Tíminn - 27.06.1964, Side 5
RITSTJÓRl HALLUR SIMONARSON
Frábær frammistaða islands
SIGUR GEGN SVÍÞJÓÐ - JAFNTEFLIVIÐ DANMÖRK
Hsím. — Reykjavík.
fsland vann fyrsta sigurinn á Norðurlandamótinu í handknattleik kvenna, sem hófst á Laugardals-
vellinum í gærkvöldi. Eftir jafnan og skemmtilegan leik tókst íslenzka liðinu að sigra sænskú stúlk-
umar með fimm mörkum gegn fjórum, í leik, sem mjög mótaðist af hinum erfiðu aðstæðum, því rétt
fyrir setningu mótsins gerði mikla rigningu og varð völlurinn fljótt rennblautur. Þetta var vel af stað
farið — og íslenzka landsliðið sigraði í fyrsta landsleik sínum á heimavelli. Þó leit ekki vel út í byrjun,
því Svíar skoruðu tvö fyrstu mörkin í Ieiknum, hið fyrra úr víti, sem Dalbjörn skoraði örugglega úr
fyrsti mark 11. Norðurlandamótsins, en íslenzka liðið seig síðan á og fyrirliðinn Sigríður Sigurðardóttir
tryg Si sigur fslands með ágætu marki fjórum mínútum fyrir leikslok við mikinn fögnuð hinna 1500
áhorfenda.
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
setti mótið með ræðu, en síðan
voru þjóðsöngvar þátttökuland-
anna fimm, Danmerkur, Finn-
lands, íslands, Noregs og Svíþjóð-
ar, leiknir. Tók þessi athöfn um
20 mínútur og á meðan var stanz-
laus rigning, næstum skýfall, svo
að þátttakendur og áhorfendur
voru orðnir rennblautir, þegar að
fyrsta leiknum kom.
Það voru því ekki glæsilegar
aðstæður, sem Laugardalsvöllur-
Sagi eftir
sigurinn
H-Sím-Reykjavík.
Eftir leikinn við Svía brá
blaðamaður Tímans sér niður
í búningsherhergi ísj. liðsins og
ríkti þar skiljanlega mikil
gleði:
SIGRÍÐUR SIGURÐARDOTT
IR, fyrirliði fslands, sem skor
aði þrjú mörk, sagði:
„Yið erum í sjöunda himni
yfir þessum sigri hann var ó-
væntur og skemmtilegur, og
einkum vegna þess hve
sænska liðið byrjaði vel. Við
vorum mjög spenntar fyrir leik
inn, og ekki bættu hinar crfiðu
aðstæður úr skák. Nú er gott
að fara úr rennblautum bún-
ingnum, slappa af og fara í
þurran búning fyrir leikinn við
Dani. Jæja, þetta var eins og
síðast, þá unnum við Svía einn
ig með einu marki“.
Pétur Bjarnason, þjálfari
liðsins: „Það var gott að við
unnum, en liðið gefcur og á
áreiðanlega eftir að sýna betri
leik- Það var mjög vont fyrir
stúlkurnar að sýna góðan leik
framan af, rigning, kalt og
hvasst.“
Knud Knudsen, dómari:
„Þetta voru mjög jöfn lið
jafntefli hefði verið réttlátast,
en þó er ekkert að segja við
liinum íslenzka sigri. Bæði lið-
in léku nokkuð fast, svo ég
varð talsvert að nota flautuna.“
inn bauð upp á í þessum fyrsta
leik mótsins og sigurvonir voru
ekki miklar í byrjun, þegar
sænsku stúlkurnar renndu knettin
um tvívegis í mark. En þetta átti
eftir að breytast. Varnarleikurinn
varð stöðugt betri og skotin beitt-
ari. Fyrsta mark íslands skoraði
fyrirliðinn, Sigríður Sigurðardótt-
ir, úr víti, sem dæmt var á Svía,
og nokkru síðar jafnaði Sigrún
Ingólfsdóttir með mjög góðu skoti.
Ekki urðu mörkin fleiri í hálf-
leiknum, og undir lokin varði
Rut í markinu mjög glæsilega,
meðal annars víti.
Leikurinn í síðari hálfleik var
æsispennandi, þótt gæðin væru
ekki mikil. Sigurlina færði ís-
landi forustuna með ágætu skoti
af línu, eftir laglegan samleik.
En það stóð ekki lengi. Örfáum
mínútum síðar jafnaði Svíþjóð og
var Jonsson þar að verki, úr víta
kasti.
Á níundu mínútu tókst Sigríði
að skora annað mark sitt í leikn-
um með mjög góðu skoti, innan
á stöng. Þar með náði baráttan
hámarki. Sænsku stúlkumar
reyndu mjög að auka hraðann og
Jonsson fann smugu og renndi
knettinum í mark. Enn jafntefli
4-4.
En Sigríður Sigurðardóttir hafði
ekki sagt sitt síðasta orð í leikn-
um og eins og góðum fyrirliða
sæmir, dreif luin stúlkurnar
áfram, fékk knöttinn fyrir utan
vörn og skoraði með þrumuskoti,
þar sem sænski markmaðurinn
heyrði aðeins þytinn af knettin-
um. Fjórar mínútur til leiksloka.
Taugaspennan breiddist út. Tekst
■ þeim að halda þessu? spurðu
áhorfendur hvern annan. Já, og
með mikilli einbeitni og sigur-
vilja vörðust íslenzku stúlkurnar
öllum áhlaupum þcirra sænsku,
og þegar dómarinn flautaði í leiks
Sigrún og Sigurlína voru einnig
mjög góðar. Dómarinn var dansk-
ur, Knud Knudsen, og hafði góð
tök á leiknum, en var full fljótur
á sér í nokkur skipti.
Urslit í gær:
ísland—Svíþjóð 5-4.
Noregur—Finnland 16-2.
ísland—Danmörk 8-8.
Staðan:
ísland
Noregur
Danmörk
Svíþjóð
Finnland
0 1312
0 16- 2
0 8-8
14-5
1 2-16
Sigríður skorar fyrsta markið gegn Dönum (Ljósm. Tíminn GE).
Síðari hálfleikur
var stórkostlegur
Alf — Reykjavík. f
Þreyttar og þjakaðar mættu íslenzku stúlkurnar þeim dönsku, þegar klukkan var farin að ganga
ellefu- Þær höfðu fengið klukkutíma hvíld eftir leikinn við Svíþjóð, en dönsku stúlkurnar komu alger-
lega óþrcyttar til leiks og þeim hafði gefizt tími til að ,,stúdera“ íslenzka liðið. Yrði þetta ekki von-
laus barátta? Fyrstu mínúturnar gáfu enga ástæðu til að örvænta. Strax á 1. mín. brauzt Sigríður Sig-
uraðardóttir í gegnum dönsku vörnina og skoraði 1:0 — og á 7. mín. skoraði Sigríður úr víti 2:0.
Dönsku stúlkurnar fundu sig ekki vel á þessum fyrstu mínútum en svo er þreyta fór að segja til sín fyrir
alvöru lijá íslenzku stúlkunum náðu þær sér á strik og nú streymdu dönsk mörk. Áður en sænski dóm-
arinn, Carlson, flautaði til hálfleiks, var staðan 6:2 fyrir Danmörk. Já útlitið var óneitanlega svart, og
sumir áhorfenda tóku að týnast lieim.
En hvað skeði? Síðari hálfleik-
urinn var stórkostiegur hjá ís-
lenzka landsliðinu og Sigríður Sig
urðardóttir fyrirliði, var í essinu
sínu. Hægt og sígandi var sax-
að á forskotið, án þess, að danska
lok, kváðu við fagnaðarhróp | vörnin fengi við nokkuð ráðið og
áhorfenda jafnt sem keppenda
okkar. Góð byrjun — og stór sig-
ur og eftir jafntefli við Dani í síð
asta leik kvöldsins eygjum við
sigurmöguleika, þrátt fyrir leikni
norsku stúlknanna.
Allar léku stúlkurnar sæmilega
í þessum leik, en Sigríður var
þó áberandi bezt, og Rut í mark-
inu átti einnig prýðilegan lejk.
lítið stoðaði, þótt hinn snjalli
danski markvörður, Vivi Jörgen-
sen, gerði margt laglegt. Sigur-
lína skoraði 3:6 með glæsilegu
skoti af línu, sem small í stöng
og inn. Sigríður skoraði 4:6 með
föstu skoti úr víti. Þá var komið
að dönsku stúlkunum að svara og
Lise Kock skoraði- 7. mark Dan-
merkur, en þá voru liðnar 11. mín.
íslenzku stúlkurnar fagna sigrin um yfir Svíum,
Ljósmynd Tíminn, GE.
af síðari hálfleik. Sylvía Hallsteins
dóttir svaraði þessu marki nær
strax með föstu skoti, sem hafn
aði efst í blá horni danska marks-
ins hægra megin.
Og rétt á eftir bætir Sigríður 6.
markinu við úr víti. Staðan var
7:6 fyrir Danmörk, aðeins eitt
mark skildi á milli. Og nú risu á-
horfendUr í stúkunni á Laugardals
vellinum úr sætum og hrópuðu
áfram ísland. Og þetta var hvatn
ing fyrir íslenzku stúlkurnar. Sig-
ríður Sigurðardóttir jafnar á 15.
min með glæsilegasta marki leiks-
ins, skaut fast rétt fyrir utan teig
og knötturinn fór í stöng og
inn. Og aðeins tnínútu síðar er
Sigríður aftur á ferð og nú skorar
hún 8. mark íslands með snöggu
lágskoti, sem danska markverðin-
um var ómögulegt að verja. Þetta
var ótrúlegt, fsland var yfir, 8:7.
Líklega hefði orðið um íslenzkan
sigur að ræða, hefði það óhapp
ekki hent íslenzka liðið, að Ásu
Jörgensdóttur var vísað af Ieik-
velli í 2 mín. á 17. mín. Nú voru
íslenzku stúlkurnar sex á móti sjö
dönskum, en þær börðust hetju-
lega. Samt tókst þeim ekki að
hindra, að Lise Milfælsen skoraði
jöfnunaimark Danmerkur, 8:8. Og
það var jafnframt síðasta mark
leiksins.
Jafntefli í þesum leik tel ég
mikinn sigur fyrir íslenzka liðið,
sem átti erfiðan dag. Það var vel
af sér vikið að jafna fjögurra
marka forskot Danmerkur — og
komast r>-u marki ýfir. Það vant-
aði sannarlega ekki baráttuvilj-
an hjá íslenzka liðinu og það voru
þreyttar stúlkur, sem yfirgáfu leik
vanginn.
Sigríður Sigurðardóttir var lang
bezt í íslenzka liðinu og hún átti
stærsta þáttinn í því að jafna hið
stóra bil, sem var í hálfleik. Sig-
ríður skoraði sex af átta mörkun-
um, en þar af voru þrjú úr víta-
köstum. Sylvía og Sigurlína voru
einnig góðar og raunar átti eng-
in slæman dag. Línuspili var
óspart beitt, en það sem kannski
mest mátti finna að hjá liðinu,
var óþarfa fljótfærni.
Danska liðið var nokkuð jafnt,
en þó var markvörðurinn, Vivi
Jörgensen, undantekning. Hún
varði mjög vel og bjargaði oft
meistaralega.
Dómari var Svíinn Carlson og
var ég ekki ánægður með hann
að öllu leyti. Veika hlið hans voru
skrefín, sem oft voru fleiri en
þrjú — já, fleiri en fjögur. — alf.
T í M I N N, laugardagur 27. júní 1964.
s