíma. Þá er ekki úr vegi að nefna það, að Þjóðminja- safnið hefur fengið ný og vegleg húsakynni. En jafnframt því, sem rétt er að minnast þess, er vel hefur verið gert, má ekki heldur gleyma því, sem stefnt hefur í öfuga átt. Þar má vafalítið benda á margt. Eitt ber þó langhæst. Þar er tvímælalaust um að ræða mesta menningarhneyksli, sem nokkuru sinni hefur verið unn- ið á íslandi. Það er sú ákvörðun núv. ríkisstjórnar og þó sennilega fyrst og fremst núv. utanríkisráðherra að veita erlendum aðila einkaleyfi til sjónvarpsreksturs á ís- landi, áður en nokkur undirbúningur eða vísir væri haf- in að íslenzku sjónvarpi. Hvergi í heiminum er hægt að finna dæmi þess, að siálfstæð þjóð hafi þannig veitt erlendum aðila ein- okun til að ráða yfir áhrifamesta áróðurstæki nútímans — áróðurstæki, sem hefur sennilega meiri áhrif á menninguna en nokkuð annað. Strax og Framsóknarflokkurinn fékk vitneskju um þetta leyfi, beitti hann sér fyrir því á Alþingi, að það yrði afturkallað, sjónvarp varnarliðsins yrði takmarkað við Keflavíkurvöll einan og hafinn yrði undirbúningur að íslenzku sjónvarpi. Þessa tillögu felldi ríkisstjórnin. Á þeim árum, sem síðan eru liðin, hefur ameríska sjón- varpið haldið innreið inn á þúsundir heimila, en ekkert verið gert til að koma á íslenzku sjónvarpi, þótt athug- anir hafi sýnt, að slíkt er vel framkvæmanlegt. Sú pólitíska hætta, sem þessu fylgir, er að sjálfsögðu nokkur, en hin menningarlega hætta er þó margfalt meiri. Fyrir ríkisstjórnina er það engin afsökun, þótt Banda- ríkjamenn kunni að hafa sótt eftir að fá slíka áróðurs- aðstöðu. Það sýnir aðeins, að þeir sækjast hér eftir var- anlegum áhrifum og aðstöðu í framtíðinni. Slíkt kann að vera skiljanlegt frá þröngu eiginhagsmunasjónarmiði heimsveldis, þótt það sýni lítinn skilning eða velvilja í garð smáþjóðar. En það er hins vegar ekki Banda- ríkjamanna að vera hér á verði, heldur íslendinga sjálfra. Hér er því sökin íslenzkra stjórnarvalda. Gegn því menningarhneyksli, sem hér hefur verið unnið, verður þjóðin að rísa. Halldór Laxness hefur í ræðu sinni á listahátíðinni bent með eftirminnilegum hætti á hið rétta svar. íslenzka þjóðin vildi ekki sætta sig við danska biblíu á sínum tíma. Hún vildi íslenzka biblíu. Hér á að hefjast tafarlaust handa um íslenzkt sjónvarp, eins og Framsóknarflokkurinn flutti tillögu um fyrir tveimur árum, en marka hermannasjónvarpi þann bás, sem því er eðlilegur. Það eitt er íslenzk stefna í þessum málum. Það er hið rétta svar við mesta menn- ingarhneykslinu, sem hér hefur verið unnið, jafnhliða því, sem þjóðin ber í framtíðinni að varast að velja sér trúnaðarmenn, sem ekki halda betur á málum í skiptum við erlent vald en raun ber hér vitni um. Scranton skerst loks í Verður bræ^rabylfa hjá honum eg Goldwater? FYRIR nokkrum dögum, birtisf forustugrein í „New York Times“, þar sem því var haldiö fram. að þrír menn bæru iaunverulega þyngsta á- byrgð, ef Barry Goldwater yrði valinn forsetaefni republikana. Þessir menn væru þeir Eisen- hower Nixon og Scranton. Af- skiptaleysi þeirra hefði verið óbeinn stuðningur við Gold- water Flest amerísku blöðin hafa tekið meira og minna und- ir þetta. Þetta hefur samt ekki breyt’ afstöðu þeirra Eisen- howers og Nixons, a.m.k. ekki opinbeilega Báðir neita þeir enn að taka þátt í samtökum um að hindrá framboð Gold- waters eða að lýsa yfir stuðn- ingi við annan frambjóðanda Scran'on hefur hins vegar rek- ið af sér slyðruorðið á seinustu stundu og lýst yfir því, að hann gefi kost á sér til fram- boðs, en ætlun hans hafði ver- ið að gefa ekki kost á sér. nema flokksþing republikana færi þess á leit við hann Scranton lýsti yfir framboði sínu á kjörþingi, sem haldið var í Maryland síðastl. föstu- dag. og gerði hann það með myndarlegri ræðu, þar sem hann deildi allfast á stefnu Goldwaters, en undir merkjum hennar væru republikanar dæmdir til augljóss ósigurs í kosningunum í haust. " ‘ 'ÞAÐ ‘VIRÐIST hafa kostað Scranlon mikla og langa um- hugsun að taka þessa ákvörðun. Sagar segir, að hann hafi fyrst tekið hana endanlega á fimmtu- dagsk'röldið var. Nokkrir gestir voru þá á heimili hans og var meðal þeirra Scott, annar af öld ungadeildarþingmönnum Penn- sylvaniu. en hann sækir nú um endurkjör og telur sér mjög hættulegt að vera á sama lista og Goldwater. Að sjálf- sögðu barst talið að kosningun- um og beindi Scranton m.a þeirrj spurningu að Scott, hvað hann legði til. Scott svaraði með hinum kunnu ummælum úr bibliunni, að sá. sem bjarg- ar lífi sinu, týnir því. Svar Scrantons var eftir stutta um- hugsun: Eg verð í framboði. Með þessu var teningunum kastað. Fjölskyldan og gestir skiptu með sér verkum um það, sem næst skyldi gera. Frú Scranton skrifaði niður nöfn þeirra. sem strax skyldi hringja í og tilkynna þessa ákvörðun, en m.a. þeirra voru Eisenhow- er, Nixon og Rockefeller. Sjálf ur skrifaði Scranton Goldwater stutt bréf, þar sem hann skýrði honum frá fyrirætlun sinni. Hann kvaðst hafa áfram sömu mætur á honum og áður per- sónuiega og hann myndi því ekki deila á persónu hans. he’d ur skoðanii Þeir Scranton og Goldwater hafa verið góðir kunmngjar MARGT er talið hafa valdið því, að Scranton breytti þannig ákvörðun sinni. Sennilega hef- ur það þó ráðið mestu, að fyrir sjáanlegt var, að Goldwater yrri ekki stöðvaður, nema fram á sjánarsviðið kæmi forseta- efni. er frjálslyndi armurinn gæti einhuga fylkt sér um. William Warren Scranton Scraníon hefur þótt líklegastur í þeim efnum. Fylgismenn Lodges hafa þegar lýst yfir stuðnmgi við hann. Líklegt þykir. að fylgismenn Rocke- fellers geri það einnig, en Rockefeller mun þó ekki draga framboð sitt til baka fyrr en á floKksþinginu. Scranton er oft nefndur Kennedy republikana. Hann er 16 ara, kominn af rótgróinni auðmannaætt, er um langt skeið hefur sett svip á borgina Scranton í Pennsylvaniu. For- feður hans áttu um skeið í flestum fyrirtækjum þar, eins og kolanámum, járnbræðslu, járnbrautum o.s.frv. Síðar seldu þeir mest af þessum eign um sinum, en snéru sér að vatnsveitum og bankastarfsemi. Hin stóra vatnsveita, sem ætt- in átti, var seld fyrir nokkru fyrir 24 millj. dollara og mun hlutur Scrantons hafa verið 9 mfllj. Scranton er að námi lög- fræðingur frá Yale, var flug- maður á stríðsárunum, og starf aði siðan við ýmis ættarfyrir- tæki, unz hann gekk í þjónustu utanríKisráðuneytisins 1958. Árið Í96C bauð hann sig fram til þings í rótgrónu demokrata kjördæmi og náði kosningu Tveimur árum seinna var hann frambjóðandi republikana . í ríkisstjórakosningum í Penn sylvaniu og vann einn glæsi- legasta sigur, er um getur Hann þykir hafa staðið sig vel sem ríkisstjóri. Hann þykir glæsimenni, virðulegur og við- felldinn í framgöngu og ágætur ræðumaður Scranton lét sig stjórnmál fyrst skipta að ráði fyrir fjór- um árum, og má því teljast ný- græðingur á stjórnmálasviðinu Skoðnunum hans er helzt lýst þannig. að hann sé til hægri * frjálsivndara armi republik- ana. Sjálfur segist hann vera íhaldssamur ( fjármálum, frjáls lyndui i kynþáttamálum og öðrum mannréttindamálum, en alþjóðasinni í utanríkismálum. Scranton þykir dugnaðarmað ur og sækir það af kappi, er hann tekur sér fyrir hendur. Sérlega er það rómað. hve harðfengur og ötull hann hefur verið í þeim kosningum, sem hann nefur tekið þátt í. Kona hans hefur einnig látið til sín taka : þeim efnum og þótt duga vel Hann virðist ekki ætla að liggja á liði sínu nú enda tíminn stuttur fram að flokksþingi republikana, en það hefst 13 júlí n. k. Hann hefur þegar ákveðið mikil ferða'.ög og fundarhöld. í ræðu sinni á kjörþinginu i Mary- land lagði hann megináherzlu á, að republikanar mættu ekki láta merki Lincolns falla niður, en svo myndi verða, ef Gold- water vrði frambjóðandi flokks ins. Af því myndi svo leiða vísau ósigur í kosningunum. FRAMBOÐl Scrantons hefur yfirleitt verið vel tekið, en fremuv ólíklegt þykir þó, að hann verði valinn forsetaefni republikana því að fylgismenn Goldvvaters muni nú snúa öll- um vopnum gegn honum. Eink- um mun því haldið fram, að hann sé of óreyndur. Andstæð- ingar hans gera talsvert að því að kalla hann drenginn (the boy). Hins vegar er það ekki alveg útilokað. þótt það sé t'rekar ólíklegt, að honum tak- ist það með framboði sínu að hindra framboð Goldwaters og einhvei þriðji maður hljóti því útnefningu Nixon hefur oft verið nefndur í því sambandi, þar sem Goldwater myndi helzt sætta sig við hann. Nú er hins vegai talið að Goldwater telji Nixon hafi brugðizt sér, Nixon hafi unnið gegn honum bak við tjöldin. en látizt vera hlutlaus opinberlega. Sagt er, að Gold- watei hafi sagt. þegar hann frétti af framboði Scrantons, en Nixon var þá f London: Þetta eru ráð Nixons, sem hef- ur svo farið til London til þess að látast hafa hvergi nærri komið. Þ.Þ. TfMlNN, þrlðjudaginn 16. iúní 1964 — • n ‘ 1 » • . I •> i -i w tli i i.’H i. 1 . l.-4 -i >;! ; é ý\i M J .• V '‘V'A V -•/ / '-• . - - <■ ■' . ' / -/• ). ' ■' 1 ■ '■'■:■ ■ ■ - - - -' • -............' V • rt' —— -* • - - r • * . - ■ • , , . , ■ , ■ „• * • , . . Þ'.f I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.