Tíminn - 21.06.1964, Page 16

Tíminn - 21.06.1964, Page 16
•*/& Sigla vestur mei síldina FB-Reykjavík, HH-Raufarhöfn 20. júní Síðasta sólarhring tilkynntu 60 skip sfldarleitinni um afla sinn, samtals um 60 þúsund mál, og fékkst sfldin aðallega á svæðinu frá Héraðsflóa að Reyðarfjarðar- dýpi, skammt undan landi. Frá því klukkan 17 í gær til kl. 10 í morgun hafði 21 skip komið með 20.500 mál til . Raufarhafnar, og þar er sfldarbræðslan búin að taka á móti 96 þúsund málum. Flest skipanna, sem veiddu fyr- ir austan síðasta sólarhring munu fara vestur fyrir land, þar eð ekki er þróarrými fyrir austan, eða á Raufarhöfn, og kom t. d. eitt skip til Siglufjarðar með síld í morg- * Utifundur Um áttaleytið í morgun átti að hefjast mótmælaganga hernáms- andstæðinga frá Keflavíkurvelli til Reykjavíkur, um 50 km leið. Gangan verður við Öskjuhlíðina í Reykjavík um klukkan átta í kvöld og klukkan 20,45 hefst útifundur við Miðbæjarskólann. Ræðumenn eru Sverrir Kristjánsson og Jón Snorri Þorleifsson, en fundarstjóri Jónas Ámason. Bifreiðastöð fslands hefur áætl- unarferðir á Suðurnes klukkan 1, 15 og 3,15 í dag og Hafnarfjarð- arstrætisvagninn er á heilum tíma og 20 mínútur fyrir og yfir heilan tíma frá Lækjargötunni í Reykjavík. Gera má ráð fyrir, að gangan verði í Hafnarfirði um fimmleytið í dag og í Kópavogi milli hálf sjö og hálf átta. (Frá Samtökum hernáms- andstæðinga). un, og von var á fleiri skipum í kvöld. í nótt og morgun lönduðu 11 skip á Norðfirði, samtals um 7,300 Framhald á 15 síðu Rafmagn á Þingvelli KJ-Reykjavík, 20. júní í dag verður Sogsrafmagni hleypt á línuna til Þingvalla, og er sveitin þar með loksins komin inn í rafmagnskerfi landsins. — Fyrst um sinn mun rafmagnið að- eins ná til Vaihallar og bústaðar þjóðgarðsvarðar, en það er þó strax bót í máli, og hefði mátt vera fyrr þegar tillit er tekið til þess að úr Þingvallavatni rennur Sogið, og við Sogið eru mestu raf orkuver íslendinga. DRUKKNAÐI KJ-Reykjavík, 20. júní Pilturinn sem drukknaði af Þor steini Ingólfssyni á fimmtudags kvöldið var 25 ára gamall og hét Ingvi Sigurjón Ólafsson. Hann lætur eftir sig unnustu og barn. F0STRUF0NDUR HF-Reykjavík, 20. júní. Klukkan tvö í dag verð- ur opnuð föndursýning í kjallaranum að Fríkirkju- vegi 1 ,en þar verða sýndir munir, sem gerðir hafa ver- ið af fóstrum óg gæzlukon- um á námskeiði, sem staðið hefur yfir undanfarna þrjá mánuði. Það er frú Guðrún Briem Ililt, seip veitt hefur námskeiðinu forstöðu, og föndrið er kennt fóstrunum með það fyrir augum, að þær láti börn sín gera það. Frú Guðrún er fóstra að mennt og veitir forstöðu fyrirtæki í Noregi, sem sér um útvegun á barnaleik- föngum. Hún er mjög mikið á móti dýrum og ónýtum leikföngum og vill að leik- föngin séu endingargóð og ódýr, og stuðli að þroska bamsins og örvi sköpunar-1 gáfu þess. Á sýningunni, sem nú stendur yfir, má sjá hver leikföng frú Guðrún telur hverju aldursskeiði nauðsynleg. Goldwater vann síðasta fylkið VEL YFIR MflRKIÐ NTB-Washington, 20. júní Hinir 14 fulltrúar republikana í Montana, sem sitja munu flokks- þingið í Sanfransisco í næsta mán uði lýstu því formlega yfir í gær- kvöld, að þeir myndu greiða at- kvæffii með framboði Barry Gold- waters til næstu forsetakosninga. Eru republikanar þá búnir að velja fulltrúa frá öllum ríkjum á flokksþingið. Er nú almennt talið, að Goldwater sé öruggur uin að verða í framboði fyrir hönd repu- blíkana Alls munu 1308 fulltrúar 50 ríkja sitja flokksþing republikana. Samkvæmt síðasta tölulega yfir liti á Goldwater möguleika á 694 atkvæðum, en hann þarf 655 til þess að ná kjöri. Hins vegar er það að athuga, að allir þessir full trúar eru ekki lagalega bundnir við að greiða Goldwater atkvæði og hefur hann í sumum tilfellum 9. ráöstefnan HF-Reykjavík, 20. júní. Níunda norræna fiskimálaráð- stefnan verður haldin í Reykjavík dagana 22.—26. júní og sækja Iiana fulltrúar af öllum Norður- löndum. Skírteini verða aíhent í Háskól- anum klukkan 9 og ráðstefnan verður sett klukkan 10 á mánu- dagsmorguninn af Emil Jónssyni sjávarútvegsmálaráðherra og síð- an verða forsetar ráðstefnunnar kjörnir. Ráðstefnunni lýkur með ferð til Gullfoss, Geysis og Þing- valla á föstudaginn og sama kvöld verður lokahóf á Þingvöllum. Ráðstefnu þessa sækja 14 full- trúar frá Danmörku, 7 fulltrúar frá Finnlandi, 3 frá Færeyjum, 35 frá Noregi og 26 frá Svíþjóð. Auk þess situr ráðstefnuna 61 ís- lenzkur fulltrúi. Þátttakendur ráð- stefnunnar munu m. a. heimsækja frystihús og hvalstöðina í Hval- firði. Sérstök dagskrá er fyrir eig- inkonur fulltrúanna, en þær fara með í frystihúsið og Hvalfjörðinn, auk þess sem þær ferðast um næsta nágrenni Reykjavíkur og skoða Þjóðminjasafnið. aðeins vilyrði, sem geta gengið til baka. Má búast við, að frjálslyndi arm ur flokksins verði tregur til stuðn ings við hann ekki sízt eftir and- stöðu hans við mannréttindafrum varpið. Samkvæmt sama yfirliti hefur William Scranton aðeins 138 at- kvæði bak við sig, en sú tala gefur litlar hugmyndir um raunverulegt fylgi hans, því að ekki eru talin með atkvæðin á bak við Roeke- feller og Lodge, sem styðja fram- boð Scrantons. Bruni á Þingvöllum KJ-Reykjavík, 20. júní Um hádegisbilið í dag kom upp eldur í dælukofa rétt við bústað þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. Þar rétt hjá var olíugeymir og var talið rétt að kalla á Slökkviliðið í Reykjavík ef eldurinn næði til geymisins. Sem betur fór, náðu heimamenn að slökkva eldinn í tæka tíð, sem samt skemmdist þarna dælukofinn og tæki sem í honum voru. BARRY GOIDWATER VILL LA TA MA TA GEYSIA PLASTI KH-Reykjavík, 20. júní. Okkar heimsfrægi Geysir er orð inn hálfgert vandræðabairn, og aðstandendur koma sér ekki sam- an um meðhöndlun á honum. Einn áhugamaður skrifar Tímanuin og leggur til, að Geysir verði þakinn frauðplasti, og þá muni liann gjósa Það mun vera rétt, að sögn séir fróðra en hætt er við, að mimnum þætt'i lítið til um undur náttúr- unnar, ef þeir þyrftu að skripla á firauðplasti til að komast að Geysi því að erfitt yrði að hreinsa stöð ugt í kringum hverinn, þegar liann væri búinn að gubba úr sér .plast inu. Geysisnefnd var nýlega með ráðagerð um að láta bora í Geysi til þess að hressa upp á hann, eins og lesendur Tímans muna, en Nátt úruverndarráð lagðist gegn því. Birgir Thorlacius, formaður Geysis nefndar, sagði blaðinu, að nefnd in hefði nokkrar tillögur til at- hugunar en ekkert yrði gert í málinu á næstunni. Hins vogar eru áhugamenn stöð ugt að hreyfa við málinu og gera tillögur. eins og einn, sem skrifaði Tímanum og lagði til, að Geysir yrði þakinn frauðplasti. Blaðið1 leitaði álíts ísleifs Jónssonar á Raf orkumálaskrifstofunni á þessari 1 tillögu. Hann sagði. að þetta væri vissulega ein af aðferðum til að framkalla gos í Geysi.vandamálið væri hins vegar að plastið mundi dreifast út um allt við gosið, og það væru ekki síður náttúruspjöll en að bora í hverinn, ísleifur sagði, að það væri ekkert tækni- en gosið eitt væri engin lausn, og ferðamönnum þætti áreiðanlega minna til um það, ef þeir sæju aðrar eins tilfæringar og þær að setja frauðplast i hverinn, auk sóða skapsins sem fylgdi. ísleifur kvaðsi vera á þeirri skoðun, eins og margir aðrir, að betra væri að hjálpa Geysi svo- lítið heldur en láta hann lognast alveg út af. Hann sagðist álíta, að erfiðleikar Geysis stöfuðu af því, að kísillinn í vatninu hlæðist stöð ugt innan í skáhna og þrengdi göngin, En ef borað yrði lítillega í hann, mundi hann ná sér aftur á strik. Ekki alls fyrir löngu var gs.'ð tilraun með að bora í Strokk, og gaf hún góða raun. Hins vegar telja sumir, þar á meðal Náttúru- verndarráð, það vera náttúru- spjöll að lífga Geysi við á þennan hátt. En verði ekkert gert, má Frqmhald a 15. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.